Dagblaðið - 01.12.1980, Síða 2

Dagblaðið - 01.12.1980, Síða 2
2 ✓ DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 1980. Kennslu hárgreiðslu- nema er ábótavant Hárgreiðslusveinn skrifar: Hárgreiðslufólk! Stöndum saman um þá kröfu að verkleg fagkennsla í iðngreininni verði bætt! Mörgu er ábótavant eins og fjölmargar óánægjuraddir benda til. Við ættum að hætta þessum læðu- pokahætti og ganga hreint til verks við að bæta það sem miður fer. Engin stór heild hefur gott af því aö gerjast innan um lokaða veggi án nokkurrar utanaðkomandi gagnrýni. Mér finnst tímabært að umræðu- nefnd verði skipuð til að athuga málið og koma á nauðsynlegum breytingum, m.a. á kennsluáhöldum. Betra er seint en aldrei. íbúi á Djúpavogi segir að enginn mjólkurkælir sé f kaupfélaginu á staðnum. Bágboríð vöruúrval — íkaupfélaginu á Djúpavogi NÝTT! Nýju hlaðskáparnir húsgögnum heita ALFA Berið saman verð oggæði Munið okkar hagstæðu greiðslukjör Veijið íslenzkt JSb HÚSGÖGN Miklu máli skiptir að rikisstjórnin reyni að ná samkomulagi við aðila vinnu- markaðarins áður en til efnahagsaðgerða kemur, segir Guðmundur Karl Jónsson vcrkamaður. DB-mynd: Bj. Bj. Mörgu er ábótavant f hárgreiðslu- deildinni, segir hárgreiðslusveinn. Óánægður fbúi á Djúpavogi hringdi: I síðustu viku var í Tímanum viðtal við kaupfélagsstjórann okkar hér á Djúpavogi, og lætur hann nokkuð vel af sér og taldi Kaupfélagið standa sig það vel í vöruframboði að íbúar staðarins þyrftu ekki að leita annað til að verzla. Hér finnst mér skjóta dálítið skökku við hjá kaupfélagsstjóranum. Undanfarna daga hafa hvorki verið til sígarettur né eldspýtur í verzl- uninni. Venjan er sú að sígarettur eru til eina vikuna, en síðan er allt upp- selt þá næstu. Kaffi og strásykur hefur ekki veriö til undanfarna daga. Eitthvað sem heitir byggingavörur þýðir ekki að spyrja um. Mjólkursala er kapituli út af fyrir sig. Mjólkin sem pökkuð er í poka liggur i kössum á gólfinu í yfir 20 stiga hita, mjólkur- kælir er enginn. Mjólkinni er pakkað hér á Djúpavogi og er nýmjólkinni pakkað i poka sem heita undanrenna. Á tímabili var mjólkinni pakkað i danskar pakkningar. Vegna þessa bágborna ástands í verzlunarmálum verðum við að leita út fyrir staðinn, og þá aðallega til Hornafjarðár, en þangað eru 112 kílómetrar út fyrir Hvalnes. Það sem bjargar okkur er að leiöinni er haldið opinni að minnsta kosti tvisvar til þrisvar i viku. Annars værum við illa staddir ef við þyrftum að reiða okkur á vöruframboð kaupfélagsins. Hjörtur Guðmundsson kaupfélags- stjóri á Djúpavogi sagði að vissulega mætti finna að mörgu en þeir reyndu að gera sitt bezta. Sagði hann kaup- félagið ekki of fjáð frekar en dreif- býlisverzlunina almennt og því væru þeir neyddir til að hafa lagerinn eins lítinn og hægt væri. Óregla í flutning- um orsakaði einnig oft vöruskort. Skýringuna á tóbaksleysinu sagði Hjörtur vera þá að nýlega hefði flutningur á eldspýtum verið stöðvaður með flugi án þess að þeir hefðu verið látnir vita. Vörur frá ÁTVR urðu því að koma landleiðina og því nokkuð seinna á ferðinni. Hjörtur kaupfélagsstjóri sagði að aldrei hefði verið kvartað undan mjólkinni. Þvert á móti hefðu að- komumenn hrósað henni en því væri ekki að leyna að geymsluaðferðin væri ekki i fullkomnasta lagi. Mjólk- in væri hins vegar aldrei látin standa lengi. Ætti kaupfélagið sjálft nýja pökkunarvél sem væri skínandi góð. Einstaka sinnum hefði það komið fyrir að réttar umbúðir vantaði og því hefðu þeir gripið til þess ráðs að nota aðrar umbúðir frekar en engar. Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími73100 SKÁLAHILLUSKILVEGGINN ER ENNÞÁ HÆGT AÐ AFGREIÐA FYRIR JÓL ÆTLAR FRAMSÓKN í VETRARKOSNINGAR? v — ríkisstjórnin ætti ekki að stjórna íandstöðu við verkalýðinn Guðmundur Karl Jónsson verkamað- ur, Akureyri, skrifar: Ritstjóri Vísis hefur lengi verið þekktur fyrir æsiskrif sin þegar hann reynir að segja þjóðinni álit sitt á íslenzkum verkalýð eftir að kjara- samningar voru undirritaðir 26. októbersl. Þessi æsiskrif Vísis hefna sín á rit- stjóra blaðsins þegar stuðningsmenn verkalýðshreyfingarinnar láta í ljós fyrirlitningu sína á honum. Þegar Ell- ert B. Schram segir i ritstjórnarpistli sínum 15. nóvember sl. að eflaust sé óhjákvæmilegt að skerða launaverð- bætur jafnt sem verðlagshækkanir, vexti, skatta og aðra þætti efnahags- mála, þá spyr ég ritstjórann hvort slíkt eigi Jíka að gilda um laun al- þingismanna? Telur ritstjóri Vísis að það yrði til fyrirmyndar ef alþingis- menn reyndu að ganga á undan með góðu fordæmi? Nú veit Ellert B. Schram það ósköp vel hvers vegna Geirsliðið í Sjálfstæðisflokknum og fulltrúar Vinnuveitendasambandsins leggjast gegn því að stjórnvöld skeri niður allar verðlagshækkanir, að þak verði sett á hæstu launin og hitt að lægstu launin hækki. Þetta er það sem ríkisstjórn Geirs Hallgrimssonar kærði sig ekki um þau fjögur ár sem hún notaði tækifærið til að magna ófriðinn á vinnumarkaðinum. Núna segir Guðmundur G. Þórar- insson í kjallaragrein Dagblaðsins 22. nóvember sl. að þörf sé á efnahags- aðgerðum eða Framsóknarflokkur- inn fari úr stjórninni. I framhaldi af þessu spyr ég hvort það eigi aftur að steypa þjóðinni út í kosningar í svart- asta skammdeginu eins og Alþýðu- flokkurinn gerði á síðasta ári? Ég trúi því ekki að framsóknarmenn vilji rjúfa þetta stjórnarsamstarf, því þeir skömmuðu Alþýðuflokkinn fyrir slíkt sem eðlilegt var. Ég er þvi fylgj- andi að núverandi ríkisstjórn fari frá völdum ef hún reynir á einhvern hátt að stjórna í andstöðu við verkalýðjnn eins og ríkisstjórn Geirs Hallgríms- sonar gerði á sínum tíma. Með slíkum vinnubrögðum flýtti hún fyrir falli sínu þegar verkalýðs- hreyfingin sagði álit sitt á henni. Miklu máli skiptir að núverandi ríkis- stjórn reyni að ná samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins áður en til efnahagsaðgerða kemur svo að hægt verði að komast hjá verkföilum. Fyrr eða síðar hlýtur verkalýðshreyfingin að krefjast styttingu vinnuvikunnar í 40 stundir svo að hægt verði að minnka vinnuálagið sem hefur verið meira en góðu hófi gegnir. Nú hlýtur að verða óhjákvæmilegt að stöðva erlendar lántökur ef það á að vera hægt að komast hjá enn meira hættuástandi í efnahagsmálum heldur en orðið er. Það hlýtur að vera nóg sem fyrir er þó að fleiri erlendar lántökur bætist ekki við. Að lokum vil ég skora á alla stjórnarflokkana að fara ekki út í kosningar á óheppilegum tíma eins og Alþýðuflokkurinn gerði fyrir ári.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.