Dagblaðið - 18.12.1980, Page 9

Dagblaðið - 18.12.1980, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980. 0 Erlent Erlent Erlent Erlent I Sovétmenn snúa þróun við í jafnréttismálum kynjanna: Konumar reknar heim af atvinnumarkaðinum —eiga nú að einbeita sér að því að f jölga sovézku þjóðinni Castro sendir Reagantóninn Fidel Castro, leiðtogi Kúbumanna, sendi Ronald Reagan nýkjörnum Bandarikjaforseta tóninn i ræðu sinni við upphaf aðalþings kommúnista- flokks Kúbu, sem hófst í gær. Hann sagði að öfgasinnaðir hægrimenn hefðu nú komizt til valda ,,í landi öflugustu heimsvaldasinnanna”. Hann sagði að Kúba mundi aldrei gefast upp ef Bandaríkjamenn réðust á eyjuna, og fékk að launum mikið klapp þingfull- trúa. í kosningabaráttu sinni lýsti Reagan því yfir að hafnbann á Kúbu væri hugsanlegt svar Bandaríkjanna við íhlutun Sovétrikjanna í öðrum heimshlutum. Keypti hús handa Glistrup Hópur fólks í Framfaraflokknum danska hefur ráðizt i að kaupa heiðurs- bústað handa leiðtoga sínum Mogens Glistrup i Sorgenfri fyrir norðan Kaup- mannahöfn. Kaupverð hússins var 160 milljónir íslenzkra króna. „Við viljum koma í veg fyrir að Glistrupfjölskyldan búi við þær aðstæður að fógetinn heimsæki hana annan hvern dag,” segir Leif Glens- gaard, þingmaður flokksins. „Við viljum lika heiðra þann mann sem með sínu pólitíska starfi hefur lagt sig fram um að bæta samfélag okkar,” sagði Glensgaard. Skattayfirvöld hafa nú gert lögtak í heimili Glistrups vegna vangreiddra skatta hans og kemur þessi ákvörðun flokksfélaga hans í kjölfar þeirra at- burða. Haig verður yfirheyrður um Vietnam ogWatergate Ronald Reagan sagði í gær að hann stæði við hina umdeildu útnefningu sína á Alexander Haig í embætti utan- ríkisráðherra og kvaðst þess fullviss að Bandaríkjaþing mundi staðfesta hana. Ýmsir leiðtogar demókrata hafa lagzt mjög gegn útnefningu Haigs vegna embættis hans í Hvíta húsinu á tímum Watergatehneykslisins. Þeir hafa lýst því yfþ að farið verði ofan í saumana á Watergatemálinu við rann- sókn þingsins á fortíð Haigs, sem hefst 9. janúar næstkomandi. ,,Ég ber fyllsta traust til hans,” sagði Reagan í gær við fréttamenn aðspurður um Haig. Alan Cranston, öldungadeildarþingmaður frá Kaliforníu úr flokki demókrata, sagði í gær: „Mér ber skylda til þess samkvæmt stjórnarskránni að ýfa upp gömul sár þar sem Haig gegndi þýð- ingarmiklu embætti á tímum Water- gatehneykslisins og Vietnamstríðsins.” Á sama tíma og hlutdeild kvenna í atvinnulifinu fer stöðugt vaxandi á Vesturlöndum eru Sovétmenn að gefast upp á þeirri skipan mála, og frá og með 1. janúar næstkomandi ganga í gildi ný lög þar i landi, sem banna konum að vinna við alls 460 starfsgreinar. Það eru einkum þau Pravda, málgagn sovézka kommún- istaflokksins, sakaði í gær Atlantshafs- bandalagið um að hafa ekki í heiðri viðteknar venjur í samskiptum þjóða. í blaðinu sagði meðal annars: „Leiðtog- ar Nató-ríkjanna hafa ekki farið dult með að þeir yrðu mjög ánægðir ef þró- un mála í Póllandi yrði með þeim hætti.að ríkisstjórn landsins og komm- störf sem á Vesturlöndum hafa lengst af verið talin karlmannsstörf, sem sovézkar konur eiga nú að hætta í. Hinum nýju lögum er ætlað að verða til þess, að fæðingum fjölgi á ný í Sovétrikjunum. Sovézkum konum er með öðrum orðum ætlað að sinna í ríkara mæli en áður sinum únistaflokkurinn réðu ekki lengur við ástandið og ringulreið og stjórnleysi héldi þar innreið sína.” Þá itrekaði Pravda að Pólland „var, er og verður traustur hlekkur i fjölskyldu sósíalskra ríkja.” Blaðið sagði að ráðherrar Nató-ríkj- anna, sem komu saman til fundar í síð- ustu viku, heföu lagt sig fram um að jákvæðu hjúskaparskyldum og ráða- menn vona síðan að það verði til þess, að fjölgun þjóðarinnar verði viðunandi á nýjan leik. Leonid Sharikov, sérfræðingur í vinnumálum Sovétríkjanna segir: „Ég hef oft furðað mig á því, hvers bera út óhróður um Sovétríkin og fyrir- ætlanir þeirra. Pravda sagði að ýmsir leiðtogar Nató væru nú reiðubúnir til að hlutast til um innanríkismál Pól- lands á annan hátt en þeir hefðu gert áður. Blaðið varaði við slikri íhlutun og sagði að ef Nató-ríkin hefðu áhuga á slökunarstefnunni ættu þau að einbeita sér að viðræðum um afvopnunarmál. konar störf konur okkar eru tilbúnar að taka að sér. Oft hreinlega gapi ég af undrun. ” Á þessu verður nú breyt- ing og sovézkar konur munu í fram- tíðinni einkum sinna þeim störfum sem löngum hafa verið talin henta kvenfólkinu svo og þeim skyldum sem náttúran ætlar þeim. Gíslamáliðy Svars írans beðið með eftirvæntingu Embættismenn Teheranstjórnarinn- ar hafa varað við bjartsýni um að hægt verði að láta gíslana 52, sem verið hafa i haldi í Iran í þrettán mánuði, lausa fyrir jól. Slík bjartsýni kom í kjölfar yfirlýsingar Irana um að gíslarnir yrðu afhentir fyrir jól ef Bandaríkjamenn legðu fram tryggingar fyrir því að fjár- munir þeir sem Iransstjórn hefur krafizt í skiptum fyrir gíslana yrðu reiddir af hendi. Muskie utanrikisráðherra Bandaríkj- anna sagði að möguleikar væru á að gíslarnir yrðu látnir lausir innan tíðar. „En meðan við vitum ekki um smá- atriði í afstöðu þeirra nú vitum við ekki hvort þeir krefjast þess að við göngum lengra en við getum gengið,” sagði Muskie. Einn af æðstu klerkum í íran, Ayatollah Mohammed Beheshtei, sagði í gær að nú væri ekki lengur spurning hvort gíslarnir yrðu látnir lausir heldur hvenær það yrði. Nú er beðið með mikilli eftirvænt- ingu eftir nýjasta svari íransstjórnar við síðasta tilboði Bandaríkjamanna. Alsírmenn, sem hafa verið milligöngu- menn í málinu, gátu ekki í gær upplýst hvenær svar íransstjórnar bærist. Erlendar fréttir V / Breyttir tímar í Beijing Á myndinni hér að ofan eru fjórir þeirra manna, sem fjórmenningaklikan svonefnda er sökuð um að hafa ofsótt á tfmum menningarbyltingarinnar i Kina. Þeir eru frá vinstri Deng Xiaoping, Zhou Enlai, Zhu De og Chen Yi. Myndin er tekin i júli 1965. Nú eru hins vegar breyttir tlmar i Klna og Deng Xiaoping er óumdeilanlega valdamesti maður i Kína. Nú er réttur við hlutur þeirra sem urðu fórnarlömb fjórmenningaklfkunnar en þeir sem stóðu f einhverju samstarfi við fjór- menningana eiga ekki upp á pallborðið hjá núverandi valdhöfum landsins. Þannig er fullvfst talið að Hua Guofeng, núver- andi formaður kínverska kommúnistaflokksins, verði hrakinn frá völdum á flokksþinginu i næsta mánuði. Raunar hafa þær fréttir borizt frá Kina að hann hafi þegar játað á sig stórfelld mistök i starfi og sagzt reiðubúinn að segja af sér. Sovétmenn vara Nató-ríkin við afskiptum af Póllandi — Pólland var, er og verður traustur hlekkur í Varsjárbanda- laginu, segirPravda HERERBOKIN! Ásgeir Jakobsson: GRÍMS SAGA TROLLARASKÁLDS „Sagan segir frá því sem Grímur reynir á togurunum á stríðs- árunum og þar er allt á sínum stað: lífsháskinn, hjátrúin, veðurhörkur, manntjón, slagsmál, rosalegar uppákomur og tilsvör, fyllerí og kvennafar... Þessi „sjómannabók" fer í hinn betri flokkinn." — Árni Bergmann, Þjóðviljinn. LOKSINS SJÓMANNABÓK, SEM SELTUBRAGÐ ER AF! SKUGGSJA BÓKABÚÐ OL/VERS STEINS SF „Saga Gríms trollaraskálds er afbragðsvel rituð, sögð á lifandi og kjarngóðu sjómannamáli... saga sem allir ættu að lesa... Þessi bók er tvímælalaust merkust og íslenskust þeirra nýju skáldsagna sem ég hef lesið í vetur.“ — Jón Þ. Þór, Tímanum. „Mér var sannarlega oft dillað við lestur sögunnar... Þar er lífinu, veiðunum og lífshættunni á togurunum lýst af meiri þekkingu og glöggskyggni en nokkur hefur gert áður... Mér dettur í hug að einhvern tíma gerist það, að ungur og metnaðar- gjarn íslenskur fræðimaður — eða jafnvel breskur — grípi þessa bók feginshendi sem tilvalið efni í doktorsritgerð." — Guðm. G. Hagalín, Morgunblaðinu.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.