Dagblaðið - 18.12.1980, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 18.12.1980, Blaðsíða 20
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980. 20 I Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir I Öruggur sigur ÍBKáUMFG Keflavík sigraði Grindavik 84-72 i 1. delldinni i körfuknaUleik i Keflavík í gaerkvöld efttr pð hafa leitt 42-37 i hálf- leik. Jafnrœði var framan af með liðunum og fyrst i siðari hálfleiknum komst Grindavík i 52-50. Þá' settu heimamenn allt i botn, skoruðu 20 stig gegn 6 á skömmum tima, og komust i 70-58. Sá munur dugði þeim til loka og öruggur sigur var i höfn. Fyrir Keflavik skoraði Terry Read 30 stig, Axel Nikulásson 20 og Jón Kr. Gislason 9, en fyrir UMFG Don Frasc- ella 30 og Eyjólfur Guðlaugsson 18. - emm Hagnaðurinn tæpar 13 milljónir Að sögn Júliusar Hafstein, formanns HSÍ, varð hagnaður af heimsókn V- Þjóðverja hingað til lands rétt tæpar 13 milljónlr og voru þær vafalitið vel þegnar þvi fjárhagur sambandsins var bágborinn en virðist nú heldur vera að lagast. Á mánudag voru þeir fþróttaménn heiðraðir er Iþróttablaðið og ÍSl töldu bezta hvern i sinni grein. Var öllum boðið til hófs að Loftleiðum og á myndinni að ofan eru eftirtaldir: Aftari röð f.v. Björn Þór Ólafsson, skiði, Gunnlaugur Jónasson, siglingar, Hannes Eyvindsson, golf, Bjarni Friðriksson, júdó, Óskar Jakobsson, frjálsar fþróttir, Torfi Magnússon, körfuknattieikur, Leifur Harðarson, blak, Páll Björgvinsson, handknattleikur, Karl Óskarsson, skotfimi, og Ingi Þór Jóns- son, sund. Fremri röð f.v. Kristfn Magnúsdóttir, badminton, Áslaug Óskarsdótt- ir, fimleikar, Sigurrós Karlsdóttir, fþróttafélag fatlaðra, Ragnhildur Sigurðar- dóttir, borðtennis, og Skúli Óskarsson, lyftingar. DB-mynd Sigurður Þorri. Grasvöllur Vals vígður næsta sumar: Með leik íslenzku atvinnu Enn eitt jafntefli IR ÍR-ingum kann að veitast erfitt að ná sæti sinu i 1. deildinn! aftur þvi llðið gerði sátt fjórða Jafntefli i 2. deUdlnni i gærkvöld, 21-21, gegn Ármanni. Valencia vann stórbikarinn Valencia vann i gærkvöld stórbikar Evrópu (Supercup) með þvi að leggja Nottingham Forest að velll, 1-0, á heimavelli sinum að vlðstöddum 40.000 áhorfendum. Það var Morena sem skoraði eina mark lelksins eftir að hafa komizt inn i sendingu frá Raimondo Ponte og teklð 60 metra sprett. Lyfti Morena knettinum yflr Shilton en hann hafnaði i þverslánni. Honum urðu hins vegar engin mlstök á i annarri tilraun. Trevor Francis lék með Forest i gær og átti stórleik. Lelkur liðanna var allan timann ákaf- lega jafn, utan i byrjun er ÍR komst i 4- 0. Ármann leiddi i hálfleik 13-12, en ÍR tókst að jafna metin f lok leiksins með vitakasti Guðmundar Þórðarsonar, sem varð jafnframt markahæstl leik- maður ÍR i lelknum með 7 mörk — þai af 3 úr vitum. BJarni Bessason skoraði 6 mörk, Ásgelr 3, Brynjólfur 2 og þeii Ársæll, Guðjón og Slgurður 1 hver. Fyrlr Ármann skoruðu: Óskar 7, Einai 4, Björn 4, Jón og Frlðrik 2 hvor Kristlnn og Haukur 1 hvor. ísrael steinlá Portúgalir sigruðu Ísraela 3-0 i 6. riðli Evrópu fyrir heimsmelstarkeppn- ina á Spáni 1982 og tóku þar með for- ustu f riðlinum. Fyrirliðinn, Coelho, skoraði tvivegis en hann lék nú i lands- liðinu eftir nokkurt hlé. Jordao skoraði þriðja mark Portúgals. Knattspyrnufélagið Valur verður sjötfu ára næsta vor. Stofnað i mai 1911 fyrir áeggjan séra Friðriks Frið- rikssonar, hins mikla leiðtoga KFUM. I mannanna gegn Valsmönnum I tilefni afmælisins munu Vals- menn efna til ýmissa íþróttamóta í hinum einstöku íþróttagreinum, sem iðkaðar eru i félaginu. Þá verður nýi grasvöllurinn á Hlfðarendasvæðinu vigður, sennilega í júni. DB hefur frétt að i vigsluleikn- um muni Valur leika við úrvalshð, sem skipað verður helztu atvinnu- mönnum okkar i knattspyrnunni eins og Ásgeiri Sigurvinssyni, Janusi Guð- laugssyni, Teiti Þórðarsyni, Arnóri Guðjohnsen og Pétri Péturssyni svo nokkur nöfn séu nefnd og auðvitað Valsmönnunum Atla Eðvaldssyni og Magnúsi Bergs. Það fylgir líka frétt- inni að þessir leikmenn muni koma' með einn til tvo þekkta leikmenn úr þeim liðum, sem þeir leika með. Það gæti svo farið, að með úrvalsliöinu — islenzku atvinnumönnunum — lékju leikmenn eins og Ralf Edström, Standard, Lato eða Lubanski, Loker- en, Flemming Nielsen, Fortuna Köln, Jan Peters, Feyenoord og Burgs- mílUer, Borussia Dortmund. Jafnvel einhverjir fleiri þekktir leikmenn. - hsim. Einar og Þorbjöm ílandsliðið Hilmar Björnsson hefur ákveðið að þeir Einar Þorvarðarson, markvörður- inn snjalli úr HK, og Þorbjöm Guð- mundsson úr Val séu þelr menn sem hann þarf fyrir leikina gegn Belgum um helgina. Þeir léku báðir með pressulið- inu gegn landsliðinu f sigri þess fyrr- nefnda á Selfossl á þriðjudag. Undir- búningur landsliðsins stendur nú sem hæst fyrir lelkina en sfðan verður gert örstutt hlé rétt fyrir jólahátfðina en svo tekið tll við á fullu á ný. -SSv. Fundi f restað Aðalfundi knattspyrnudeildar Vik- ings, sem vera átti f kvöld, hefur verið frestað af óvlðráðanlegum orsökum. Sigurlið Fram aó leiknum loknum f gær. Á litlu innfelldu myndinni afhendir Hákon Bjarnason Oddnýju Sigsteinsdóttur sigurlaunin. DB-myndir S. Ásgeir Sigurvinsson Enn einn sigur Fram sigraöi Val 15-12 í úrslitum Reykjavíkurmótsins í gærkvöld Framstúlkurnar urðu i gærkvöld Reykjavikurmelstarar i meistaraflokki kvenna i handknattleik er þær lögðu stöllur sinar frá Hlfðarenda að velli 15- 12 f hörkuleik f Höllinni. Fram hafði alltaf undirtökin í leikn- um og í hálfleik var staðan 10-7 þeim í vil. Valsdömurnar mættu ákveðnar til leiks f siðari hálfleik og Harpa Guð- mundsdóttir var í miklu stuði. Tókst Val að minnka muninn niður í eitt mark, 10-11, en nær komust þær ekki. Fram seig fram úr á ný og sigraði örugglega. Mörkin: Fram: Guðriður Guðjóns- dóttir, 7, Oddný Sigsteinsdóttir 3, Jóhanna Halldórsdóttir 2, Margrét Blöndal 2, Sigrún Blomsterberg 1. Valur: Harpa Guðmundsdóttir 8, Sigrún Bergmundsdóttir 2, Marin Jóns- dóttir 1 og Erna Lúðvíksdóttir 1. - SSv. Burridge tilQPR Útsalan hjá Palace heldur áfram. í gærkvöld keypti Terry Venables John Burridge, markvörðinn sterka hjá Palace, fyrir 250.000 pund og hefur nú keypt 3 leikmenn frá Alkison til QPR á skömmum tíma. Þá bauð Venables John Bond 50.000 pund i varamark- vörð City, Keith McRae, en fékk neitun.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.