Dagblaðið - 18.12.1980, Síða 21

Dagblaðið - 18.12.1980, Síða 21
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980. 21 Eigendur Bakarameistarans í mál við bæjarstjórann á Seltjarnamesi: Vörumarkaðurinn vildi bakarísplássið líka — í nýja miðbænum á Seltjarnarnesi „Það eru liðin tvö ár síðan Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri á Seltjarnarnesi gaf okkur loforð fyrir lóð í nýja mið- bænum á Nesinu undir bakarí. Allt okkar samband við bæjaryfirvöld á Nesinu fór fram í gegnum Sigurgeir. Við töldum að hann væri heiðarlegur maður og að takandi væri mark á orðum hans,” sagði Jóhannes Björns- son bakari og ánnar eigandi Bakara- meistarans í Suðurveri. „Við höfum farið tvisvar utan, bæði til að láta teikna fyrir okkur nýja bakaríið og eins til að kynna okkur nýtizku vélar. Þetta vissi bæjarstjór- inn, þvi við fórum til hans áður en við fórum i seinni ferðina. Síðan fréttum við það út í bæ að Vörumarkaðurinn hafi fengið úthlutað fyrir bakarii. Þetta var að sjálfsögðu eins og köld vatns- gusa framan í okkur. Núna erum við í þröngu húsnæði og höfðum byggt okkur framtíðarplan upp á nýja húsnæðinu m.a. með breyttri og aukinni framleiðslu. Við töluðum að sjálfsögðu um þetta við Sigurgeir sem fór undan í flæmingi og sagði að Vörumarkaðurinn hefði sett þau skilyrði að fá allt plássið. Mér finnst það undarlegt þegar heilt bæjar- félag lætur bissnissmann úti i bæ setja sig upp við vegg. Ég er eini bakarameistarinn sem búsettur er á Seltjarnarnesi og það er hart að það skuli gengið fram hjá mér fyrir ófaglærðan mann í þessari grein,” sagði Jóhannes Björnsson. „Mér finnst það anzi hart þegar æðsti maðurinn í bæjarfélaginu leikur sér með eldinn, en það hefur Sigurgeir gert með því að draga okkur á asnaeyrunum allan þennan tíma. Inn í þetta mál spilar óþarfa pólitík. Við höfum verið að gæla við þá hugmynd að fara í mál við bæjarstjórann vegna þessa og fá í lið með okkur lögfræðing Landssambands bakarameistara. Ég hef þekkt Sigurgeir lengi og mér finnst leiðinlegt að hann skuli vera ómerkilegur, en við eigum eftir að heilsa upp á hann og óska honum gleðilegra jóla. ” -ELA. MargfÖld metsölubók um flótta úr þrælabúðum nazista i Noregi. Sannar frásagnir af hetju- dáðum, mannraunum og ógn- vekjandi atburðum. Kossar hans kveiktu eld í blóði hennar. En var hann morðingi? Hvers vegna óttaðist hún manninn sem hún elskaði? Æsispennandi njósnasaga. Brjálaður byssumaður hélt Miskunnarlaus og grípandi. 100 manns í gíslingu. FRANCIS CLIFFORD HÖRPUÚTGÁFAN STEKKJARHOLT 8--10 - SÍMI93-1540 300 AKRANES - ÍSLAND JÓLASALA A LÆKJART0RGI TIL STYRKTAR GEÐSJÚKUM Félagið Geðhjálp verður með úti- sölu á Lækjartorgi nk. föstudag frá 10 til 18, þar sem seldar verða bækur, heimabakaðar smákökur og jóla- skreytingar. Á fimmtudagskvöld munu félagsmenn hittast í húsakynn- um hinnar nýju geðdeildar Landspít- alans, III. hæð, til að búa til jóla- skreytingarnar. Þeir veiunnarar félagsins sem vilja leggja fram liö sitt eru beðnir að koma þangað, hvort sem þeir kjósa heldur að klippa jólaskraut eða koma með kökur eða aðra söluvöru. Allur ágóði af útisölunni rennur að sjálf- sögðu til baráttunnar fyrir málefnum geðsjúkra og eflaust munu margir líta við á söluborði Geðhjálpar á Lækjar- torgi á föstudaginn. -IHH CASIQ BYLTING í ÚRA-FRAMLEIÐSLU iSvona eða svona SAMA ÚRIÐ MEÐ TVÖ ANDLIT AA81 býður upp á: K/ukkutíma>, mín., sek., mánaðardag, vikudag. Sjá/fvirka dagatalsleiðréttingu um mánaðamót. Að hægt sé að hafa tvo tima samtimis. Niðurteljara frá 1. mín. tilklst Vekjara. Hljóðmerki á háifum og heilum tima. Rafhlöðu sem endist i ca. 18 mánuði. Árs ábyrgð og viðgerðarþjónustu. Er högghelt og vatnshelt M—1200 býður upp á: Klukkutíma, mín., sek. Mánuð, mánaðardag, vikudag. Vekjara með nýju lagi alla daga vikunnar. Sjálfvirka dagatalsleiðréttingu um mánaðamót Bæði 12 og 24 tíma kerfið. Hljóðmerki á klukkutíma fresti með „Big Ben " tón. Dagatalsminni með afmælislagi. Dagatalsminni með jólalagi. Niðurteljara frá 1 min. til klst. og hringir þegar hún endar á núlli. Gkr. 96.700.- Nýkr. 967,00.- CASIO verfl á úrum er frá gkr. 39.950 til 96.700. CASIO vasatölvur frá gkr. 18.900 BANKASTRÆTI8 SÍMI27510 CASIO-UMBOÐIÐ • Skeiðklukku með millitíma. • Rafhlöðu sem endist í ca. 2 ár. • Árs ábyrgð og viðgerðarþjón- ustu. • Br högghelt og vatnshelt. G.kr. 96.700.- Nýkr. 967,00.- MORTH ; SIAR Teg. 3459 Ljósbrúnir fóðraðir kuldaskór úr leðri. Kr. 31.320. Teg. 3047 Ljósbrúnir og bláir/Hunting leður. Kr. 26.230.- STÆRÐIR 40-45 ALLAR GERÐIR MEÐ SLITSTERKUM STÚMUM SÓLUM. Teg. 5550 Rauðbrúnir fóðraðir kuldaskór úr leðri. Kr. 31.620. Teg. 3049 Brúnir leður kuldaskór, fóðraðir með ekta skinni og svampi. Kr. 31.860. A TH! Póstsendum einnig má gera margs konar önnur góð kaup, m.a. stökpörá tombóluverði. ÓDÝRISKÓKJALLARINN BARÓNSSTÍG 18. SÍMI23566.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.