Dagblaðið - 18.12.1980, Side 24
24
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980.
Gert er ráð fyrir minnkandi norðan-
átt um allt land, éljagangurinn norö-,
anlands mun fara mlnnkandi. Bjart
■ verður á Suðuriandi. í kvöJd þykknar
upp með vaxandi austanátt á 8uð-|
vesturiandi.
Klukkan 6 var norðnorðaustan 4,
léttskýjað og —8 stig ( ReykjavSt,
austan 6, skýjað og —8 stig á Gufu-
skálum, suðaustan 3, snjóél og -11
stig á Galtarvlta, norönorðvestan 6,
snjókoma og —10 stig á Akureyri,
noröan 8, snjókoma og —10 stig á
Raufarhöfn, norðnorðvostan 6, snjó-
koma og —8 stig á Dalatanga,
norðvestan 7, skýjað og —7 á Höfn
og norðan 7, léttskýjað og —6 stig á
Stórhöfða.
i Þórshöfn voru snjóél og 0 stig,
slydda og 1 stig í Kaupmannahöfn,
þokumóða og 6 stig i Osló, rigning og
2 stig ( Stokkhólmi, léttskýjað og 3
stig I London, slydda og 1 stig í Ham-
borg, léttskýjaö og 0 stig ( Madrid,
hálfskýjað og 12 stig ( Lissabon og I
■éttskýjaö og —4 stig (Now York. I
Andlát
Stjornmalafundir
Sjálfstœðisflokkurinn
— Kópavogur
Aðalfundur FUS Týr verður haldinn í kvöld kl. 20.30
i Sjálfstæðishúsinu i Kópavogi að Hamraborg l.
Dagskrá: Venjulegaðalfundarstörf.
Iþróttir
íslandsmótið í
körfuknattleik
Fimmtudagur 18. desembcr
Keflavík
lBK — UMFG I. deild kl. 20.
Iþróttahús Kennaraháskólans
lS — KR úrvalsdeild kl. 20.
ÍS — ÍR 1. deild kvenna kl. 21.30.
íslandsmótið
í handknattleik
Fimmtudagur 18. desember
Laugardalshöll
óðinn — Stjarnan 3. deild karla kl. 20.
Fram — 1A 2. fl. karla B kl. 21.15.
Valur — Vikingur 2. fl. karla B kl. 22.
TIKkynningar
íþróttafélag
fatlaðra, Reykjavík
Kalmann Slgurflsson frá Stað, sem lézt
5. nóvember sl., fæddist 8. nóvember
1904 að Junkaragerði í Höfnum. For-
eldrar hans voru Pálína Jónsdóttir og'
Sigurður Jónsson. Strax eftir ferminguj
fór Kalmann aö stunda sjóinn, fyrst
með föðúr sfnum en síðar á sínum
eigin bát. Árið 1931 kvæntist Kalmann
Ingunni Guðmundsdóttur, áttu þau 3
börn en misstu einn son ungan.
Þorvaldina Ólafsdóttir lézt 9. desember
í Landakotsspítala. Jarðarförin fór
fram í kyrrþey.
Bjarni Bjarnason frá Herjólfsstöðum í
Álftaveri, Rauðagerði 74, lézt á Landa-
kotsspítala 10. desember. Jarðarförin
fór fram í kyrrþey.
Elín Þorkelsdóttir, Freyjugötu 46
Reykjavík, lézt að heimili sínu 13.
desember sl. Jarðarförin fer fram
föstudaginn 19. desember kl. 15 frá
Fríkirkjunni í Reykjavík.
Jóhanna G. Tómasdóttir verðurl
jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstu-
daginn 19. desember kl. 14.
Björgvin Torfason, Eskihlíð 8a, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 19. desember kl. 13.30.
Ólafur B. Jónsson ráðunautur, Aðal-
stræti 3 Akureyri, lézt í sjúkrahúsinu
Akureyri 16. desember sl. Jaröarförin
fer fram frá Akureyrarkirkju mánu-
daginn 22. desember kl. 13.30.
Tónleikar
íslands þúsund ár
í kvöld, fimmtudaginn 18. des.. kl. 20.30 flytur Sin-
fóniuhljómsveit íslands og Söngsveitin Fílharmónia.
ásamt einsöngvurunum ólöfu K. Harðardóttur, Sól-
veigu Björling, Magnúsi Jónssyni og Kristni Halls
syni, Islands þúsund ár. Alþingishátíðarkantötu Björg
vins Guðmundssonar, undir stjórn Páls P. Pálssonar
og kórstjóra Debora Gold.
Hvetjum til þátttöku í forgjafarmóti KR i borötennis
28. desember. Tilkynnið þátttöku fyrir 24. desember.
Síðasta æfing i borðtennis fyrir jól verður 20. des
ember. Byrjum aftur 5. janúar 1981.
Jólatréssala
Slysavarnadcildin Ingólfur i Reykjavik gengst fyrir
jólatréssölu í Gróubúð, Grandagarði I og við
Síðumúla (hjá bókaútgáfu Arnarog Örlygsi.
Opið verður:
kl. 10—22 um helgar.
Kl. 17—22 virkadaga.
Á boðstólum eru jólalré, grcinar og skreylingar.
Viðskiptavinum er boðið upp á ókeypis geymslu á
trjánum og hcimsendingu á þcim tíma, sem þeir óska
eftir. Reykvikingar — styðjiðeigin björgunarsvcil.
Ekki áframhaldandi iðnaðar-
framleiðsla
Nú liggja fyrir niöurstöður úr könnun Landssam-
bands iðnaðarmanna og Félags íslenzkra iðnrekenda á
iðnaðarstarfseminni á 3. ársfjórðungi 1980. Sam-
kvæmt þeim var iðnaðarframleiðslan nú á 3. ársfjórð-
ungi ivið minni að vöxtum heldur en á 2. fjórðungi
þessa árs, cða sem nemur um 2,6%. Þennan samdrátt
má a.m.k. að hluta skýra sem árstiðarsveiflu. Ef hins
vegar er miöað við 3. ársfj. 1979 hefur framleiðslan
vaxið um u.þ.b. 8%. Þar er þó innifalin mikil aukning
álframleiðsfu, þannig að önnur iðnaðarframleiösla
hefur vaxið minna en þessari tölu nemur.
Því miður bendir ýmislegt til þess aðekki verði um
að ræða áframhaldandi aukningu í iðnaðarframlciöslu
á næstu misserum, a.m.k. ekki i.þeim mæli sem verið
hefur, þar sem af svörum í könnuninni virðist mega
ráða að framleiðsluminnkun í ýmsum greinum muni
að mestu vega upp á móti aukningu í öðrum. Þá eru
söluhorfur yfirleitt taldar slæmar og raunar þegar
farið að gæta sölutregðu í sumum greinum.
Ástandið i hinum ýmsu greinum iðnaðar virðist þó
hafa verið með nokkuðólíkum hætti á 3. ársfjórðungi
1980 eins og oft áður. Þannig var talsverður vöxtur í
bfauð- og kökugerð, matvaslaiðnaði, öl- og gosdrykkja-
gerð, prentiðnaði. málningargerð, álframleiðslu og
skipasmíði. Hins vegar dróst saman í prjónavörufram-
leiöslu, papplrsvöruiðnaði, kemiskum undirstöðuiðn-
aði, sápu- og þvottaefnagerð, málmsmíði og vélavið-
gerðum og plastvöruiðnaði.
Það vekur nokkurn ugg hversu slæmar sölu- og
framleiðsluhorfur eru almennt álitnar. Á þetta einnig
við um sumar þeirra greina þar sem framleiðsla hefur
vaxið að undanförnu, svo sem brauð og kökugerö.
málningargerð. álframleiðslu og skipasmíði.
Jólasveinar með Flugleiðum
til norðlenzkra barna
Þeir jólasvcinarnir Askasleikir og Stekkjastaur voru
ekki fyrr komnir til Reykjavíkur en þeir þágu boð
Flugleiða um að fljúga norður til Akureyrar og
skemmta börnum í bænum sem bíða nú jólanna í of-
væni. Bræðurnir voru á hráðri ferðað þessu sinni eins
og oftast áður og vildu þess vegna fyrst og fremst lita
inn á sjúkrahúsiö, vistheimilið Sólborg og dagheimilið
Pálmholt. Askasleikir, sem gjarnan kallar sig foringja
jólasveinanna. skemmti krökkunum meösöng og tralli
við undirlcik Stekkjastaurs. en hann spilar á
harmóniku.
Fyrir hönd Flugleiða færðu jólaveinamir stofnun-
unum nokkrar hljómplötur með jólalögum að gjöf frá
félaginu og krakkarnir fengu allir litprentaða vegg-
mynd af þeim bræðrum sjálfum að leggja upp í flug-
ferðina. mcð kveöju frá Flugleiðum og jólasveinun
um.
Alll útlit er fyrir að jólasveinar þiggi flugferð til ein-
hverra annarra áfangastaða Flugleiða nú fyrir jólin
eftir þvl sem veður og annrlki þeirra sjálfra leyfir.
Jólasveinarnir Askasleikir og Stekkjastaur heimsckja börn á Akureyri. Þeir bræður kvádust sérstaklega
ánægöir meó móttökurnar sem þeir fengu hjá þessum kátu krökkum fyrir norðan.
„Jólaalmanak sjónvarpsins”
Það leynir sér ekki ef horft er á
sjónvarpið að jólin nálgast óðfluga.
Auglýsingatímarnir eru yfirmáta
langir. Það má segja að auglýsinga-
tímarnir séu jólaalmanak sjónvarps-
áhorfandans. Þvínær sem dregur jól-
um þeim mun lengri verða auglýs-
ingatímarnir.
Á eftir fyrsta auglýsingatímanum
(og þeim lengsta) var Vaka. Þessir
tveir Vökuþættir sem fjallað hafa um
bókmenntir, hafa verið mjög vel
heppnaðir. Þeir eru skemmtilega
uppsettir og lifandi. Kona heitir
ítalskur framhaldsmyndaflokkur sem
er lítið skemmtilegur nema að því
leyti að hann er ekki á ensku eins og
flestir framhaldsþættir sjónvarpsins.
1 hljóðvarpi í gærkvöldi var stór-
skemmtilegur þáttur i tilefni fimmtíu
ára afmælis hljóðvarps. Vilhelm G.
Kristinsson talaði við gamlar útvarps-
kempur. Þáttur þessi var bæði fróð-
legur og skemmtilegur. Glatt var á
hjalla hjá þessum fyrrverandi starfs-
mönnum útvarpsins sem samanlagt
höfðu tvö hundruð vinnuár að baki.
Á þeim tímamótum sem Ríkisútvarp-
ið hljóðvarp gtendur nú væri ekki úr
vegi að gera upp við sig með hvaða
sniði dagskrá hljóðvarpsins á að
vera.
Ekki er nóg að útvarpa í stereo.
Dagskráin verður einnig að vera lif-
andi og höfða til meirihluta þeirra
sem'notið geta hljóðvarpsins. Smá-
vægilegar breytingar hafa verið
gerðar á dagskránni i vetur, en betur
má ef duga skal þvi nauðsynlegt er að
lyfta ögn þeim drunga af dagskránni
sem hvílt hefur á henni í mörg ár.
Vigdís og Heklugosið
aðalefni lceland Review
Embættistaka Vigdísar Finnbogadóttur, forseta
íslands, og Heklugosið í sumar, er aðalefnið i nýút-
komnu Iceland Review, síðasta hefti þessa árgangs.
sem er fjölbreytt og litskrúðugt að vanda.
Forsetakjörinu eru gerð skil i myndaseríu á átta
síðum þar scm brugöið er Ijósi á kosningabaráttuna.
úrslitin og loks embættistökuna i Alþingishúsinu.
Myndirnar eru allar eftir Gunnar Elisson. en texti
eftir ritstjórann.
Með grein um Heklugosið i sumar birtast fjöl-
margar litmyndir af gosinu og áhrifum þess — m.a. af
bændum, þegar þeir smöluðu fé af svæðunum, sem
urðu verst úti vegna öskufalls og vikurs. Fjölmargir
Ijósmyndarar lögðu sitt af mörkum. en greinina
skrifaði ritstjóri Iceland Review.
Þá skrifar Magnús Bjarnfreðsson um Strandar-
kirkju, myndir eru eftir Martyn Chillmaid — og
Magnús á þarna aðra grein: um Gunnarsholt og land-
græðslustarfiðsem þar er unnið. Fjöldi litmynda fylgir
báðum þessum greinum.
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur á þarna grein
um ýmsa gamla islenzka jólasiði, myndskreytta af
Eddu Sigurðardóttur. Grein er um aflakónginn í ár.
Sigurð Bjamason i Þorlákshöfn, og myndaseria frá
Listahátíð 1980. Litmyndasería af Akureyri i vetrar
skrúða eftir svissneskan Ijósmyndara, Max Schmid. og
margt annað efni er að finna i þessu siðasta hefti Ice
land Review. sem þar með lýkur 18. árgangi sinum.
Ritstjóri og útgefandi er Haraldur J. Hamar.
Skip Sambandsins
munu ferma til lslands á nasstunni sem hér segir:
ANTWF.RP: KAUPMANNAHOFN:
Arnarfell. . . . .... 22/I2 Hvassafell ..29/12
Arnarfell . . . , . . . 8/I ‘81 Hvassafell 14/1 ‘81
Arnarfell. . . . . . 22/l *8I Hvassafell 28/1 ‘81
ROTTERDAM: SVENDBORG:
Arnarfell.. . . .... 19/12 Hvassafell . . 26/12
Arnarfell. . . . , . . .7/1 ‘81 Disarfell 15/1 ‘81
Arnarfell. . . . . . 21/1 ‘81 Hvassafell 29/1 ‘81
GOOLF: Disarfell . 2/2 '81
Arnarfell. . . . ... 5/1 ‘81 HELSINKI:
Arnarfell. . .. , .. 19/1 ‘81 Disarfell . . 29/12
I.ARVÍK: Disarfell 26/1 ‘81
Hvassafell. . . . . .. 31/12 GLOUCESTER, MASS:
Hvassafell ... ,. . 12/1 ‘81 Skaftafcll .. 16/12
Hvassafell . .. , . . 26/1 '81 Skaftafell 21/1 ‘81
GAUTABORG: HALIFAX, KANADA:
Hvassafcll... ... . 30/12 Skaftafell . . 1812
Hvassafell . . . . . 13/1 ‘81 Skaftafcll 23/1 ‘81
Hvassafell . . . .. 27/8‘81
Junior Chamber,
Stykkishólmi
Þriðjudaginn 25. nóvember sl. var haldinn í Félags-
heimili Stykkishólms borgarafundur á vegum JC
Stykkishólmur og Stykkishólmshrepps. Fundarefnið
var: Efling brunavarna í Stykkishólmi, en þaðer verk-
efni, sem Byggöamálanefnd JC Stykkishólmur vinnur
að. Brunmálastjóri rikisins, Þórir Hilmarsson, og full-
trúi brunamálastjóra, Gunnar Pétursson, komu á
fundinn. Þeir raíddu um brunavarnir, sýndu kvik-
myndir og svöruðu fyrirspumum.
Jónas Marteinsson slökkviliösmaður á Keflavíkur-
flugvelli kynnti ýmsar tegundir slökkvitækja og með-
ferð þeirra. Einnig kynnti hann reykskynjara og það
sem athuga þarf við uppsetningu þeirra.
Fundurinn var vel sóttur og voru umræður fjör-
legar.
Daginn eftir. miðvikudag. sóttu þeir Þórir Hilmars-
son og Gunnar Pétursson Grunnskólann i Stykkis-
hólmi og Sjúkrahús Stykkishólms heim og sýndu kvik-
myndir og fræddu nemendur og starfsfólk um bruna-
varnir og fyrstu viðbrögð ef eldur kemur upp. Einnig
fóru þeir i nokkur fyrirtæki hér í kauptúninu.
Foreldraráðgjöfin
(Barnaverndarráð Islands). Sálfræðileg ráðgjöf fyrir
foreldra og börn. — Upplýsingar í síma 11795.
HapgKlrætti
Jólahappdrætti SUF
17. desember miðvikudagur 2031
18. desember fimmtudagur 1407
Upplýsingar eru veittar i sima 24480 og á Rauðarár-
stíg 18.
Happdrætti körfuknattleiks-
deildar ÍR
) i happdrætti körfu-
r komu á eftirtalin
1. vinningur Sólarlandaferð
2. vinningur Hijómplötur
3. vinningur —
4. vinningur
5. vinningur —
6. vinningur —
7. vinningur
8. vinningur —
9. vinningur
10. vinningur —
11. vinningur —
12. vinningur —
13. vinningur —
14. vinningur
15. vinningur —
400.000
100.000
100.000
50.000
50.000
50.000
50.000
25.000
25.000
25.000
25.000
25.000
25.000
25.000
25.000
nr. 5838
nr. 130
nr. 4330
nr. 128
nr. 4602
nr. 2
nr. 417
nr. 5245
nr. 1381
nr. 5814
nr. 2431
nr. 341
nr. 222
nr. 406
nr. 4265
6
Minningarspjölc
Minningarkort Styrktar-
félags vangefinna
fást á eftirtöldum stöðum:
Á skrifstofu félagsins, Laugavegi 11. Bókabúð Brag^
Brynjólfssonar, Lækjargötu 2. Bókaverzlun Snæ
bjarnar, Hafnarstræti 4 og 9. Bókaverzlun Olivers
Steins, Strandgötu 31, Hafnarfirði.
Vakin er athygli á þeirri þjónustu félagsins að tekið
er á móti minningargjöfum í síma skrifstofunnar
15941 en minningarkortin siðan innheimt hjá send-
anda með gíróseðli. Mánuðina apríl-ágúst verður
skrifstofan opin frá kl. 9-16. Opið i hádeginu.
Minningarkort Styrktar-
félags vangefinna á Austur-
landi
fást I Reykjavik i verzluninni Bókin, Skólavörðustíg
6 og hjá Guðrúnu Jónsdóttur,Snekkjuvogi 5. Simi
34077.
Minningarkort Hjálpar-
sjóðs Steindórs Björnssonar
frá Gröf
eru afgreidd í Bókabúð Æskunnar, Laugavegi og hjá
Kristrúnu Steinsdórsdóttur, Laugarnesvegi 102.
Minningarkort Menningar-
og minningarsjóðs kvenna
fást á eftirtöldum stöðum:
Bókabúð Braga Laugavegi 26. Lyfjabúð Breiðholts
Arnarbakka 4-6, Bókaverzluninni Snerru Þverholti
Mosfellssveit og á skrifstofu sjóðsins að Hallveigar-
stöðum við Túngötu alla fimmtudaga kl. 15-17, sími
11856.
Minningarkort Styrktar-
félags vangef inna
fást á eftirtöldum stöðum:
Á skrifstofu félagsins, Laugavegi 11, Bókabúð Braga
Brynjólfssonar, - Lækjargötu 2, Bókaverzlun
Snæbjarnar, Hafnarstræti 4 og 9, Bókaverzlun Olivers
Steins, Strandgötu 31, Hafnarfirði.
Vakin er athygli á þeirri þjónustu félagsins að tekið
er á móti minningargjöfum i síma skrifstofunnar,
15941, en minningarkortin siðan innheimt hjá send-
anda með giróseðli.
Þá eru einnig til sölu á skrifstofu félagsins minning-
arkort Banaheimilissjóðs Skálatúnsheimilisins.
Minningarkort Hjúkrunar-
heimilis aldraðra í Kópavogi
eru seld á skrifstofunni að Himraborg 1, simi 45550.
og einnig í Bókabúðinni Veduog Blómaskálanum við
Nýbýlaveg.
Minningarkort S^mbands
dýraverndunarf élaga íslands
fást á eflirtöldum stöðum:
REYKJAVlK: Loftið Skólavörðustig 4. Verzlunin
Bella Laugavegi 99, Bókaverzlun Ingibjargar Einars
dóttur Kleppsvegi 150, Flóamarkaður SDl, Laufás
vegi 1, kjallara, Dýraspitalinn Víðidal.
KÓPAVOGUR: Bókabúðin Veda Hamraborg.
HAFNARFJÖRÐUR: Bókabúö Olivers Steins
Strandgötu 31.
AKUREYRI: Bókabúð Jónasar Jóhannssonar Hafn
arstræti 107.
VESTMANNAEYJAR: Bókabúðin Heiðarvegi 9.
SELFOSS: Engjavegur 79.
Minningarspjöld Slysavarna-
félags íslands
fást á eftirtöldum stöðum í Reykjavík, Kópavogi.og
Hafnarfirði:
Ritfangaverzlun Björns Kristjánssonar, Vesturgötu 4,
Reykjavik. Bókabúð Vesturbæjar, Viðimel 19.
Reykjavlk. Bókabúð Glæsibæjar, Álfheimum 74,
Reykjavík. Árbæjarapóteki. Arnarvali, Breiðholti.
Bókabúð Fossvogs, Efstalandi 26. Reykjavík. Veda.
bóka- og ritfangaverzlun, Hamraborg 5, Kópavogi.
Verzluninni Lúna, Kópavogi. Skrifstofu Slysavarnafé-
lagsins, Grandagarði 14, sími 27000. Bókabúð Olivers
Steins, Strandgötu 31, Hafnarfirði.
Einnig eru þau til sölu hjá öllum slysavarnadeildum á
landinu.
GENGIÐ
Isienzk málnefnd
Menntamálaráöuneytið hefur skipaðeftirtalda menn i
lslenzka málnefnd um fjögurra ára skeiö frá 10. des-
ember 1980 að tclja: Baldur Jónsson, dósent, sem jafn-
framt er skipaður formaður nefndarinnar, Bjarna Vil-
hjálmsson þjóðskjalavörð, dr. Jónas Kristjánsson, for-
stööumann Stofnunar Árna Magnússonar á lslandi.
dr. Kristján Árnason málfræðingog Þórhall Vilmund-
arson prófessor.
Skipun Æskulýðsráðs
ríkisins
Þriðjudaginn 9. des. sl. skipaði menntamálaráðherra
Guömund Guömundsson fræðslufulltrúa formann
Æskulýðsráðs ríkisins til nasstu tveggja ára og Niels
Á. Lund kennara varamann hans.
Stjórn Sambands islenzkra sveitarfélaga skipaöi
Unnar Stefánsson fulltrúa sinn til sama tima og Her
mann Sigtryggsson til vara.
Á kjörfundi Æskulýðsráðs ríkisins 9. desember
voru slöan eftirtaldir fulltrúar landssamtaka æskulýðs-
félaga kjörnir til að eiga sæti i ráöinu næsta kjörtíma-
bil:
Aðalmenn: Þuriður Ástvaldsdóttir. Hafdís Stefáns-
dóttir og Hrólfur ölvisson. Varamenn: ólafur Ást-
geirsson, Einar Gunnar Einarsson og Sölvi ólafsson.
GENGISSKRÁNING Feríamanna
NR. 238 - 16. DESEMBER1980 gjaidayrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadolar 592,40 594,00 653,40
1 Steriingspund 1372,46 1376,16 1513,77
1 Kanadadollar 490,05 491,36 540,49
100 Danskar krónur 9625,10 9651,10 10618,21
100 Norskar krönut 11397,35 11428,16 12570,97
‘100 Sœnskar krónur 13289,20 13345,10 14667,61
100 Rnnsk mörk 16147,05 161874)5 16706,75
100 Franskir f rankar 12722,00 12756,40 14032,04
100 Belg. frankar 1832,10 1837,00 2020,70
100 Svlssn. frankar 32563,95 32641,86 35906,04
100 Gyllini 27124,50 27197,80 29917,58
100 V.-þýzk mórk 29616,70 29656,40 32556,04
100 Llrur 62,25 62,41 68,65
100 Austurr. Sch. 4163,00 4274,30 4591,73
100 Escudos 1100,10 1103,10 1213,41
100 Pesetar 738,00 740,00 8144)0
100 Yen 282,73 283,50 311,85
1 Irskt pund 1097,70 1100,70 1210,77
1 Sérstök dráttarréttlndi í 748,61 750,64 j
* Broyting frá siðustu skráningu. I Simsvari vegna gengisskráningar 22190.