Dagblaðið - 18.12.1980, Síða 35

Dagblaðið - 18.12.1980, Síða 35
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1980. 35 FILMUR OG VÉLAR S.F. » NAFN........................................................... HEIMILI....................................................... Strikið undir það nafn, sem ykkur þykir líklegast. Klippið síðan mynd- ina og lausnina út og geymið með þeim níu, sem á eftir koma. Þegar síð- asti jólasveinninn hefur birzt á Þorláksmessu, setjið þá allar lausnirnar í umslag og merkið það: Dagblaðið „Jólagetraun" Síðumúla 12 105 Reykjavík Skilafrestur á jólagetrauninni er til 30. desember. erum við komnr med fu/ft hús af skrauti og jóhpappír sem enginna ermeá MMHUSIO Laugavegi 178 — Sími 86780 (næsta hús við Sjónvarpið) JÓLAGETRAUN DB1980 Skarphéðinn Skúli Úskarsson Skyrgámur I ■ i unmiimMinMuiii Skólavörðustíg 41 — Sími 202S5 VI. HLUTI Hvað heita gömlu, íslenzku, hrekkjóttu jólasveinarnir sem tínast til byggða einn af öðrum síðustu dagana fyrir jól? Um það snýst jóla- getraun Dagblaðsins að þessu sinni. Að undanförnum árum hafa þús- undir lesenda Dagblaðsins tekið þátt í jólagetrauninni. Engin furða, því að ávallt hafa vinningarnir verið sérlega glæsilegir. í ár eru fyrstu verðlaunin Nordmende myndsegulbandstæki frá Radíóbúðinni. Verðmæti þess er rúmlega hálf önnur milljón króna. í önnur og þriðju verðlaun er bók Halldórs Péturssonar, Myndir, sem Prenthúsið gefur út. Hvor þeirra um sig kostar um 39 þúsund krónur. Með þessi verðlaun í boði má búast við þv að metþátttaka verði i jólagetraun- inni að þessu sinni. Jólasveinninn, sem við spyrjun um heiti á í dag, er mathákur hinr mesti, eins og sjá má á mynd Hall dórs Péturssonar. Hann á sér þd alveg sérstakan uppáhaldsmat, sen hann borðar með mjólk og sykri. Héi fyrr á árum var aðeins um eina gerí af þessu lostæti að ræða en nú getu jólasveinninn valið um nokkra bragðtegundir. Hvað heitir hanr þessi? Heimsins fyrsta vatnsþétta vasamyndavélin. . oitai69’: VATNSÞÉTT ^teð,^aW«»'feiðo POTTÞÉTT VASAMYNDAVÉL MINOLTA WEATHERMATIC-A Borgarspitalinn er einn af þeim stöðum þar sem lífið gengur sinn vanagang um hátíðir. FÉLAGSMÁL 0G VINNA - útvarp kl. 22,35: SUMIR ÞURFA AÐ VINNA Á JÓLUNUM „Aðalefni þáttarins er vakta- vinna,” sagði Tryggvi Þór Aðal- steinsson, annar umsjónarmanna þáttarins Félagsmál og vinna sem er í kvöld. Þáttur þessi er almennt um málefni launafólks, réttindi þess og skyldur. Það er töluverður fjöldi fólks sem þarf að vinna á almennum frídögum og stórhátíðum. í þættin- um rætt.við fólkervinnurvaktavinnu og verður að vinna yfir hátíðirnar. Talað er við starfsmann i Álverinu, konu sem vinnur á Borgarspitalanum og lögregluþjón. Spjallað verður um ýmislegt sem varðar vaktavinnu og hvað þeim finnst um það að vera að vinna þegar aðrir eiga fri. Einnig verður fjallað um hvernig fólk getur brugðizt við ef það fær laun sín ekki greidd á réttum tíma. Umsjónarmað- ur ásamt Tryggva Þór er Kristín H. Tryggvadóttir fræðslufulltrúi BSRB, en Tryggvi Þór er fræðslufulltrúi Menningar- og fræðslusambands alþýðu (MFA). -GSE LEIKRIT VIKUNNAR, TÓLF ÁRA —útvarpkl. 21,10: Enginn má liggja áliðisínu í kvöld verður flutt leikritið Tólf ára eftir norska höfundinn Rolf Thoresen. Leikritið fjallar um tólf ára dreng, Pétur, sem leikinn er af Felix Bergs- syni, og afa hans, sem leikinn er af Val Gíslasyni. Gamli maðurinn er bezti vinur Péturs litla því foreldrarnir vinna. svo mikið að þeir hafa lítinn tíma til að sinna honum. Það er ýmislegt sem þeir félagar bralla, m.a. segir gamli maður- inn drengnum frá atvikum úr striðinu, þegar hann hélt að hann væri að byggja upp betri heim. En nú er ný hætta á ferðum. Það á að leggja hraðbraut gegnum friðsælt þorp og spilla með því umhverfinu og heilsu manna. En hvað geta gamall maður og tólf ára drengur aðhafzt? Aðrir leikendur en Felix Bergsson og Valur Gíslason eru þau Guðrún Ásmundsdóttir og Steindór Hjörleifs- son. Þýðinguna gerði Torfey Steins- dóttir, én Klemenz Jónsson stjórnar flutningi. Tæknimenn eru þeir Runólf- ur Þorláksson og Bjarni R. Bjarnason. Höfundur leiksins, Rolf Thoresen, hefur vakið mikla athygli á síðari árum fyrir leikrit sín. Hann hlaut verðlaun i Valur Gíslason leikur afann i útvarps- leikriti vikunnar. leikritasamkeppni norska útvarpsins 1976. íslenzka útvarpið hefur áður flutt verk hans, Frekari afdrif ókunn, árið 1978.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.