Dagblaðið - 03.01.1981, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981
HELMINGUR AF GÖMIJUM
SEDLUM ÚRUMFERD ÍGÆR
— miklu fleiri komu í bankana en von var á
„Við áætlum að helmingur af
gömlu seðlunum verði kominn úr
umferð í kvöld. Á gamlárskvöld voru
útistandandi 23 milljarðar og 800
milljónir gamalla króna, sem er um 238
milljónir nýkróna. Það lítur út fyrir að
á þessari stundu sé búið að afgreiða um
5 milljónir nýkrónabaraí Reykjavík,”
sagði Jóhannes Nordal, seðlabanka-
stjóri á fundi með fréttamönnum í gær-
dag, i tilefni af myntbreytingunni.
„Það hafa ekki komiö upp nein
vandamál. Að vísu hefur það komið
einstaka mönnum á óvart, að þeir hafa
fengið seðla til að fylla út í bönkunum,
en þessir miðar eru einungis til að flýta
afgreiöslu. í rauninni átti enginn von á
að fólk kæmi svona fljótt að skipta,”
sagöi seðlabankastjóri.
Hann sagði að ekki væri hægt að
meta það ennþá hvort nýja krónan ætti
eftir að hafa áhrif á verðbólguna. Þá
sagði Jóhannes að siðustu fjóra til
fimm dagana fyrir áramótin hefði
gengissig verið heldur hratt á dollar
eða um 5%. Meðalgengissig frá 30.
nóvember til 30 desember var 6,9%.
DB ræddi við starfsfólk og
viðskiptavini bankanna í gær og aðra
vegfarendur og spurði þá álits á hinum
nýja gjaldmiðli.
-ELA
Björn TrvRgvason, Jóhannes Nordal og Guðmundur Hjartarson á fundi með blaðamnnnum I gærdag.
DB-m.vndir F.inar Ólason.
Jóhanna Stefánsdóttir
húsmóðir:
Verstfyrir
bömog
unglingana
„Ég hef fylgzt með umræðum um
þessa nýju mynt og lesið bæklinginn.
Það hefur auðvitað verið talað mikið
um þetta á mannamótum. Ég kvíði nú
ekki fyrir að nota þessa peninga, enda
man ég eftir aurunum. Ég á meira að
segja gamlan 25 króna seðil heima.
Annars er ég hrædd um að þetta vefjist
eitthvað fyrir börnum og unglingum,”
sagði Jóhanna Stefánsdóttir húsmóðir
sem nýbúin var að skipta gömlum
krónum í nýjar í Búnaðarbankanum.
-ELA.
Fólkveithvað
þaðáaðfá
— segirJóharm
Jóhannsson gjaldkerí
„Þetta hefur gengið mjög vel. Ég er
alveg hissa hve lítil vandræði hafa
verið. Jú, það hefur verið töluvert að
gera í allan dag, ekkert stopp hjá
okkur. Afgreiðslan hefur gengið fljótt
og vel fyrir sig. Fólk hefur greinilega
hugsað vel og vandlega áður en það fór
að heiman hversu mikið af nýkrónum
það ætti að fá fyrir þær gömlu. Ég á
von á því að fólk verði fljótt að komast
inn í þessa nýju mynt,” sagði Jóhann
Jóhannsson gjaldkeri í Útvegsbank-
anum.
-ELA.
Gengur
baravel
— að gefa nýju krónuna
tilbaka
Flestar verzlanir i miðbænum voru
lokaðar í gærdag vegna vörutalningar.
Kökuhúsið í Austurstræti var þó opið
og afgreiðslustúlkurnar Laufey Jóns-
dóttir, Margrét Sigurðardóttir og
Mandý ívarsdóttir höfðu í nógu að
snúast. „Það koma allir með nýjar
krónur. Fólk skoðar peningana mjög
vel áður en það afhendir þá og ég held
að þetta eigi bara eftir að ganga vel.
Annars finnst fólki skrýtið að fá svona
lítið til baka,” sögðu þær stöllur í
Kökuhúsinu.
-ELA.
Kvíði ekki fyrir
aðnota
nýju myntina
— segir Rannveig Eyjólfsdóttir húsmóðir
„Nei, ég kvíði ekki fyrir að nota
þessa nýju mynt. Ég man vel eftir því
þegar aurarnir voru hér í notkun. Svo
hefur maður lesiö um þessa nýju mynt
og fylgzt með umræðum um hana. Ég
var ekki í vafa hversu mikið ég ætti að
fá fyrir gömlu seðlana, ég vissi það
alveg,” sagði Rannveig Eyjólfsdóttir
húsmóðir, sem við hittum í Útvegs-
bankanum þar sem hún var nýbúin að
skipa gömlum seðlum.
-ELA.
Steinunn Norðf jörð afgreiðslustúlka:
Maður verður að
hugsa mjög vel
, ,Eins og þú sérð þá er maður alveg á
kafi í kassanum að athuga þessa nýju
seðla. Maður verður auðvitað að hugsa
vel og vandlega áður en maður gefur til
baka,” sagði Steinunn Norðfjörð,
afgreiðslustúlka í sælgætisverzlun i
Austurstræti. Hún sagði að flestir sem
kæmu að verzla væru með nýjar
krónur. „Fólk er mjög þolinmótt og
maður sér það virða vel fyrir sér
peningana áður en það réttir þá,” sagði
Steinunn.
-ELA.