Dagblaðið - 03.01.1981, Side 24
Ragnar Amalds fjármálaráðherra:
Nýtt fyrirtæki stofn-
að í stað Olíuma/ar hf.
— með eignaraðild ríkissjóðs, Útvegsbanka og Framkvæmdasjóðs. Oiítmöl hf.
geið upp og nýja fyrirtækið mun ekki bera ábyrgð á fortíðiimi
frjálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1981.
„Það sem hefur gerzt er að ákveð-
ið hefur verið að nýta heimild í fjár-
lögum til að breyta skuldum Olíu-
malar hf. til ríkisins í hlutafé. En það
verður ekki hlutafé í Olíumöl hf.
heldur nýju fyrirtæki á nýjum
grunni, sem fær það verkefni að
kaupa efni Olíumalar hf. Olíumöl
hf. verður gerð upp,” sagði Ragnar
Arnalds fjármálaráðherra í gær.
Dagblaðið greindi frá því í gær, að
fjárveitinganefnd Alþingis hefði milli
jóla og nýárs samþykkt á fundi
sinum, að fjármálaráðherra gæti
nýtt heimildarákvæðið í fjárlögum
siðasta árs og breytt kröfum ríkis-
sjóðs í hlutafé. Þar kom fram að
hlutaféð yrði í Olíumöl hf. en að sögn
ráðherrans verður svo ekki.
„Það er bráðabirgðaráðstöfun að
ríkið nýti eignir Olíumalar hf., þann-
ig að þær lendi ekki á tvist og bast,”
sagði ráðherrann. En það er fjarri því
að gömlum syndum Oliumalar hf.
verði velt yfir á ríkið. í hið nýja fyrir-
tæki leggur ríkið fram þær kröfur
sem það á í Olíumöl hf. Staðið er í
samningum við fleiri aðila sem kæmu
inn í hið nýja fyrirtæki og ekki er víst
að það verði rekið af ríkinu. Þetta er
okkar aðferð til þess að bjarga
þessum eignum. Þeir aðilar sem
hugsanlega koma inn í dæmið eru
Framkvæmdasjóður og Útvegsbank-
inn.
Með þessu er endanlega ákveðið að
Olíumöl hf. verður gerð upp, hvort
sem hún verður gerð gjaldþrota eða
ekki. Hið nýja fyrirtæki verður með
nýju nafni og mun ekki bera neina
ábyrgð á fortíðinni. Það verður byggt
upp í nútíðinni og horfir til
framtíðarinnar. Ég hef aldrei sam-
þykkt og fjárveitinganefnd ekki
heldur að breyta söluskattsskuldum
Olíumalar hf. í hlutafé í þessu gjald-
þrota fyrirtæki,” sagði Ragnar
Arnalds. -JH.
„Grefurund-
antraustiá
stjómvöldum”
segir Kristján Thortacius
um dnahagsaðgerðimar
„Þetta skapar geysilega vantrú á
samningsrétt og samninga við
stjómvöldrað engir samningar haldi,
sem geröir eru. Þetta grefur undan
trausti almennings á stjórnvöldum,”
sagði Kristján Thorlacius, formaður
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, um efnahagsaðgeröir rikis-
stjórnarinnar í viðtali við DB.
„Það hlýtur að vekja mesta
athygli launþegasamtaka, að enn
einu sinni er rift kjarasamningum
með lögum, meira að segja bráða-
birgðalögum.”
„Ég kem ekki auga á, að for-
sendur séu breyttar frá því að
samningar við okkur voru gerðir i
ágúst.”
„Ég vil undirstrika þetta megin-
sjónarmið um samninga. Auk þess er
enn einu sinni verið að gera
ráðstafanir, er menn gera ráð fyrir,
að séu bráðabirgðaráðstafanir og enn
verðióvissa eftir nokkra mánuði.”
Kemur til greina, að BSRB gripi
til gagnráðstafana?
„Það verður stjórnarfundur á
mánudaginn, þar sem þessi mál verða
rædd,” svaraði Kristján Thorlacius.
-HH.
Nafn piltsins
semiézt
Pilturinn sem lézt í Hnífsdal á
nýársnótt hét Jósep Heimir Óskars-
son, til heimilis að Aðalstræti 11, ísa-
firði. Hann var fæddur 20. maí 1964.
Rannsókn á láti hans stendur enn yfir
hjá lögreglunni á Isafirði. Bað lög-
reglan blaöið að geta þess að ef ein-
hver vitni sem ekki hafa ennþá
komið fram eru til, þá vinsamlega
hafi þau samband við lögregluna.
-ELA.
Ökumenn þessara bíla voru ekki að bíða eftir grænu
Ijósi i Lækjargötunni i gær heldur að komast að
bensindælunni hjá BSR. Á meðan þeir biðu gátu þeir
stytt sér stundir við að skoða auglýsingu um daglega
ánægju milljóna manna um allan heim. Á minni
myndinni mé sjá langa bilaröð við bensínafgreiðslu
sendibilastöðvar í Síðumúlanum. Sú bilaröð var
samfetld mestan hluta gærdagsins og trufíaði mjög
umférð um götuna.
DB-myndir: S/Sig. Þorri.
Ríkissáttasemjari:
Enginn f undur með bensínafgreiðslumönnum
— langar biðraðir eftir bensíni í gær
„Það hefur ekkert gerzt í málum
bensinafgreiðslumanna i dag, utan að
menn hafa talað mikið saman,” sagði
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemj-
ari er blaðamaður DB náði tali af
honum í gærkvöld.
„Það hefur ekki verið boðaður nýr
fundur,” sagði sáttasemjari enn-
fremur, „og ég reikna ekki með að
það verði gert fyrr en eftir helgi. Það
þarf eitthvað mikið að gerast til að það
breytist.”
í gær var víða selt bensín í Reykja-
vík og mynduðust langar raðir bila við
bensíndælur. Urðu margir að bíða allt
upp í tvær klukkustundir til að fá af-
greiðslu. Á Bæjarleiðum var selt bensín
frá þvi snemma um morguninn til
klukkan tvö. Þá hófst sala einnig að
nýju hjá BSR og urðu nokkrar
umferðartafir í miðborginni af þeim
sökum.
-ÁT-
VERKFALL f RÍKISVERK-
SMIÐJUNUM12. JANÚAR
— takist samningar
ekki stöðvast
Áburðarverk-
smiðjan,
Sementsverk-
smiðjanog
Kísiliðjan
Starfsmenn í rikisverksmiðjunum
hafa boðað verkfall frá og með 12.
janúar nk. Hér er um að ræða starfs-
menn þriggja ríkisverksmiðja,
Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi,
Sementsverksmiðjunnar á Akranesi
og Kísiliðjunnar við Mývatn.
Samningaviðræður hafa staðið yfir
í talsverðan tima. Á föstudag var
starfsrriönnunum gert tilboð sem
hljóðaði upp á 11,2% kauphækkun.
Því tilboði var hafnað og þá slitnaði
upp úr samningaviðræðum.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari sagði síðdegis í gær, að það
bæri í grundvallaratriðum á milli
starfsmannanna og ríkisverksmiðj-
►
Kísiliðjan við Mývatn: starfsmenn
ríkisverksmiðjanna höfnuðu 11,2%
kauphækkunartilboði.
DB-mynd: Hörður.
iltju sams
anna, að starfs.
konar samnii
blendiverk
tanga.,
sagt t
að r£8M eni
öðruvlSníðuF
Rikissáttasemjari sagði í gær að
verið væri að ræða málin og reiknaði
hann með því að fundur í deilunni
yrði boðaður strax eftir helgina, að
öllum líkindum á mánudag.
-JH.