Dagblaðið - 05.01.1981, Qupperneq 1
/
/
f frjálst,
oháð
V ilillfll
Jdagblað
7. ÁRG. — MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1981. — 3. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 L-AÐALSÍMl 27022.
Ólafi Ragnarssyni ritstjóra Vísis sparkað um áramótin:
VERKFALL Á VÍSI
Á MIÐVIKUDAGINN
Starfsmenn á ritstjórn Vísis hafa í
skeyti til Ólafs Ragnarssonar fyrrv.
ritstjóra blaðsins harmað hvernig
góðu samstarfi þeirra lauk, en Ólafi
var sagt upp störfum um áramótin
með venjulegum uppsagnarfresti.
Kaus Ólafur að láta af störfum sam-
stundis.
Kom uppsögn hans mjög á óvart
þótt vitað væri að grunnt hefur verið
á því góða milli Ölafs og útgáfu-
stjórnar blaðsins í Reykjaprenti h.f.,
sem hefur þótt ritstjórinn fyrrver-
andi full harður á sinni meiningu um
sjálfstæði ritstjórnarinnar. Minnir
það óneitanlega á það ástand, sem
skapaðist fyrir rúmlega fimm árum
og leiddi á endanum til stofnunar
Dagblaðsins. Hvorki Ólafur
Ragnarsson, né stjórn Reykjaprents
hf. hafa viljað gera nánari grein fyrir
þeim sambúðarerfiðleikum, sem
leiddu til uppsagnar Ólafs.
Stjórn Blaðamannafélags islands
og stjóm Lífeyrissjóðs blaðamanna
hefur boðað vinnustöðvun á ritstjóm
Vísis frá og með miðvikudeginum 7.
janúar vegna gjaldfallinna skulda
blaðsins við lífeyrissjóðinn. Það
verkfall var boðað með mánaðar-
fyrirvara. Skuld Vísis við líf-
eyrissjóðinn nær yfir allt síðasta ár,
og nemur samtals um 12 milljón
gömlum krónum, eða 120 þúsund
nýkrónum. Tæpur helmingur þess er
gjaldfallinn.
Greiðslustaða Vísis hefur verið
slæm að undanförnu. Blaðamenn
blaðsins hafa t.d. enn ekki fengið
greidd laun sin í þessum mánuði. 1
-vegna
stórfelldra
skuldavið
Lífeyrissjóð
blaðamanna
síðasta mánuði voru laun greidd
hinn 5. dag mánaðarins og þá í
seðlum, sem þykir benda til að launa-
reikningi blaðsins í viðskiptabanka
þess hafi verið lokað og peningarnir
hafi komið annars staðar frá.
-ÓV.
— Sjá einnig á bls. 5.
Eins og oft áður var Breiðholtið erfiðast viðureignar. Stóra myndin er af bflum, sem skrfða þaðan hægt og sfgandi. Innfellda myndin er af bíl, sem sat fastur f skafli og lét
sér ekki segjast þó ýtt væri við honum. -DB-myndir S.
Fannfergi og skaf renningur á höfuðborgarsvæðinu:
Umferð tafðist vegna vanbúinna bfla
Um þrjúleytið í nótt byrjaði að
fenna og skafa á höfuðborgarsvæðinu
með þeim afleiðingum að götur
lokuðust eða tepptust. Þegar menn
byrjuðu að koma sér til vinnu var því
úr vöndu að ráða og þeir sem óku
bílum, sem ekki voru sérlega vel út-
búnir, höfðu lítið heiman að gera.
Sumir létu sig þó hafa það, jafnvel á
bílum búnum sumarhjólbörðum. Þeir
festu hins vegar bíla sína víða um
bæinn og töfðu þar með fyrir öðrum.
Lögreglan í Reykjavík, Kópavogi og
Hafnarfirði hafði nóg að gera við að
sinna köllum vegna þessa og koma
fólki til vinnu, t.d. á sjúkrahúsin. Oft
náðu þó vel búnir lögreglubílar ekki að
veita þá aðstoð sem þurfti því jafnvel
þeir festust í snjónum.
Ekki var um hálftiuleytið í morgun
kunnugt um að nein slys hefðu orðið á
mönnum vegna færðarinnar. Hún
hafði að minnsta kosti það gott i för
með sér að menn óku hægt og gættu sín
á þeim fjölda gangandi fólks, sem var
að reyna að komast til vinnu á tveim
jafnfljótum. Reynt var að halda
strætisvagnaleiðum opnum eftir megni,
svo og öllum aðalleiðum. Um hálf-
tíuleytið var mesta ofankoman að því
virtist hætt og gat þá ruðningur hafizt
fyrir alvöru.
Fella varð niður kennslu í nokkuð
mörgum skólum á höfuðborgar-
svæðinu og sveitunum í kring.
Norðanlands var hins vegar hið bezta
veður, logn og frost, og strax og komið
var austur fyrir fjall var veðrið skárra.
En búizt er við að fannkoman gangi
þar yfir í dag. -DS.
NGÞOTURNAR HL NIG
Flugleiðum býðst kaupleigusamningur fyrir báðar Boeing727 -100 vélamar
Hér á landi er nú staddur kaup-
sýslumaður frá Nígeríu, Adamo að
nafni. Hefur hann rætt við Flugleiða-
menn um samvinnu á flugrekstrar-
sviðinu en hann hefur áður samið um
pílagrímaflug við Flugleiðir. Adamo
hefur óskað eftir kaupleigusamningi
um báðar Boeing 727-100 þoturnar
til 5 ára fái hann flugrekstrarleyfi
sem hann hefur sótt um.
íslenzkar áhafnir myndu fylgja vél-
unum a.m.k. fyrstu árin. Verði úr
samningum þýðir það aukin verkefni
fyrir flugáhafnir og binda menn
miklar vonir við þetta, sérstaklega
FÍA-menn. Málin munu skýrast um
miðjan janúar en þá mun Adamo fá
svör við ósk sinni um flugleyfi.
-KMU.
Yorkshire-
morðinginn
loksins
fundinn?
- Lögreglan hefur
handtekið kvæntan
mannáfertugsaldri
sem grunaðurerum
morðin á þrettán
konum síðastliðin
fimm ár
— sjá erlendar
fréttir
ábls.6og7
Jón og Ómar
Ragnarssyn-
ir ísænska
rallkeppni
— sjá FÓLK á bls. 17
Fjallfossínauð-
umundan
Færeyjum
— sjá bls. 11
Nýttguðshús
fyrir
Breiðhyltinga
— sjá bls.4
yv