Dagblaðið - 05.01.1981, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1981
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Smurbrouðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Simi 15105
Eftirtaldar stöður
hjúkrunarfræðinga
við Heilsuverndarstöð Reykjavíkur eru
lausar til umsóknar:
Við barnadeild
— heimahjúkrun
— heilsugæzlu í skólum.
Heilsuverndarnám æskilegt.
Skriflegar umsóknir berist hjúkrunarforstjóra, sem jafn-
framt gefur nánari upplýsingar í síma: 22400.
Heilbrigðisráð Reykjavíkur.
Til sölu Mercedes Benz 230 1975. 6
cyl. sjálfskiptur, vökvastýri vökva-
bremsur, topplúea, nýleg sumar- og
vetrardekk. Bill i sérflokki. Skipti
möguleg til dxmis á Range Rover
1976 — 1978 vel með förnum.
Til sölu Datsun 260 Z 2+2 árg. ’74
(sport bifreið) 6 cvl., 150 hö. din 5 gira.
Útvarp, segulband. Skipti möguleg.
Fullur sýningarsalur af nýlegum
góðum bílum. Verð og kjör við allra
hæfi.
Til sýnishjá
Skeifunni 11 — Símar 84848 og 35035
t".
HVAMMSTANGI
Umboðsmaður óskast strax
ú Hvammstanga.
Uppl. ísíma 95-1394 eða 27022.
SANDGERÐI
Nýr umboðsmaður í Sandgerði.
Guðný Benediktsdóttir
Norðurg. 24. S. 92-7457.
*
BÚÐARDALUR
Nýr umboðsmaður í Búðardal.
Edda Tryggvadóttir
Dalbraut lO. S. 93-4167
HVERAGERÐI
Nýr umboðsmaður í Hveragerði.
Þorleif Þorsteinsdóttir
Borgarhrauni 3. S. 99-4628.
MMBIABIÐ
Þingmenn repúblikana í heimsókn í Kfna:
Bandaríkjamenn
kunna að selja
vopn til Kína
—vegna „augl jósrar árósarhneigðar Sovétríkjanna’’
ríkin eigi að taka upp opinbert stjórn-
málasamband við Formósu á ný. Sú
yfirlýsing Reagans mæltist mjög illa
fyrir í Kfna. Stevens og frú Chennault
koma i dag til Formósu og munu
dvelja þar f þrjá daga og ræða við
ráðamenn á eyjunni.
Frú Chennault er fædd í Kina og
er ekkja hershöfðingjans Claire
Chennault, sem barðist með leiðtoga
kínverskra þjóðernissinna Chiang
Kai-Shek gegn kommúnistum. Hún
kvaðst mundu hitta að máli son hans,
Chinag Ching-Kuo, en hann er nú
forseti Formósu.
Stevens kvaðst ekki eiga von á
breytingu á stefnu Bandaríkjastjórn-
ar gagnvart Kína.
Deog Xlaoping. Ronald Reagan.
öldungadeildarþingmaðurinn Ted
;Stevens, úr flokki repúblikana,
sagði við fréttamenn að loknum
viðræðum hans við Deng Xiaoping,
varaformann kínverska kommúnista-
flokksins, að hann útilokaði ekki
þann möguleika, að Bandaríkjamenn
seldu Kínverjum vopn í framtíðinni.
„í Ijósi hinnar augljósu árásar-
hneigðar Sovétríkjanna útiloka ég
þann möguleika alls ekki,” sagði
Stevens, aðspurður um þetta atriði á
blaðamannafundinum.
Stevens átti tveggja klukkustunda
langar viðræður við Deng Xiaoping
ásamt öðrum repúblikana, Anna
Chennault, og voru þetta fyrstu
viðræður á milli repúblikana og
kínverskra stjórnvalda eftir
kosningasigur Ronalds Reagan í for-
setakosningunum í Bandaríkjunum í
nóvember síðastliðnum.
Stevens sagði að málefni Formósu
hefði borið mjög á góma í þriggja
daga heimsókn hans og frú
Chennault til Kína.
Repúblikanarnir tveir sögðust
ekki hafa flutt nein skilaboð frá
Ronald Reagan til kínverskra ráða-
manna en hann hefur lýst því yfir að
hann sé þeirrar skoðunar að Banda-
Afgönsk flóttamannabörn I Paklstan.
1400þúsund fíótta-
menn eru í Pakistan
og f jöldi þeirra f er sífellt vaxandi
Ein milljón Afgana flúði til
Pakistan fyrstu tólf mánuðina eftir
að sovézkir herir komu til
Afganistan, að þvi er stjórn Pakistan
segir. Alls voru 1,4 milljónir
afganskra flóttamanna í Pakistan í
lok síðasta mánaðar, en 400 þúsund
þeirra voru komnir til landsins áður
en sovézku hersveitirnar komu til
Afganistan í desembermánuði 1979.
Að meðaltali komu 89 þúsund
flóttamenn yfir landamærin á
hverjum mánuði allt síðasta ár og fer
fjöldi þeirra vaxandi. Talsmaður
flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna segir að flestir hefðu flótta-
mennirnir komið í marzmánuði eða
102 þúsund. Það var einmitt í marz
sem herir Sovétmanna hófu mikla
sókn i sveitum landsins.
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna og aðrar hjálparstofnanir
eyddu á slðastliönu ári meira en 200
milljón dollurum í fæði, klæði, lyf og
annan útbúnað fyrir flóttamennina.
Þá hefur stjórn Pakistan eytt
svipaðri upphæð í þágu flótta-
mannanna, sem búa flestir í tjald-
búðum í norðvesturhluta landsins.
Flóttamennirnir hafa auk þess bakað
stjórn Pakistan margháttaðan vanda
og komið hefur til árekstra milli
þeirra og íbúa landsins. Flóttamenn-
irnir tóku margir hverjir með sér
geitur, kindur og kameldýr og hafa
dýrin eytt að miklu leyti þeim lands-
svæðum, sem þeim hefur verið beitt á
og hefur það að sjálfsögðu ekki fallið
í góðan jaröveg hjá íbúum Pakistan.