Dagblaðið - 05.01.1981, Page 10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1981
Danirfábetripylsur:
Aukið kjöt og minni aukaefni
Dönsku verzlunarsamsteypurnar
FDB og Irma hafa nú nýlega tekið
saman höndum um að auka gæði
þeirrar kjötvöru sem þær bjóða upp
á. í sameiningu hafa samsteypurnar
gert auknar kröfur til þeirrar kjöt-
vöru, sem þær verzla með og eru
kröfurnar bæði varðandi lágmarks
magn af hráefni og eins það hvaö
ekki má vera í matvörunni.
Fyrstu merki þessarar samvinnu
munu Danir verða varir við nú í árs-
byrjun. Sett verður á markað núna
einhvern næstu daga pylsa án litar-
efna, nítrits og sterkjuefna. f
staðinn fá menn í pylsunni meira
kjöt en venja er að sé í dönskum
pylsum.
Grundvöllur þess að þessar stóru
verzlunarsamsteypur fóru að vinna
saman eru óskir forráðamanna
beggja um að slíðra samkeppnis-
sverðin því með þau á lofti hefur
gæðum matvörunnar sem boðið er
upp á stöðugt farið hrakandi, vegna
þess aö alltaf er veriö aö halda
verðinu niðri. Hefur þetta sérlega
komið fram i ýmsum áleggs-
tegundum. FDB og Irma hafa undan-
farin ár verið að reyna aö auka gæðin
sin í hvoru lagi og hafa haft á
boðstólum kjötvörur, sem uppfylla
lágmarksskilyrði.
En nýja varan á að gera neytendum
kleift að velja um álegg sem er virki-
lega gott og annað sem er I rauninni
hálfgert drasl. Það kom að minnsta
kosti í ljós í nýlegri vörukönnun sem
blað neytendasamtakanna í Dan-
mörku gerði á áleggi að margt af því
ptenzt ekki þær kröfur sem samtökin
gera. Stærsti gallinn var talinn sá að
allt of mikið vatn var í pylsunum og
vildu þær því tolla illa saman þegar
átti aö sneiða þær niður ofan á
brauð.
Höfuðborgarferðin dýn
Dýrt að búa utan
borgarinnar
P.E. skrifar:
Kæra neytendasíða.
Það var eitthvað annasamt hjá
mér í nóvember svo októberseðillinn
var aldrei sendur. Hann var anzi hár.
Matarreikningurinn var upp á
rúmlega 60 þúsund á mann. Þá var
lika keypt slátur og lambakjöt sem
ætti að endast i vetur. Nóvember var
skikkanlegri í matarliðnum en annað
er líka hærra. Þar á meðal er ferð hjá
mér til Reykjavíkur (Frá Höfn) sem
hleypti þessu upp um 170 þúsund.
Flugfarið fram og til baka er orðið
64.500 fyrir einn og þá er fljótt að
koma upp í hundrað þúsund ef
eitthvað er verzlað í leiðinni. Það er
margt sem spilar inn í það hvað miklu
dýrara er að búa úti á landi, þar á
meðal er ef fólk þarf að fara til
Reykjavíkur, þá kostar það mikla
peninga og tíma, að vísu mismikla
peninga eftir þvi hvar búið er á
landinu. En oft er það eitthvað sem
fólk þarf nauðsynlega að erinda til
höfuðborgarinnar.
„Með bókhaldinu
fylgist maður bet-
ur með vöruverði”
Þessum hjónum á tofu meöal annars vinsældir sinar i Bandarikjunum að þakka. William Schurtleff og Akoko Aoyage hafa
skrifað bök um það. Á borðinu fyrir framan þau eru allir réttir úr sojabaunum. I sólargangi frá efsta rétti máteljaeggjalaust
eggjasalat á samlokum, tofu-ostaköku, tofusalat með fersku grænmeti, tofu-borgara, kartöfluflögur úr Tempeh og eggjalaust
eggjasalat.
Nýjastaheilsuefnið:
TOFU, næringarríkt,
hollt og megrandi
Sú fæöa hlýtur að teljast hrein
draumafæða sem inniheldur mikið af
eggjahvituefnum, litla fitu,
kólesteról og hitaeiningar og er
jafnframt ódýr. Þegar ofan á bætist
að hún inniheldur engin hættuleg
aukaefni eða annan óþverra. Slík
fæða er til og nefnist tofu. Það er í
rauninni sojabaunamjöl sem spáð er
að verði aöal megrunar- og
heilsufæðið á þessum nýhafna ára-
tug. Frægt fólk úti í heimi hefur sýnt
fordæmi meö því að neyta þessarar
fæðutegundar bæði i heilsu- og
megrunarskyni.
Núna eru Bandaríkin stærstu
framleiðendur sojabauna. Hefur
það sæti náðst á ótrúlega skömmum
tíma því árin upp úr 1970 vissi nánast
enginn þar í landi hversu lags baunir
það voru. Það voru aðeins
innflytjendur frá Austurlöndum, sem
kunnu skil á þessari ágætis fæðu.
Kínverjar og Japanir hafa í margar
G. A. skrifar:
Liðurinn matur og hreinlætisvörur
er ofboðslega hár núna eða tæp 90
■■■■
aldirneytt þeirra sem aðalfæðis.
Nú framleiöa yfir 170 aðilar i
Bandaríkjunum tofu. Flestar
verzlanir sem selja heilsufæði bjóða
upp á tofu. Kaupendur eru líka
margir og margir þeirra rikir.
Tofu á verulegan hluta vinsælda
sinna að þakka Kaliforníubúanum
William Shurteff sem er giftur
japanskri konu að nafni Akiko
Aoyagi. Þau skrifuðu í sameiningu
bók um tofu og hefur bókin selzt í
glfurlegu upplagi. Shurteff segir að
200 gramma skamtur af tofu
innihaldi aðeins 145 kalóriur eða
jafnmikið og er í fjórum eggjum og
aðeins þriðjungþess sem er í einum
hamborgara. Miöað við hið ríka
eggjahvituinnihald sé tofu með
aifæstar hitaeiningar.
Tofu er búiö til úr sojabauna-
mjólk sem er sýrð, pressaður úr
vökvinn og svo kæld niður úr öllu
valdi. Úr þessu fæst hvitt duft, sem
þúsund á mann. En inni í þessari
upphæö er 1/2 naut á 155.435 og 10
kg útsölusmjör á 20 þúsund.
bæta má í hvers konar bragðefnum.
Sojasósa er mest notuð svo og þvít-
laukur. Duftið er hægt að móta áns
og kökur og má t.d. steikja það eins
og hamborgara, hræra því saman við
eggjakökur eða grilla það, baka og
matreiða á nær hvaða hátt sem er.
Jógúrt hefur fram til þessa verið
aðalheilsufæöan í Bandaríkjunum
sem víða annars staðar. Ekki er búizt
við að tofu leysi það af hólmi en hinu
má búast við að vinsældir þess verði
jafnmiklar. Þaö þýðir í raun að tofu
kæmi í stað þriðjungs af kjöt-
framleiðslunni.
Tofu kynntist Schurteff í gegn-
um konu sina og hafa þau í
sameiningu birt mikið af
uppskriftum af réttum úr tofu.
Margir þessara rétta eru vel kunnir í
Japan en aðrir eru hugarsmíð
hjónanna. Bók þeirra hefur selzt í
250 þúsund eintökum og þegar er
hafin smíði nýrrar bókar, i þetta sinn
um miso og tempeh, tvær
fæðutegundir í viðbót, sem unnar
eru úr sojabaunum.
Ekki mun vera hægt að fá þessa
dýrindisfæðu hér á landi enn sem
komið er að 'minnsta kosti. En það á
að vera hægt að búa hana til úr þeim
efnum, sem meðal annars fást í Korn-
markaðnum á Skólavörðustíg. -DS.
Naut og útsölusmjör
— segir íbréfi frá einni sem byrjar bókhald
eftir3jaára hlé
H.J. skrifar:
Kæra síða.
Hér koma fyrstu seðlarnir frá
mér. Ég hafði gleymt að senda þér
októberseðilinn en nú verð ég að
reyna að muna eftir seðlunum hér
eftir. Það eru líklega 3 ár siðan ég
hélt heimilisbókhald síðast og nú tek
• ég upp þráðinn aftur. Það er alveg
nauðsynlegt að halda bókhald, því ég
held að þá hugsi maður frekar um það
hvað hin og þessi varan kostar.
Annars ætlaði ég að skýra frá þessum
októberseðli. í liðnum annað er af-
borgun af íbúð (4 milljónir), notuð
þvottavél sem var keypt og fleira.
[Upplýsingaseðill
ítil samanbuiðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi i upplýsinganúðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiiiskostnaðar
fjölskvldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki cigið þér von um að fá nytsamt hcimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks.
Kostnaður í desembermánuði 1980.
Matur og hreinlætisvörur kr. ____
Annaö
kr.
Alls kr.
WB YIKIA