Dagblaðið - 05.01.1981, Side 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1981 11
Fokker flugvél Landhelgisgæzlunnar flaug vfir Fjailfoss, eftir að skipið hafði sent út neyðarkall. Tómas Helgason flugmaður tók bá bessa mvnd af skininu. Veður var bá skaplegt.
Ms. Fjallfoss f nauðum
skammt undan Færeyjum
—skyndilegur leki kom að skipinu
—danskt strandgæzluskip fylgdi Fjall
fossitil Þórshafnar
,,Ósköp lítið er hægt að segja um
hvað komið hefur fyrir,” sagði Ragnar
Ágústsson skipstjóri á m/s Fjallfossi
þegar blaðamaður DB hafði samband
við hann kl. 3.30 í gær. Fjallfoss lá þá í
Þórshöfn, en þangað kom skipið kl.
04.00 aðfaranótt sunnudags. ,,1 þessu
er að leggjast upp að okkur dæluskip
og það er ekkert hægt að segja um á-
stæður lekans fyrr en búið er að dæla
sjónum úr skipinu.”
Það var kl. 9.40 á laugardags-
morgun, sem Fjallfoss kallar út beiðni
um hjálp, skipið var þá statt 130 mílur
vestur af Færeyjum. Það hafði komið
mikill leki að skipinu, lekinn var í aft-
urlest skipsins, sem í var ósekkjaður
fóðurbætir.
Fjallfossi var strax svarað af
nokkrum skipum, Loftskeytastöðinni í
Neskaupstað og Loftskeytastöðinni í
Þórshöfn. Skipin sem svöruðu
Fjallfossi voru: Guðsteinn, Dettifoss,
Álafoss og Selá, og tóku þau öll þegar
stefnuna á Fjallfoss. Fokker Friend-
ship-vél Landhelgisgæzlunnar var
cinnig send á vettvang. Um hádegis-
bilið hafði danska strandgæzluskipiö
Vædderen samband við Fjallfoss og
tók Vædderen einnig stefnuna til hans.
Um það leyti varð ljóst að skipverjar á
Fjallfossi virtust ætla að ráða við
lekann með þeim dælum, sem eru um
borð og var þá ekki lengur sú hætta
fyrir hendi að þeir þyrftu að yfirgefa
skipið og fara í björgunarbátana.
Vædderen fylgdi siðan Fjallfossi til
hafnar í Þórshöfn í Færeyjum. Þar
verður rannsakað hvað þaö var sem olli
þessum skyndilega leka, en það skýrist
þegar dælt hefur verið úr lest skipsins.
-GSE.
Mikil örtröð hefur verið við þá fáu staði í Reykjavík og nágrenni, sem selt hafa bensín
í bensinverkfaliinu. Umferðartruflanir hafa orðið í Lækjargötu og Skólastræti þar
sem Bifreiðastöð Reykjavíkur er til húsa. Nú um helgina varð iögreglan að grípa til
þess ráðs að loka aðkeyrslunni að BSR vegna ásóknar bensinþvrstra ökumanna.
DB-mynd: Sveinn Þorm.
Tilmælí
til viðskf ptamanna
banka og sparisjóða
Vinsamlegast greiðið fyrir gjaldmiðilsskiptum með
því að halda gömlu og nýju krónunum aðskildum
í öllum greiðslum.
Útbúnir hafa verið sérstakir fylgiseðlar til útfyll-
ingar fyrir innborganir eða skipti á gömlum
seðlum og mynt.
Bankar og sparisjóóir
QJ
<3