Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 05.01.1981, Qupperneq 18

Dagblaðið - 05.01.1981, Qupperneq 18
18 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1981 UM HELGINA Sigurður Sverrisson ALLIR GETA GRATKD MEÐ —fær Lassie stórríddarakrossinn fyrir f rækilegt björgunarafrek??? Mikið rosalega hefur Prúðu leikurunum farið aftur frá því ég sá þáttinn fyrst fyrir nokkrum árum. Þá var allt uppfullt af skemmtilegu efni og framúrskarandi hnyttnum bröndurum í úrvalsþýðingu Þrándar Thoroddsen. Þýðing Þrándar er enn framúrskarandi en efni þáttarins þynnist með hverjum mánuði. Popplög í flutningi hunda og katta, eða kanina e.t.v, eins og reyndin var á föstudag, tröllríða nú þessum fyrrum toppþætti. Má rekja það til þess að um leið og þátturinn varð alþjóðlegur varð að reyna að hafa efnið auðveldara og auðskildara svo það höfðaði til sem flestra. Það eru nefnilega ekki allir sem skilja þessa innanhússbrandara þeirra Breta. Og áfram skemmtu Bretar á föstu- dagskvöld með einhverri þeirri döprustu gamanmynd sem ég hef augum litið og hefur þó sitt hvað slæðzt fyrir sjónir manns frá fæðingu. No sex please we’re British var svo hræðilega vitlaus að ekki einu sinni ég gat hlegið að henni. Öðru hverju mátti brosa að tilburðum hins smávaxna Ronnie Corbett, en þar með var það líka upptafið. Laugardagurinn hófst með þætti Bjarna Fel. og i fyrsta sinn í langan tíma gat ég fylgzt með honum — a.m.k. með öðru auganu. Það verð ég hins vegar að segja að efni þátt- arins var þunnt ef frá er skilin hin stórkostlega viðureign Svíans og Kínverjans í borðtennis. Þar sáum við hvernig leika á borðtennis eins og hann gerist beztur. Ég batt mig niður (með kvölum þó) og horfði á Lassie. E.t.v. er óþarfi að hnýta frekar í þesa framleiðslu, sem augljóslega er ætluð börnum ekki mikið eldri en 5 ára. Hvernig hægt er að gera hvern þáttinn á fætur öðrum um bókstaf- lega ekki neitt er mínum skilningi gersamlega ofvaxið. í þessu tilfellinu er meira að segja boðið upp á æsispennandi framhald þar sem Lassie hefur 1,27 sek. til að krækja sér í stórriddarakross fyrir frækilega björgun fuglsræfils, sem situr makindalega innan girðingar eld- flaugastöðvar. Tekst Lassie að bjarga fuglinum? Deyr fuglinn? Deyr Lassie? Eða verður kannski enn frek- ara framhald? Hver veit en víst er að landslýður allur mun sitja stjarfur fyrir framan skjái sína nk. laugardag. Enski boltinn var næstur á dag- skrá og á hann horfði ég í mestu makindum, enda uppáhaldsefni undirritaðs í sjónvarpinu. Hefur leikjaúrvalið batnað til mikilla muna undanfarna vetur í samanburði við það sem áður var er sömu liðin tröllriðu öllum þáttunum. Freyðibaðsþáttinn Löður sá ég ekki nema rétt í byrjun og sakna hans ekki þó svo hann hverfi af skjánum. Ég verð þó að segja að hann skákar mörgum þeim afspyrnuslöku gaman- þáttum, sem boðið hefur verið upp á undanfarin misseri. Ég sá Húsið á sléttunni í fyrsta sinn (og örugglega það síðasta) í gærdag. Efnisuppbyggingin er ákaflega svipuð og i Lassie. Söguþráðurinn eins einfaldur og frekaslmá verða og allir geta grátið með. Sannkallaður ,,Cry-along-show”. Með Húsinu á sléttunni var mínu sjónvarpsglápi um helgina lokið og hefur þó ekki i annan tíma verið meira. Veðrið Spáð er austfngri átt, snjókoma sunnanlands en minni á Norðuriandi. Nokkuð hvasst verður viðast hvar. Frost verður als staflar nema syflst á landinu. Kkikkan 6 var austan 7, snjókoma og -6 stig í Reykjavfc, austan 6, skaf- renningur og -6 stig á Gufuskákim, norflaustan 3, frostúfli og -6 stig á Galtarvita, sufleuflaustan 2, skýjafl og •11 stig á Akureyri, suflsuflaustan 3, abkýjafl og -8 stig á Raufarhflfn, norðnorflaustan 2, skýjafl og -6 stig á Dalatanga, austnorflaustan 5, skýjafl og -6 stig á Hflfn og austsuflaustan 10, snjókoma og -11 stig á Stórhöf Aa. í Kaupmannahöfn var snjókoma og -2 stig, láttskýjafl og -12 stig í Osló, skýjafl og -12 stig í Stokkhólmi, heiflsktrt og -2 stig ( London, létt- skýjafl og 0 stig í Parfs, heiðskfrt og -4 stig ( Madrid, hátfskýjafl og -11 stig ( Lissabon og léttskýjafl og -11 stig I Jón Guðjónsson fyrrverandi bæjar- stjóri á ísafirði, sem lézt 26. desember, fæddist 2. október 1895. Foreldrar hans voru Guðjón Sigmundsson og Gunnjóna R. Jónsdóttir. Árið 1913 lauk Guðjón prófi frá Verzlunarskóla íslands. Hóf hann síðan störf hjá Ás- geirsverzlun þar til árið 1916 en þá réðst hann til Eimskipafélags íslands. Árið 1919 varð hann yfirbókari hjá Eimskipafélaginu. Árið 1943-46 varð Jón bæjarstjóri á ísafirði og árið 1951 var hann aftur kjörinn bæjarstjóri og gegndi því starfi til ársins 1966. Árið 1919 kvæntist Jón Kristínu S. Kristjánsdóttur. Áttu þau 4 börn. Jóhanna Númadóttir, sem lézt 23. desember, fæddist í Tröllakoti á Tjörnesi 26. október 1884. Foreldrar hennar voru Númi Elíasson og Aðal- björg Guðmundsdóttir. Jóhanna fluttist ung með foreldrum sínum til Húsavíkur þar sem hún bjó í um 40 ár. Árið 1951 fluttist hún til Reykjavíkur og bjó þar með syni sínum. Eftir lát hans fluttist hún til Grenivíkur og þaðan aftur til Húsavíkur. Jóhanna var gift Kristjáni Péturssyni, áttu þau 5 börn. Guðrún Jónmundsdóttir lézt 27. desember. Jarðarförin fer fram þriðju- daginn 6. janúar kl. 10.30 í Fossvogs- kirkju. Hannes Sveinsson fyrrverandi veg- hefilsstjóri, Skriðustekk 23, Reykjavík, lézt 31. desember. Rikharður Hallgrimsson bygginga- eftirlitsmaður, sem lézt á jólanótt, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 7. janúar kl. 15. Sigurður Jóhannesson, Njálsgötu 85, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginnó. janúarkl. 13.30. Guðlaug Stefánsdóttir frá Þórukoti, Njarðvík, lézt að heimili sínu, Hóla- götu 3 Njarðvík, á nýársdag. Jóhanna Guðmundsdóttir, Rjúpufelli 21, lézt á Borgarspítalanum 31. desember. Guðrún Þorsteinsdóttir, ölduslóð 17 Hafnarfirði, lézt i St. Jósefsspítala miðvikudaginn 31. desember. Sigurbjörg Hjálmarsdóttir frá Siglu- firði lézt í Landspítalanum á nýársdag. Ellert Árnason fyrrverandi yfirvél- stjóri lézt í sjúkradeild Hrafnistu 1. janúar. Baldvin Sigurðsson, Sólvöllum 6 Akureyri, lézt í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 1. janúar. Jóhann Jóhannsson fyrrverandi skóla- stjóri á Siglufirði lézt 30. desember. Jarðarförin fer fram frá Fossvogs- kirkju, fimmtudaginn 8. janúar kl. 15. Margrét Hálfdánardóttir, Kaplaskjóls- vegi 39, sem lézt á jóladag verður jarðsett frá Fossvogskirkju mánu- daginn 5. janúar kl. 15. Ottó Tryggvason verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 6. janúar kl. 15. Bryndis Leifsdóttir, Mávabraut 5 B Keflavík, frá ísafirði, lézt í Ríkis- spítalanum i Kaupmannahöfn 29. desember. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 5. janúar kl. 14. Vinningar hjá Krabbameinsfélaginu Dregið var hausthappdrætli Krabbameinsl'élagsins 1980 á aðfangadag jóla. Vinningarnir tólf féllu á cftir talin númer: 82331: Volvo 345 GLS, árgerð 1981. 25343: Bifreiðaðeigin vali fyrir 6.5 millj. kr. 54299: Bifreið aðeigin vali fyrir 5.5 millj. kr. 10089, 19937. 91616 og 141669: Myndscgulbands tæki. Philips. 6232. 62881.78383. 89008 og 143.852; Hljómflutningstæki fyrir 700 þús. kr. hvcr vinningur. Krabbameinsfélagið þakkar vcittan stuðning og óskar öllum landsmönnum árs og friðar. Vinningsnúmer í símahapp- drætti Styrktarfélags lam- aðra og fatlaðra Dregið viriSimahappdrættiSlvrktarfélags lamaðra og fatlaðra i skrifstofu borgarfógeia. þriðjudaginn 23. dcscmber. fcftirfarandi númer hlutu vinninga. I. Daihalsu-Charade bifreið 91-51062. 2. Daihatsu- Charade bifrcið 91 15855. 3. Daihatsu-Charade bifreið 91-45246. Aukavinningar 40 að tölu hver með vöruútlckl að upphæðkr. 200.000. 91-16204 91-13979 91-15381 91 -16204 91-16595 91-16887 91 -17420 91 17449 91-17967 91 23966 91-24784 91-25444 91-25734 91-30136 91 31875 91-32290 91-43302 91-45078 91 -45281 91-50108 91-51181 91-50586 91-66821 91-72049 91-77418 91-81153 91-82523 91 -82810 91-83828 91-85801 92-03680 93-06328 94-07221 94-0812I 95-04136 95 04722 96-24112 97 08840 98 0118/ 98-0II87 9802274 Félag austfirskra kvenna Fundur í kvöld að Hallveigarstöðum kl. 20.30. Félags vist. Kristniboðsfélag karla Reykjavík Fundur verður i kristniboðshúsinu Betania. Laul'ás veg 13. i kvöld. 5. jan.. kl. 20.30. Allir karlmenn vel komnir. Skólaslit í Flensborg Haustönn Flensborgarskóla var slitið laugardaginn 20. desember sl. og þá brautskráðir 3 nemcndur með almennt verzlunarpróf og 30stúdcntar. Beztum árangri á stúdentsprófi náði Ingibjörg Harðardóttir. náttúrufræðibraut: hún fékk 38 sinnum A og 12 sinnum B á námsferlinum. cn skólinn starfar eftir áfangakerfi og einkunnir eru gefnar i bókstöfum. Stúdentarnir skiptast þannig á brautir að 11 eru af viðskiptabraut. 8 af náttúrufræðibraut. 6 af eðlis fræðibraut, 3 af félagsfræðabraut og 2 af uppeldis- braut. Skólameistari Flensborgarskóla cf Kristján Bersi Ólafsson. Skert útlán Byggðasjóðs Stjórn Framkvæmdastofnunar rikisins hcfur tilkynnt að útlán Byggðasjóðs munu verða verulega skert á árinu 1981, miðað við það sem verið hcfir vcgna minni fjárráða sjóðsins. í mörg ár hafa ýmsir lána- flokkar verið i allföstum skorðum og lánbeiðcndur þvi með nokkrum rétti getað talið sig vera í góðri trú um fyrirgreiðslu Byggðasjóðs. Stjórn sjóðsins mun sem fyrr meta mikilvægi hvers máls út af fyrir sig. og kemur þar engin sjálfvirkni til greina. Þá hcfir stjórn Framkvæmdastofnunarinnar samþykkt að herða útlánakjör og skilmála. segir i fréttatilkynningu frá stofnuninni. Dómaranámskeið t knattspyrnu Upp úr miðjum janúar hyggst knattspyrnudeild Breiðabliks standa fyrir dómaranámskeiði i knatt spyrnu. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku hafi samband við Jón Inga Ragnarsson formann deildarinnar i sima 40394. Mmnsngarspjöld Minningarspjöld Styrktar- sjóðs vistmanna á Hrafnistu fást hjá Aðalumboði DAS, Austurstræti. Guðmundi Þórðarsyni gullsmið. Laugavegi 50. Sjómannafélagi Reykjavikur, Lindargötu 9. Tómasi Sigvaldasyni. Brekkustíg 8, Sjómannafélagi Halnarfjarðar. Strand götu 11 og Blómaskálanum við Nýbýlaveg og Kárs nesbraut. Minningarspjöld Blindrafélagsins fást á skrifstofu Blindrafélagsins að Hamrahlíð >7.. simi 38180og hægteraðfá þau afgreidd meðsimtali. Ennfremureru þau afgreidd i Ingólfsapótcki. Iðunnar apóteki, Háaleitisapótcki. Vesturbæjarapóteki. Garðs apóteki. Kópavogsapótcki. Apóteki Hafnarfjarðar. Apóteki Keflavikur. Apóteki Akureyrar og hjá Ástu Jónsdótturá Húsavik. Minningarkort Menningar- og minningarsjóðs kvenna fást á eftirtöldum stöðurn: Bókabúð Braga Laugavegi 26. Lyfjabúð Brciöholts Arnarbakka 4-6, BókaverZluninni Snerru Þverholti Mosfcllssveit og á skrifstofu sjóðsins að Hallveigar stöðum við Túngötu alla fimmtudaga kl. 15 17. sfmi 11856. *. Minningarkort Hjúkmnar- heimilis aldraðra í Kópavogi eru seld á skrifstofunni að Hamraborg I, simi 45550, og cinnig i Bókabúðinni Veduog Blómaskálanum við Nýbýlaveg. Minningarkort Sambands dýravemdunarfélaga íslands fást á eftirtöldum stöðum: REYKJAVÍK: Loftið Skólavörðustig 4. Verzlunin Bella Laugavegi 99, Bókaverzlun Ingibjargar Einars dóttur Kleppsvegi 150, Flóamarkaður SDÍ, Laufás vegi 1, kjallara, Dýraspitalinn Viðidal. KÓPAVOGUR: Bókabúðin Veda Hamraborg. HAFNARFJÖRÐUR: Bókabúð Olivers Steins Strandgötu 31. AKUREYRI: Bókabúð Jónasar Jóhannssonar Hafn arstræti 107. VESTMANNAEYJAR: Bókabúðin Hciðarvcgi 9. SELFOSS: Engjavegur 79. Minningarspjöld Slysavarna- félags íslands fást á eftirtöldum stöðum í Reykjavik. Kópavogi og Hafnarfirði: Ritfangaverzlun Björns Kristjánssonar. Vesturgötu 4. Reykjavik. Bókabúð Vesturbæjar, Viðimel 19. Reykjavik. Bókabúð Glæsibæjar. Álfheimum 74. Reykjavík. Árbæjarapóteki. Arnarvali, Breiðholti. Bókabúö Fossvogs, Efstalandi 26. Reykjavik. Veda. bóka og ritfangaverzlun. Hamraborg 5, Kópavogi. Verzluninni Lúna, Kópavogi. Skrifstofu Slysavarnafé lagsins, Grandagarði 14. simi 27000. BókabúðOlivers' Steins, Strandgötu 31, Hafnarfirði. Einnig eru þau til sölu hjá öllum slysavarnadcildum á landinu. Minningarkort Styrktar- félags vangefinna fást á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu félagsins. Laugavegi II. Bókabúö Bragy Brynjólfssonar. Lækjargötu 2. Bókaverzlun Snæ bjarnar. Hafnarslræti 4 og 9. Bókaverzlun Olivcrs Steins, Strandgötu 31. Hafnarfirði. Vakin er athygli á þeirri þjónustu félagsins að tekið cr á móti minningargjöfum i sima skrifstofunnar 15941 en minningarkortin siðan innheimt hjá scnd anda með giróseðli. Mánuðina apríl ágúst vcrður skrifstofan opin frá kl. 9 16. Opið i hádeginu. Minningarkort kvenfélagsins Seltjarnar vegna kirkjubyggingarsjóðs eru seld á bæjarskrifstof- unum á Seltjarnarnesi og hjá Láru i sima 20423. Minningarkort Hjálpar- sjóðs Steindórs Björnssonar frá Gröf eru afgreidd í Bókabúð Æskunnar. Laugavegi og hjá Kristrúnu Steinsdórsdóttur. Laugarnesvegi 102. Minningarkort Styrktar- félags vangefinna á Austur- landi fást i Reykjavik i verzluninni Bókin. Skólavörðustig 6 og hjá Guðrúnu Jónsdóttut\Snekkjuvogi 5. Sími 34077. Hóseas Björnsson, Skipasundi 48, Reykjavík, varð 95 ára 25. desember sl. Skólameistari afhendir nvstúdent bókarverðlaun. Ljósmynd: Troels Bendtsen. GENGIÐ GENGISSKRÁNING Farflamanna Nr. 1 — 1. janúar 1981 gjaldeynr Einingkl. 12.00 .-Kaup Sala Sala 1 BandarfcJadolar 6^230 6,248 6,873 1 Steriingspund 14,890 14,933 16,426 1 KanadadoUar 5,236 5,251 5,778 100 Danskar krónur 1,0340 1,0370 1,1407 100 Norskar krónut U026 1,2061 U267 '100 Saenskar krónur 1,4224 1,4265 1,5692 100 Finnsk mflrk 1,6224 1,6271 1,7898 ioo Franskir frankar 1,3738 1,3777 1,5155 100 Belg. frankar 0,1973 0,1979 0,2177 100 Svissn. frankar 3,5198 3,5299 3,8829 100 GyMlni 2,9228 2,9313 3,2244 . 100 V.-þýzk mörk 3,1818 3,1910 3.B101 J 100 Lfrur 0,00670 0,00672 0,00739 100 Austurr. Sch. 0,4469 0,4482 0,4930 v 100 Escudos 0,1177 0,1180 0,1298 100 Pesetar 0,0786 0,0788 0,0867 100 Yen 0,03060 0,03069 0,03376 1 frskt pund 11,8180 11,8520 13,0372 1 Sérstflk dráttarróttindi 7,8240 7,8457 * Breyting frá sfflustu skráningu. Símsvari vegna gt. 'gisskráningar 22190.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.