Dagblaðið - 05.01.1981, Síða 20

Dagblaðið - 05.01.1981, Síða 20
20 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1981 I Menning Menning Menning Menning Bók menntir JjjJj ra AÐALSTEINN áék INGÓLFSSON LÝSINGAR 0G LIST — Myndir úr íslandsleiðöngrum Banks og Stanleys Kdward Dayes — Á islenskum bóndabæ. - hafði hann í föruneyti sínu nokkra ágæta vísindatnenn. Tveir leiðangursmenn, auk Stanleys, voru ágætlega drátthagir, — John Baine og Pirie sjóliðsforingi og gerðu þeir allir fjölda mynda. Að leiðangrinum loknum voru þær myndir fengnar tveimur þekktum enskum Iistamönn- um til endurgerðar, þeim Edward Dayes (d. 1804) og Nicholas Pocock (d. 1821). Það eru sem sagt myndir þeirra Miller bræðra, Johns Cleverley, frummyndir Stanleys og eftirmyndir Dayes og Pococks sem finna má í bók Ponzis, með skýringum hans á ensku og íslensku. Ef við svo berum saman myndir leiðangranna tveggja, kemur i ljós að þær eru afar ólíkar. Mynd- listarmennirnir í leiðangri Banks voru á staðnum og þeirra hlutverk var fyrst og fremst heimildasöfnun. Hér var ég Þeir festa á blað lifnaðarhætti Islendinga, húsakynni þeirra, klæða- burð, landslag og jurtir á íslandi o.s.frv. og tekst vel upp, að því er sérfræðingar segja. Þó er einkenni- legt að hvergi skuli sjást merki um vesaldóm íslendinga á þessu tímabili sem var þó eitthvað það erfiðasta sem þjóðin hafði upplifað — arðrán Dana, farsóttir, vetrarhörkur, eldgos. Kannski hafa hugmyndir heimilda- safnaranna mótast meir af fagur- fræði en þeir gerðu sér grein fyrir, — þeirra Stanleys & Co eru instamatík- myndir þess tíma fremur en staðar- lýsingar. „Hérna var ég” segja þær. Þeir taka sér ýmiss bessaleyfi í túlkun á landslagi, t.d. hraunmyndunum (sjá Stapahelli í meðförum Pococks), en í leiðinni bregða þeir yfir það sér- kennilegri birtu, tjá hughrif sin gagn- vart frummyndum þeim sem þeir hafa í höndum, búa til listaverk. Þar eru tilkomumest handverk Edwards Dayes, t.d. að Bessastöðum og á íslenskum bóndabæ, en hann hafði síðaráhrif áTurner. Ýmsar spurningar Eins og áður sagði, er allur frá- gangur á þessari bók til mikillar fyrir- myndar. Þó finnst mér textinn helst til rýr og ýmsar upplýsingar vanta sem hefja mundu bókina upp fyrir kaffiborðið. Er þetta úrval mynda úr Ieiðöngrunum eða allt sem til er? Ef þetta er úrval, hvaða forsendur réðu vali mynda? Fleira væri gaman að vita. Voru þessir leiðangrar fyrstu skipulegu rannsóknarleiðangrar Breta til íslands? Hver voru viðbrögð Breta við þeim heimildum sem leiðangrarnir höfðu með sér heim? Svo finnst mér bruðlað óþarfiega með pláss með því að endurprenta hluta mynda, þó án þess að stækka þá verulega. En útgáfan lofar góðu og ber að þakka forlaginu fyrir fram- takið. -AI. Frank Ponzi — Island á 18. öld, AB, 1880,123 bls. Ég held það hljóti að vera endan- legur prófsteinn á þroska íslenskrar útgáfustarfsemi, hvort hér tekst að prenta listaverkabækur í sama gæða- flokki og í öðrum siðuðum löndum. Slík prentun reynir mjög á þolrif prentara, prentsmiðja og útlitshönn- uða, því allt veltur á því hvort hin ýmsu blæbrigði litaðra listaverka koma til skila eða hverfa í gulu eða blámóðu. Það litla sem gert hefur verið á þessu sviði hérlendis hefur flest mistekist hvað litprentun snertir og sumar listaverkabækur eru nánast ónýtar fyrir vikið. En nú er að rofa til og smátt og smátt eru innlendir aðilar að fá í hendur verkefni af þessu tagi sem áður voru send erlendum prentsmiðjum. Hér ber sér- staklega að geta prentsmiðjunnar Odda, prentstofunnar Grafíkur og Myndamóta, en þessi fyrirtæki hafa m.a. komið við sögu i prentun á bók um Sverri Haraldsson, um myndverk Williams Heinesen fyrir færeyskt forlag og nú síðast unnu þau í sam- einingu að bók Franks Ponzi um íslandsmyndir úr leiðöngrum Banks ,og Stanleys á 18. öld. Metnaðarmál Allar eru þessar bækur mjög sóma- samlega úr garði gerðar, sú slðast- nefnda kannski best, enda stjórnaði öllu útliti hennar nafntogaður smekkmaður. Prentun listaverka- bóka hér á landi ætti að vera okkur metnaðarmál. Sú prentun er sjálfsagt ekki eins hagstæð fjárhagslega og prentvinna erlendis, en með tið og tíma, — og nýrri tækni, hlýtur hún að verða samkeppnisfær. Bókin um íslandsmyndirnar sýnir glöggt að við getum gert eins vel á þessu sviði og flestar aðrar þjóðir, þótt við getum kannski ekki keppt við prentverk Svisslendinga eða Japana. Lengi var mönnum kunnugt um að til væru vatnslitamyndir úr íslandsleiðöngrum þeirra Joseph Banks og J. T. Stanleys, bæði í eigu safna hér og einstaklinga, margt úr einkasafni Marks Watson og hefur lengi staðið til að gera eitthvað fyrir þær. Það er fagnaðarefni að obbinn af þeim skuli nú vera samankominn i bók Franks Ponzi. Að ferðast til þroska Þeir Banks og Stanley voru breskir höfðingjar sem uppi voru á öld upplýsingar þegar landkönnun og ferðalög voru mjög í tísku. Þá var t.d. til siðs að senda unga menn af góðum ættum í ferðalög til nokkurra ára, til að koma þeim til þroska og fræða þá um veröldina. Ýtt var undir það að þeir hefðu með sér vatnsliti og ritblý, eða þá dagbækur, til að festa á pappír það sem fyrir augu bar. Hinn frægi landkönnuður James Cook hélt upp í fyrsta leiðangur sinn árið 1769. Með honum var ungur náttúrufræð- ingur, Joseph Banks, siðareinn helsti náttúruvísindamaður Breta. Banks tókst síðan á hendur ferð til islands árið 1772, til náttúrurannsókna fyrst og fremst og til „myndatöku” fóru með þrír myndlistarmenn, Miller bræðurnir James og John og John Cleverley Jr. Endurgerð frummynda John Thomas Stanley var öllu meiri dílettant og ævintýramaður en Banks og kannski var það metnaður fremur en sannur áhugi á landi og þjóð sem rak hann til að skipuleggja annan íslandsleiðangur árið 1789. Þó heimildin varð að vera myndræn, picturesque. Og það voru bláfátækir fslendingar vissulega ekki. í myndum þeirra Dayes og Pocock erum við komin ansi langt frá frum- heimildum, enda voru þær unnar í Englandi af mönnum sem ekki höfðu verið á íslandi. En kannski skipti það ekki svo miklu máli, því myndir John Cleverley Jr. — Dönsk pakkhús I Hafnarfirði. STRENGJASVEIT N.N. Guðmundur Emilsson — kappsamur stjórnandi. Tónleikor strongjasveitar í Bústaöakirkju 29. dasembar. Stjórnandi: Guðmundur Emilsson. Einleikari á óbó: Sigríöur Vilhjálmsdóttir. Verkefni: C.P.E. Bach: Sinfónía nr. 3; Samuel Barber: Adagio fyrir strengi; G.F. Hándel; Konsert nr. 3 í g-moll fyrir óbó og strengi; P. Tschaikowsky: Seronada op 48. Nafnlaus hélt hún sína fyrstu tón- leika, nýja kammersveitin, í Bústaða- kirkju á mánudagskvöldið. Saga hennar er i stuttu máli sú, að strengjanemendur undir forystu nokkurra útlærðra spilara, með Guð- mund Emilsson í broddi fylkingar, ákváðu að taka saman höndum og halda konsert í jólafríinu. Síðan var keppst við að æfa hátíðisdagana alla, undir drep, og árangurinn fengum viðaðheya umrættkvöld. Sterkt og veikt í verkefnavalinu felst bæði styrk- leiki og veikleiki. Styrkleiki, að þvi leyti að öll eru verkin, nema kannski óbókonsertinn, gjarnan á dagskrá skólahljómsveita og því má reikna með að meðlimirnir kannist við þau af raun. Um leið felur það í sér vissan veikleika, því að verkin eru jafnþekkt meðal áheyrenda, sem gjarnan hafa hlýtt á þau með úrvalshijómsveitum. Verkefnavalið ber þvi með sér hrein- skiptni af hálfu aðstandenda hljóm- sveitarinnar — og þau komu sannar- lega til dyranna eins og þau voru klædd. Leikur strengjasveitarinnar var op- inn og blæbrigðaríkur. Frjálslegur, en þó undir sæmilegum aga. Að sjálf- sögðu vantaði á að hann væri nógu fínt pússaður. En hver.væntir þess líka að strengjasveit verði gljáfægð á nokkrum æfingum. Og flutningur einkenndist af heiðarleika. Til dæmis hefði það verið öruggari og einfaldari leið að láta aðeins þá pottþéttu leika síðustu pianissimo tónana i lok elegi- unnar í Serenöðu Tschaikowskys. Blekkingalaus leikur þeirra varð kannski ekki alveg jafnhreinn og fagur, mér fannst hann þó margfalt meira virði. Makalaus heppni Sigríður Vilhjálmsdóttir lék óbó- konsert Hándels af hreinni snilld. Tónn hennar mætti vera örlítið meiri, en fallegur er hann. Sigríður er enn ein gangandi sönnun þess hversu makalaust heppin við ætlum að verða með óbóleikara okkar hér á íslandi. Guðmundur Emilsson stýrði liðinu af röggsemi. Hann virðist kappsamur stjórnandi, með lipurt og greinilegt slag og á eflaust leftir að slípa sviðs- ímynd sina áður en yfir lýkur. Víst má það teljast ánægjuvottur, að hlutaðeigendur skyldu tíma að verja jólafríi sínu til þessa tónleika- halds. -EM. \i

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.