Dagblaðið - 02.02.1981, Page 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1981.
i
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Runald Reagan Bandarikjaforseti.
Reagan skilur ekki
—segir Tass-f réttastofan sovézka
Hin opinbera sovézka Tass-frétta-
stofa sagði um helgina að þær ásakanir
Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta að
Sovétríkin væru að reyna að setja á
stofn alheimskommúnistaríki sýndu að
hann skildi ekki eðli heimsbyltingarinn-
ar. Fréttastofan neitaði þeim ásökun-
um Reagans að Sóvétríkin beittu
svikum og prettum í alþjóðasamskipt-
um.
Krístnir Kínverjar
þinga i Bejingborg
Rúmlega hundrað kristnir Kinverjar
hittust í Beijing um helgina á þriðja
þingi samtaka kínverskra mótmæl-
enda. Þingið valdi Yien Jixeng, 71 árs
gamlan prest, sem formann. Hann
hvatti alla kristna menn í Beijing til að
sameinast öllum íbúum Kina til að
stuðla að uppbyggingu landsins og
heimsfriði. í Beijing eru tvær mót-
mælendakirkjur þar sem guðsþjón-
ustur eru haldnar reglulega.
Bandalag Kína, NATÓ-
ríkjanna ogJapan?
„Innrás Sovétríkjanna i Pólland
kynni að leiða til bandalags milli
Bandaríkjanna, Vestur-Evrópu,
Japans og Kína,” sagði fyrrum örygg-
ismálaráðgjafi Bandaríkjastjórnar,
Zbigniew Brezenski, I gær.
Hann sagði fréttamönnum að ef hin
sjálfstæðu verkalýðsfélög í Póllandi
yrðu kúguð af Sovétríkjunum gæti það
leitt til endurnýjunar andrúmslofts
kalda stríðsins frá því um 1950.
SjóslysiðáJövuhafi:
Lifandi farþegar
ennþá aö finnast
Fjörutíu og fimm farþegar af indó-
nesíska skipinu Tampomas II, sem
sökk í Jövuhafi sl. þriðjudag, fundust á
lifi I gær á eyju hundrað mílur frá slys-
staðnum. Leit hefur nú verið hætt og
eru fjögur hundruð og fimmtíu manns
taldir af en sjö hundruð og þrjátíu var
bjargað. Meðal þeirra sem fórust með
skipinu var skipstjórinn en hann mun
hafa haldið því fram að eldurinn sem
kom upp í skipinu hefði stafað af
íkveikju.
Enn er ekki séð fyrir endann á borgarastyrjöldinni i El Salvador, sem á siðastliönu ári
kostaði yftr tfu þúsund ibúa landsins lifið. Skæruliðar vinstri manna segjast nú undir-
búa nýja „lokasókn” og er þvi vart við öðru að búast en að blóöbaðið aukist frekar en
hitt. Myndin sýnir hóp skæruliða.
Rússar svara Reagan f ullum hálsi:
Nýtt kait stríð
i uppsiglingu?
—„Bandaríkjamenn skipuleggja hryöjuverkastarfsemi”
Harðorðar yfirlýsingar stjórnvalda
í Bandaríkjunum og Sovétríkjunum
hvorra í annarra gerð eftir að Ronald
■ Reagan tók við forsetaembætti i
Bandarikjunum þykja minna talsvert
á tímabil kalda stríðsins svonefnda.
Tass-fréttastofan sovézka sakaði í
gær bandarísku leyniþjónustuna um
að skipuleggja hryðjuverkastarfsemi
og útbreiða um heiminn.
Ásökun þessi kemur í kjölfar
þeirrar yfirlýsingar Alexanders Haig,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að
Sovétmenn styddu við bakið á
hryðjuverkamönnum.
Tass-fréttastofan sagði að hryðju-
verkastarfsemi I pólitískum tilgangi
væri víðsfjarri Sovétmönnum en það
væri hins vegar bandaríska leyni-
þjónustan CIA sem væri miðstöð
hryðjuverkastarfsemi í heiminum.
Hún skipulegði morð og sendi hópa
hryðjuverkamanna inn í önnur lönd.
Tass nefndi sem dæmi, að CIA
hefði lagt á ráðin um að myrða Fidel
Castro leiðtoga Kúbumanna og
staðið fyrir morðunum á Italanum
Aldo Moro árið 1978 og marxist-
anum Salvador Allende, forseta
Chile, auk þess sem Bandaríkin
hefðu komið Iranskeisara til valda á
sinum tíma.
Skæruliðar rauðu khmeranna svonefndu I Kampútseu hafa stöðugt haldið uppi vopnaðri andspyrnu 'gegn innrásarliði Viet-
nam. Skæruliðarnir hafa notið stuðnings Kinverja.
„ Viljum sameina alla
andstæðinga Vietnam"
— segir f orsætisráöherra Kína, Zhao Ziyang
Forætisráðherra Kína Zhao Ziyang
sagði í gær að Kínverjar styddu tilraun-
ir til að sameina alla andstæðinga Viet-
nam í Kampútseu. Zhao sagði á blaða-
mannafundi að hann vonaðist til að
andspyrnuhreyfingar i Kampútseu
sameinuðust gegn Víetnömum sem her-
tóku landið fyrir tveimur árum. Zhao,
sem er í opinberri heimsókn í Thai-
landi, sakaði Víetnama um að auka á
spennu I suðaustur-Asiu.
blað alþýðunnar minntist í engu á til-
lögur Vietnama um friðarsamninga
Vietnam og Kína varðandi Kampútseu-
málið.
Kona forsætisrád'
herra Noregs?
Dagblað alþýðunnar í Kína skrifaði
um helgina, að tillögur Vietnam, Laos
og leppstjórnar Vietnam í Kampútseu
um ráðstefnu um framtíð Kampút-
seu væru settar fram einungis til að
draga athyglina frá kúgun Vietnama
gagnvart Kampútseumönnum. Dag-
Frú Gro Harlmen Brundtland, fyrr-
um umhverfismálaráðherra og varafor-
maður norska verkamannaflokksins,
þykir líkleg til að verða næsti forsætis-
ráðherra Noregs eftir að Oddvar
Nordli lét af embætti forsætisráðherra
á föstudag af heilsufarsástæðum.
Aðrir sem til greina koma eru um-
hverfismálaráðherrann Rolf Hansen og
fyrrum olíu- og orkumálaráðherra,
Bjartmar Gjerde. Nordli, sem er 53 ára
gamall, lét af embætti að læknisráði en
talið er að hörð gagnrýni á hann innan
verkamannaflokksins hafi einnig átt
þátt i ákvörðun hans.