Dagblaðið - 02.02.1981, Síða 10
10
I
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Tilkynning um skilnað Kennedy-hjónanna kom sólarhring eftir að Reagan tók við forsetaembætti:
KS FURUNÁLA-FREYÐIBAÐ
jafn ómissandi
og
sápa
FKKTEN.Víí
HJONASKILNAÐURINN
UPPHAFIÐ AÐ NVRRI
KOSNINGABARÁTTU?
Fréttin um að hjónin Edward og
Joan Kennedy hefðu ákveðið að
skilja kom aðeins einum sólarhring
eftir að fyrsti forsetinn í sögu Banda-
ríkjanna, sem hefur gengið í gegnum
hjónaskilnað, sór embættiseið sinn
sem forseti. Sú staðreynd að fyrra
hjónaband Ronalds Reagan kom
ekki til umræðu i kosningabaráttunni
sýnir að bandarískir kjósendur gera
sér ekki sömu rellu út af hjónaskiln-
aði forsetaframbjóðanda eins og
áður í tíð frambjóðenda eins og
Adlai Stevensons og Nelson Rocke-
fellers.
Jafnframt hefur framtíð öldunga-
deildarþingmannsins frá Massachus-
etts aldrei verið eins óráðin og nú.
Hann er án efa þekktasti kaþólikki í
Joan Kennedy hefur nú fengið starf sem þulur i sjónvarpsstöð í Boston.
Sögusagnir um veikleika Kennedvs í einkalífi eru taldar hafa stóran þátt í ósigri hans fyrir Carter.
fæst
um
land
al/t
Bandaríkjunum sem hættir sér út í
kosningabaráttu eftir hjónaskilnað.
Hann mun keppa að því að verða
kosinn forseti Bandaríkjanna árið
1984.
Sennilega kom tilkynningin um
hjónaskilnaðinn einmitt á þessari
stundu vegna fyrirhugaðrar kosn-
ingabaráttu. Fjögurra ára gamall
hjónaskilnaður er ekki eins líklegur
til að verða honum fjötur um fót í
kosningabaráttu eins og að búa
aðskilinn frá eiginkonunni árum
saman.
Hins vegar mun þessi ákvörðun
Kennedys tæpast stöðva slúðrið um
persónulegt líf hans. f kosningabar-
áttunni á siðastliðnu ári nýttu menn
Jimmy Carters sér einmitt mjög vel
sögusagnir um veikleika Kennedys i
einkalífinu. Talið er að það hafi öðru
fremur kostað hann sigurinn í barátt-
unni við Carter forseta.
Joan og Edward Kennedy höfðu
búið hvort í sínu lagi í hálft annað ár
þegar þau tóku saman á ný, sýnilega
til að auka sigurmöguleika Kennedys
í kosningabaráttunni. Hún stóð fast
við hlið eiginmanns síns allt þar til
hann viðurkenndi ósigur sinn á
flokksþingi demókrata i ágústmán-
uði síðastliðnum.
En samband þeirra var aðeins
sýndarmennskan ein. Kennedy sýndi
konunni, sem hann hafði verið
kvæntur í 22 ár, aldrei neina ást.
Joan Kennedy hefur aldrei leynt
andúð sinni á hinu pólitíska lífi i
Washington og sögusagnirnar um
ástarsamband manns hennar við
aðrar konur hafa gengið ákaflega
nærri henni.
Það var ekki sízt það sem gerði það
að verkum að hún varð alkóhólism-
anum að bráð, að því er hún sagði í
samtali við MaCall-tímaritið í maí-
mánuði síðastliðnum.
„Það var auðveldara fyrir mig að
fá mér nokkra sjússa heldur en að
rjúka upp og spyrja Ted hver væri
sannleikurinn um samband hans við
aðrar konur. Ég róaðist við að
drekka og ímyndaði mér að ég væri
hvorki særð né sorgbitin,” sagði
Joan Kennedy.
,,Ég fann að alkóhólið hafði ró-
andi áhrif á mig og þannig tókst mér
að vissu leyti að loka mig frá því sem
gerðist.”
f febrúar 1978 flutti hún frá manni
sínum í Washington í eigin íbúð í
Heildsölubirgðir:
KRISTJÁNSSON HF.
Símar 12800 og 14878.
„Fólk, sem giftist jafnungt og Joan og F.dward Kennedy. getur þroskazt hvort frá
öðru,” segir prestur þeirra.
Chappaquiddick árið 1969. Starfs-
maður kosningabaráttu Kennedys,
ung stúlka að nafni Mary Jo Kope-
chne, drukknaði eftir að Kennedy
missti stjórn á bifreið sinni og keyrði
út af brú. . .
Spurningar um hvaða samband
hafi verið á milli þeirra og hvers
vegna slysið varð og hvers vegna
Kennedy lét ekki vita af þvi strax
hafa fylgt honum æ síðan.
Joan Kennedy segist trúa fram-
burði manns síns.
Joan og Edward Kennedy eru í
rómversk-kaþólskum söfnuði í
Washington og þau ráðfærðu sig við
safnaðarprestinn, séra James Eng-
lish, áður en þau tilkynntu um
skilnaðinn. Rómversk-kaþólska
kirkjan í Bandaríkjunum mælir gegn
skilnaði en bannar hann ekki. Venju-
lega geta þeir er hafa skilið ekki
fengið hjónavígslu á nýjan leik i
kirkjunni.
„Þeim er báðum ljóst að þau geta
ekki gift sig aftur í rómversk-
kaþólsku kirkjunni,” sagði séra Eng-
lish.
„Fólk, sem giftir sig jafn ungt og
Ted og Joan, getur þroskazt á þann
hátt að þau verði gjörólíkar mann-
eskjur. Þau hæfa hvort öðru þá ekki
svo vel lengur.”
(Dagbladet)
Boston og byrjaði að sækja kennslu-
stundir í tónlist. Hún fékk meðferð
við áfengissýkinni og sagði sjálf að
hún hefði hlotið fullan bata þegar
kosningabaráttan hófst. Hún lýsti því
yfir að hún ætlaði sér að flytja með
manni sinum í Hvíta húsið ef hann
næði kosningu.
Fjölmargar konur í samkvæmis-
lífinu í Washington hafa verið orðað-
ar við Edward Kennedy. Ein þeirra,
Helga Wagner, gifti sig um áramótin
og segja sögusagnir að Kennedy hafi
ekki verið alltof ánægður með það
því hún hafi verið sú eina af ástkon-
um hans sem hann hafi getað hugsað
sér að eiga.
Ekki er neinn vafi á því að versta
hneykslið á ferli Edwards Kennedy er