Dagblaðið - 02.02.1981, Síða 12

Dagblaðið - 02.02.1981, Síða 12
12 BIMIÐ írjálst, óháð dagblað Utgefandi: Dagblaflið hf. * * Framkvœmdastjón: Svoinn R. EyjóKsson. Ritstjóri: Jónas Kristjónsson. Aöstoöamtstjóri: Haukur Helgason. Fréttastjón: Ómar Valdimarsson. Skrífstofustjóri ritstjómar. Jóhannes Roykdal. Íþróttin Hallgr Simonarson. Menning: Aöalsteinn Ingótfsson. Aðstoöarfróttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit Ásgrímur Pólsson. Hönnun: Hilmar Karlsson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Atfi Rúnar Halldórsson, Adi Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sig- urðsson, Dóra Stefónsdóttir, Elin Albertsdóttir, Gisli Svan Einarsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hókonardóttir, Krittjón Mór Unnarsson, Siguröur Sverrisson. Ljósmyndir: Bjamleifui Öjarnleifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurösson, Siguröur Porri Sigurösson og Svainn Þormóðsson. Skrífstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þróinn Þoríeifsson. Auglýsingastjórí: Mór E.M. Halldórs- son. Droifingarstjórí: Valgeröur H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Siðumúla 12. Afgreiðsla, óskriftadeildý tfugfýsingar og skrífstofur Þverholti 11. Aðaisimi blaðsins er 27022 (10 linur). Sotning og umbrot Dagblaðið hf., Síðumúla 12. Mynda- oþ plötugerð: Hilmir hf., Siðumúla 12. Prentun; Árvakur hf., Skeifunni 10. Áskriftarverð ó mónuði kr. 70,00. Verð I la^isasölu kr. 4,00.. Sígjaldþrota raunsæisstefna Þegar íslenzkir aðilar tóku þátt í jálparstarfi í Biafra, heyrðust raddir um, að hjálpin gæti skaðað skreiðarsöl- ur til Nigeríu. íslendingar væru fáir og smáir og yrðu að líta á utanríkismál sem hrein og köld viðskipti. Þessar raddir fengu ekki að ráða ferðinni. Menn töldu, að almennar hugmyndir um mannréttindi, þar á meðal réttinn til að lifa, væru svo mikilvægar, að taka mætti nokkra fjárhagslega áhættu til að styðja þær í verki. Á Vesturlöndum hafa frönsk stjórnvöld komizt einna lengst á þeirri braut, að utanríkismál væru hreint valdatafl, þar sem gæta skyldi franskra hagsmuna í hvívetna án tillits til nokkurra mannlegra eða siðrænna sjónarmiða. Franskur vopnaiðnaður hefur hagnazt töluvert á þessari stefnu. Frönsk vopn hafa ævinlega verið til reiðu handa harðstjórum þriðja heimsins, þegar önnur vestræn ríki hafa fyrir sitt leyti bannað slíkar vopnasöl- ur. Að baki hinni frönsku afstöðu liggur svonefnd raunsæisstefna í utanríkismálum. Samkvæmt þeirri stefnu felst óleyfílegt veiklyndi í þeirri stefnu Carters, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að blanda mannrétt- indahugmyndum saman við. Við verðum að vera raunsæir, segja valdshyggju- mennirnir. Við verðum að gæta hagsmuna útflutnings- iðnaðar okkar,þar á meðal vopnaframleiðslunnar.Við verðum að gæta pólitískra hagsmuna okkar í ríkjum, þar sem stjórnarfar er vont. í krafti þessarar stefnu vinguðust frönsk stjórnvöld ákaflega við Bokassa, þáverandi keisara í Mið-Afríku. Giscard d’Estaing auðsýndi honum vináttu, fór með honum á veiðar og er nú grunaður um að hafa þegið af honum demanta. Þar á ofan liggur nú fyrir í opinberu ákæruskjali sú fullyrðing, að einn ráðherra Frakklands hafi snætt mannakjöt í veizlum hjá Bokassa. Slíkt át var einmitt helzta ástríða keisarans, önnur en að berja, limlesta og drepa börn og fullorðna. Raunsæisstefna af þessu tagi virðist ekki gera ráð fyrir þeim möguleika, að vesalings fólkið í löndum „vinveittra” harðstjóra geti risið upp og rekið þá af höndum sér. Bokassa valt úr sessi og spillti þannig hinu franska tafli. Giscard d’Estaing hefur upp á síðkastið haft veruleg- an ama af stuðningnum við Bokassa. Uppljóstranir um barnamorð og mannakjötsát eiga umtalsverðan þátt í, að frönsku forsetakosningarnar í vor eru allt í einu orðnar tvísýnar. Skoðanakannanir sýna, að frambjóðandi jafnaðar- manna, Mitterand, hefur um þessar mundir meira fylgi en forsetinn, aldrei þessu vant. Og nýtur Mitterand þó ekki stuðnings kommúnista að þessu sinni. Bandaríska útgáfan af frönsku raunsæisstefnunni felst í að styðja þá harðstjóra þriðja heimsins, sem segjast vera virkir andstæðingar kommúnismans. Til dæmis Reza Pahlevi í íran, Pinochet í Chile, Batista á Kúbu og Papa Doc á Haiti. Við stjórnarskiptin í Bandaríkjunum komust aftur til valda menn, sem halda því blákalt fram, að raun- sætt sé að styðja harðstjóra þriðja heimsins til að forða þjóðum þeirra frá enn verra oki kommúnismans. Samt er þessi raunsæisstefna margreynd. Hún hrekur á.sjálfvirkan hátt almenning í fang þeirra afla, sem eru sameiginlegir óvinir harðstjóranna og Banda- ríkjanna. En Reagan og menn hans virðast því miður ekki vel að sér í sagnfræði. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1981. " ' .................. I upphafi alþjóðaárs fatlaðra HLUT1AF HEILDINNI Hvað er fatlaður maður? Á hvaða hátt er hann öðruvisi en aðrir menn? Spurningum sem þesSum er rétt að velta örlítið fyrir sér nú í upphafi Alþjóðaárs fatlaðra. Fatlaður er maður sem á einhvern hátt uppfyllir ekki þann mælikvarða á starfsemi likamans sem fjöldinn miðar við, þ.e. líkamlega eru þeir öðruvísi en fjöld- inn telur „eðliíegt”. Þetta er alrangt hugarfar, það væri óeðlilegt ef allir uppfyiltu þennan meðallagsmæli- kvarða. Það er nú einu sinni svo að engir tveir menn eru eins, einn getur V— 1 1 verið heimsmethafi i hlaupum og annar getur verið í hjólastól en báðir eru þeir samt fullkomlega eðlilegir. Fatlaður maður er ekki á neinn hátt annan en líkamlega öðruvísi en fjöld- inn, hann er tilfinningalega eins og aðrir. Það sem gerir fatlaða verr stadda í samfélaginu er að þeir eru minni- hlutahópur, og þangað til nýlega A „Þess vegna er stærsta verkefnið hér á ^ íandi á alþjóðaári fatlaðra að breyta því umhverfi, sem fyrir er, þannig að tekið verði tillittil allra... ” Sannleiksleit eða rógur? Að undanförnu hafa birst skarpar aðfinnslugreinar i fjölmiðlum, eink- um Dagblaðinu, um opinbera inn- heimtu. Við lestur þessara óvægnu aðfinnslugreina hefur mér virst gæta litils skilnings á því að ríkisheildin er ekkert annað en við sjálf, starfandi þegnar þessa lands. Það er þó öllum ljóst þegar hrinda þarf vinsælum mannúðar-, menningar-og velferðar- málum í framkvæmd. Kröfum á hendur „hinu opinbera” linnir að minnsta kosti ekki og undir þær er ótæpilega tekið af fjölmiðlunum. En sneyðast kann um stuðninginn við „hið öpinbera” þegar það þarf að afla tekna til að standa straum af vaxandi kröfum. Menn eru að visu haldnir mismikilli þráhyggju í and- stöðú sinni við tekjuöflun hins opin- bera en hún virðist þó yfirgnæfa sam- úðina með samfélagsheildinni. Sumir, örfáir að vísu, eru svo öfga- fullir i andúð sinni að það er eins og þeir leiti með logandi ljósi að hugsan- legum misfellum við tekjuöflunina; fullyrða jafnvel að brotin séu laga- ákvæði við opinbera innheimtu. Einkum er þar verkadrjúgur stjórnar- maður í Neytendasamtökunum sem notar stöðuheiti sitt til að gera áróðurinn áhrifameiri. M.a. hefur hann fullyrt að stofnun sú sem ég veiti forstöðu hafi seilst of Iangt í inn- heimtuaðgerðum og visvitandi brotið lög og reglugerðir. Þessum skrifum hefði ég ekki sinnt, enda sjá flestir hvers kyns málflutningur prófessors- ins er, hefði tiltölulega áhrifamikill fjölmiðill, Dagblaðið, ekki í eigin nafni gerst meðflutningsmaður að áróðrinum. Og það fullyrði ég að ef aðfinnslurnar eru jafn,,haldgóðar” gegn öðrum opinberum stofnunum og þær eru gagnvart tollstjóra- embættinu þá mega þessar stofnanir vel við una. Dagblaðinu svarað Kem ég þá að efnisaðfinnslum A „Það stendur ekki á gagnrýni á fram- kvæmd opinbers eftirlits og hrikalegar smyglsögur ganga fjöllunum hærra... ” Flugmál landsbyggðarínnar: ÁRÉTTLÆTl 0G RAUNSÆI BRESTUR aðeins stundarkorn við lestur dag- blaðs eða bókar. Þar með er samt ekki öll sagan sögð. f misjafnri færð og veðrum verður fólk að komast úr fjarlægum sveitum á flugvöll, bíða þar tímunum saman úti í bíl með vél- ina og miðstöðina á eða inni í „flug- stöð,” ef seinkun verður. Varlegra er að hafa orðið „flugstöð” innan gæsalappa, a.m.k. hvað varðar Aðaldalsflugvöll, sem þjónar Húsa- vík og Suður-Þingeyjarsýslu. „Flugstöðin” er heldur óhrjálegur kofi. Oft, eftir að komið er fram í myrkur, sitja menn þar, berja sér til hita og mæna eftir stækkandi ljósi að Ekki tekur nema um nálega eina klukkustund að fljúga með Fokker- Friendship-vélum Flugleiða frá helztu byggðakjörnum landsins til Reykjavíkur: Egilsstöðum Húsavík, Akureyri, Sauðárkróki, ísafirði og Vestmannaeyjum. Tækjabúnaði fyrir blindflug niðri á flugvöllum og uppi í flugvélum fleygir fram með hverju árinu, sem líður. Samgöngur í lofti gerast ótrúlega öruggar. Innanlands- flugið hefur fært landsmenn nær hver öðrum en í kílómetrum verður talið. Notalegt flug, en kuldaleg bið á jörðu niðri Ferðin landshorna á milli tekur ofan. Og seint og um síðir er tilkynnt, að ekkert verði úr flugi það kvöldið. Endumærandi hressingu í „flug- stöðinni” er ekki að fá, en skafrenn- ingurinn hefur gleypt völlinn og stormurinn steypir sér á brautina. Anzi nöpur biðin í kofanum, þegar snúa verður við út í kuldann og kafaldið. Hótel Húsavfk Búskapurinn á Aðaldalsflugvelli stingur 1 stúf við þjóðlífið, sem þar þrýstist um slagæð. Mundi ný flug- stöð þó ekki kosta nema sem svarar brú á nýjum skuttogara. „Flugstöð- in” á Áðaldalsflugvelli stenzt harla

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.