Dagblaðið - 02.02.1981, Side 20
20
Gert er ráð fyrir að norðaustanáttinl
breiðist yfir alit landið f dag en geng-j
ur fljótlega niður. Snjókoma verður áj
Norður- og Norðausturlandi en smáél
sunnanlands og vestan.
Klukkan 6 var sunnan 4, skúrir og 3,
stig ( Reykjavik, austan 4, slydduál og|
2 stig á Gufuskálum, norðaustan 4,
snjókoma og —3 stig á Galtarvita,
suðaustan 3, alskýjað og 2 stig á
Akureyri, suðvestan 3, láttskýjað og
2 stig á Dalatanga, suðsuðvestan 5,
úrkoma og 4 stig á Höfn og suðsuð-
vestan 11, skúrir og 3 stig á Stór-
höföa.
i Þórshöfn var skýjað og 6 stig, ,
þokumóða og 5 stig i Kaupmanna-:
höfn, alskýjað og 3 stig ( StokkhólmiJ
þokumóða og —1 stig ( London.i
þokumóða og 2 stig ( Hamborg, heið-j
skirt og —1 stig (Par(s, heiðskirt og —!
8 stig (MadrkJ, og heiðrikt og 6 stig (>
Sleinþór Þórflarson, Hala, scm lé/i '0
janúar sl., fæddisl 10. júní I892 á
í Suðursveit. Foreldrar hans voru
Þórður Steinsson og Anna Benedikts-
dóttir. Árið I9ll stofnaði Steinþór
lestrarfélagið í Suðursveit og ári síðar
ungmennafélagið Vísi. Árið 1918 var
hann kjörinn formaður Búnaðarfélags-
ins. Steinþór var kjörinn í stjórn Kaup-
félags Austur-Skaftfellinga árið 1919.
Hann var formaður Búnaðarsambands
Austur-Skaftfellinga i 65 ár, eða allt frá
stofnun þess. Árið 1914 hóf Steinþór
búskap á Hala, fyrst i sambýli við
föður sinn en ári síðar tók hann við öllu
búinu. Árið 1914 kvæntist Steinþór
Stcinunni Guðmundsdóttur og áttu þau
2 börn.
Jóna Lárusdóltir, sem lézt 24. janúar
sl., fæddist I6vapríl 1930 I Krossanesi í
Eyrarsveit. Foreldrar hennar voru
Sigurlaug Skarphéðinsdóttir og Lárus
Guðmundsson. Ung giftist Jóna Árna
Kristmundssyni og áttu þau 2 syni.
Síðari ntaður Jónu er Björn Sveinsson,
ólu þau upp fósturdóttur. Þau bjuggu
lengi i Keflavik en fluttu til Innri-
Njarðvíkur fyrir tveimur árum.
Sigurður Friflriksson skipstjóri, frá
Gamla Hrauni, til heimilis að Hring-
braut 48 Reykjavík, lézt 21. janúar sl.
Útförin hefur farið fram i kyrrþey.
Margrét Gunnarsdóltir, Grenime! 24,
er látin. Jarðarförin fór fram i kyrrþey.
Hákon Jónasson fyrrverandi bifreiðar-
stjóri, Skarphéðinsgötu 12, lézt að
heimili sínu 29. janúar sl.
Þórey Þorsleinsdótlir kaupkona,
Snorrabraut 61, lézt 29. janúar sl.
Margrél Jörundsdóttir, Njálsgötu 94,,
lézt að Hátúni 10B 29. janúar sl.
Elin Filippusdóttir Holmás lézt 28.
janúar sl. í Bergen
Ásgcir Þórhallur Guðjónsson frá ísa-
firði, sem lézt 23. janúar sl., verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju i dag,
2. febrúar, kl. 13.30.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1981.
/2
OMAR
VALDIMARSSO
m.í'.*.
Fréttastofan njóti sannmælis
Þetta var alveg þokkaleg útvarps-
og sjónvarpshelgi. Þó játa ég það
strax í upphafi, að ég hef lítið hlustað
á útvarp um helgina — einfaldlega
vegna þess að þar er yfirleitt harla
fátt sem freistar mín.
Þannig er t.d. með það helgarefni
útvarpsins, sem áður fyrr var hrein
nauðsyn að fylgjast með — laugar-
dagsþátturinn í vikulokin: ég efast
um að öllu almennari og óskemmti-
legri mistök séu gerð í dagskrárgerð
Rikisútvarpsins um þessar mundir.
Þátturinn sá er alveg laus við að hafa
nokkuð sem kalla mætti „tempó”,
hvað þá að hann sé léttur og frísk-
Iegur. Nei, heldur lætur þetta væna
fólk, sem ég raunar þekki ekkert og
er áreiðanlega allt af vilja gert, dynja
yfir okkur ýmsar misjafnlega skýr-
legar og landsföðurlegar athuga-
semdir og hvatningar til að gera hitt
og þetta. Það er bjargfjöst skoðun
mín, að þessi þáttur hafi ekki borið
sitt barr síðan honum stjórnuðu þau
Jón Björgvinsson, Edda Andrésdótt-
ir, Árni Johnsen og Ólafur A. Geirs-
son. Líklega hefur öllu betri maga-
sínþáttur ekki verið gerður á íslandi
en einmitt sá þáttur. Mistökin voru
náttúrlega upphaflega þau að reyna
að halda þæltinum áfram — og alltaf
versnar hann.
Eftirminnilegasta rikisfjölmiðla-
efni helgarinnar eru glimrandi góðar
fréttamyndir af gosinu í Gjástykki.
Ef ekki væri fyrir kvikmyndirnar,
sem kvikmyndatökumenn sjónvarps-
ins (líklega Haraldur Friðriksson nú
um helgina) hafa tekið af þessum
gosslettum þá ætti maður líklega
erfitt með að sjá muninn á einu
gosinu og öðru. Fréltastofa sjón-
varpsins hefur oft fengið illilega á
baukinn i þessum pistlum og trúlega
hefur hún oft átt það skilið. En ég er
þó ekki viss um að samanburðurinn
við fréttastofu útvarpsins sé alltaf
fyllilega réttlætanlegur. Á fréttastofu
sjónvarpsins vinna tveir eða þrír
fréttamenn á hverri innlendri vakt og
líklega einn á hverri erlendri. Það er
augljóslega ekki hægt að gera miklar
rósir í sjónvarpsfréttum með slíkum
mannskap — það er meira en að
segja það að fara í fréttaferðir með
margra manna lið — myndatöku-
menn, hljóðmenn og fleira fólk. Og
ekki bæta úr þær ýmsu reglur og
þröngu skorður, sem starfsemi frétta-
stofu sjónvarpsins eru settar. í þessu
sambandi nægir að minna á þær
furðulegu uppákomur, sem orðið
hafa i sambandi við kvikmyndun
íþróttaleikja.
Vinna á föstudagskvöldið tafði
mig að verulegu leyti frá sjónvarpi
það kvöld — þó sá ég dularfulla kvik-
mynd um ennþá dularfyllri símtöl frá
löngu dauðum manni. Sjónvarpið
hefur að undanförnu sýnt nokkrar
myndir í þessum dúr og er nú engu
likara en að andatrúin hafi tekið
völdin í Lista- og skemmtideildinni.
Vonandi spilla þessar draugamyndir
— sem margar hafa verið ágætlega
skemmtilegar — ekki svefni fyrir
þeim í LSD.
Og Landnemarnir á sunnudags-
kvöldum eru líklega að verða búnir,
enda heldur farið að teygjast úr þeim
þáttum. Þeir halda samt áfram að
deyja þar hver um annan þveran —
eftir að ofbeldinu lauk er hending að
menn deyi þar úr öðru en hjartaslagi.
-ÓV.
Stjórnmáfðfundir
Sigþór Karl Þórarinsson, Einarsnesi,
sem lézt 23. janúar sl., fæddist 28.
janúar 1918 i Reykjavik. Foreldrar
hans voru Þórarinn Jónsson og
Sigríður Gisladóttir. Árið I939
kvæntist Sigþór Sigríði Guðmunds-
dóttur. Hófu þau búskap á Valbjarnar-
völlum árið 1940 en árið 1947 keyptu
þau Einarsnes og bjuggu þar upp frá
því. Sigþór og Sigriður áttu 7 börn.
Jón Guðbrandsson, sem lézt 20. janúar
sl., fæddist 23. ágúst 1918 á Sólheim-
um í Laxárdal. Foreldrar hans voru
Guðrún Helga Jónsdóttir og Guð-
brandur Jónasson. Jón var verkstjóri
við byggingu Ræsis I Reykjavík og
veitti síðan smurstöð fyrirtækisins for-
Stöðu um árabil. Árið 1959 flyst hann
að Höfða á Valnsleysuströnd og
stundaði búskap en jafnframt stundaði
hann akstur fyrir frystihúsið í Vogum.
Síðustu 10 árin vann hann á bifreiða-
verkstæði varnarliðsins á Keflavikur-
flugvelli. Jón var m.a. formaður verka-
lýðsfélags Vatnsleysustrandar í nokkur
ár. Árið 1939 kvæntist hann Ástu
Þórarinsdóttur og áttu þau 7 börn.
Davíð Sigurðsson forstjóri, Blikanesi
24, verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unn í Reykjavík 3. febrúar kl. 13.30.
Borghildur Einarsdóttir frá Eskifirði.
Skólavörðustíg 41, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju 3. febrúar kl. 13.30.
Guðný Jakobsdóttir, Ásvegi 29 Akur-
eyri, verður jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju 3. febrúar nk. kl. 13.30.
Jón Hafliðason fulltrúi, Hátúni 10 A,
sem lézt 24. janúar sl., verður jarð-
sunginn frá Fríkirkjunni 3. febrúar kl.
15.
Anna Hannesdóttir, Hellu Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar-
kirkju þriðjudaginn 3. febrúar kl. I4.
Tónleikar
Tónleikarað
Kjarvalsstöðum
Sigrún Gestsdóttir sópransöngkona, John Speight
baritónsöngvari og Sveinbjörg Vilhjdlmsdóttir halda
tónlcika þriðjudaginn 3. febrúar kl. 20:30 að Kjarvals-
stöðum. Á efnisskránni eru tvisöngslög cftir Pursell og
Mozart og einsöngslög cftir Finzi. Mozart og fleiri.
Arshátídir
Árshátíð Átthagafélags
Snæfellinga og Hnappdæla á
Suðurnesjum
vcrður í Stapa laugardaginn 7. febrúar nk. og hefst
með borðhaldi kl. 19. Heiðursgestir verða Guð-
mundur Jónsson og frú, Emmubergi. Tex-sex tríó
skemmtir. Hljómsveit ólafs Gauks leikur fyrir
dansi. Aðgöngumiðar verða seldir hjá L árusi
Sumarliðasyni, Baldursgötu 8, s. I278 þriðjudags-
kvöld frá kl. 20—22 og hjá Þorgils Þorgilssyni,
Lækjargötu 6 A, s. 19276.
Aðalfundir
Kvenfélag
Laugarnessóknar
Aðalfundur félagsins verður haldinn mánudaginn 2.
febrúar kl. 20 i fundarsal kirkjunnar. Venjulcg aðal
fundarstörf.
Félög sjálfstæðismanna í
Nes- og Melahverfi og
Vestur- og Miðbæjarhverfi
boða til hverfafundar í Átthagasal Hótel Sögu i
kvöld, mánudaginn 2. febrúar, og hefst fundurinn
kl. 20.30. Borgarfulltrúamir Davið Oddsson og
ólafur B. Thors 'mæta á fundinn og hafa framsögu
um stefnu Sjálfstæðisflokksins i borgarmálum. Að
loknum framsöguræðum munu borgarfulltrúarnir
svara fyrirspurnum. Fundarstjóri: Þórir Kr. Þórðar-
arson, prófessor, Ritarar: Áslaug Cassata, kaup-
maður og Björn Björgvinsson, bankagjaldkeri.
íbúar hverfanna eru hvattir til að fjölmenna.
Akranes
Fundur verður í Sjálfstæðishúsinu Heiðargerði 20 i
kvöld, mánudaginn 2. febrúar kl. 20.30. Fundar-
efni: Hvað er framundan i flokks- og þjóðmálum.
Framsögumaður Geir Hallgrimsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins. Á fundinum mæta einnig al-
þingismennirnir Friðjón Þórðarson og Jósef H. Þor-
gcirsson. Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið
Akureyri
Bæjarmálaráðsfundur i kvöld mánudaginn 2.
febrúar, kl. 20.30 i Lárusarhúsi.
Fundir
Kvenfélag
Lágafellssóknar
Fundur verður haldinn i Hlégarði mánudaginn 2.
fcbrúar kl. 20.30. Efni m.a. kynning á vörum unnum
úrafurðum Mjólkursamsölunnar.
Kvenfélagið Fjallkonurnar
Fundur verður haldinn mánudaginn 2. fcbrúar kl.
20.30 að Seljabraul 54. Matarkynning frá Kjöt &
Fisk. Serviettuskreytingar. Kaffiveilingar.
Framkonur
\
Munið fundinn mánudaginn 2. febrúar kl. 10.30 i
Fram-heimilinu. Ostakynning. Mætum allar vel og
stundvíslega og tökum meðokkur gesti.
Prestar í
Reykjavíkurprófastsdæmi
halda hádegisfund i Norræna húsinu mánudaginn 2.
fcbrúar.
Orator aðstoðar
við skattframtöl
Svo sem á siöasta ári hefur Orator, félag laganema.
ákveðið að gangast fyrir aðstoð við almenning við út
fyllingu skattframtala hjóna og einstaklinga. utan at-
vinnurekstrar, fyrir tekjuárið 1980.
Aðstoð þessi hófst i tilraunaskyni i fyrra, og þótti þá
takast mjög vel, og naut mikilla vinsælda framtelj-
cnda. Fjöldi fólks hcfur haft samband við félagið og
óskað eftir að starfsemi þessi færi nú aftur af stað.
Stjórn Orators hcfur því ákveðið að verða við þess-
um tilmælum og hefst framtalsaðstoö laganema
mánudaginn 2. febrúar og stendur til og með 10.
fcbrúar nk. Er fólki bent á að koma í Lögberg, hús
lagadeildar, sunnan aðalbyggingar Háskóla íslands. á1
I. hæð. þar sem laganemar munu taka á móti þvi.
Framtalsaðstoðin verður veitt virka daga kl. 17 til
22 og um helgar kl. 13 til 19 og beina lagancmar þeim
tilmælum til framteljenda að þeir hafi með sér öll
framtalsgögn og hclzt afrit af siðasta skattframtali
vcgna ársins 1979. Þá verður einnig hægt að hafa
simasamband við laganema á sama tima. i sima
21325. og er simaþjónustan einkum miðuð við fram-
tcljendur utan Reykjavikursvæðisins.
Laganemar þeir sem framtalsaðstoðina annast eru
allir á síðasta námsári við lagadeild Háskólans og hafa
allir sótt sérstakt námskcið í skattarétti.
Cijald fyrir þjónustu þessa cr mjög i hóf stillt og
hefur stjórn Orators ákveðið hana nýkr. 140.00 (gkr.
14.0001.
íþróttablaðið
ÍÞRÓTTM (t ÚTlUf 1. Ibl IMI 41. ♦r8.«Cí. tt.tO
1. tbí. íþróttablaðsins er
komiðút
Iþróttamenn ársins 1980 eru aðaluppistaða i fyrsta
tölublaði Iþróttablaðsins I98I. I blaðinu eru viðtöl við
þá alla og sagt frá afhendingu viðurkenning
anna.Einnig cr farið i heimsókn til Keflavikur og hið
nýja íþróttahús Keflvikinga skoðað.
Nýr sendiherra
Breta á íslandi
l marz nk. munu verða sendiherraskipti hjá Bretum
hér á Islandi. Hr. K.A. East CmG mun láta af emb
ætti en W.R. Mcquillan mun taka við af honum. Hr.
Mcquillan var forstöðumaður upplýsingadeildar ulan-
rikisráðuneytisins í London. Hann hefur undanfarið
starfað i Lusaka, Santiago og Guatemala og er 50 ára
gamall. kvæntur og á 3 börn.
Ný frímerki
Fyrstu frimerki ársins koma út i febrúar og hafa að
myndefni tvo merka Islendinga. þá Finn Magnússon
(1781 —1847) og Magnús Stephcnsen dómstjóra
(1762—1833). Verögildi þeirra verða I70og I90aur-
ar.
Hæstu frimerki verða hin svonefndu Evrópufrí
merki sem fyrirhugað er að komi út i byrjyn mai.
Myndefni þeirra verður að þessu sinni sótt i þjóð-
sögur.
önnur frimcrki, sem ákvörðun hefur vcrið tekin
um, eru frimerki i tilefni af alþjóðaári fatlaðra, frí
merki í tilefni af 1000 ára afmæli kristniboðs á Islandi
og frimerki með jarðstöðina Skyggni að myndefni, en i
haust verða liðin 75 ár frá þvl Island komst i slmasam-
band viðönnur lönd.
Sveitarstjómarmál,
seinasta tbl. 1980
Sveitarstjómarmál, 6. og- seinasta tölublað 1980.
flytur m.a. grein um Húsavíkurkaupstað þrjátíu ára
eftir bæjarstjórann, Bjama Aðalgeirsson, og Bjarni
Þór Einarsson hitaveitustjóri skrifar um Hitaveitu
1 Húsavikur tiu ára. Sagt er frá stofnun Sambands
islenzkra hitaveitna i októbermánuði siðastliðnum og
birt erindi, sem (lutt voru á stofnfundinum. Gunnar
Haraldsson hagfr. skrifar um rekstur hitaveitna, Krist-
mundur Halldórsson deildarstjóri um gjaldskrármál
hitavcitna og Gunnar Sverrisson verkfræðingur um
nýja tegund djúpdælu við nýtingu jarðhita. Klemens
Tryggvason hagstofustjóri skrifar um manntalið 31.
janúar. og tilhögun þess, Stefán Ingólfsson deildar-
verkfr. um tölvuvinnslu Fasteignamats ríkisins.
Magnús R. Gíslason tannlæknir lýsir þeirri aðstöðu
sem þarf undir tannlækningar og Jón Björnsson.
félagsmálastjóri á Akureyri, skrifar um atvinnumál
aldraðra. Þá er sagt frá Samskiptamiðstöð sveitar-
félaga, fundi minjavarðia á scinasta ári, norrænum
fundi úm iþrótlamannvirki á Akureyri, kynntur iðn-
þróunarfulltrúi Austurlands og birtar ýmsar ábend-
ingar til sveitarstjórna og fréttir frá Sambandi isl.
sveitarfélaga. Forustugreinina skrifar Jón G. Tómas-
son, formaður sambandsins, um stofnun Sambands
ísfenzkra hitaveitna. Tölublað þetta er 64 bls. að stærð
að meðtöldu efnisyfirliti þessa 40. árgangs tímaritsins.
sem samanlagt cr 340 bls. að stærð.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna-
Nr. 20 — 29. janúar 1981 gjaldeyrír
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 6,230 6,243 6,873
1 Sterlingspund 14,981 15,005 16,506
1 Kanadadoilar 5,193 5,208 5,729
1 Dönskkróna 0,9870 0,9898 1,0868
1 Norskkróna 1,1582 . 1,1596 1,2755
1 Sœnskkróna 1,3715 U756 1,5131
1 Finnskt mark 1,5686 1,5730 1,7303
1 Franskur franki 1,2926 1,2983 . 1,4259
1 Belg. franki 0,1867 0,1882 0,2048
1 Svissn. franki 3,2893 3,2988 3,6287
1 Holleruk fLorina 2,7442 2,7521 3,0273
1 V.-þýzkt mark 2,9783 2,9889 3,2856
1 Itölsk Ura 0,00828 0,00829 0,00892
1 Austurr. Sch. 0,4208 0,4220 0,4842
1 Portug. Escudo 0,1127 0,1130 0,1243
1 Spánskur peseti 0,0758 0,0780 0,0838
1 Japansktyen 0,03058 0,03086 0,03372
1 Irsktpund 11,113 11,145 12,260
SDR (sérstök dréttarróttindi) 8/1 7,8088 7,8294
* Breyting fré sióustu skréningu. SknsvaH vegna gengisskróningar 22190.