Dagblaðið - 02.02.1981, Síða 31
31
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1981.
Útvarp
Sjónvarp
Súpa, þáttur fyrir ungt fólk—útvarp kl. 20,00:
Viljum koma efni eftir
ungt fólk á f ramfæri
— ogætlum ekkiað
predika yjfr því,
segja nýju stjórnend-
urair, Elín Vilhelms-
dóttirogHafþór
Guðjónsson
í kvöld klukkan átta verður þáttur
fyrir ungt fólk tekinn upp að nýju.
Hann hefur legið niðri að undanfömu,
en var óhemju vinsæll á sínum tima.
Verður hann nú hálfsmánaðarlega til
aðbyrja með.
Stjórnendur eru að þessu sinni Elín
Vilhelmsdóttir og Hafþór Guðjónsson.
„Ég hef aldrei unnið fyrir útvarp áður,
en hins vegar mikið með ungu fólki,”
sagði Elín, „til dæmis í Fellahelli og við
útideild Reykjavíkurborgar.”
Hafþór hefur áður verið með þætti i
útvarpinu og hann á dóttur á réttum
aldri sem væntanlega segir honum til.
„Við ætlum að vera með blandað
efni um ýmisleg mál, eins og áfengi,
rokk, ástina og málefni fatlaðra ung-
linga, svo eitthvað sé nefnt. En okkur
langar að koma á framfæri hugmynd-
um unglinganna sjálfra ög flytja efni
eftir þá í stað þess að mata þá með
okkar eigin skemmtilegheitum,” sagði
Elín. , ,í hverjum þætti ætlum við að fá
einhvern nemanda til að flytja pistil og
lýsa skoðunum sinurn í fyllstu ein-
lægni. Svo tökum við fegins hendi
öllum ábendingum og aðsendu efni frá
unglingunum.”
í kvöld verður ýmislegt blandað efni.
Farið verður í heimsókn í unglingaat-
hvarfið á Hagamel 19 og talað við
starfsfólk þar og unga fólkið sjálft. Svo
verður talað við tvö ungmenni úr
nemendaráði Hagaskóla um félagslifið
í skóianum.
Það verður líka talað við nemendur
úr Menntaskóianum við Sund og segja
þeir frá fyrirhugaðri þorraviku þar.
Verður þá í eina viku lögð niður
kennsla í hefðbundnum stil og í stað
þess vinna nemendur hópverkefni.
Biönduð tónlist verður flutt og að
sjálfsögðu gleymist ekki pistili kvölds-
ins, að þessu sinni fluttur af nemenda
úr Fjölbraut. -IHH.
m------— >
Áheyrcndahópurinn, sem Súpan er
hugsuð fyrir, er mjög hress eins og sjá
má af þessari mynd úr Fellahelli.
DB-mynd: Ragnar Th.
i
ENDURFUNDIR - sjónvarp kl. 21,15:
REKTORSFRÚÁ
NÆTURSVEIMI
—grinmynd um brezka háskólaborgara
„Þetta er ærslakennd mynd, þar
sem gert er talsvert grín að brezkum
BHM-mönnum,” sagði Björn
Baldursson, þýðandi brezka sjón-
varpsleikritsins, sem er á dagskránni í
kvöld.
Myndin hefst á því að nokkrir virt-
ir borgarar koma í gamla skólann
sinn til að halda upp á tuttugu ára
stúdentsafmælið. Einn skólabróðir-
inn er orðinn rektor þar, en þegar
hátíðahöldin hefjast er hann kominn
tilútlanda.
En kona hans er á staðnum og
minnist þess nú að eitt sinn var hún
ástfangin af einum bekkjarbræðra
mannsins sins. Þegar liður á nótt fer
hún út i gömlu heimavistina þar sem
gestirnir búa, til að leita hans.
Verður ekki meira sagt af því nema
hvað hinir bekkjarbræðurnir koma
henni i opna skjöldu, en á síð-
ustu stundu tekst henni að fela sig.
Það hefur hinar margvislegustu og
flóknustu afleiðingar. Hinir virðu-
legu háskólaborgarar, en í hópi
þeirra eru aðstoðarráðherra, frægur
skurðiæknir og vel metinn rithöf-
undur, hafa fengið sér vel neðan í því
og hverfa aftur til barnalegra uppá-
tektaskólaáranna. ■
Höfundur þessa leikrits, sem upp-
hafiega er samið fyrir svið, er Micha-
el Frayn, en aðalhiutverkið, rektors-
frúna á næturgöltri, leikur Penelope
Keith. -ÍHH.
Rektorsfrúin (Penelope Keith) vill ekki með nokkru móti að upp komist um sitt raunverulega erindi, enda er greinilegt að
gamla stúdentinn grunar ekkert.
Bifreiðaeigendur
í Kópavogi athugið
Aðalskoðun bifreiða í Kópavogi 1981 hefst 5. febrúar 1981
og fer fram við Áhaldahús Kópavogs við Kársnesbraut.
Skoðun lýkur 27. mars 1981.
Eiga þá allar bifreiðir skráðar í Kópavogi að hafa verið
færðar til skoðunar, sbr. auglýsingu um skoðunardaga,
dags.28.1. 1981.
Eftir 27. mars 1981 er eigendum óskoðaðra bifreiða bent á
að snúa sér til Bifreiðaeftirlits rfkisins í Hafnarfirði eða
Reykjavík.
Bifreiðir sem ekki hafa verið skoðaðar á tilsettum tíma
verða teknar úr umferð hvar sem til þeirra næst.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
VIDEO
VHS videospólur til leigu í miklu úrvali ásamt mynd-
segulbandstækjum og litasjónvörpum. Ennfremur eru
. til leigu 8 mm og 16 mm kvikmyndafilmur í
mjög miklu úrvali i stuttum og löngum útgáfum, bæði
. þöglar og með hljóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16
yC mm) og tökuvéla, m.a. Gög og Gokke, Chaplin, Walt
. pisney, Bleiki Pardusinn, Star Wars o.fl. Fyrir full-
orðna m.a. Jaws, Marathon man, Deep, Grease, God-
. father, Chinatown o.fl. Filmur til sölu og skiptá.
Ókeypis kvikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opi'' alla daga
nema sunnudaga.
Kvikmyndamarkaðurinn Sími 15480
Skólavörðustíg 19 (Klapparstígsmegin)
H| nen
m kv
1;
KVIKMYNDIR
má
OPIÐ í KVÖLD
FRÁ KL. 18-01
HalldórÁmi
ídiskótekinu *
SPAKMÆLI DAGSINS:
„ Oft er / holtí heyrandi nær."
SJÁUMST HEIL
Óða/