Dagblaðið - 02.02.1981, Qupperneq 32
fijálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR 2. FEB. 1981.
Skákþing Reykjavíkur:
Jón heldur
forystunni
Jón L. Árnason heldur enn foryst-
unni á Skákþingi Reykjavikur. Hann
hefur hlotið 5,5 vinningum úr 7 skák-
um. Skák hans og Helga Ólafssonar,
sem átti að tefla í gærkvöld, var frestað
vegna veikinda Jóns. Helgi mátti bíta í
það súra epli að tapa fyrir neðsta
manni mótsins, Benedikt Jónassyni.
Hann er með 4,5 vinninga og 2 frest-
aðar skákir. Elvar Guðmundsson er
kominn í toppbaráttuna með 4,5 vinn-
inga og eina frestaða skák og Karl Þor-
steins hefur einnig 4,5 vinninga. Síðan
kemur Bragi Halldórsson með 4 vinn-
inga og eina frestaða skák og Dan
Hansson með 4 vinninga. Björgvin
Viglundsson og Þórir Ólafssorihafa3,5
vinninga og lestina reka Ásgeir Þ.
Árnason og Benedikt Jónasson með 2,5
vinninga.
Keppni í unglingaflokki lauk á
laugardag. Þar lagði Arnór Björnsson
a!la keppinauta sína og hlaut 9 vinn-
inga. Annar varð Jóhannes Ágústsss.
með 7 vinninga og þriðji Þröstur Þór-
hallsson með 6,5 vinninga.
-GAJ.
ÓkútafáSvalbarðs-
strönd:
Ökumaður illa
slasaður
Bíll fór út af veginum við bæinn
Miðvík á Svalbarðsströnd síðdegis á
laugardaginn. í bílnum var kona sem
slasaðist illa og var flutt á sjúkrahús á
Akureyri. Þegar þangað kom reyndist
ekki unnt að taka strax mynd af áverk-
anum vegna þess hversu illa hún var
haldin. Grunur lék á að hún væri
hryggbrotin. Bíllinn er illa skemmdur,
ef ekki ónýtur.
-DS.
Marsa Júlía
fórfróður
strax eftir
viðgerðina
— brunadælurnar
höfðu undan lekanum
Vclbáturinn María Júlía BA — 36
fór i róður í gærkvöldi eftir að viðgerð
lauk og þannig stöðvaður leki, sem að
bátnum kom út af Látravík við Hval-
látra um hádegi á laugardag.
Þegar lekans varð vart og Ijóst var að
dælur skipsins höfðu ekki undan inn-
streyminu kom togarinn Kaldbakur frá
Akureyri til hjálpar. Ekki nægðu
þetdur dælur Kaldbaks og tók hann
Maríu Jújíp í tog áleiðis til heima-
hafnar á Patreksfirði.
Þaðan lagði á stað tii aðstoðar vb.
Vestri með brunadælu frá slökkviliðinu
og fjóra slökkviliðsmenn- Það munaði
heldur betur um brunadæluna og
tætndist María Júlía brátt af sjónum
sem í lest hennar var kominn. Gekk
ferðin tj| hafnar vel og viðgerð
auðfengin.
Erlingur Guðmundsson skipstjóri á
Maríu Júlíu telur að skipshöfnjn hafi
aldrei verið í hættu. Að sögn Jóhannes-
ar Árnasonar , sýslumanns á Patreks-
firði, hafði ekki í morgun verið óskað
eftir sjóprófum vegna þessara atvika.
Vb. María Júlia er rösklega 100 lesta
eikarskip, byggt í Frederikssund í Dan-
mörku árið 1950 sem björgunar- og
varðskip Vestfirðjnga, en er nú sem
fyrr segir vejðiskip gert út frá Patreks-
firði.
-BS.
Játaði kyn-
ferðisbrot
gegn 17 ára
pilti
31 árs gamall maður var hand-
tekinn á laugardagsnóttina vegna
ákæru um kynferðisafbrot gegn
17 ára pilti. Hefur sá handtekni
játað afbrolið, en rannsókn máls-
ins er enn ólokið.
Ekki liggur Ijóst fyrir hvort um
árás af einhverju tagi var að ræða
í þessu máli, ,,og það verður
rannsókn málsins að leiða i ljós,”
sagði Erla Jónsdóttir rannsóknar-
dómari í morgun.
Hinn ákærði mun ekki áður
hafa gerzt sekur um afbrot sem
þelta.
- A.Sl.
Hvammstangi:
Léztaf
voðaskoti
Þrettán ára piltur á Hvamms-
tanga, Guðjón Páll Arnarson,
Hvammstangabraut 23, lézt af
voðaskoti á heimili sinu þar sl.
fimmtudagskvöld. Pilturinn var
að handleika stóran riffil, sem
faðir hans geymdi í bilskúrnum,
þegar skot hljóp af. Lézt hann
samstundis.
Talið er að slysið hafi orðið um
kl. 22.20, en þá heyrði nágranni
hvell án þess að verða var við
nokkuð frekar. Guðjón heitinn
var einn heima með yngri bræðr-
um sínum tveimur og varð ekki
Ijóst um slysið fyrr en um mið-
nætti, er foreldrar hans komu
heim. Fólk á Hvammstanga er
harmi slegið yfir þessu hörmulega
slysi. -ÓV
Þrjar nauðlendingar sömu vélarinnar:
Einshreyfils vél lentí á
veginum við Stokkseyri
Horace P. Byrd ftugmaður virðist
ekki ætla að komast héðan af landi
þrátt fyrir itrekaðar tilraunir. Þrisvar
hefur hann lagt upp á eins hreyfils vél
sinni og jafnoft orðið að nauðlenda.
Hann er þó það heppinn í allri þessari
óheppni að í ekkert skiptanna hefur
flugvél hans eða hann látið á sjá.
Síðasta tilraun Horace var gerð á
laugardaginn, þá lagði hann upp frá
.Reykjavík áleiðis til Bretlands. Þegar
vélin var komin nokkuð á haf út bil-
aði hreyfillinn og Horace hafði sam-
band við Flugturninn í Reykjavík
sem leiðbeindi honum inn á landið
aftur. Hann lenti vélinni giftusam-
lega á veginum við Stokkseyri.
Vélin er bandarísk áburðardreifi-
vél af gerðinni Rockwell Truch
Commander. Hér á landi hefur hún
verið siðastliðinn hálfan mánuð.
Þegar upphaflega átti að leggja af
stað héðan drap hreyfill vélarinnar
skyndilega á sér um 60 milur út frá
landinu. Tókst að ræsa hreyfilinn
aftur og snúa vélinni til lands. Þegar
búið var að gera við var lagt upp
aftur. Þá brugðust stjórnvírar í stéli
og enn varðað snúa við. En Horace
vegna skulum við vona að allt sé
þegar þrennt er. Horace og vélin hans
voru í gærdag á Selfossi og biðu vara-
hluta.
- DS
Flugmaðurinn nauðlenti vélinni giftusamlega á veginum skammt frá Stokks-
eyri. Myndin er tekin er vclin hafði verið dregin út af þjóðvcginum. Lögreglan
dró vélina siðan til Selfoss, þar sem hún bíður á flugvellinum.
DB-mynd Magnús Karel, Eyrarbakka.
Skellir ríkið jöfnunar-
gjaldi og söluskatti á
rafmagnið frá jámblendinu?
— Gjaldskrár RR og RH veiða að hækka um 1-3% vegna
orkukaupanna f rá Grundartanga
,,Það verður að hækka gjaldskrá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur um 1 —
3% frá 1. mai til næstu áramóta, ef
ná á upp á þessu ári þeim aukakostn-
aði sem Rafmagnsveitan greiðir fyrir
það rafmagn scm hún fær vegna lok-
unar • Járnblendiverksmiöjunnar,”
sagði Aðalsteinn Guðjohnsen raf-
magnsstjóri i viðtali við DB. „Hækk-
un gjaldskrár Hafnfirðinga vegna
þessara orkukaupa er hin sama og
hjá RR en mun óljósari hjá Rarik,
sem fær og greiðir 45% orkunnar
sem Járnblendið átti forkaupsrétt að.
Aðalsteinn taldi kaup RR, RH og
Rarik á orku járnblendiverksmiðj-
unnar skárri kost en rafmagns-
skömmtun, sem annars hefði verið
óumflýjanleg.
í viðtalinu við Aðalstein kom fram
að með öllu væri óráðið hvernig
kaupum á orku Járnblendisins yrði
fyrir komið. Hækkun raforkuverðs
um 1—3% réðist af því hversu lengi
járnblendiverksmiðjunni yrði lokuð
og þetta væri riauðsynleg hækkun
vegna nettóverðs orkunnar.
Óráðið er hvort leggja á jöfnunar-
sjóðsgjald á þessa orku og einnig er
óráðið hvernig farið verður með sölu-
skatt af þessari orku sem dreifiveit-
urnar kaupa á verði Járnblendifélags-
ins.
Ljóst er að ef jöfnunarsjóðsgjald
verður á lagt svo og söluskattur þá
mun ríkið hagnast talsvert á þvi að
Grundartangaverksmiðjan lokar um-
fram það sem verið hefði í vandræða-
lausu árferði. -A.St.
Gosiö fer minnkandi en er þó enn aflmikió.
DB-mynd
Þorri.;
Enn gýs úr tveimur gígum
„Gosið hefur minnkað en það er þó
enn aflmikið,” sagði Eysteinn
Tryggvaspn jarðeðlisfræðingur er DB
spurði hann í morgun um jarðeldana i
Gjástykki.
„Það virðist fara stöðugt minnk-
andi, nú gýs aðallega úr tveimur gígum.
Aðeins gýs í hluta af upphaflegu
sprungunni enn,” sagði Eysteinn.
Að sögn Eysteins er hraunrennsli enn
töluvert. Rennur hraunið mest í einni
hrauná, til norðurs, ofan á nýja
hrauninu. Hraunbrúnin vjrðist ekki
færast fram heldur leggst nýja hraunið
ofan á það sem rann fyrsta dáginn.
Hefur þegar myndazt talsvert stórt
hraun og liggur það ofan á júli-
hrauninu. -KMUi