Dagblaðið - 04.03.1981, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 04.03.1981, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1981. 1X2 1X2 1X2 26. leikvika - leikir 28. feb. 1981. Vinningsröð: X22-X12-10X-X22 1. vinningur: 11 réttir — kr. 40.815.- 27166(4/10) 40768(6/10) 2. vinningur: 10 réttir — kr. 1.249.- 196. 26341 27183 298561 32383 34914 41649 152771 26580 27184 30115(2/10) 33746 40352 42712 18886+ 27165 29572 Kærufrestur er til 23. marz kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skrifleg- ar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni Reykja- vík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR - ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐINNI - REYKJAVÍK RÍSKÚLUR í MIKLU ÚRVALI MJÖG HAGSTÆTT VERÐ UÓS OG HITI Laugavegi 32 — Sími 20670 Lögmenn Munið félagsfundinn um lífeyrismál fimmtudaginn 5. marz nk. kl. 20.30 í stofu 101 Lögbergi HÍ. Stjórnin. ÚTBOÐ Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar öskar eftir tilboðum í lagningu 6. áfanga aðveituæðar. 6. áfangi aðveituæðar er rúmlega 10 km langur og liggur milli Hafnarár og bæjarins Lækjar í Leirársveit. Útboðsgögn verða afhent á eftirtöldum stöðum gegn 500 kr. skilatryggingu: t Reykjavik á Verkfræöistofunni Fjarhitun hf„ Álftamýri 9. Á Ákranesi á Verkfræði- og tciknistofunni sf., Heiöar- braut 40. í Borgarnesi á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, Berugötu 12. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, Heiðarbraut 40 Akranesi, þriðjudaginn 24. mars kl. 11.30. Listasaf n íslands Tilboð óskast í að steypa upp byggingu fyrir Listasafn íslands á lóðinni nr. 7 við Fríkirkjuveg í Reykjavík og að ganga frá lóð og húsi að utan. Húsið er ein hæð á kjallara og tvær að hluta, alls um 7600 m2. Uppsteypu húss og frágangi þaks 2. hæðar skal iokið 15. des. 1981, en verkinu að fullu lokið 15. september 1982. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7 Rvk, gegn 1000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 26. mars 1981 kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Stjórn Blaðamannafélags Islands á fundi sínum í gær — Kári Jónasson formaður (við borðsendann) ræðir við lögfræðing félagsins, Magnús Sigurðsson, um mál blaðamanna DB. DB-mynd: Sig. Þorri. Blaðamannafélagið lýsir eindregnum stuðningi við blaðamenn DB: Augljósir hags- munir og skylda blaðamanna —að greina ekki f rá nöf num heimildarmanna sinna Stjórn Blaðamannafélags íslands hefur lýst yfir eindregnum stuðningi við DB-blaðamennina Ómar Valdi- marsson og Atla Steinarsson, sem neitað hafa að gefa upp nöfn heimildarmanna fyrir frétt í DB 31. janúar sl., þar sem sagði frá játningu í svokölluðu Kötlufellsmáli. f ályktun, sem stjórn BÍ gerði á fundi sínum í gær, segir að stjórn Blaða- mannafélags íslands líti svo á, að það séu „augljósir hagsmunir blaðamanna, jafnt sem skylda þeirra við heimildar- menn sína, að skýra ekki frá þeim. Ef út af þessu væri brugðið myndi það verða til að stórskerða möguleika blaðamanna til fréttaöflunar og verða þannig stjórnarskrárvernduðu ritfrelsi fjötur um fót. Það er því ekki að ástæðulausu,” segir í ályktun stjórnar BÍ, ,,að í siðareglum Blaðamanna- félags íslands er skýrt tekið fram, að blaðamanni beri að virða nauðsynlegan trúnað við heimildarmenn sína.” í ályktuninni vísar stjórn Blaða- mannafélagsins til ummæla Ólafs Jóhannessonar, fyrrum lagaprófessors, í grein í lögfræðitímaritinu Úlfljóti 1969, þar sem segir meðal annars: „Það er augljóst að prentlögin byggja á þeirri reglu, að höfundi rit- smíða í dagblöðum, vikublöðum og timaritum sé óskylt að nafngreina sig. Nafnleyndin er að vísu ekki heimiluð sérstaklega berum orðum, en hún leiðir af ábyrgðarkerftnu. Um það segir m.a. svo í greinargerð frumvarpsins um prentrétt: „Ábyrgðarkerft þessu er ætlað að slá vörð um prentfrelsið með því að sporna við eftirgrennslun yfir- valda um það, hverjir kunna að eiga hlutdeild í því sem ritað er, að ná með skjótum og virkum hætti til þess, sem telst sekastur og loks sérstaklega að vernda nafnleynd höfundar og heimildarmanns.” Auk þess verður nafnleyndarréttur höfundar dreginn af því að í lögunum er nafngreiningar- skylda lögð berum orðum á útgefanda, ritstjóra og prentara, en ekki niinnzt á höfunda,” skrifaði Ólafur Jóhannes- son 1%9. -BS. anum Björg Bcnjamínsdóttir, Kötlufelli 11 í Reykjavik, játaði í gær að hafa verið völd að brunanum á heimili hennar á sunnudagskvöldið sem varð eigin- manni hennar, Sigfúsi Steingrímssyni, að bana. Stóðu yfirheyrslur yfir Björgu hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins enn í gærkvöld þegar DB fór í prentun og tókst blaðinu ekki að ná sambandi við Þóri Oddsson aðstoðarrannsóknar- lögreglustjóra sem hefur stjórnað rann- sókn málsins. Skv. upplýsingum, sem DB hefur aflað sér, hcfur Björg játað að hafa notað bensin við ikvdkjuna. Bensinið keypti hún á brúsa, upphafiega til að setja á bíl sinn, en af þvi varð ekki og geymdi hún þvi brúsann á svölum ibúðarínnar á annarrí hæð fjölbýlis- hússins. Björg ndtaði i fyrstu staðfastlega að hafa átt nokkurn þátt í dauða eigin- manns síns, en i gærkvökl játaði hún svo, fmt^vri^orstöðumann^jfös AsTæðavoSarerísmwnunTTric^vera* fyllilega Ijós, þó er talið \ íst að það hafi verið unnið i bræðik.tsti sem átti sér alllangan aðdragarda. m.a. vegna Iangvarandi óreglu eiginrnannsins. -ÓV/ASt. Hæstiréttur á þeim þröskuldi — sem hann má aldrei stíga yfir, segir Stefán Jónsson alþingismaður „Þarna er Hæstiréttur kominn með tærnar að þeim þröskuldi, sem hann má ekki stíga yfir”, sagði Stefán Jóns- son, alþingismaðúr, í viðtali við DB er hann var spurður álits á máli tveggja blaðamanna DB og úrskurði Sakadóms Reykjavíkur, sem skyldar þá til að skýra frá heimildum fyrir frétt. „Ég er alveg steinhissa á lögreglu- og dómsmálayfirvöldum að gera þetta”, sagði Stefán. „Þessir blaðamenn gefa vitanlega ekki upp heimildarmenn, hvað sem Hæstiréttur gerir. f afstöðu þeirra felast engin mótmæli gegn Hæstarétti eða nokkur óvirðing við hann. Hann er að dæma þessa menn <1 Dagblaðsfréttin 31. janúar sl„ sem öllu fjaðrafokinu hefur valdið. Undirstrik- uðu linurnar urðu forstöðumanni Fila- delfiusafnaðarins tilefni til að krefjast rannsóknar á tilurð fréttarínnar og heimildum blaðamanna DB. frá ævistarfi, ef hann hnekkir ekki úrskurði sakadóms. Ég er steinhissa á þessum forkostulegu aðgerðum. Þetta er ekki hægt,” sagði Stefán Jónsson alþingismaður. -BS. Stefán Jónsson alþingismaður: „Stein- hissa á lögreglu- og dómsmálayfirvöld- um.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.