Dagblaðið - 04.03.1981, Side 13

Dagblaðið - 04.03.1981, Side 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1981. Með atvinnulýðræði er stefnt að því að færa lýðræðisleg stjórnarform til fleiri þátta þjóðlífsins og auka með því áhrifamátt starfsfólks í atvinnu- lífinu, til þess að hafa áhrif á sitt eigið starfsumhverfi og til þess að skapa einstaklingnum grundvöll til þess að finna tilgang og lífsfyllingu í störfum sínum í tæknivæddu þjóðfélagi nútímans. Aukið atvinnulýðræði á enn- fremur að stuðla að hraðari þróun at- vinnuveganna sem er skUyrði fyrir því að þjóðin standi til jafns við aðrar þjóðir og geti búið þegnum sín- um sömu lifsskilyrði og tiðkast hjá öðrum þjóðum. Með lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum hefur verið stigið fyrsta skrefið í átt til atvinnulýðræðis á íslandi. Með þeim lögum hafa verka- fólki verið sköpuð skUyrði til að hafa áhrif á sitt starfsumhverfi. Grund- vallaratriði laganna er að leysa skuli vandamál varðandi aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á sjálfum vinnustöðunum, með samstarfí fuil- trúa verkafólks og atvinnurekenda undir forystu og leiösögn vinnueftir- lits rikisins sem er sjálfstæð stofnun sem lýtur stjórnun heildarsamtaka launafólks og atvinnurekenda. Mark miðið er þó enn meiri ihlutun rekstur fyrirtækjanna en felst þessum lögum. í framtíðinni þarf að leggja aukna áherzlu á menntun þeirra sem gegna trúnaðarstörfum fyrir verkalýðshreyfinguna og gera þá jafnframt hæfari til þess að takast á við verkefni sem fylgja aukinni ihlutun starfsfólks í stjórnun fyrir- tækjanna. Þar sem viðerum skrefi á eftir félögum okkar í nágranna- löndunum er hyggilegt að kynna sér vel hvemig þessum málum hefur reitt af þar og hvað þar er helzt á döfinni t þessum efnum og taka síðan mið af þvi til enn frekari sóknar til aukins atvinnulýðræðis. Nú um þessar mundir fer fram vaxandi umræða um þessi mál i Vestur-Evrópu og er þar leitað nýrra 13 leiða gegn vaxandi vélrænum stjórnarháttum, sem nú einkennast af einhliða stjórnun að ofan, og reynt að knýja fram áhrifa- og á- kvörðunarrétt starfsfólks i stjórnun fyrirtækjanna með breyttum stjórnunarháttum. „Iðnbyltingin síðari" Örtölvuvæðing fyrirtækjanna, sem nú er á næstu grösum, eykur enn á þörfina fyrir aukna ihlutun starfs- manna i rekstur fyrirtækjanna. Innan tiðar fer þessi nýja tækni að hafa áhrif hér á landi, til að mynda i verzlun og viðskiptum og í iðnaði, og er reyndar farin að nema hér land. Erlendis hefur þessi tækni þegar valdið miklum deilum og er skemmst að minnast átakanna í Þýzkalandi og Frakklandi þegar fyrirtækin í stáliðn- aði voru tölvuvædd og fjölda- uppsagnir fylgdu i kjölfarið. Það veltur á miklu að þessi bylting, sem sumir hafa kallað iðnbyltinguna siðari, umbylti ekki öllu efnahags- kerfinu á þann veg að til at- vinnuleysis og stöðnunar komi og þar með kreppu. Hvaða gagn er að af- kastamiklum framleiðslufyrirtækj- um, ef enginn finnst kaupandinn? Hagsmunir framleiðandans eru svo A „Með lögum um aðbúnað, hollustuhætti ™ og öryggi á vinnustöðum hefur verið stigið fyrsta skrefið í átt til atvinnulýðræðis á íslandi... Jóhaim Guftbjarbson nátengdir hagsmunum neytandans og öfugt að ekki má miklu raska ef ekki á illa að fara. Verkalýðshreyfingin þarf að vera vel á verði og leita nýrra leiða, til dæmis með því að gangast fyrir breyttum rekstrarformum sem brúað gætu bilið milli launavinnu og at- vinnurekstrar, svosem með félags- legum rekstri framleiðslufyrirtækja og sjálfseignarfyrirtækjum starfs- manna. Með þessum rekstrarformum væri hægt að ná fram fullkomnu at- vinnulýðræði þar sem starfsfólk væri samábyrgt fyrir rekstri fyrirtækjanna. Ennfremur mundu þessi form draga verulega úr þeim hættum, sem eru samfara þessari tæknibyltingu. Jafnframt þessu þarf að fara fram skipulagsbreyting á heildarsamtökum launafólk á þann veg að þau séu viðbúin breyttum aðstæðum og geti fullnægt hvers konar fyrirgreiðslu miðað við breytt- ar aðstæður. Ályktun ASÍ Á þingi Alþýðusambandsins nú í vetur kom fram tillaga til ályktunar um atvinnulýðræði og var samþykkt, enda fyllilega tímabært að móta heildarstefnu í þeim málum. í ályktuninni segir: „34. þing ASÍ leggur áherzlu á að mörkuð verði sjálfstæð stefna verkalýðs- samtakanna um atvinnulýðræði og knúið verði á um aukin áhrif og völd verkafólks í atvinnulífinu. Þingið leggur til að miðstjórn kjósi 10 manna starfshóp sem safni sem gleggstum upplýsingum um reynslu annarra þjóða af áhrifum verkafólks á vinnuumhverfi, stjórn og eignaraðild að atvinnufyrir- tækjum og undirbúi ályktunardrög um málið. Starfshópurinn skili niður- stöðum ekki síðar en 1. nóvember 1981 og gefi þær út og sendi til allra verkalýðsfélaga innan ASÍ fyrir ára- mót 1981. Miðstjórn ASÍ boði i marz til apríl 1982 til ráðstefnu þar sem grund- völlur verði lagður að stefnumörkun ASÍ varðandi atvinnulýðræði.” Meira en pólitískt þras í margslungnu þjóðfélagi nútímans þarf einnig að huga að fieiri þáttum því kaupmáttur og félagsleg aðstaða fólks ákvarðast að miklu leyti af opinberum aðgerðum. Því er verkalýðshreyfingunni nauðsyn á að geta fjallað um og haft áhrif á stefnumál stjórnvalda strax í upphafi. Samnkvæmt Ólafslögum svokölluðum hefur verið í gildi reglugerð sem kveður á um samráð stjórnvalda við samtök launþega, bænda og atvinnurekenda, í efna- hags- og kjaramálum. Reglugerðin gerir ráð fyrir að forsætisráðuneytið hafi frumkvæði að ársfjórðungs- legum samráðsfundum ríkis- stjórnarinnar og hinna einstöku samtaka og að skipaðar séu sam- starfsnefndir um einstaka mála- flokka. Þessi reglugerð hefur þó ekki komiö til framkvæmda, því ekkert frumkvæði hefur komið frá forsætis- ráðuneytinu, en það hlýtur að vera krafa verkalýðssamtakanna að svo verði. Ég hef nú í undanförnum kjallara- greinum reynt að gera nokkra grein fyrir þeim málum, sem mér fundust merkilegust á síðasta ASÍ-þingi og reynt að sýna fram á að fleiri mál voru þar á döfinni en óumflýjanlegt dægurþras um verðlausar verðbólgu- krónur. Einnig hef ég leitazt við að sýna fram á að þar voru á döfinni mun þýðingarmeiri mál en hvort „allaballar og íhaldið” hafi tekið öll völd af krötunum á þinginu, eins og sumir pólitíkusar hafa látið í veðri vaka. Einnig tel ég alla umfjöllun fjölmiðla renna í svipaðan farveg, að blása upp fréttir um pólitísk átök á þinginu svo að til muna merkilegri mál eru látin falla i skuggann. Sem betur fer var þar unnið að ýmsum merkilegum rnálum, sem miða að því að tryggja okkur aukið félagslegt öryggi í nútíð og framtíð. Jóhann Guðbjartsson, iðnverkamaður. RÖÐ HEITI STAÐIN PRðF FALLPRðF PRÖF ALLS NEMENDAFJÖLDI PRÖFAFJÖLDI A NEMANDA 1 "Erlendir stúdentar" 194 (90,7%) 20 ( 9,3%) 214 63 - 3.4 2 Menntaskólinn á Akureyri 546 (89,5%) 64 (10,5%) 610 97 6,3 3 Samvinnuskólinn 56 (88,9%) 7 (11,1%) 63 10 6,3 4 Kennaraskólinn 116 (87,2%) 17 (12,8%) 133 25 5,3 5 Menntaskólinn viö Tjömina 139 (86,3%) 22 (13,7%) 161 31 5,2 6 Menntaskólinn á Isafiröi 131 (86,2%) 21 (13,8%) 152 20 7,6 7 Menntaskólinn í Reykjavxk 705 (85,5%) 120 (14,5%) 825 149 5,5 8 Menntaskólinn á Laugarvatni 233 (85,3%) 40 (14,7%) 273 38 7,2 9 "ótilteknir" 50 (84,7%) ■ 9 (15,3%) 59 11 5,4 10 Menntaskólinn viö Sund 599 (84,7%) 108 (15,3%) 707 110 6,4 11 Menntaskólinn viö Hamrahlíö 790 (84,1%) 149 (15,9%) 939 166 5,7 12 Verslunarskóli Islands 336 (82,4%) 72 (17,6%) 408 69 5,9 13 Flensborgarskóli 223 (81,7%) 50 (18,3%) 273 43 6,3 14 Menntaskólinn I Kópavogi 224 (80,9%) 53 (19,1%) 277 39 7,1 15 Fjölbrautskóli Suöumesja 80 (79,2%) 21 (20,8%) 101 14 7,2 16 Tækrtiskólinn 34 (69,4%) 15 (30,6%) 49 6 8,2 17 Fjölbnautaskólinn í Breiöholti 109 (60,2%) 72 (39,8%) 181 25 7,2 um ummælum Halidórs er því sýndarmennska, enda segir hann sjálfur í sömu grein: „Það væri frá- leitt að fara með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál. Ég hefði hiklaust gefið fjölmiðlum þessar upplýsingar með eðlilegum skýringum hefði þess verið farið á leit við mig.” Fleiri atriði Ástæða er til þess að spyrja: Hvers vegna notaði doktor Halldór þá ekki tækifærið til þess þegar Morgun- blaðiðátti viðtal við hann 15. febrúar sl.? Er svo sem margir ætla að Hall- dór hafi i reynd lítinn áhuga á raun- hæfum skýringum, vilji i raun og veru að túlkun Morgunblaðsins siist inn í fólk, en hann geti sjálfur átt undankomuleiöir ef að honum verður fastar sótt? Ljótar getsakir þetta, geta menn sagt. Standist þær ekki setur doktor Halldór vafalaust fram greinargóðar leiðréttingar. Til þess að auðvelda honum það verk ætla ég að nefna nokkur atriði í viðbót. Halldór hefur ekki einungis látið hjá liða að gefa fjölmiðlum upp- lýsingar með eðlilegum skýringum. Hann hefur ekki heldur birt leiðrétt- ingar þótt Morgunblaðið rangfæri i fyrirsögn ummæli sem höfð eru eftir honum i greininni sjálfri. Þar stendur: ,,Það má lesa það jafnvel úr þessari einföldu könnun í Háskólan- um, sem aðeins tekur til eins skóla- árs, að það sé fráleitt að stefna að þvi að hið nýmótaða skólahald leysi það gama og rótgróna að fullu af hólmi, voru lokaorð Halldórs Guðjónssonar í þessu spjalli.” I fyrirsðgn Morgunblaðsins verður þetta svona: „Fráleitt að hið nýmót- aða skólahald leysi það gamla af hólmi”, segir kennslustjóri Háskóla íslands. Hér er komið að mikilvægu atriði: Einn tilgangur Morgunblaðs- ins með birtingu taflnanna er greini- lega árás á áfangakerfið, hið nýja skólahald. Bæði þau ummæli sem hér að framan greinir ög önnur viðlika sýna að ætlunin er að hefja hina gömlu „rótgrónu” skóla upp á kostnað hinna nýju. Munurinn er einmitt sá að hinir nýju hafa áfanga- kerfi en fiestir hinna gömlu hafa bekkjarkerfi. Að sjálfsögðu kemur i Ijós í töflum Halldórs — þótt gallaðarséu —aðenginn marktækur munur er á skólunum eftir skóla- kerfi. Það sýnir m.a. árangur Menntaskólans við Hamrahlið og Flensborgarskóla. Og ekki virðast allir í ,,rótgrónu”skólunum hafa þá afstöðu aðgamla kerfið sé betra. Menntaskólinn á Akureyri hefur nýlega tekið upp áfangakerfi þannig að í framtíðinni má vænta þess að sá skóli verði talinn til þeirra sem hafa hið nýja skólahald. Mörgum mun þykja borið í bakkafullan læk að benda á fleiri bresti í fréttaflutningi Morgunblaðsins af könnun kennslu- stjórans. En spyrja verður hvers vegna Morgunblaðið birtir sumar töfiurnar en ekki allar. Birting allra gagna hefði a.m.k. verið sanngjarn- ari gagnvart Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Staðhæfingu þeirri til stuðn- ings birti ég yfirlitstöflu um hlutfall milli staðinna prófa og fallprófa eftir skólum. Af henni má sjá að Fjöl- brautaskóli Suðurnesja stendur þar á sama þrepi og skólar sem Morgun- blaðið telur miklu betri. Hlutfallstala staðinna prófa er hjá nemendum frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja 79,2%, frá Menntaskólanum í Kópavogi 80,9%, frá Flensborgarskóla 81,7%, frá Verslunarskólanum 82,4% og frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 84,1%. Athygli vekur að nemendur úr skólunum sem ivið lakari hlutfalls- tölu ná taka að meðaltali fleiri próf en hinir. Þannig tekur hver nemendi frá FS að meðaltali 7,2 próf, frá MK 7,1 próf, frá Flensborg 6,3 próf, frá VÍ 5,9 próf og frá MH 5,7 próf á nemanda. Geta má þess að stúdentar frá erlendum skólum sem skipuðu þriðja sæti i upphaflegu töflunni frá dr. Halldóri hröpuðu niður í 12. sæti í „leiðréttu” töflunni, en þeir hafa hlutfallslega hæsta tölu staðinna prófa. Nú er af minni hálfu lokið umræðu um einkunnasamanburð Halldórs Guðjónssonar en á grundvelli þess sem segir í greinum mínum tveim um þetta efni mótmæli ég að fræðileg könnun sýni marktækan mun á frammistöðu nemenda úr Fjölbrauta- skóla Suðurnesja annars vegar og nemenda úr „gömlu skólunum” hins vegar á fyrsta árs prófum í Háskóla íslands skólaárið 1979—1980. En um skiptinguna í góða skóla og slæma ætla ég að fjalla í þriðju og síðustu grein minni um könnun Hall- dórs Guðjónssonar. Jón Böðvarsson skólameistari i Keflavik. ^ „Einn tilgangur Morgunblaðsins með birtingu taflnanna er greinilega árás á áfangakerfíð, hið nýja skólahald.”

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.