Dagblaðið - 04.03.1981, Qupperneq 14
>4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1981.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1981.
15
FÖLLUM EKKI í SÖMU
GRYFJU OG NORÐMENN
Það gátu ekki allir fagnað sigri i B-keppninni í Frakkiandi i handknattleiknum á dögunum. Einhverjir
urðu að skipa neðstu sætin. Hvað sem um frammistöðu islenzka landsliðsins verður sagt, þá hélt það alla
vega sínu sæti í B-riðlinum, sem það tryggði sér í keppninni á Spáni 1979, sem jafnframt gaf cfstu þjóðunum
tækifæri til að keppa á ólympíuleikunum f Moskvu sl. sumar. Norðmenn urðu neðstir í Frakklandi og það má
sjá á myndinni að ofan að f þeim herbúðum var sorg.
Þarna sitja þeir Trond Ingebrigtsen og Terja Andersen, fyrirliði liðsins, eftir tapleikinn við Dani. Það tap
hafði í för með sér að Norðmenn voru fallnir niður I C-riðil heimsmeistarakeppninnar. Verða því að byrja að
fikra sig á ný upp tröppuganginn. Norðmcnn sigruðu í C-keppninni, sem háð var í Færeyjum í fyrra, og
boom... beint niður aftur. Norðmenn hafa því ekkert lært af mistökum sínum á handknattleikssviðinu og
það er nokkuð. sem við tslendingar mcgum ekki láta henda okkur. Keppni islenzka landsliðsins i Frakklandi
var viðvörun. Nú þarf að bregðast rétt við þeirri viðvörun. Hætta öllu væli, öllum uppgjafartón. Takast á við
verkefnið — og valda því.
-hsim.
MÓTMÆLIUSA-MANNA
EKKITEKIN TIL GREINA
— ísambandi við brunkeppni Ingemar Stenmarks
Alþjóðaskíðasambundið (FIS) ákvað i gær á
fundi sínum í Bern i Sviss, að taka ekki til greina
mótmæli frá Bandarikjamönnum um að Ingemar
Stenmark yrði dæmdur úr leik í einu brun-
keppninni, sem hann tók þátt í i keppni heims-
bikarsins í vetur.
Bandarísku mótmælin byggðust á því, að Sten-
mark hefði ekki iátið skrá sig nógu tímanlega í
brun Hahnenkamm-keppninnar í Kitzbuhel. Sú
keppni var í Austurríki 17. janúar. Stenmark fékk
þar 15 stig fyrir samanlagt brun og svig. Þessi stig
gætu ráðið úrslitum í hinni hörðu keppni
Stenmarks og Bandaríkjamannsins Phil Mahre.
Sænska skiðasambandið ætlar sér að gera allt,
sem það getur til að hjálpa Stenmark til að sigra i
keppni heimsbikarins. Ef Phil Mahre gengur vel í
tveimur brunmótum og einu stórsvigsmóti í Aspen
í Bandaríkjunum 5.-7. marz nk. verða þrír beztu
skíðamenn Svíþjóðar, þegar Stenmark er ekki
talinn með, þeir Bengt Fjallberg, Stig Strand og
Lars-Göran Halvarsson sendir til þátttöku í
keppni heimsbikarsins í Furano í Japan 13.-15.
marz nk. Þeir gætu þar hugsanlega tekið stig af
Bandaríkjamanninum í svigi og stórsvigi. Gangi
Mahre hins vegar ekki vel í Aspen verður ekkert af
för þremenningannatil Japans. Ingemar Stenmark
keppir í Aspen í stórsvigi þó hann geti þar ekki
bætt stigatölu sína.
í 26 ára sögu Evrópubikarsins í
knattspyrnu hefur það ekki skeð áður
að um algjöra keppni liða frá Vestur-
og Austur-Evrópu væri að ræða. Það
er þó reyndin i leikjunum fjórum í átta
iiða úrslitum i kvöld. Keppni austurs og
vesturs. Liðin fjögur frá Austur-
Evrópu, sem leika i kvöid, hafa aldrei
sigrað i keppninni. Vestur-Evrópu-liðin
eru hins vegar með 13 sigra samtals i
Evrópubikarnum.
Bayern MUnchen, Vestur-Þýzka-
Forest
ífjórðasæti
— Larry Lloyd
tilWigan
Einn leikur var í 1. deildinni ensku i
gærkvöld. Nottingham Forest sigraði
Middlesbrough 1—0 á heimavelli.
Sigurmark Forest skoraði
miðvörðurinn Kenny Burns. Við
sigurinn komst liðið upp í fjórða sæti í
1. deild, aðeins stigi á eftir Liverpool.
Hefur 39 stig.
Þá voru tveir leikir í 4. deild. Port
Vale og Scunthorpe gerðu jafntefli 2—
2. Einnig Tranmere og Lincoln 0—0.
Larry Lloyd, miðvörðurinn kunni
hjá Nottingham Forest, gerðist í dag
leikmaður-framkvæmdastjóri hjá
Wigan í 4. deild. Hcfur gert samning
við félagið til fjögurra ára. Bobby
Charlton er stjórnarmaður hjá Wigan.
Lloyd hafði meðmæli i starfið frá
fyrrum stjórum sinum i Liverpool, Bill
Shankley og Bob Paisley.
landi, leikur við Banik Ostrava, Tékkó-
slóvakiu. Real Madrid, Spáni, fer til
Sovétríkjanna og leikur við Spartak
Moskvu. Liverpool, Englandi, verður
gestgjafi CSKA Sofia, Búlgaríu, og
Internationale Milano, Ítalíu, fer í
ferðinni stuttu til Rauðu stjörnunnar í
Belgrad, Júgóslavíu.
Ensk lið, Liverpool og Nottingham
Forest, hafa sigrað fjögur síðustu árin í
þessari merkustu knattspyrnukeppni
félagsliða Evrópu. Búlgarska herliðið
frá Sofiu gæti orðið Englandsmeist-
urum Liverpool, sigurvegara í
Evrópubikarnum 1977 og 1978, hættu-
legt og það meira að segja á Anfield. í
fyrstu umferð keppninnar sl. haust
gerðu búlgörsku hermennirnir sér lítið
fyrir og sigruðu Nottingham Forest i
báðum leikjum liðanna. 1-0 á heima-
velli, einnig 1-0 á City Ground í
Nottingham. Liverpool hefur gengið
mjög illa að undanförnu. Vann þó á
laugardag eftir sex leiki i röð án sigurs.
í fyrsta skipti í fjóra mánuði, sem
Liverpool hafði öllum sinum beztu og
þekktustu leikmönnum á að skipa.
Liðið var þannig gegn Southampton.
Ray Clemence, Phil Neal, Alan
Kennedy, Phil Thompson, Alan
Hansen, Ray Kennedy, Sammy Lee,
Terry McDermott, Kenny Dalglish,
David Johnson og Graeme Souness.
Miðherjinn Johnson meiddist í leiknum
og kom varnarmaðurinn Colin Irwine í
hans stað. Likur þó á að Johnson geti
leikið í kvöld.
Real Madrid líka
í erf iðleikum
Real Madrid, sem náð hefur beztum
árangri allra liða í Evrópubikarnum
með sex sigra frá veldisdögum De
Stefano, Puskas, Gento og þeirra
kappa, hefur átt í erFtðleikum í 1. deild-
inni á Spáni i vetur. Hefur litla sem
enga möguleika á að verja Spánartitil
sinn. Þjálfari liðsins í stórhættu. Fyrir
hálfum mánuði var honum tilkynnt að
sigraði Real ekki yrði það síðasti leikur
hans með liðið. Real sigraði og þjálfar-
inn er því enn í stöðu sinni. Spartak
Moskvu, liðið, sem Yuri Sedov, þjálf-
ari Vikings nú, lék lengi með er fræg-
asta knattskpyrnulið Sovétríkjanna,
það er innan Sovétríkjanna, þó
Dynamo Moskva sé þekktara lið utan
þeirra. Það stafar aðallega af því að
Dynamo-liðið varð fyrst sovézkra liða
til að keppa í Vestur-Evrópu. Það háir
Spartak auðvitað eitthvað gegn Real
Madrid að keppni liggur niðri yfir
vetrarmánuðina i Sovétríkjunum. Leik-
menn liðsins því ekki i mikilli keppnis-
þjálfun. Leikurinn verður í Tblisi.
Inter Milano, sigraði í Evrópu-
bikarnum 1964 og 1965. Leikirnir við
Rauðu stjörnuna verða tvísýnir. Inter
er með þekkta sóknarmenn eins og
Sandro Altobelli og samvinna hans og
Austurríkismannsins þekkta Herbert
Allan Ball.
Pearson
með West
Ham á ný
Stuart Pearson var í gær valinn i
hóp þeirra 14 leikmanna West Ham,
sem leika eða verða á bekknum í
Evrópuleiknum við Dynamo Tbiisi í
kvöld. Þessi snjalli leikmaður hefur
ekkert getað leikið með West Ham á
þessu leiktímabili vegna meiðsla. Hann
átti allan heiður af einu marki leiksins í
úrslitum bikarkeppninnar ensku í
fyrravor, þegar West Ham vann
Arsenal 1—0.
Pearson lé lengi með Man. Utd. og
var þá um tíma fastamaður sem
miðherji enska landsliðsins. Hins vegar
hrjáðu meiðsli hann ekki siður þá en nú
og hann missti stöðu sína i enska lands-
liðinu þeirra vegna. Einnig hjá Man.
Utd., sem seldi hann til West Ham,
þegar Joe Jordan var keyptur til
United.
Allan Ball
gafst upp
Allan Ball gafst upp sem fram-
kvæmdastjóri Blackpool í 3. deild í
gær. Sagði af sér eftir að hafa rikt þar i
eitt ár og þrjá daga. Blackpool er í
næstneðsta sæti i 3. deild og allar likur
á að þetta fræga félag falli niður i 4.
deild.
Allan Ball hóf knattspyrnuferil sinn
með Blackpool, en lék síðan með
Everton, þá Arsenal og loks
Southampton áður en hann hélt til
Blackpool á ný. Lék þar með liðinu auk
þess sem hann var stjóri. Bali varð
heimsmeistari 1966 og í gær var sagt í
fréttum að hann mundi leggja skóna á
hilluna. Ef svo verður hafa allir heims-
meistarar Englands frá 1966 hætt
keppni.
Allan Ball kom hingað til lands sem
leikmaður oftar en einu sinni — síðast
með stjörnuliði Bobby Charlton, lands-
liðsfélaga síns um langt árabil.
Við stjórninni hjá Blackpool tók
Alan Brown, skozki landsliðsmaðurinn
kunni hér á árum áður. Hann lék með
Blackpool með köppunum frægu
Stanley Matthews og Stanley
Mortrensen á veldisdögum liðsins fyrir
25—30 árum. Hann þekkir starfið. Var
rekinn úr stjórastöðunni hjá Blackpool
fyrir þremur árum.
-hsim.
Prohanska er annáluð. Sá austurríski
skorar einnig mikið af mörkum fyrir
Inter. í marki liðsins er Ivano Bordon,
sem lék i landsliði ítaliu í keppninni í
Uruguay um áramótin.
Bayern MUnchen ætti að hafa góða
möguleika gegn Ostrava, Tékkósló-
vakíu. Það lið virkaði ekki sterkt,
þegar það lék hér á landi. Karl-Heinz
Rummenigge, knattspyrnumaður
Evrópu í fyrra, er aðalmaður Bayern-
liðsins og að baki honum er Paul
Breitner, sem nú leikur með frábærum
árangri sem framvörður. Var bak-
vörður og ein af hetjum Vestur-Þýzka-
lands í heimsmeistarakeppninni 1974.
í kvöld verður einnig leikið i Evrópu-
keppni bikarhafa og UEFA-keppninni.
Pétur Pétursson leikur með Feyenoord
í keppni bikarhafa. Hollenzka liðið fær
erfiðan mótherja, Slavia, bikarmeist-
ara Búlgaríu, lið frá höfuðborginni
Sofia. Fyrri leikur liðanna er í Sofia.
Bikarmeistarar Austur-Þýzkalands,
Karl Zeizz Jena, fá ef að líkum lætur
léttan mótherja.Newport County, sem
er i 16-sæti í 3. deildinni ensku. New-
port er í Wales og þetta 3. deiidarlið er
bikarmeistari Wales. Fyrri leikur lið-
anna er í Jena í kvöld. Newport keypti
nýiega Alan Waddle frá Swansea (áðut
Liverpool) fyrir 80 þúsund sterlings-
pund. Hann er þó ekki hlutgengur hjá
Newport í kvöld.
Ásgeir Sigurvinsson lelltur ekki meö
félagi sinu — er I leikbanni.
Etienne, sem vann stórsigur á Ham-
burger SV, í síðustu umferð og Ipswich
Town. Franska liðið er í öðru sæti í 1.
deildinni frönsku. Stigi á eftir Nantes,
sem hefur 44 stig. Ipswich Town er í
efsta sæti á Englandi og hefur leikið
hreint frábærlega síðustu vikurnar.
Coghlan langfyrstur í New York:
Bandarískt met í hástökki -
Oldfield var í sérf lokki
í UEFA-keppninni leikur Standard
Liege við Köln, Vestur-Þýzkalandi, í
kvöld. Fyrri leikur liðanna verður í
Köln. Ásgeir Sigurvinsson leikur ekki
með Standard. Var settur í eins leiks
bann af aganefnd UEFA á fundi 20.
febrúar eins og þá var skýrt frá hér á
íþróttasiðunni. Lokeren, liðið, sem
Arnór Guðjohnsen leikur með í Belgíu,
fær erfiðan keppinaut, AZ ’67 frá
Alkmaar í Hollandi. AZ ’67 hefur ekki
tapað leik í úrvalsdeildinni hoilenzku á
leiktímabiiinu.
Aðalleikurinn i UEFA-keppninni í
kvöld verður í Frakklandi. Þar leika St.
Ensku bikarmeistararnir, West
Ham, fá Dynamo Tblisi i heimsókn í
Evrópukeppni bikarhafa. Það verður
áreiðanlega skemmtilegur leikur. West
Ham snjallt lið, eitt hið bezta á Eng-
landi, þó það leiki í 2. deild. Sovézka
liðið hefur einnig góðu liði á að skipa.
Hefur meðal annars slegið Liverpool út
í Evrópukeppni. Þýzku bikarmeistar-
arnir Fortuna DUsselforf leika á heima-
velli gegn einu frægasta liðinu í
Evrópubikarnum, Benftca, sem er í
efsta sæti í 1. deild, virðist hafa mun
meiri möguleika til að komast í undan-
úrslitin.
-hsim.
Terry McDermott og Ray Kennedy með Evrópubikarinn eftir sigur Liverpool. Þeir verða báöir í eldlinunni i kvöld á Anfield.
þegar ensku mcistararnir leika við CSKA — hermannaliðið frá Sofíu i Búlgariu. Það sló núverandi handhafa Evrópubikars-
ins, Nottingham Forest, út í fyrstu umferð sl. haust.
náðst hefur á vegalengdinni á banda-
ríska meistaramótinu. í öðru sæti varð
Dick Burkle, Bandaríkjunum, á
12:58.00 mín.
Gamli kappinn, Brian OldficM.var í
algjörum sérflokki í kúluvarpinu.
Varpaði 21,13 metra. Fáir standast
honum snúning þó hann sé
kominn talsvert á fertugsaldurinn.
Hann náði sem atvinnumaður 1975
langbezta árangri, sem nokkru sinni
hefur náðst í kúluvarpi, 22.86 metrum.
Annar í kúluvarpinu á mótinu i New
York varð Jesse Stuart með 19.77 m.
Slakur árangur á bandarískan mæli-
kvarða í kúluvarpinu, árangur, sem þó
hefði gefið annað sæti í greininni á
Evrópumótinu í Grenoble í Frakklandi
ádögunum.
í míluhlaupinu varð Steve Scott
bandarískur meistari á 3:57.3 mín. Þar
var hlaupið til sigurs. Ekki hugsað um
tíma. írinn Ray Flynn varð annar á
3:57.4 mín. og Wilson Waigwa, Kenya,
á 3:58.3 mín.
Ágætur árangur náðist í hástökki.
Þar setti Jeff Woodward nýtt bandá-
rískt met. Stökk 2.33 metra en tókst
ekki að setja nýtt heimsmet. Annar
varð Nat Page, stökk 2.27 metra og
gamli methafinn, Dwight Stones, varð
þriðji með 2.24 metra. Franski Evrópu-
meistarinn og heimsmethafinn í
stangarstökkinu, Thierry Vigeron,
sigraði. Stökk 5.59 m eða 12 senti-
metrum lægra en á mótinu í Grenoble.
Annar varð landi hans Phillippe
Houvion. Stökk 5.50 m en Bandaríkja-
maðurinn Dan Ripli varð þriðji með
.5.40 m. Larry Myricks sigraði í lang-
stökki. Stökk 8.13 m en Carl Lewis
varð annar með 8.08 metra. Þá má geta
þess að Casanas, Kúpu, sigraði í 60
jarda grindahlaupi á 7.14sek. en kapp-
inn kunni Rod Milburn, USA, varð
annará7.18sek.
Eamon Coghlan, trlandi, eftir sigurinn í 3ja milna hlaupinu í New York á laugardag,
þar sem hann setti bandariskt met á vegalengdinni.
írski stórhlauparinn Eamon Coghlan
hefur verið allra hlaupara mest í sviðs-
Ijósinu á innanhússmótum i vetur.
Heimsmet hans I miluhlaupinu, sett á
dögunum, hreint frábært, 3:50,6 mín.;
Coghlan æfir og keppir með New York
Atletic Club, frjálsíþróttafélagi New
York-borgar. Keppti fyrir það félag á
bandariska meistaramótinu um siðustu
helgi.
Ekki keppti hann þó í míluhlaupi
þar, heldur í 3ja milna hlaupi. Sigraði
auðveldlega og náði frábærum tima,
12:58.8 min. sem er bezti tími, sem
LAUSNARGJALDIÐ 4
MILU. D0LLARA
—fyrir miðherja Barcelona, Quini
Ræningjar miðherja Barcelona,
Quini, höfðu i gær samband við for-
ustumenn Barcelona og fjölskyldu leik-
mannsins og kröfðust fjögurra milljón
dollara lausnargjalds fyrir leikmann-
inn. Þeir sögðust tilheyra spánsk-
ítalska flokknum i Kataloniu.
Quini, sem er markhæstur i 1. deild-
inni á Spáni, lék með liði sínu á sunnu-
dag. Skoraði tvívegis í 6-0 sigri á
Hercules frá Alecante. Eftir leikinn hélt
hann heimleiðis í bíl sínum. Tveir ungir
piltar voru með honum i bilnum. Þegar
íþróttir
Dauðinn
íhringnum
Bruce Fitzgerald, 24 ára áhugahnefa-
leikamaður, lézt i Easton i Pennsyl-
vania á mánudag, tólf klukkustundum
eftir keppni þar i borg. Dómarinn,
Michael Mittmann, stöðvaði leikinn í
léttþungavigt i lok 2. lotu en Fitzgerald
hafði þá verið sleginn fjórum sinnum
niður af mótherja sinum, J.C. John-
son. Fitzgerald hélt óstuddur til bún-
ingsherbergis sins. Þar leið yfir hann 15
min. siðar og hann komst ekki aftur til
meðvitundar. Þetta var annar leikur
hans í keppninni. Hafði verið sleginn
einu sinni niður i fyrri leiknum, sem
hann sigraði i á stigum.
Quini kom ekki heim á tilsettum tima
fór eiginkona hans að ókyrrast. Hafði
samband við forráðamann Barcelona
og þeir leituðu til lögreglunnar.
Skömmu siðar fannst bíll Quini yfirgef-
inn skammt frá heimili hans.
Gífurleg leit hefur verið gerð að leik-
manninum síðan og það var fyrst í
gær, sem ræningjarnir settu sig í sam-
band við lögregluna. Heimtuðu gífur-
legt lausnargjald en talið er öruggt, að
Barcelona, sem er gífurlega ríkt
íþróttafélag, verði við tilmælum ræn-
ingjanna. Greiði lausnargjaldið til að
fá miðherjann skotvissa aftur í sínar
raðir. Segja má að upplausnarástand
ríki i Barcelona vegna þessa máls. Liðið
er í öðru sæti i 1. deildinni, aðeins
tveimur stigum á eftir Atletico Madrid
og hefur átt hvern stórleikinn á fætur
öðrum að undanförnu. Quini hefur
ekki hvað minnst átt þátt í velgengni
liðsins. Að lokum má geta þess, að
Brend SchUster skoraði einnig tvö
mörk sl. sunnudag, Allan Simonsen og
Zuviria eitt hvor.
Lézt í
Vasagöngunni
Danskur skíðamaður, sem tók þátt i
Vasagöngunni i Sviþjóð á sunnudag,
fékk hjartaáfall skömmu eftir að gang-
an hófst. Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir
til að bjarga lífi hans tókst það ekki og
maðurinn var látinn, þegar komið var
með hann i sjúkrahús rúmum hálftima
siðar.
Leikið í Evrópubikarnum í knattspyrnu í kvöld:
Einvígi austurs og vest-
urs á öllum vígstöðvum!
— Einnig verður leikið í Evrópukeppni bikarhafa íknattspyrnu og UEFA-keppninni