Dagblaðið - 07.03.1981, Side 24

Dagblaðið - 07.03.1981, Side 24
/ vindhviöu á ftmmta timanum lg«r tókjárnplata siK til ogfauk á splunkunýjan leigu- I vapni blls sem ók á papnstœóri akrein en vindhviðan feykti henni yjir pirðinpuna sem hil á Urinphraut i Reykjavlk meö ufteiöinyum sem hér má sjá. Platan var á aftani- | erámilliakreinanna. DB-myndS. Hæstiréttur staðfesti dém Sakadóms Reykjavíkur í Grjótjötunsmálinu: ■ ■ r LOGMENN DÆMDIRI OG 5 MÁN. FANGELSI — fyrir f járdrátt og umboðssvik Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Sakadóms Reykjavíkur í Grjótjöt- unsmálinu sem svo er nefnt. Harald- ur Henrýsson sakadómari kvað upp dóm sakadóms hinn 13. marz 1979. Knútur Bruun, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Sandskips hf., var dæmdur til að sæta fangelsi í 3 mánuði. Þorfmnur Egilsson, um- boðsmaður seljenda í skipakaupun- um, var dæmdur til að sæta fangelsi í 5 mánuði. Báðir voru þeir sviptir málflutningsréttindum lögmanna i 3 ár. í ákæru var áðurgreindum mönn- um geftnn að sök fjárdráttur og til vara umboðssvik með því að hafa í sambandi við kaup á sanddæluskip- inu ms. Jörpeland, síðar ms. Grjót- jötni, komizt yftr til eigin ráðstöf- unar kr. 400 þúsund norskar, Þor- finni kr. 300 þús. en Knúti kr. 100 þúsund norskar. Þá var ákært fyrir ranga skýrslu- gjöf þegar kaupverð sanddæluskips- ins var talið kr. 400 þús. norskum hærra en rétt var. Var Knútur sýkn- aður af þeirri ákæru. Ekki var greinargerð Knúts um ráðstöfun áðurgreindrar fjárhæðar vegna nokkurs konar lokaafsláttar við kaupin tekin til greina. Umboðs- laun Þorfinns, kr. 300 þús. norskar, voru talinóeðlilega hámiðaðvið end- anlegt kaupverð skipsins, sem var kr. 2,4 milljónir norskar, en uppgefið verð kr. 2,8 milljónir norskar. Bæði Knútur og Þorfinnur áfrýj- uðu dómi sakadóms og kröfðust al- gerrar sýknu. Rikissaksóknari, Þórður Björnsson, áfrýjaði einnig til þyngingar og til vara staðfestingar á dómi Sakadóms Reykjavíkur. Rannsókn málsins tók um það bil tvö ár, bæði hér og í Noregi. Máls- kostnaður fyrir báðum dómsstigum féll á þá Knút Bruun og Þorfinn Egilsson. Ríkissaksóknari, Þórður Björnsson, flutti málið af hálfu ákæruvaldsins en Jóhannes L.L. Helgason hrl. fyrir ákærða, Knút Bruun, og Jón Finnsson hrl. fyrir ákærða, Þorfinn Egilsson. - BS Kópavogskaupstaður: Bæjarstarfsmanni vikiö úr starfí „Ég tek undir það að bæjarráð hafi ekki bein afskipti af uppsögn Páls Björgvinssonar, en ég tel það lágmarkskröfu til starfsmanna bæjarins að þeir fari að lögum og siðaðra manna háttum. Ég tel það lágmark að Páll Björgvinsson fái greiddan fullan uppsagnarfrest frá móttöku skriflegrar uppsagnar og að hann verði formlega beðinn af- sökunar á frumhlaupi starfsmanns bæjarins.” Þannig hljóðar bókun Björns Ólafssonar Alþýðubandalagsfulltrúa i bæjarráði Kópavogs á fundi 3. marz þegar fyrir var tekið bréf frá starfsmanni á trésmíðaverkstæði kaupstaðarins. Honum hafði verið sagt upp starfi og vildi að bæjarráð kannaði málið og rétti sinn hlut. Guðmundur Oddsson frá Alþýðuflokki bókaði líka sérálit þar sem segir: ,,Að reka mann fyrirvaralaust og án mikils tilefnis er vítavert athæfi. Það lýsir vel hroka og stærilæti yfir- mannsins. Framkoma Sigurðar Gíslasonar í þessu máli er stórlega á- mælisverð. Bæjarbúar gera þá lág- markskröfu til yfirmanna tæknideildar bæjarins að þeir sýni undirmönnum sinum venjulega kurteisi og láti þá njóta almennra mannréttinda. Mér finnst bæði rétt og sjálfsagt að Sigurður Gíslason biðji Pál Björgvinsson afsökunar á framkomu sinni.” Meirihluti bæjarráðs, þeir Jóhann H. Jónsson, Guðni Stefánssson og Richard Björgvinsson, lagði hins veg- ar til að bæjarráð skipti sér ekki af málinu og að Sigurði Björnssyni bæjarverkfræðingi yrði falið að „ljúkamálinu”. Málsatvik eru þau, eftir því sem DB kemst næst, að vaxandi samstarfserfiðleikum Páls Björgvins- sonar og yfirmanns tæknideildar Kópavogs, Sigurðar Gíslasonar, lyktaði með harkalegri rimmu 30. janúar. Sigurður vísaði þá Páli burt af vinnustaðnum og kom hann ekki þangað meir. Páll bað stjórn Starfs- mannafélags Kópavogs að ganga í málið, en einhverra hluta vegna gerðist fátt þó eftir væri gengið. Páli leiddist þófið að lokum og sendi bæjarráði bréf sem afgreitt var á þann hátt, er fyrr var greint frá. Bæjarverkfræðingur „lauk málinu” með því að afhenda Páli uppsagnar- bréf dagsett 4. marz, og er óskað eftir að hann vinni ekki uppsagnar- tímann. Páll hafði unnið að viðhaldi dag- vista í Kópavogi. Forstöðumenn - „ Að reka mann fyrirvaralaust og án mikils tilefnis ervítavert athæfi,” segirí bókun Guðmundar Oddssonar bæjarráðsmanns þeirrai sendu félagsmálaráði bæjarins svohljóðandi bréf dags. 12. febrúar vegna uppsagnar hans: ,,Hér með viljum við koma á framfæri óánægju okkar hvað varðar framkvæmd á eftirliti og viðhaldi á þeim húseignum bæjarins, sem við erum forsvarsmenn fyrir. En sl. haust var ráðinn maður til að sjá um m.a. viðhald dagvistarheimila í bænum og lofaði það mjög góðu, en þessum þætti hefur verið slaklega sinnt til margra ára. En nú bregður svo við að þessum manni hefur verið vikið úr starfi án nokkurra skýringa okkur til handa.” Sigurð og Pál mun hafa greint á um hvernig að starfsemi á verk- stæðinu var staðið. Páll hóf störf á vinnustaðnum í september 1980. -ARH. íxýálst, úháð dagblað LAUGARDAGUR 7. MARZ 1981 Heimildarmannamálið: Hæstaréttar- dómur kemur eftir helgi Hæstiréttur íslands mun eftir helgina kveða upp dóm sinn í heimildarmanna- málinu svokallaða. Eins og lesendur rekur minni til kærðu tveir blaða- manna Dagblaðsins úrskurð Sakadóms Reykjavíkur sl. mánudag um að þeim bæri skylda til að gera Rannsóknarlög- reglu ríkisins grein fyrir heimildum sínum fyrir frétt um svokallað Kötlu- fellsmál í DB 31. janúar sl. Blaðamenn- irnir neituðu að verða við kröfu RLR. Búizt hafði verið við að Hæstiréttur kvæði upp dóm sinn í þessari viku en af þvi hefur ekki orðið. -BS Óveður hamlar leit s í i i i að Báru Óveðrið í gær og fyrrinótt var mönnum erfitt. Vélbáturinn Valur fékk net í skrúfuna. Vélbáturinn Helgi S frá Kefiavík kom bátnum til hjálpar og dró hann til Reykjavíkur. Ferðin tók lang- an tíma og urðu skipin að halda sjó á Faxaflóa. Þá tók vélbáturinn Jón Finnsson niðri á Garðskagafiös en var dreginn til Reykjavíkur af Boða. Bát- arnir komu til Reykjavíkur í gær. - JH Bátar í erf ið- leikum vegna óveðursins Ekki var hægt að leita í gær að Báru VE-141 vegna óveðurs. Svo sem fram hefur komið í DB eru tveir bræður á bátnum sem gerður hefur verið út frá Sandgerði. Þrír bátar voru í gær út af Reykjanesi en gátu ekki athafnað. sig vegna veðurs. Mikill sjór var á þessu svæði. Fyrirhugað var að senda leitar- flugvél af stað í gærkvöldi ef veður lægði. - JH Enn skemmdir afvöldumroks Rokið í Reykjavik í gær olli talsverð- um spjöllum á eignum manna — og þótti flestum þó nóg komið fyrir af svo góðu. Á Kaplaskjólsvegi nr. 61—65 fauk talsvert af járnplötum um há- degisbilið. Gluggi fauk upp í húsi við Borgartún 27 og brotnaði. Eitthvað var um skemmdir á bilum vegna áfoks. - ARH H.O.T.S. íDagblaðsbíói í Dagblaðsbíói í dag verður sýnd sprellfjörug bandarísk kvikmynd, H.O.T.S., þar sem greinir frá gáska- fullum ungmennum og ýmsum glappa- skotum þeirra. Sýningin hefst kl. þrjú í Borgarbiói í Kópavogi. f i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.