Dagblaðið - 13.07.1981, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 13. JÚLl 1981.
FÁEIN ORD UM LAUNAKERFIÐ HJÁ
TRÉSMIÐJU REYKJAVÍKURBORGAR
—f rá trúnaðarmanni húsasmiða á vinnustaðnum
Stefán Andrésson, trúnaðarmaður
húsasmiða hjá Trésmiðju Reykjavík-
urborgar, skrifar:
Mér finnst ég knúinn til að koma
nokkrum línum á framfæri í sam-
bandi við grein, sem birtist í Dag-
blaðinu þann 6. þ.m., þar sem rætt
var við samstarfsmann minn um
launakerfið hjá Trésmiðju Reykja-
víkurborgar.
Þar er talað um að mikil óánægja
hafi ríkt undanfarið vegna premíu-
kerfis. Sú óánægja var aðallega
framan af og kom upp vegna mis-
taka, ef svo má að orði komast. Þau
mistök voru á þá leið að ekki var
nægilega vel kynnt fyrir mannskapn-
um hvað var á ferðinni en til eru
samningar er lúta að meðferð slíkra
mála. Betri kynning hefði fyrirbyggt
mikinn misskilning. Þegar á leið
skýrðust málin þó og höfðu þá starfs-
menn aðgang að sérstökum premíu-
trúnaðarmanni til þess að afla vitn-
eskju um launakerfið.
Óánægja er minni í dag en áður,
þótt ýmislegt mætti betur fara,
einkum í einingaskránni. Eins árs
rammasamningur var gerður tl
reynslu. í honum er kveðið á um að
skipuð verði samstarfsnefnd til þess
að fjalla um ágreinings- og hags-
munamál beggja aðila. í þessu launa-
kerfi er jú margt gott sem við megum.
ekki gleyma meðan óánægja ríkir.
Starfssvið Trésmiðju Reykjavíkur-
borgar er mjög fjölþætt og með til-
komu þessa premíukerfis og nýráðins
rekstrarstjóra eru menn að miklu
leyti valdir saman í hópa eftir því
hvernig verkum þeir koma til með að
gegna. í slíkum málum er þvi miður
ekki hægt að gera svo öllum líki.
Orð Kristjáns Kristjánssonar, sem
komið hefur fram fyrir hönd Rekstr-
arstofunnar í Kópavogi, um það að
kerfið hafi yfirleitt mæLzt vel fyrir,
kunna að eiga við þegar á heildina er
litið. Annars þekki ég ekki nógu vel
inn á það hjá öðrum stofnúiwm
borgarinnar.
Ég er ekki að leggja blessun mina á
þetta launakerfi því samningsárið
sker úr um það en ég vildi fjalla um
málið frá minum bæjardyrum séð.
að lokum vil ég nefna að í ramma-
samningnum er kveðið á um að „óski
menn þess sérstaklega að vinna utan
premíulaunakerfisins, skal þeim það
heimilt”, svo enginn er nauðbeygður
til að vinna eftir því.
Stefán Andrésson, trúnaðarmaður húsasmiða hjá Trésmiðju Reykjavíkurborgar.
DB-mynd: Einar ÓL
FUK STOUÐ AF
SNÚRU í KÓPAVOGI
— látið ekki þvott hanga úti að
næturlagi
Það borgar sig að hata gxtur i snúruþvottinum.
Hulda Grímsdóttir, Borgarholtsbraut
5, Kópavogi, hringdi:
Ég varð fyrir óskemmtilegri
reynslu vegna þess eins að hengja út
þvott sem ég í mesta sakleysi lét vera
útí yfir nóttina. Þar á meðal var
hvítur samfestingur og var hann
Bílamarkaðurinn
Grettisgötu 12-18 - Sími25252
Subaru 4X4 1978. Rauður, ekinn 57
þús. km., snjódekk, sumardekk. Verð
60 þús.
Mikil sala
Vantar árgerðir ’80—’81
á staðinn
Datsun Cherry ’SO. Blir, ekinn 14
þða. Itm, útvarp, sumar- og vetrar-
dekk. Verð 80 þ.lur.
Renault 4 sendibiil 1975. Rauður,
ekinn 100 þús. km. Verð 26 þús.
Blazer K5 1974. Grænsánseraður, afi-
stýri- og -bremsur, útvarp, disilvél.
Toppbfil. Verð 140 þús.
VW rúgbrauð '71. Ferðabill. Eldhús,
svefnbekkur, tjald, útvarp, snjó- og
sumardekk. Toppgrind. Verð 50
þ.kr.
Mazda 626 2000 1980. Eldnn 14 þús.
km, útvarp, segulb., sumar- og
vetrardekk. Verð 96 þús. Einnig árg.
'79 sömu tegundar.
Saab 99 1978. Ljósblár, eldnn 47 þús.
sjálfskiptur, afistýri, mjög gott ástand.
Verð 90 þús.
Subaru 1600 GRF. Harðtopp.
Rauður, ekinn 10 þús. km. útvarp,
snjó- og sumardekk. Verð 65 þús.
Toyota Cresslda Grand Lux 1980.
Eklnn 8 þ.km. Útvarp, segulband.
Sumar- og vetrardekk. Verð 128
þ.kr.
Fiat Rithmo 1980. Grcnn, ekinn 13
‘ þús. km. Verð 83 þús.
Ford Fiesta 1979. Ljósblár, ekinn 15
þús. km, skráður 1980. Verð 65 þús.
Chevrolet Caprice 1979. Silfurgrár,
sjálfskiptur, aflstýri- og -bremsur, út-
varp. Verð 150 þús.
Lada 1600 1979. Drapplitur, ekinn 35
þús. krn. Verð 51 þús.
Alfa Romeo Guiletta 1978. Rauflur,
eldnn 22 þús. lun, útvarp, snjód.,
sumard. Verð 85 þús. Sldptl mögu-
leg.
Volvo 244 GL 1979. Rauður, ekinn 49
þús. aflstýri- og -bremsur, útvarp-
segulband. Verð 135 þús.
Citroen GS Club station 1978.
Rauður, ekinn 37 þús. km., útvarp,
sériega fallegur. Verð 70 þús.
AMC Concord '79. Drapplitur, 6
cyi., eldnn 12 þús. km, sjálfsldptur,
afistýri og -bremsur, útvarp, sumar-
dekk. Verfl 115 þús. Sldpti möguleg.
Blazer '78. SUfurgrár/svartur, S cyl.,
350 cub., sjálfsldptur, aflstýri og
-bremsur, útvarp, segulband. Verð
165 þús.
Daihatzu Charade Runabout ’80,
vinrauður, eidnn 20 þús. lun, útvarp
Verð: 70þ.kr.
BMW 520 1980. Blár, ekinn 23 þús.
km, útvarp- segulband, sílsalistar, afl-
stýri- og -bremsur. Verð 160 þús.
Fiat 127 1978. Rauður, ekinn 38 þús.
km. snjó- og sumardekk. Verð 41 þús.
horfinn kl. 9 næsta morgun, fimmtu-
daginn 9. júlí.
Samfestíngurinn er úr bómullar-
efni, alveg hvítur, með silfurlituðum
rennilás alveg upp í háls. Einnig eru
rennilásar á skálmum og á vösum
framan á. Það er teygja í mittið,
engir vasar aftan á, kínakragi og flik-
in er langerma, með litlum spælum
og einni tölu framan á ermunum.
Auk þess var búið að stytta samfest-
inginn í setuna, tylla rennilásnum
neðst með nokkrum handsaumuðum
sporum og samfestingurinn er á
manneskju sem er 162 cm á hæð. Ég
pantaði hann eftír vörulista en man
ekki vörumerkið.
Ég bið þann, sem hlut á að máli, að
skila flikinni, annaðhvort á snúruna
eða skilja hana eftir við húsið, þó
ekki væri meira. Einnig vil ég gjarnan
biðja mæður að athuga hvort einhver
dóttírin segist nýlega hafa fengið að
láni, eða gefins, flík sem gætí verið
umræddur samfestingur.
Að síðustu vil ég vekja athygli hús-
mæðra í Kópavogi á því að fylgjast
vel með þvotti sínum og láta hann
ekki hanga útí á nóttunni.
Ef einhver skyldi vita eitthvað um
hvarf þessarar flíkur þá er simanúm-
erið 44793.
Uniroyal dekk
frábær
— segirhrifinn
kaupandi
Helgi Már Haraldsson hringdi:
Ég hringi vegna kanadísku Uni-
royal dekkjanna sem verið er að setja
hvað mest út á. Ég vil taka fram að ég
nota þau undir minn eigin bíl og fjóra
bíla Ferðaþjónustu fatlaðra, auk þess
sem þau verða sett undir fimmta bíl
Ferðaþjónustunnar um leið og hann
verður afgreiddur úr tolli.
Uniroyal dekk Gúmmívinnustof-
unnar kostuðu í janúarmánuði i ár
kr. 3000 undir einn bíl en tíl saman-
burðar vil ég benda á að Firestone
dekk kostuðu kr. 3000 haustíð
1978 (í báðum tilfellum negld vetrar-
dekk), svo ekki er um neinn smá-
ræðis verðmun að ræða.
Ending Uniroyal dekkjanna er
stórkostleg að mínu áliti. Þau eru
næstum óslítandi og hvergi 1 ef ég átt
kostálægraverði.
Ég vil taka fram að ég er ekki á
nokkum hátt tengdur innflytjendum
umræddra dekkja né þekki þá per-
sónulega heldur hef ég frábæra
reynslu af Uniroyal dekkjunum.