Dagblaðið - 13.07.1981, Blaðsíða 9
9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ1981.
!
Erlent
Erlent
Mitterand og Schmidt ræðast við:
Reyna að samræma
ólilí stefnumið sín
Francois Mitterrand, Frakklandsfor-
seti, og Helmut Schmidt, kanslari V-
Þýzkalands, sem hafa mjög ólikar
skoðanir í efnahags- og þjóðfélagsmál-
um, hittust i gær til að reyna að sam-
ræma sjónarmið sín fyrir sjö þjóða
fund um efnahagsmál í Ottawa í næstu
viku.
Mitterrand kom í gær í fyrstu opin-
beru heimsókn sína til Vestur-Þýzka-
lands. í fylgd með honum voru Pierre
Mauroy forsætisráðherra og sjö aðrir
ráðherrar. Strax við komuna til V-
Þýzkalands héldu þeir til fundar við
Schmidt kanslara.
Kurt Becker, talsmaður v-þýzku
stjórnarinnar, sagði að Schmidt hefði
átt mjög ítarlegar viðræður við Mauroy
þar sem farið var ofan í saumana á
þeim efnahagsvanda sem báðar þjóð-
irnar eiga við að glíma.
í viðtali í v-þýzku sjónvarpi í gær
viðurkenndi Mitterrand að stefnur
Parísar og Bonn í efnahagsmálum
væru nokkuð ólikar. Hann bætti því
við að efnahagsstefna sósíalista væri
nauðsynleg til að koma frönsku þjóð-
inni út úr þeim erfiðleikum sem hún
ætti við að etja. „Það er fátækt i
vissum hlutum Frakklands. Stefna
fyrri stjórnar leiddi þjóðina út í
ógöngur.”
í viðræðunum i gær munu viðræðu-
nefndirnar hafa orðið ásáttar um
stefnu i samskiptum austurs og vesturs
og afvopnunarmálum.
Francois Mitterrand.
Helmut Schmidt.
OEIRÐIR TIUNDA
KVÖLDIÐ í RÖÐ
— barizt íLondon ogfimm öðrum borgum
Englands í gærkvöldi
Hópar hvítra jafnt sem þeldökkra
ungmenna létu hvatningarorð ráða-
manna um stillingu sem vind um eyru
þjóta í gærkvöldi er til óeirða kom í
London og fimm borgum í miðlöndum
Englands. Þettá var tíunda kvöldið í
röð sem óeirðir koma upp í einhverjum
af stærstu borgum Englands.
Verstar urðu óeirðirnar i Leicester
þar sem hundruð öskrandi unglinga
vörpuðu bensínsprengjum, grjóti og
flöskum að lögreglunni. A.m.k. þrír
lögreglumenn slösuðust og lögreglan
sagði að bardagar og gripdeildir hefðu
enn staðið í morgun.
Götuóeirðirnar í gærkvöldi komu í
kjölfar hvatningar lögregluforingja,
kirkjuleiðtoga og stjórnmálamanna til
fólks um að binda nú enda á óeirðirnar
sem breiðzt hafa út um England á
siðustu viku og valdið tjóni sem nemur
milljónum punda.
Um helgina voru um 700 manns
handteknir vegna götuóeirða í nítján
borgum og bæjum í Englandi.
Stjórn Thatchers hefur sætt gagnrýni
fyrir að hafa ekki tekið af nægilegri
festu á óeirðaseggjum auk þess sem
ýmsir segja hana beinlínis bera ábyrgð
á óeirðunum vegna hins mikla atvinnu-
leysis sem er í landinu. Stjórnin íhugar
nú ýmis ráð til að sporna við óeirðun-
um eins og tíl dæmis það að sekta for-
eldra barna sem fundin verða sek um
•þátttöku i óeirðunum.
REUTER
MMBIAÐIB úháð dagblað
Hvernig þú gœtir heilsu
þinnar meðan þú sef ur.
m
Líðan og heilsa hvíla á rúminu. Lattoflex er
lausnin.
Bakið þarf góða hvíld í réttri stöðu. Annars
fær brjóskið milli hryggjaliðanna ekki nauð-
synlega endurnæringu. Stirðleiki og bak-
verkur er þá yfirvofandi.
í svefni á bakið helst að hvíla í sömu stöðu og
þegar menn standa uppréttir. Og vera beint
þegar legið er á hlið. Lattoflex rúmbotninn er
sérhannaður í því skyni að tryggja rétta
hvíldarstöðu í mismunandi stellingum. Hann
ergerður úrtrérimum meðgúmmífjöðrun og
lagarsig að sveigju líkamans.
Lattoflex dýnan er uppbyggð í einingum og
fylgir sveigjunni í rúmbotninum. Innri og ytri
gerð hennar veldur því að loftið leikur þægi-
lega um þann sem á dýnunni hvílir.
Lattof lex Gelemat er gerð sem er sérstaklega
ætluð sjúklingum. Hægt er að stilla það rúm-
liggjandi. Þessi gerð léttir langlegusjúkling-
um lífið. Einnig þeim sem eru veikir fyrir
hjarta eða í brjósti.
Hringið, — eða lítið við í versluninni. — Fáið
bækling.
lattcflex
Einkaumboðdístandi
Síðumúla34. Sími 84161
Hægt er að fá rúmgerðir með stillanlegri
höfuðhæð. Auk þess má lyfta þeim hluta sem
ertil fóta.
Lattoflex gefur eftir svo að axlarými verður
meira og æskileg slökun næst á taugum og
axlavöðvum.
Lattoflex er árangur af tilraunastarfi svissn-
eskra lækna og vísindamanna. Rúmin sem
við seljum eru frá þekktu finnsku fyrirtæki,
samkv. einkaleyfi.
VK) EYDDUM
ELDFLAUGUM
-segjaísraelsmenn
ísraelska sjónvarpið sagði i gær-
kvöldi að loftárás Israelsmanna á búðir
skæruliða Palestínumanna í Líbanon í
gær hefðu borið þann árangur að eyði-
lagðar hefðu verið eldflaugar sem Pal-
estínumenn hefðu fengið sendar frá
Líbýu.
Talsmaður ísraelshers sagði að allar
hefðu flugvélarnar sem tóku þátt í árás-
inni snúið ólaskaðar til baka eftir árásir
á skotmörk fyrir norðan höfnina í
Damour.
í sjónvarpinu var skýrt frá þvi að
eyðilegðar hefðu verið eldflaugar sem
skæruliðum hefði nýlega borizt frá
Líbýu. Þess var ekki getið hverrar
tegundar eldflaugarnar væru. Orrustu-
þotur fylgdu sprengjuvélunum í þenn-
an árásarleiðangur.
Sjónvarpið sagði að sýrlenzkar her-
flugvélar hefðu hafið sig á loft meðan á
árásinni stóð en þær hefðu ekki gert til-
raun til að hefta för ísraelsku vélanna.
Erlendar
fréttir
STERK
OG STÍLHREIN
FYRIR:
• Heimilið
• Vinnustaðinn
Síðumúla 31
ple^dglas
okron
Sími39920
verz/unin
elnkoumbod