Dagblaðið - 07.08.1981, Síða 2
2
/
Er til of mikils mælst að
aðalvegir séu heflaðir?
—þótt ekki sé meira gert
Sverrir Helgason hringdi:
Við eyddum ánaegjuiegri verzl-
unarmannahelgi í Skaftafelli og
grennd. Jafnvel veðurguðirnir brostu
við okkur alla helgina, en ástand vega
á þessum slóðum reyndist vera fyrir
neðan allarhellur.
Þegar ein mesta umferöarhelgi
sumarsins fer í hönd er varla til of
mikils mælzt að aðalvegir séu hefl-
aðir, þótt ekki sé meira gert.
Vegarkaflinn milli Skaftafells og
Klausturs hentaði vafalaust prýðilega
til æfinga i torfæruakstri en var tæp-
lega boðlegur fólki með venjulegri
áhugamál. Vegurinn var ekki ein-
ungis holóttur, heldur grýttur, því
svo slitinn var hann orðinn að
stærðar hnullungar stóðu upp úr —
svo stórir að þeir virtust tilheyra upp-
hleðslunni fremur en nokkrum ofaní-
burði sem ég hef séð.
Á vesturleiðinni, þegar við áttum
skammt ófarið að Klaustri, varð á
vegi okkar hestamaður nokkur sem
benti eitthvað á bílinn með svipunni.
Ég aðgætti hvort nokkuð væri að og
kom þá í ljós að 3 af fjórum hjól-
koppum voru með öllu horfnir og sá
siðasti var í þann veginn að detta af.
Honum tókst að bjarga vegna vin-
gjarnlegrar ábendingar, en hinum
þrem týndum við.
Þetta voru teinahjólkoppar, ef svo
mætti að orði komast, og auglýsti ég
raunar eftir þeim í smáauglýsingum
DB þann 6. og 7. júlí og heiti fundar-
launum fyrir þá.
Ég vil jafnframt vekja athygli á þvf
að vegakaflar, sem sá er ég iýsti,
valda fleiri skemmdum á bflum en í
fljótu bragði kann að virðast, þótt
varlega sé ekið.
Um verzlunarmannahelgina var vegarkaflinn milli Skaftafells og Klausturs óboð-
legur venjulegri umferð að sðgn vegfaranda.
DB-mynd: Hörður.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981.
öryrki spyr hver vegna greiðsla á tannviðgerðum öryrkja sé einskorðuð við þá er hafa tekjutryggingu.
Óskar skýringa
frá Tryggingastofnun
ríkisins _ — DB á von á svari von bráðar
Öryrki skrifar:
Ég óska eftir upplýsingum um
hvers vegna greiðsla á tannviðgerðum
öryrkja er einskorðuð við þá er hafa
tekjutryggingu.
Ég er öryrki og tilefni þessara
skrifa er lesendabréf í DB 4. þ.m.
um tannlæknaþjónustu.
Mér er óskiljanlegt hvers vegna
þeir öryrkjar sem hafa það fram yfir
okkur hin að hafa tekjutryggingu
njóta jafnframt þeirra forréttinda að
fá tannviðgerðir sínar greiddar og
óska ég eftir skýringum frá Trygg-
ingastofnun rikisins.
Svar:
DB á von á svari frá tryggingatann-
lækni, Þorgrími Jónssyni. Það svar
verður birt jafnskjótt og það berst og
á hið sama við hugsanlegar athuga-
semdir tryggingayfirlæknis, Björns
önundarsonar. . jrg
„Það stendur í lögum. Þaö stendur hér.
Aðþeir eigi að hafa vitfyrir mér.
Þeir slefa út rœðum. Þeirjarma í kór.
Þeir segja að ég verði
slœmuraf
4-LAGA PLATA
FRÆBBBLARNIR
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI84670
LAUGAVE6124 - SÍM118670
AUSTURVERI - SÍMI33360
Vi
Þr&inn saknar unglingablaðsins „16”. DB-mynd: Einar Ólason.
Er ”16" hætt að koma út?
— „leitt ef það hættir”
Þráinn skrifar:
Mig langar að bera fram eina
spurningu sem ég vonast til að geta
fengið svar við. Er engin von til þess
að unglingablaðið ,,16” haldi áfram
að koma út? Er það kannski hætt?
Níuer orðið langt síðan það kom út
slðast en blaðið er mjög vinsælt
meðal unglinga og ég er viss um aö
þeim þætti leitt ef það hætti.
Hvað sem um það verður þá á Sig-
urður Blöndal lof skilið fyrir tilraun-
ina.
Svar: DB náði tali af Sigurði Blöndal
sem sagði að töf hefði orðið á
útkomu ,,16” vegna ýmissa orsaka
en næsta tölublað er væntanlegt von
bráðar. .Ff;
\tutt ogskýr bréf
Enn einu sinni minna iesendadáikar DB alla þá. er
hyntyast senda þœttinum linu. að láta fylfja fullt nafn.
heimilisfany. simanúmer lef um það er að rœða) ny
nafnnúmer. Þetta er litil fyrirhöfn fyrir bréfritara okkar
ofi til mikilla þœnindafyrir DB.
Lesendur eru jafnframt minntir á að hréf eiya að
rera stutt oy skýr. Áskilinn erfullur réttur til að '
stytta hré'foy umorða til aó spara rúm og koma
efni hetur til skila. Bréf ættu helzt ekki að rera
lenyri en 200—300 orð.
Simatimi lesendadálka DB er milli kl.
13 oy 13 J'rá mánudtigum tilftistudaya.
./w