Dagblaðið - 18.08.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST1981.
(S
i
Erlent
Erlent
Erient
Erlent
transkir námsmenn tóku sendiráð trans f Osló á sitt vald um daginn og var myndin tekin við það tækifæri. Þeir höfðu
sendiráðið á valdi sfnu f fimm klukkustundir og mótmæltu ógnarstjórn Khomeini erkiklerks f tran. Sendiráöstakan fékk
friðsamlegan endi er námsmennirnir gáfust upp. Norðmenn fluttu þá þegar f stað tif Svfþjóðar af ótta við refsiaðgerðir trana
gagnvart Norðmönnum.
Atlanta-morðmálin:
WILLIAMS KVEDST
VERA SAKLAUS
Wayne Williams, 23 ára gamall
blökkumaður, ljósmyndari að atvinnu,
kom fyrir rétt í Atlanta f gær. Þar lýsti
hann því yfir að hann væri saklaus af á-
kærum um að hafa myrt tvö af þeim 28
fórnarlömbum sem látið hafa h'fið á
voveiflegan hátt í Atlanta á undan-
förnum tveimur árum. Wihiams er
gefið að sök að hafa myrt Nathaniel
Cater, 27 ára og Jimmy Ray Payne, 21
árs, en hálfklædd lfk þeirra fundust
fyrir skömmu i á sem rennur í gegnum
Atlanta.
WiUiams er eini maðurinn sem
handtekinn hefur verið 1 sambandi við
Atlanta-morðin, sem svo mikilli
skelfingu hafa valdið f þessari áður
friðsælu borg í Georgíuríki.
Wihiams er grunaður um að vera
vafdur að mun fleiri morðum en
þessum tveimur sem hann hefur verið
formlega ákærður fyrir og það hefur
orðið til að styrkja grunsemdir gegn
honum að hlé hefur orðið á morðunum
síðan hann var handtekinn. Áður voru
morðin jafnan framin með fárra vikna
millibili og voru flest fórnarlambanna
blökkubörn á aldrinum átta tif
fimmtán ára.
Dómarinn Clarmence Cooper
ákvað að réttarhöldin yfir Williams
Wayne B. Willlams.
skyldu hefjast 5. okt. Ef
vcrður sekur fundinn á hann
sér allt að lifstíðarfangelsi.
Williams
yfir höfði
Sovétmenn ráða
þegar yfir nift-
eindasprengju
-segirv-þýzkur
afvopnunarsérfræðingur
Einn helzti afvopnunarsérfræðingur
Vestur-Þýzkalands sagði í gær að af-
vopnunarráð, sem heimsótt hefði
Moskvu í júní síðastliðnum, hefði
komizt að því að Sovétmenn hefðu þeg-
ar prófað nifteindavopn.
Egon Bahr, sem er félagi í jafnaðar-
mannaflokki Helmuts Schmidt
kanslara V-Þýzkalands, sagði að Sovét-
menn hefðu látið nefndinni, sem var
undir forsæti Svians Olofs Palme, í té
sannanir um að slíkar tilraunir hefðu
þegar átt sér stað.
,,Ég efast ekki um að þeir ráða þeg-
ar yfir nifteindasprengju,” sagði Bahr í
samtali við Reuter-fréttastofuna.
Verkfall portúgalskra flugum
ferðarstjóra hefur litil áhrif
— Bandaríkjastjórn neitar enn staðfastlega að semja við verkfallsmenn
Erlendar
fréttir
Flugmálastjórn Bandaríkjanna
segir að flug yfir Atlantshaf muni
verða með eðlilegum hætti í dag þrátt
fyrir að portúgalskir flugumferðar-
stjórar neiti að afgreiða flug til
Bandaríkjanna.
300 portúgalskir flugumferðar-
stjórar hófu í gær tveggja sólarhringa
aðgerðir til stuðnings 12 þúsund
bandarískum starfsbræðrum sínum
sem reknir hafa verið úr starfi vegna
ólöglegra verkfallsaðgerða.
Bandaríkjastjórn er þegar tekin að
ráða í störf þeirra flugumferðar-
stjóra sem reknir hafa verið. Drew
Lewis, samgönguráðherra Banda-
ríkjanna, heldur því enn staðfastlega
fram að verkfallsmennirnir verði
ekki endurráðnir.
Flugumferðarstjórar úr hernum,
yfirmenn flugumferðarmála, auk
flugumferðarstjóra sem ekki fóru f
verkfall, halda nú uppi flugum-
ferðarstjóm í Bandaríkjunum.
Robert Poli, formaður samtaka
bandarískra flugumferðarstjóra,
segist enn trúaður á að stjómvöld
hefji viðræður við flugumferðar-
stjóra og segir að flugumferð f
Bandaríkjunum sé ótrygg.
Séð inn f bandarfska flugumferðar-
stjórn sem Ifkist einna helzt
geimskipl.