Dagblaðið - 18.08.1981, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 18.08.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981. 9 Refskákinni um útitaflið lokið? Gerð útitafísins lokið Vígt28. ágúst nk. Útitaflið margfræga við Lækjar- götu er tilbúið til notkunar. Var síðasta hönd lögð á þetta mikla verk 1 gærkvöld og taflið þvi tilbúið á af- mælisdegi Reykjavíkurborgar sem er í dag. Reyndar á þó eftir að ganga lítillega frá áhorfendastæðunum við taflið, en taflið sjálft er tilbúið fyrir byrjunarleikinn. Verður það væntan- lega vigt 28. ágúst nk. viö hátíðlega athöfn. Þórður Þorbjarnarson borgar- verkfræðingur sagði í samtali við DB að aðeins ætti eftir að setja grástein á áhorfendastæðin og væri verki þessu þá að fullu lokið. Gerð taflsins hefði þó staðizt fullkomlega og yrði því þeim starfsmönnum garðyrkj- unnar sem að verkinu unnu, greidd umsamin uppbót, 25% ofan á dag- vinnu. Væri þetta í samræmi við það punktakerfi sem flestir vinnuhópar innan borgarkerfisins ynnu eftir. T.a.m. ynnu allir trésmiðir á tré- smíðaverkstæðum borgarinnar eftir þessu punktakerfi og fengju þeir því enga sérstaka umbun fyrir að ljúka Gerð útitaflsins við Lækjargötu er lokið og fá starfsmenn 25% uppbót á umsamda dagvinnu þar sem verkinu lauk fyrir afmælisdag Reykjavíkurborgar, sem er i dag. DB-mynd Gunnar Örn. verkinu, aðra en þá sem þeir þegar Fyrsta skákin á útitaflinu verður félagar úr Taflfélagi Reykjavíkur hefðu. væntanlega tefld 28. ágúst nk., en munusjáum vígsluathöfnina. -ESE. Stjórn BÍ: Indriði ekki rekinn úr siða- reglu- nefnd Vegna ummæla i forystugrein Dag- blaðsins föstudaginn 14. ágúst sl., vill stjórn Blaðamannafélags fslands koma eftirfarandi á framfæri: Indriði G. Þorsteinsson hefur ekki frekar en aðrir menn verið rekinn úr siðareglunefnd blaðamanna. Indriði átti sæti í nefndinni, sem er skipuð þremur mönnum, 1 mörg ár. í nefnd- ina er kosið árlega á aðalfundi BÍ og var Indriði endurkosinn í nefndina allt fram til ársins 1980, þegar annar var kosinn úr hópi fyrrverandi blaða- manna. Nefndina skipa nú séra Bjarni Sigurðsson, Vilhelm G. Kristinsson fyrrv. fréttamaður og Sigurður Hreiðar ritstjóri. -StjðrhBÍ. Fegursta gata Reykjavíkur árið 1981, Ægissíða. Ægissíða valin feg ursta gata Reykjavíkur Árlega velur fegrunarnefnd Reykja- víkur, fegurstu götu borgarinnar og veitir viðurkenningar til þeirra sem stuðlað hafa að fegrun borgarinnar. Að þessu sinni varð Ægissíða fyrir vahnu sem fegursta gatan, en sérstakar- viðurkenningar voru m.a. veittar fyrir velheppnaða enduruppbyggingu á bamaheimilinu Tjarnarborg við Tjarn- argötu, en húsið er gamalt timbur- hús. Sjálfsbjörg var einnig veitt viður- kenning fyrir góða aðstöðu fyrir fatl- aða að Hátúni 12. Gunnar öm, ljós- myndari DB, leit við á þessum stöðum og tók meðfylgjandi myndir. -ESE. Strandir: Samvinna bænda um heyskapinn Heyskapur gengur nú vel í Árneshreppi og á Ströndum Megnið af heyinu hlýtur súrheys- verkun. Hér í hreppi hafa menn státað af því að samvinnuhug- sjónin sé mönnum i blóð borin. Verkin hafa hins vegar ekki talað svo undanfarna áratugi, að hér byggju ekta samvinnumenn, fyrr en nú að þrír bændur heyja saman. Eru þó 10—15 km á milli bæja þeirra. Þetta em Sigursteinn Svein- björnsson í Litlu-Ávik, Hávarður Benediktsson Kjörvogi og Þórólf- ur Guðfmnsson í Árnesi. Þeir voru liðfáir og slógu saman um heyskapinn. Meðalaldur þeirra er 36 ár. -Regina Gjögri Allur aðbúnaður og aðstaða fyrir fatlaða er til mikillar fyrirmyndar 1 Hátúni 12: DB-myndir: Gunnar Örn. Vinnupalhir til að standa fagmannlega að verld Þarftu á upphækkaöri vinnuaðstöðu að halda? Þá eru INSTANT vinnupasllarnir lausnin. Þeir eru traust fjárfesting, veita fullkomið öryggi og eru auðveldir i notkun. Þeir eru: — léttir f meðförum — auðveldir ( samsetningu — fullkomlega stööugir — úr ryöfrium málmi. Auövelt að fara upp og niður á innbyggðum stiga. Rúmgott vel varið vinnusvæði staðsett i hag- kvæmustu vinnuhæö auðveldar störfin og veitir fulllkomió öryggi. Heildverzlun: Pálmason 8 Valsson KLAPPARSTÍG 16 SÍMI 91-27745 /

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.