Dagblaðið - 18.08.1981, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981.
Útvarp
23
Sjónvarp
»)
gerid
góð
kaup
1X21X2 1X2
ORÐSENDING
FRÁ GETRAUNUM
Getraunir hefja starfsemi sína að nýju eftir
sumarhlé með leikjum ensku deildakeppninnar
laugardaginn 29. ágúst.
Fyrsti seðillinn hefur verið sendur aðilum utan
Reykjavíkur og nágrennis.
Félög í Reykjavík og nágrenni sæki seðilinn á
skrifstofu Getrauna í íþróttamiðstöðinni í
Laugardal.
FYRIR AUSTAN FJALL
— útvarpkl. 22,35:
Nýi fjölbrauta-
skólinn á Selfossi
ÞJODSKORUNGAR TUTTUGUSTU ALDAR
—sjénvarp kl. 20,40:
CHARLES DE GAULLE
—þegar hann var valinn forseti hófst nýtt uppgangstímabil
isöguFrakka
Síðari hluti myndar um ævi Charles
de Gaulle verður sýndur í sjónvarpi kl.
20.40 i kvöld. Fyrri hlutinn endaði á
því að de Gaulle dró sig i hlé frá frönsk-
um stjómmálum árið 1946, á þeirri for-
sendu að hann vildi ekki vera valdalaus
forseti.
Tólf árum siðar kom kallið og byrjar
síðari hlutinn á árinu 1958, þegar de
Gaulle tekur við forsetaembætti. Þá
verða teknar fyrir ýmsar þær mikU-
vægu ákvarðanir sem de Gaulle tók og
kom í framkvæmd og hvernig honum
tókst að koma efnahag iandsins á rétt-
an kjöl. Charles de GauUe náði því
markmiði sinu að koma stöðugleika á í
Frakklandi og er óhætt að segja að
þegar hann var valinn forseti hófst nýtt
uppgangstimabil í sögu Frakka. Enda
var það draumur de Gaulles að gera
Frakkland að forysturíki í Evrópu.
Seinni hlutinn af Þjóðskörungar
tuttugustu aldar fjallar því um ævi og
starf Charles de GauUe eftir að hann
gerðist forseti og þangað til hann lætur
afembætti.
Þá verður komið inn á Alsír-deUuna
og einnig fjallað um ákvörðun hans að
draga franskar hersveitir út úr Atlants-
hafsbandalaginu en það olli aö vonum
miklum deUum.
Árið 1968, þegar stúdentaóeirðirnar
stóðu sem hæst í Frakklandi, reyndi de
GauUe að hafa eftirlit með fréttaflutn-
ingi en tókst þó ekki að stöðva frétta-
flutning, þrátt fyrir veldi sitt.
Myndin endar á árinu 1969, þegar de
Gaulle sagði af sér og lézt stuttu síðar.
Þýðandi er Gylfi Pálsson og þulur
Guðmundur Ingi Kristjánsson. Myndin
er tæplega 30 mínútur að lengd.
-LKM.
FjölbrautaskóUnn á Selfossi mun
taka til starfa í haust fyrir austan
fjall. Gunnar Kristjánsson kennari
ætlar i tilefni af þvi að ræða við
Heimi Pálsson skólameistara um
þennan nýja skóla í útvarpinu kl.
22.35 ikvöld.
,,Ég ætla að tala við Heimi um
starfsemi þessa skóla, sem kemur tU
með að þjóna öUu Suðurlandi,”
sagði Gunnar í samtaU við DB. ,,Þá
kemur vonandi fram hvort sveitar-
félögin öU á Suðurlandi gangi inn í
reksturinn. SkóUnn er við Tryggva-
götu í húsnæði sem var iðnskóli áður.
Iðnskólinn verður ennþá áhangandi.
En vegna þess hve takmarkað
húsnæðið er, eru áform um að
byggja allverulega við. SkóUnn tekur
til starfa í haust og verður að hluta til
einnig í gagnfræðaskólanum. Þá
kemur vonandi fram í viðtaU okkar
hve margir geta komizt þar að.
Einnig reikna ég með að fá fram hjá
Heimi hvernig hann verði byggður
upp og hvaða kennslugreinar verði í
boði.
FjölbrautaskóUnn var nýlega að
auglýsa eftir fólki sem hefði áhuga á
öldungadeild við skólann. Þeir
ætluðu að athuga möguleikana á þvi.
Hingað til hefur verið öldungadeild í
Hveragerði, lítið útibú frá Hamra-
hlíð. Selfyssingar sem hafa óskað
eftir þessari tegund af skólagöngu
hafaþvísótt tilHveragerðis.” -LKM
Gunnar Kristjánsson kennari á Selfossi ræðir við Heimi Pálsson skólameistara
um nýja fjöibrautaskólann á Selfossi.
Það var draumur Charles de Gaulle að
gera Frakkland að forysturild í
Evrópu.
Tékkneski teiknimyndaflokkurinn um Pétur er á þriðjudögum strax eftir auglýsingar og dagskrá. Þættirnir eru alls þrettán
og verður annar þáttur sýndur f kvöld.
Smáauglýsingar
MSBIABSINS
Þverholtill sími 2 7022
Opið til kl.10 í kvöld
V.