Dagblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981. EIGNANAUST HF. SKIPHOLTI5 SÍMAR 29555 OG 29558 OPIÐ KL 1-5 LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA. Asparfell 3ja herb. ibúð á 5. hæð, 90 ferm, helzt í makaskiptum á raðhúsi eða einbýli í Mosfellssveit. Ásvallagata 2ja herb. jarðhæð, 80 ferm, lítið niðurgrafin, verð kr. 320.000,00. Dvergabakki 3ja herb. 83 ferm íbúð á 3. hæð, mjög vönduð og góð eign, verð kr. 500.000,00. Melgerði 3ja herb. 70 ferm risíbúð í tvíbýli, verð kr. 400.000,00. Kjarrhólmi 4 herb. 100 ferm ibúð, mjög góð eign, á 3. hæð, verð kr. 520.000,00, óskar eftir raðhúsi eða sérhæð í Kópavogi. /\ljálsgata 2x40 ferm parhús á tveimur hæðum, allt sér, verð kr. 400.000,00. Mosgerði 3ja herb. risibúð, 70 ferm, i tvibýli, verð kr. 360.000,00. Ljósheimar 3ja herb. íbúð á 4. hæð, 80 ferm, fæst helzt í skiptum fyrir sams konar eign með stórum stofum. Kjarrhólmi 3ja herb. 85 ferm ibúð á 2. hæð, falleg og góð eign, verð kr. 500.000,00. Vesturberg 3ja herb. jarðhæð, 83 ferm, verð kr. 450.000,00. Leirubakki 4 herb. plús eitt herb. í kjallara, mjög fallegt tréverk, vönd- uð eign, verð kr. 700.000,00. Lækjarkinn 3 svefnherbergi plús tvær samliggjandi stofur og 2 stór her- bergi í kjallara, alls 120 ferm, bílskúr, verð kr. 780.000,00. Kársnesbraut 4 herb. risíbúð, 110 ferm, í tvíbýli, verð kr. 510.000,00. Kaplaskjólsvegur 5 herb. íbúð á 4. hæð og í risi, alls 140 ferm, verð kr. 650.000,00. Átfheimar 4 herb. íbúð, 110 ferm, á 3. hæð, fæst í skiptum fyrir góða 3ja herb. íbúð. Vesturberg Raðhús á tveimur hæðum, mjög falleg og góð eign, samtals 190ferm, verðkr. 1.000.000,00. Reykjavegur — Mosfellssveit Einbýlishús sem er 4 stór svefnherbergi, 2 samliggjandi stofur, eldhús og bað plús 50 ferm bílskúr, verð 1.000.000,00. Sandgerði Einbýlishús, 140 ferm plús 50 ferm bílskúr, verð kr. 850.000,00. Selfoss Einbýlishús á 2 hæðum, stór bílskúr, verð kr. 600.000,00. Fjárborg Hesthús, 11 bása plús stór hlaða, verð tilboð. Skerjafjörður Höfum verið beðnir að útvega góða byggingarlóð fyrir mjög fjársterkan kaupanda. Óskum eftir 3ja herb. íbúð á Grundunum Kópavogi eða Fossvogi, einbýlishúsi í gamla bænumn, með bílskúr, einbýlishúsi eða góðri sérhæð í Kópavogi, sérhæð eða raðhúsi í Heima- hverfi, Langholti eða Laugarnesi. SKOÐUM 0G METUM ÍBÚÐIR SAMDÆGURS. GÓÐ OG FUÓT ÞJÓNUSTA ER KJÖR0RÐ 0KKAR. AUGLÝSUM ÁVALLT í DAGBLAÐINU Á ÞRIÐJUDÖGUM 0G FIMMTUDÖGUM. EIGNANAUST, Þ0RVALDUR LÚÐVÍKSSON HRL. r DB-mynd: Ragnar Th. Jóhann Þórólfsson er þakklátur læknum og hjúkrunarfólki Landspftalans. Læknastétt íslands og félagsmálaráðherra — læknum „er aldrei of vel borgað” Jóhann Þórólfsson skrifar: Ég undirritaður þurfti fyrir stuttu að leggjast inn á Landspítalann til aögerðar. Þá kom mér i hug lækna- deilan, sem ráðherra sýndi litinn skilning á að leysa og dró þaö á lang- inn þar til mjög alvarlegt ástand var farið að verða á spítölunum og sjúkl- ingar I stórhættu. Snerist þessi deila mest um kaupgjaldsmál. Veit ekki ráðherra, að þessi stétt þjóðfélagsins er sú stétt, sem íslendingar geta alls ekki verið án og það ætti ekki að þurfa að rfsa deila á milli ráðherra og læknastéttarinnar? Ég fuUyrði, að þessum mönnum er aldrei of vel, borgað, þeir eru búnir að lækna fjölda manns og ekki nóg með það, þeir hafa bjargað lifi fjölda manna og er ég einn af þeim. Kannski þyrfti ráðherra að verða alvarlega veikur til þess að skUja hvaö þessi stétt lætur margt gott af sér leiða, ráðherra ætti heldur að hugsa um það að skaffa þeim betri aðstöðu og kaupa handa þeim fullkomnari tæki þvi ef það væri gert þyrftu læknar ekki að senda frá sér nokkurn sjúkling til útlanda, þvi þeir standa ekki að baki starfs- bræðrum sínum erlendis. Áður en ég lýk þessari hugvekju minni vU ég færa læknum á deUd 4C minar beztu kveðjur með hjartans þakklæti fyrir þá heilsu, sem ég hef i dag, sérstaklega sendi ég læknunum Grétari Ólafssyni, Herði, Bjarna Þjóðleifssyni og Kristni og ekki má gleyma blessuöum hjúkrunarkonun- um, sem voru mér svo iiprar og góðar og kunna sitt fag, sérstaka kveðju frá mér fær hin dásamlega yfirhjúkrun- arkona Eygló. Um leið og ég sendi þessi orð frá mér vil ég taka það fram að fjármála- ráðherra er eins og rjúpan, hann skiptir um lit eftir þvi hvort hann er i stjórnarandstöðu eða i ráðherrastól, enginn maður var harðari en hann I kaupkröfumálum, þegar hann var i andstöðu við ríkisstjórnina en siðan hann kom í ráðherrastól gefur hann þá yfirlýsingu, aö það sé enginn grundvöUur fyrir kauphækkunum ekki einu sinni handa hinum lægst launuðu í þjóðfélaginu, hann meira að segja brýtur undirskrifaða samninga með því að rýra kaup okkar um 7%. Þetta tel ég ekki vera þjóöholla forystumenn og ættu heldur að kaUast ráðleysingjar heldur en ráðherrar. Ég vil að lokum færa forstöðukonu Sjúkrahótels Rauða krossins og starfskonum hennar minar hjartans þakkir fyrir lipra og góða þjónustu og þá ekki hvað sizt fyrir hið dásam- lega fæði, sem á borðum var og er áreiöanlega fyrsta flokks. Gabbeðaalvara? Geir Hallgrímsson og Lúðvík Jósefsson í límbands- auglýsingu í Finnlandi? —við seljum það ekki dýrara en við keyptum það Ragnar Brynjarsson skrifar frá Finn- landl: Ég er skiptinemi I Finnlandi á veg- um ICYE (International Christian Youth Exchange). Svo bar við eitt kvöld fyrir skömmu, þegar ég var að horfa á auglýsingar í sjónvarpinu, að mér fannst ég eitthvað kannast við andlit á skjánum. Var þetta ekki Geir Hall- grímsson? Og þetta Lúðvik Jóseps- son? Ég hef ekki séð auglýsinguna aftur, svo ég veit ekki hvort fleiri ís- lenzkir stjórnmálamenn eru i kringum þá. í auglýsingunni eru þeir Geir og Lúðvík staddir á fjölmennum fundi og það er komið að undirskrift þýð- ingarmikils samnings. Skjalið er rétt að Lúðvik en fyrir einhvern bölvaðan klaufaskap, þá rifnar blaöið, þegar hann tekur við því. Djúpt andvarp líður um salinn. En þá er til limband sem bjargar málunum, enda snýst auglýsingin um það. Blaðið er limt saman og það sést enginn munur. Allir klappa Lúðvík og límbandinu lof í lófa. Geir situr við hlið Lúðvíks og stekkur ekki einu sinni bros. Eitthvað er ekki með felldu í sam- bandi við þessa auglýsingu, m.a. hefði Geir að minnsta kosti brosað að óförum fóstbróður síns. Hafa borizt fregnir af þessu heim? Svar: Hvort sem hér er um gabb að ræða eða ekki, þá berst síðunni ekki svo margt broslegt að ómótstæðilegt var að birta þetta bréf. Við bárum þetta undir Geir Hall- grímsson, fv. forsætisráðherra, sem hló og sagðist margt hafa heyrt en aldrei þetta. Ekki tókst að ná til Lúð- víks Jósepssonar, fv. ráðhena, en utanríkisráðuneytinu hafa alla vega ekki borizt neinar fregnir af þessari límbandsauglýsingu. -FG. Raddir lesenda 11,1 \ Hring>ð ísima Ragnar Brynjarsson segist hafa séð auglýsingu i Finnlandi, þar sem þeir Geir Hallgrfmsson og Lúðvfk Jósefsson voru höfuðpaurarnir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.