Dagblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 4
4 4 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981. DB á neytendamarkaði ÍÍÉ Paö er hollt, að sögn, að snúa líkamanum einstaka sinnum á hvolf til þess að auðvelda alla blóðrás til höfuðsins. Þessar konur, sem festar voru á filmu I Júdódeild Ármanns fyrir nokkru, gerðu þetta lipurlega. Farshringur með gulrótum Oft er hægt að gera góð kaup í nokkurt magn er keypt í einu. Einnig kindahakk. Hér er uppskrift að hökkuðu kjöti. t.d. nautakjöti ef hefur verið á boðstólum mjög ódýrt skemmtilegum rétti, sem er bæði skrautlegur á að líta og ekki mjög hitaeiningaríkur. í matreiðslubókinni segir að uppskriftin sé fyrir sex manns og 279 hitaeiningar í hverjum skammti. 750 gr hakkað kjöt, helzt magurt nautakjöt 1 egg, þeytt 3 msk. vatn 4 msk. tómatsósa 3 msk. raspaður iaukur I tsk. salt 1/2 tsk. pipar ögnaf hvítlauksdufti 1 msk. biauðrasp. Blandið öllu saman nema brauðraspinu og hrærið I þar til deigið tollir vel saman. Látið deigið í hringform og hvohið því í ofnskúffuna eða í eldfast fat. Það er einnig hægt að búa til farshringinn með höndunum. Stráið brauðraspinu ofan á og bakið I ofninum í um það bil eina klukkustund. Takið þá hringinn úr ofninum og látið á fat og látið gulrætur í miðjuna. Skreytið með steinselju í kringum farshringinn. Skreytið með sýrðum agúrkusneiðum. -A.Bj. Gulrótunum er raðað með agúrkusneiðunum ofan á farshringinn og þetta litur hreint ekki út fyrir að vera hitaeininga- snauður réttur. En auðvitað veltur talsvert á að kjötið sé ekki mjög feitt. Stirðir limir liðkaðir Líkamsrækt við lækk- andi sól Núna um mánaðamótin settu hvers kyns líkamsræktarstofnanir allt í gang eftir sumarfrí. Slíkar stofnanir eru orðnar nokkuð margar hér á höfuðborgarsvæðinu og er starfsemi þeirra lík um sumt þó annað sé ólíkt. Það sem líkast er með þeim nær öllum er það að konur sækja þær í á- berandi meirihluta. Hvort það stafar af því að karlmenn sinni líkama sínum ekki af eins mikilli elju eða hinu að þeir gera það á öðrum víg- stöðvum skal ósagt látið. Við höfðum samband við nokkrar þess- ara stöðva og fengum upplýsingar um verð og það hvernig þjálfun væri háttað. Heba í Kópavogi býður upp á mánaðar leikfiminámskeið fyrir konur. Hægt er að fá tíma tvisvar eða fjórum sinnum í viku eftir óskum. Tvisvar í viku kostar 250 krónur og 4 sinnum í viku 450 krónur á mánuði. Innifalinn í verðinu er aðgangur að líkamanum. Hitaeiningatafla liggur frammi fyrir þá sem þess óska. í Yogastöðinni Heilsubót er æft tvisvar i viku. Eru þar bæði flokkar fyrir konur og karlmenn. Kostar mánuðurinn 260 krónur. Innifalið er sturtubað, gufa, ljós og gigtarlampi. Jassballettskóli Báru rekur líkamsrækt fyrir kvenfólk. Æft er tvisvar eða fjórum sinnum í viku. Ef æft er tvisvar í viku kosta 3 vikur 192. Ef æft er 4 sinnum er veittur 10% afsláttur. Gefinn er kostur á lengri námskeiðum og eru þau þá ódýrari. Innifalið er gufubað, sturta, nuddbretti, ýmis. þrektæki og káffi og te að tíma loknum. Að síðustu er það svo líkams- ræktin Orkubót sem er með töluvert öðru sniði en þær hinaf sem nefndar hafa verið. í stað þess að leggja áherzlu á þjálfun líkamans á gólfi er lögð áherzla á þjálfun með hvers konar tækjum. Námskeiðið er til að gufubaði, nuddtækjum og þrek- þjálfunartækjum. Einnig sápa og sjampó og kaffi að tíma loknum. í október tekur til starfa við stöðina nuddari sem nuddar fólk ef það vill. En þjónusta hans er vitaskuld ekki innifalin í verðinu. Júdódeild Ármanns er einnig með leikfimi fyrir konur. { október byrja síðan flokkar fyrir karlmenn og eru þeir tímar í hádeginu. Æft er tvisvar i viku og kosta fjórar vikur 250 krónur. Innifalið er sturtubað, gufa, ljós, kaffi að tíma loknum og ef menn óska, vigtun og mæling á byrja með fólgið í að læra viðeigandi æfingar við tækin en síðan geta menn æft sig eftir getu og áhuga. Nám- skeiðið kostar 250 krónur og stendur í mánuð. Æft er tvisvar í viku. Fara 25 mínútur af hverjum tíma í upphitun, en síðan afgangurinn í tækin. Eftir að námskeiði lýkur geta menn keypt sér kort sem dugar í mánuð eins oft og hver vill. Bæði karlar og konur eiga kost á þessu en ólíkt hinum stöðunum eru karlar þarna í meirihluta. í verðinu fylgir aðgangur að baði og gufu. -DS UpplýsingaseðiU til samanbuiðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi i upplýsinganúðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar I fjölskyldu af sömu stærð og vðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis- tæki. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks----- Kostnaður í ágústmánuði 1981 Matur og hreinlætisvörur kr. Annað kr. Alls kr. m imw i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.