Dagblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981. 5 SIS hyggst kaupa hiut i fískiðju á Suðureyrí —á sama tíma er iðnaðardeild Sambandsins rekin með tapi vegna stöðu Evrópugjaldmiðla gagnvart dollar Að frumkvæði hluthafa í Fiskiðj- unni Freyju hf. á Suðureyri við Súgandafjörð hafa að undanförnu staðið yfir viðræður milli þeirra og sjávarafurðadeildar Sambandsins um kaup á hlutabréfum í Fiskiðjunni Freyju. Hlutabréf þau sem hér um ræðir eru 91 % af öllum hlutabréfun- um en nafnvirði þeirra er ein milljón króna. Astæða þessa er sú að nokkrir af stærstu hluthöfunum í fiskiðjunni óska að draga sig út úr rekstri fyrir- tækisins. Hluthafar í Freyju eru alls 32 en einungis Suðureyrarhreppur og Súgandafjarðardeild Kaupfélags ís- firðinga hyggjast ekki selja sinn hlut. Hvor þessara aðila um sig á 4,5% hlutabréfanna. Á blaðamannafundi sem Sam- bandið boðaði til i tilefni kaupanna kom fram að Sambandið hyggst nota fjármagn úr sérsjóðum sjávar- afurðardeildarinnar til kaupanna. Ekki hefur kaupverð hlutabréfanna verið ákveðið en seljendur munu hafa farið fram á fimmfalt nafnverð bréf- anna, eða 5 milljónir króna fyrir hlutabréfin. Meðal eigna Fiskiðj- unnar Freyju má nefna 60% hlut í skuttogaranum Elínu Þorbjarnar- dóttur, frystihús, sait- og skreiðar- verkunarstöð, lýsisbræðsiu og fiski- mjölsvinnslu, en Freyja hefur hingað til verið í Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna. Sjávarafurðadeild Sambandsins hefur í þessum viðræðum lagt á það ríka áherzlu að heimamenn taki sem stærstan þátt í rekstri fyrirtækisins og í því sambandi hefur verið rætt við félagasamtök á Suðureyri um veru- lega þátttöku þeirra í kaupunum. Núverandi hluthafar eru allir Súg- firðingar en á milli 140—150 manns vinna í fiskiðjunni. 1 fyrra nam framleiðsla frystra fiskafúrða 81% af heildarfram- leiðsluverðmæti fiskiðjunnar en að sögn Óskars Kristjánssonar stjórnar- formanns Freyju var fiskiðjan þá rekin á sléttu. Það sem af er þessu ári hefur freðfiskur verið um 70% af heildarframleiðsluverðmætinu en þrátt fyrir mun lægra hlutfall freð- fisks í ár kvaðst Óskar gera ráð fyrir tapi. „Þetta eru erfiðir tímar og það verður örugglega ekki hagnaður af rekstrinum,” sagði Óskar. Óskar var spurður að því hvort hægt væri að verka meira af fram- leiðslu fiskiðjunnar í sait eða skreið og kvað hann það vera nokkuð erfitt því undirlendi væri takmarkað við Suðureyri. Talsmenn Sambandsins á blaða- mannafundinum, Árni Benediktsson og Kjartan P. Kjartansson, töldu hins vegar að ef af kaupum Sam- bandsins yrði myndi framleiðslu fisk- iðjunnar verða hagað i samræmi við markaðsaðstæður hverju sinni. Því gæti svo farið að saltfisk- og skreiðarframleiðsla yrði aukin eitt árið en freðfiskframleiðsla annað árið. Að lokum voru Sambandsmenn spurðir að því hvort ekki skyti skökku við að Sambandið væri að kaupa hlut í fiskiðju á sama tíma og iðnaðardeild Sambandsins væri rekin með bullandi tapi. Árni Benediktsson kvað svo ekki vera, það væri ekki hægt að færa til fjármagn milli þessara deilda þegar ríkisvaldið ábyrgðist ekki rekstrargrundvöll iðnaðarins. Vegna óhagstæðrar stöðu Evrópugjaldmiðla gagnvart Bandaríkjadollar væri rekstrargrund- völlur iðnaðarins slakur og ríkis- valdið yrði að bæta hann. Þá benti Árni á að ýmsar aðrar hindranir væru í vegi þannig millifærslu. Fyrir hönd fiskiðjunnar Freyju hafa þeir Óskar Kristjánsson stjórnarformaður og Páll Friðberts- son framkvæmdastjóri tekið þátt í viðræðunum en fyrir Sambandið þeir Sigurður Markússon, Árni Benediktsson og Kjartan P. Kjartans- son. -SA. YFIR ATLANTSHAFIÐIMOTORSVIFFLUGU Hvemig litist þér á að fljúga með svifflugu yfir Atlantshafið? Líklega litist þér ekkert á það. En ef hún hefði einn lítinn hjálparmótor? Værirðu þá tilleiðanlegur, lesandi góður? Hér í Reykjavík er nú staddur þýzkur blaðamaður sem er á leið frá Los Angeles til Hamborgar. Farartæki hans er 500 kg þung sviffluga með 80 hest- afla hjálparmótor sem knýr eina skrúfu. Michael Schultz heitir hann þessi ofurhugi. Hann er blaðamaður við þýzkt flugtímarit sem kemur út mánaðarlega. Hingað til lands kom hann á laugar- dag frá Kulusuk á Grænlandi. Áður hafði hann m.a. komið við í Nuuk, sem áður hét Godtháb, Frobisher Bay á Baffinslandi, Quebec-borg í Kanada og Oshkosh sem er rétt fyrir norðan Chicago. Næsti áfangi er Stafangur í Noregi. Og hver er svo tilgangurinn með svona flugi? Svala ævintýraþorsta? Safna efni í grein í flugtímaritið? Aug- lýsa sígarettur? Auglýsa mótorsvifflug- una? Setja met? Eða bára komast heim? Líklega allt þetta. Sígarettufyrirtæki fjármagnar flugið og fær í staðinn auglýsingar á skrokk og vængi svifflug- unnar. Óg svona í leiðinni á að reyna að setja nýtt hraðamet fyrir léttar eins- hreyfilsflugvélar á leiðinni Reykjavík — Stafangur. Þýzki blaðamaðurinn er í bili strand- aður hér á landi. Einhver krankleiki var í mótornum og í gær var von á flug- virkja frá verksmiðjunum. En þegar búið verður að laga hann er ekkert því til fyrirstöðu að leggja af stað, nema kannski veðrið. Michael Schultz hyggst ekki leggja upp nema hann verði laus við ský í þeirri flughæð sem hentar mótorsviflugunni bezt, sem er um 12.000 fet. Hann vill ekki fljúga í skýjum vegna hættu á ísingu, en svif- flugan hefur engin ísvarnartæki. Og þá vill sá þýzki gjarnan hafa einhvern meðvind a leiðinni til Noregs. Mótorsvifflugan er þýzk og kostar ný um 80 þúsund dollara. Til Los Angeles var hún flutt með annarri flug- vél, þotu frá Lufthansa. Ef einhver lesandi he'fur áhuga á að ferðast yfir Atlantshafið í mótorsvif- flugu skal bent á að kostnaðurinn við flug Þjóðverjans og umstangið i kringum það er um 30 þúsund dollarar eða um 240 þúsund islenzkar krónur. -KMU. mn ■■■■■■■■■■■ unfyrir Rússlands- markað á Húsavík -aflinn500tunnur á laugardaginn — Þarereinnig mokafli afbolfiski „Við fengum grænt ljós á söltun síldar fyrir Rússlandsmarkað sl. fimmtudag,” sagði Tryggvi Finnsson framkvæmdastjóri Fiskiðjusamlags Húsavíkur i samtali við DB. „Siðan er búin að vera nær stanzlaus söltun. Það bárust um 40 tunnur á fimmtu- dag, 150—200 á föstudag, 500 tunnur á laugardag, en i dag höfum við ekk- ert fengið. Þetta er fín og góð sild og ferað mestuísalt.” Tryggvi kvað Fiskiðjusamlagið ekki hafa verið með siidarsðltun í áætlun sinni til þessa. En trillukarl- arnir og smábátaeigendur vilja stunda þessar veiðar, þó ekki sé enn komið verð á aflann og enginn viti í raun hvað hann fær. í fyrra reyndist þetta góð búbót fyrir smábátaeigendur en þá var afl- inn frystur og er það einnig nú, nema um mjög góða sild sé að ræða ,,Nú vildu fleiri stunda síldveiðar og nú eru að veiðum bæði trillur og minni dekkbátar,” *gð Tryggvi. „Því förum við út i þaö að kaupa vél sem hausar og slógdregur en höfum stúlkur til að salta. Við höfum nánast ekki húsnæði til annars en nota vélina til hennar verka og stúlkur aðcinstilaðsalta.” Tryggvi kvað þörf Húsvikinga fyrir beitusíld vera 120—130 tonn og það magn myndu þeir reyna að frysta i haust. Um aðrar veiðar sagði Tryggvi aö mokveiði væri hjá bátum og togurunum sem boifiskinn veiða. Helzt vantaði fólk til að vinna aflann er bærist og það væri misskilningur að fiskvinnslan gæti ekki tekið við fleira fólki þóaflabrögðykjustekki. -A.St. rr FILMUR DG VELAR S.F. infca iii SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235. K0N0 w. I/OWl I Illt! MÁLASKÓLI' -26908- Danska, enska, þýzka, franska, ítalska, spænska og íslenzka fyrír útiendinga. Talmálskennslu annast m.a. Jeffrey Cosser fensku) og Aitor Yraola fspænsku). Innritun daglega kl. 1—7 e.h. Kennsla hefst 21. sept Þýzki blaðamaöurinn Michael Schultz við mótorsviffluguna á Reykjavlkurflugvelli 1 26908- HALLDÓRS gær. DB-mynd: Sigurður Þorri. Alþjóðlega mótið í Manchester: JÓN L. TAPAÐI MARAÞ0NSKÁK SINNIGEGN MILES „Þetta var sannkölluð maraþon- skák hjá okkur — 70 leikir — en ég gerði mig sekan um ónákvæmni undir lokin þegar tíminn var farinn að þrengja að mér og siðan lék ég af mér peði og þá var fokið í öll skjól,” sagði Jón L. Árnason við DB í gær eftir að hann hafði tapað biðskák sinni við Anthony Miles á Bene- dictine International skákmótinu í Manchester. Jón gerði siðan jafntefli við Flear frá Englandi í gær og hefur 2,5 vinn- inga að fjórum umferðum loknum. Margeir Pétursson á biðskák úr 4. umferðinni en hefur hlotið 2 vinn- inga. Miles er efstur á mótinu og hefur unnið allar sinar skákir til þessa og er með 4 vinninga. Tefldar verða 9 umferðir. -SSv.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.