Dagblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 16
16 DAGBLAÐIÐ. ÞRIDJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981.
fleira ,
FOLK
Tvö vínveitinga-
hús í Torfunni
Veitingahúsin halda áfram aö
spretta upp eins og gorkúlur og það
nýjasta er Lækjarbakki, sem nú er
unnið í nótt sem nýtan dag til að
hægt verði að opna sem fyrst.
Lækjarbakki er einmitt í Torfunni
góðu og eigandi hans er einmitt fyrr-
verandi eigandi Torfunnar. Borgar-
ráð fjallaði um daginn um vínveiting-
ar til Lækjarbakka og var ekki mælt
gegn þeim. í Torfunni verða sem sagt
á næstunni tvö veitingahús, bæði
með vínveitingar og svo er bara að sjá
hvernig samkeppnin milli ná-
grannanna og fyrrverandi
samstarfsmannanna gengur.
Rofar til
í vínmálum
Kópavogsbúa
Og talandi um vínveitingar.
Aldrei hafa Kópavogsyfirvöld
heimiláð fullar vínveitingar. Þannig
fékk veitingahúsið Versalir, á meðan
það var og hét, aðeins leyfi fyrir
léttum veigum. Nú hefur eitthvað
•rofað til í þeim málum þar sem nýi
skemmtistaðurinn í Kópavogi hefur
fengið fulit vínveitingaleyfi. Menn
velta því nú fyrir sér hvort því sé að
þakka að lögreglustöðin sjálf er í
næsta húsi.
Grænt upp
Fríöa frá
Tímanum
Mannabreytingar á fjölmiðlum
eru alltaf áhugaverðar. Nýjasta sagan
I þeim efnum er sú að Fríða Björns-
dóttir sem unnið hefur í tuttugu ár
hjá Tímanum hefur nú sagt upp
starfi sínu. Ekki er það leiði með nýju
yfirmönnunum sem ásækir Fríðu,
heldur það eitt að hún er orðin leið á
starfinu. Mun hún í framtiðinni
helga sig heimili og börnum og að
sjálfsögðu verða áfram starfsmaður
Blaðamannaf éiagsins.
Legókubbar
og kynlíf
Þennan sagði einhver um daginn
og allt 1 lagi að hafa hann eftir:
Veiztu hver er munurinn á
Legókubbum og kynlífi?
— Ekki?
Þá skaltu bara halda áfram að
raða kubbunum.
tt
Og frá Kópavogi færum við
okkur í bæjarfélag aðeins sunnar.
Maður nokkur hafði auglýst hús til
sölu og þegar tveir áhugasamir
kaupendur mættu á staðinn vildi svo
til að verið var að ditta að húsinu og
lóðinni. Sjálfur var húseigandinn að
mála.
Kaupendurnir fóru nú að spyrja, 1
eins og gengur og gerist, um húsið. í
miðju tali rýkur húseigandinn
skyndilega út í glugga og gargar:
„Grænt upp”. Svo héldu
viðræðurnar við kaupendurna áfram
eins og ekkert hefði í skorizt. Þeir
halda áfram að spjalla um hús-
eignina en svo allt í einu rýkur hús-
eigandinn aftur út í glugga og
gargar: „Grænt upp”. Þetta endur-
tók sig tvisvar í viðbót og þá gátu
kaupendurnir ekki lengur haldið í sér
forvitninni svo þeir spurðu húseig-1
andann hvers vegna hann færi út í
glugga til að garga „grænt upp”.
„Það er vegna þess að ég er með
tvo Hafnfirðinga í vinnu við að tyrfa
lóðina,”var svarið.
FÓLK
Elva Gísladóttir annaö nýtt nafii í Iðnó:
Sá Shirley Temple og þar með
kviknaöi áhuginn á leiklistinni
Jóhann S/gurðsson hlakkar til að fást vkt aö leika Jóa sem er
þroskaheftur og veldur ýmsum vandamálum. Kjartan Ragnarsson samdi
leikritið ogerþetta talið eitt hans bezta verk. DB-mynd Einar Ólason.
Elva Glsladóttir varð svo óheppin að lenda i bílslysi og fókk hún smá
„saumsprettu" að eigin sögn ó nefið. Sem betur ferð urðu meiðsl hennar
ekkimeirien verr gat farið, þarsembíllhennargjöreyðiiagðist
DB-mynd Einar Ólason.
Fyrsta stóra hlutverkiö
og fyrsta skipti í leikhúsi:
Jói leikur Jóa
Elva Gísladóttir er annað nýtt nafn
á fjölum leikhússins. Elva útskrif-
aðist úr Leiklistarskóla íslands i
fyrravor og hefur siðan leikið í
mörgum sjónvarpsmyndum auk
kvikmyndarinnar Morðsögu. Eins og
Jóhann fékk Elva áhuga á leiklist í
gegnum bíó. „Þegar ég var krakki sá
ég Shirley Temple í hlutverki og mig
dreymdi um að verða stjarna eins og
hún,” segirElva.
í leikritinu Jóa leikur Elva Maggý,
„sem er litla unga konan hans Bjarna
bróður,” segir hún og ég spyr hver sé
Bjarni bróðir. „Jú, það er bróðir
hans Jóa og það er Þorsteinn Gunn-
arsson sem er í hlutverkinu.”
— Hvernig fékkst þú þetta hlut-
verk, Elva? Jú, ætli ég passi bara
ekki ágætlega fyrir týpuna,” svarar
hún.
Elva Gísladóttir er 26 ára, gift
Kristjáni Víkingssyni lækni og eiga
þau þriggja ára strák. Við höfum séð
hana i (fyrir utan Morðsögu) Undir
sama þaki, Skólaferð, áramótaskaupi
og við komum til með að sjá hana í
Kuski Hvítflibba, eftir Davíð Odds-
son sem sjónvarpið sýnir í desember.
Þá lék Elva Jónu vinnukonu í leikrit-
inu Þorláki þreytta og þótti henni
það einstaklega skemmtilegt hlut-
verk.
Eins og Jóhanni þykir Elvu leik-
húslífið skemmtilegra en kvikmynd-
un. „Þó mundi ég ekki slá hendinni á
móti hlutverki í kvikmynd,” segir
hún. En hvernig er með skólann,
koma þeir þangað sem eru að leita að
fólki í hlutverk? „Það kemur fyrir að
leikhússtjórar eða leikstjórar komi.
Yfirleitt koma þeir á nemendasýning-
ar. Mér Finnst þó að meiri samgangur
mætti vera á milli leikhússins og skól-
ans,” segir Elva Gísladóttir leikkona.
-ELA.
Hór eru þau samankomin fyrir utan leikhúsið sitt Jói og Maggý — eða
Jóhann Sigurðsson og Elva Gísladóttir sem næstkomandi laugardag
spreyta sig i fyrsta skipti i atvinnuleikhúsi. Ekki sögðust þau kvíða fyrir,
enda fenguþau tvær forsýningar sl. vor sem tók mesta kvíðann.
DB-mynd Eirtar Ólason.
— Jóhann Sigurðsson, 25 ára, spreytirsig í
Iðnó, en hann lauk námi í vor.
Jói, nefnist nýtt leikrit eftir Kjart-
an Ragnarsson sem frumsýnt verður í
Iðnó nk. laugardag. Það sem telst
kannski merkilegt við Jóa er það að
Jói leikur Jóa. Og Jói h':fur aldrei
fyrr leikið svo stói t hlu verk né á
sviði í atvinnuleikhúsi. F ókið? Nei.
Jói er Jóhann Sigurðsson 25 ára gam-
all sem lauk námi í Leiklistarskóla ís-
lands sl. vor. Kjartan Ragnarsson
bauð honum hlutverk Jóa og í fyrra-
vetur var leikritið æft af kappi auk
þess sem tvær forsýningar voru.
Leikritið fjallar um þroskaheftan
mann og hans fjölskyldu,” segir
Jóhann er við spjölluðum stuttlega
um leikritið. Þess má geta að Kjartan
samdi það sérstaklega í tilefni af ári
fatlaðra. „Jú, ég hef nokkuð kynnzt
þroskaheftum og við fórum í Öskju-
hlíðarskólann til að kynnast þeim
betur fyrir leikritið. Síðan var leikrit-
ið sýnt skólastjóra skólans, sálfræð-
ingi og félagsráðgjafa og þeir lögðu
sitt mat á verkið,” heldur Jóhann
áfram.
— En hvernig fékk hann áhuga á
leiklist?
„Jú, þegar ég var ftmm eða sex ára
sá ég Tarzan í fyrsta skipti og þá
ákvað ég að verða leikari — fékk að
minnsta kosti fiðring.” Hefðirðu þá
ekki heldur kosið að verða kvik-
myndaleikari? „Ég hef einu sinni
leikið í kvikmynd, Óðali feðranna og
einnig í Skólaferð í sjónvarpinu. En
ég held að ég kjósi heldur leiksviðið.
Annars fer það allt eftir hlutverk-
unum. Kvikmyndaleikur og leikur á
sviði er tvennt ólíkt,” segir Jóhann.
Hann lék með Nemendaleikhúsinu í
vor og er því Jói fyrsta hlutverk hans.
„Jói er á aldrinum einhversstaðar í
kringum þrítugt og er á mörkunum
að eiga heima á stofnun. Fjölskyldan
vill að sjálfsögðu eiga sitt líf og það
er spurningin hvort einhver eigi að
fórna sér fyrir Jóa,” sagði Jóhann.
— Og hvað tekur við af Jóa —
ætlarðu að halda áfram að leika?
„Já endilega, ég mun hafa augun
opin fyrir hlutverkum,” sagði
Jóhann Sigurðsson, ungur leikari
sem áhorfendur fá að berja augum á
fjölum Leikfélags Reykjavíkur í
haust.
-ELA.