Dagblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981. r v Veðrið Qert er ráð fyrir norðaustan átt á landlnu. Um norflan og austanvert landlfl ar allhvasst og hvasst á stöku stafl, slydda afla rlgnlng. A Suflvesturlandl far afl draga úr vlndi, stinningskaldl þegar líflur á daginn og þurrt afl mastu. ( Reykjavik var í morgun norðaustan 2, skýjafl og 6 stlg, Gufuskálar austan 9, skýjafl og 6; Galtarvltl norflaustan 8, slydda og 3; Akureyri norflaustan 3, alskýjafl og 4 Raufarhöfn norðaustan 6, rigning og 3; Dalatangl austan 5, súld og 5; Hflfn austan 4, súld og 6; Stórhflffli austan 9, skýjafl og 7. ( Þórshflfn var skýjafl og 10, ( Kaupmannahflfn þokumófla og 18, í Osló, aiskýjafl og 13, í Stokkhólmi skýjafl og 1, í London skýjafl og 17, f Hamborg þokumófla og 13, í Parfs þokumófla og 17, í Madrld heiflskirt og 16, ( Lissabon láttskýjafl og 10, (NewYork alskýjaflog 21. m. "" '■ " ■ ^ L Ándtát 1211 Ingimundur Guðmundsson, Mánagötu 17 Reykjavík, lézt 29. ágúst. Hann var fæddur 17. maí 1906 að Þverholtum í Álftaneshreppi á Mýrum.Foreldrar hans voru hjónin Ólöf Runólfsdóttir og Guðmundur Eiríksson. Árið 1935 hóf hann búskap með eftirlifandi konu sinni, Guðrúnu Elísabetu Ólafsdóttur. Eignuðust þau sjö börn. Fyrstu árin bjuggu þau í Borgarnesi en eftir að þau fluttust til Reykjavíkur starfaði Ingi- mundur við byggingarstörf en þrjátíu síðustu ár ævi sinnar starfaði hann hjá Eimskipafélagi íslands. Ingimundur verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju i dag, 8. september, kl. 13.30. Pétur Sumarliðason kennari lézt í Borgarspitalanum 5. september, 65 ára að aldri. Hann var fæddur í Bolungar- vik 24. júii 1916. Um árabil stundaði Pétur kennslustörf en 1955—57 var hann skólastjóri. Hann skrifaði margar blaðagreinar og flutti fjölmarga þætti í útvarpi. Björn Bergmann, fyrrum bóndi í Svarðbæli, Miðfirði andaðist að Elli- heimilinu Grund 6. september. Þorgerður Sigtryggsdóttir verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju 9. september kl. 15. Hildur Hjaltadóttir, fyrrum ljósmóðir frá Hrafnabjörgum í ögursveit er látin. Keðjuathöfn fer fram frá Dómkirkj- unni 10. september kl. 13.30. Jarðsung- ið verður frá ögurkirkjtt 12. september kl. 14. Langferðabíll fer frá ísafirði inn iögur kl. 11.30. Henrikka Ólafsdóttir Finsen, Laugar- braut 3 Akranesi, andaðist á sjúkrahúsi Akraness 4. september. Birna Bjarnadóttir andaðist að heimili dóttur sinnar, Boulder, Colorado USA, 5. september. Valgerður Helgadóttir, Lönguhlíð 3, fyrrum húsfreyja á Hólmi í Landbroti, lézt 5. september. Ráðstefna í Valhöll Málefnanefnd Sjálfstæðisflokksins um sveitar- stjóma- og byggðamál mun standa fyrir ráðstefnu um þau mál dagana 25. og 26. sept. Til ráðstefn- unnar eru boðaðir allir sveitarstjórnarmenn Sjálf- stæðisflokksins og varafulltrúar. Auk þeirra verður flðrum áhugamflnnum um málefni sveitarstjórna boðið að sitja ráðstefnuna sem haldin verður í Val- hflll, Háaleitisbraut 1 Reykjavik. Fjórir málaflokkar verða teknir fyrir á ráðstefn- unni. Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjamar- nesi, mun fjalla um tekjustofna sveitarfélaga. Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri í Garðabæ, mun fjalla um menntamál. Katrín Eymundsdóttir, bæjarfull- trúi á Húsavík, fjallar um heilbrigðismál og Elln Pálmadóttir, varaborgarfulltrúi, mun fjalla um um- hverfísmál. Umræðuhópar starfa um hvem mála- flokk en að loknu þeirra starfi og almennum um- ræðum verður fjallað um urídirbúning sveitar- stjórnarkosninganna. Framsögumenn þess hluta ráðstefnunnar verða m.a. Gísli Ólafsson, Seltjarnamesi, Þór Gunnars- son, Hafnarfirði, Sigurður I. Sigurðsson, Akureyri, og Sveinn Skúlason, Reykjavik. Þar verður fjallað m.a. um prófkjör, framboð, hverfavinnu, blaðaút- gáfu, starf á kjördegi og framboðsfundi. Ráðstefnan hefst kl. 14 föstudaginn 25. september eins og áður sagöi og henni lýkur um kl. 18 laugar- daginn 26. september. Ráðstefnustjóri verður Albert K. Sanders, bæjarstjóri í Njarðvík. Þátttaka til- kynnist áskrifstofu Sjálfstæðisflokksins, Valhöll. Badminton Innritun í badminton á vegum íþróttafélagsins Leikniseri síma 71519 á milli kl. 19og22 Guðlaug Jóhannesdóttir dömuklæð- skeri, Ljósheimum 22, andaðist aðfar- arnótt 3. september í Borgarspítalan- Karene Irene Gislason, Hliðarbraut 2 Hafnarfirði, andaðist laugardaginn 5. september á Sólvangi. Dagbjört Guðbrandsdóttir, Eskihlíð 8a, er látin. Jóna Auður Guðmundsdóttir og Viktor Sigurðsson, Heiðarhrauni 15 Grindavík, létust af slysförum 5. september. Guðrún Sigurjónsdóttir, Drápuhlíð 11, lézt 29. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Guðmundur Sigurðsson frá Fáskrúðs- firði, Engihlíð 10, lézt í Borgarspítalan- um 31. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju 9. september kl. 13.30. W.W. White andaðist í sjúkrahúsi Brunswick 23. ágúst. í Dómkirkjunni voru géfin saman í hjónaband Sigríður Hanna Einars- dóttir og Samúel Ingi Þórarinsson. Heimili þeirra er á Vitastig 17 Bolungarvík. Prestur var séra Þórir Stephensen. Studio Guðmundar Ein- holti 2. Nýlega voru gefin saman i hjónaband í Árbæjarkirkju Anne Hólmfriður Yates og Guðmundur Jóhann Arason. Heimili þeirra er 33 Eton Avenue, New Malden, Surrey England. Prestur var séra Sigurður Haukur Guðjónsson. Studio Guðmundar Einholti 2. Tvítug v-þýzk stúlka, hefur mörg og fjölbreytt áhugamál, skrifar á þýzku, ensku og frönsku: Ute Sautter, Fleiderstr. 7, 7460 Balingen 6, W-Germany. ÆT I GÆRKVÖLDI Tíðindalaust á fréttavígstöðvunum Með sanni má segja að nú ríki gúrkutíð í fjölmiðlaheiminum, eins og berlega kom fram í fréttatímum útvarps og sjónvarps í gærkvöldi. Þar var fátt bitastæðra frétta, einna helzt að fréttin um kaup SlS á fisk- iðju á Súgandafirði, vekti gjhygli. En orðin tíðindalaust á fréttavígstöðvun- um eiga vel við um þessar mundir. Þátturinn Daglegt mál hefur oft verið gerður að umræðuefni í þessum dálki og ætíð hlotið mikið lof. Það er því kannski að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um þáttinn nú, en í gærkvöldi tók Helgi J. Halldórsson fyrir nokkrar ambögur í máli blaðamanna. Sérstaklega virtist Helga vera uppsigað við orðið þula, sem heiti á kvenmannsþul. Sagði Helgi að orðið þula væri eingöngu til í merkingunni ákveðið form kveð- skapar og gerði það að tillögu sinni að orðið þulur yrði hér eftir notað um þær stúlkur er lesa dagskrána í sjónvarpi. Soffía Guðmundsdóttir frá Akureyri fjallaði um kvenna- framboðið þar nyrðra í pistli sínum um daginn og veginn. Soffia rakti sögu framboðs kvenna og óneitanlega var það athyglisvert að einungis þrjár konur skuli hafa setið í bæjarstjórn Akureyrar. Hins vegar tel ég kvennaframboð ekki réttu leiðina fyrir konur til að ná auknum áhrifum í þjóðfélaginu því eins og Soffía benti réttilega á þá eiga konur að komast áfram á eigin ágæti en ekki kynferði sínu. Hér er vissulega úr vöndu að ráða fyrir kvenþjóðina, því þótt jafnrétti eigi að heita í stjórnmálaflokkum á íslandi er það deginum ljósara að karlar hafa öll völd flokkanna í hendi sér. Hér sem annars staðar vantar einhvern snilling til að koma fram með pottþétta lausn. Um áttaleytið var kominn timi til áð venda sínu kvæði í kross og kveikja á sjónvarpinu. Mikil voru vonbrigðin er uppgötvaðist að Tommi og Jenni voru ekki á dagskrá. Eins og fleiri á þessu blaði er undir- ritaður haldinn miklum kvalalosta og fær útrás fyrir hinar annarlegu kenndir sínar við að horfa á músina hálfdrepa köttinn og öfugt. í íþróttunum var leikur Dana og íslendinga í Kaupmannahöfn fyrir augun. Skelfing hefur sá leikur verið leiðinlegur ef þetta voru beztu kafl- arnir sem sýndir voru í gærkvöldi. En gaman var á hinn bóginn að horfa á Bretana Steve Ovett og Sebastian Coe setja heimsmet í míluhlaupinu. Ótrúlegir hlauparar báðir tveir. Um leikrit Strindbergs, Dauðadansinn, er rétt að hafa sem fæst orð. Það er vissulega magnað en langt cr það. En á það skal enginn dómur lagður fyrr en að loknum síðari hluta þess sem sýndur verður í kvöld. -SA. Norræna bindindisþingið 1981 Norræna bindindisþingið var haldið i östersund á Jamtalandi í Svíþjóð dagana 26.—30. júlí. Þingið sóttu um 300 fulltrúar hvaðanæva af Norðurlönd- um; íslendingar voru 11 talsins. Fjölmörg fróðleg erindi voru flutt á þinginu. Meðal fyrirlesara voru Archer Tongue fram- kvæmdastjóri ICAA (Alþjóðaráðsins um áfengis- og fíkniefnamál sem aðsetur hefur í Sviss), Per Sundby prófessor í Osló, Ásbjöm Haugstvedt for- maður í félagsmálanefnd Norðurlandaráðs og Karin Söder félagsmálaráðherra Svía. Olof Burman, sem verið hefur formaður Norræna bindindisráðsins frá stofnun þess, baðst undan endurkjöri og var Valeri SureU, framkvæmdastjóri Bindindisfélags ökumanna í Svíþjóð, kjörinn for- maður. í stjóm Norræna bindindisráðsins situr af íslend- inga hálfu Ólafur Haukur Árnason og varamaður hans er Jóhann E. Bjömsson. Bandamanna saga í skólaútgáfu Óskar Halldórsson sá um útgófu. IÐUNN hefur gefið út Bandamanna sögu i útgáfu sem sérstaklega er ætluð til lestrar í skólum. Óskar Halldórsson hefur séð um þessa útgáfu og samið ítarlegan formála. Gerir hann þar grein fyrir gerð sögunnar, listrænni byggingu hennar og stíl. Ennfremur fjallar hann um handrit sögunnar, en hún er varð- veitt í tveimur aðalhandritum, Möðru- vallabók og Konungsbók sem geyma hvor sína gerð sem nokkuð eru frá- brugðnar sín í milli. Hér er birtur texti Möðruvallabókar, en síðari tíma texta- rannsóknir hafa leitt i ljós að þar muni frumtextinn betur varðveittur. í þessari útgáfu hefur útgefandi sýnt nokkur valin lesbrigði úr Konungsbók þar sem þau virðast helst skipta máli. Aftast í bókinni er skrá um nokkur rit og ritgerðir um Bandamanna sögu. Eins og í öðrum skólaútgáfum eru hér allmörg verkefni og athugunarefni handa nemendum að glima við, og orðskýringar og vísnaskýringar neðan- máls. — Bandamanna saga er sautjánda bókin í flokknum íslenzk úrvalsrit í skólaútgáfum. Hún er 64 blaðsiður, Oddi prentaði. \ fft; 1 ^ l ^ | * \ * i Gallerf Langbrók á Bernhöftstorfu Laugardaginn 5. september 1981 kl. 15. var opnuð sýning I Gallerí Langbrók á Bernhöftstorfu. Sotos Michou sýnir þar hluta af verkum sem hann gerði síðustu 2—3 vikur á íslandi. Þessi verk eru hluti af tilraunum hans til að skynja ísland. Þessi verk eru eyðilagðar, breyttar og endur- skapaðar Ijósmyndir gerðar með land SX70-mynda- vél og gouache myndir sem hann nefir islenzkt lands- lagsliki. Poloroid myndirnar eru myndlesmál — myndir sem lifa í lesmáli og myndmáli. — : Þær eru tileinkaðar ímyndunarheimi mannsins. Gouache myndirnar eru litsmiðar. Sotos Michou er griskur, en býr í Stuttgart og Karlsruhe í V-Þýzkalandi og í Prosilion I Suður Peloponnes. Hann fæddist 1936 í Aþenu. Árið 1955 fluttist hann til Þýzkalands. 1971 var hann kennari við Listaakademiuna í Karlsruhe. Árin ’72/’73 vann hann sem höfundur, leikstjóri og listrænn sköp- uður við leikhús i Þýzkalandi. í vor færði hann upp verk sem hann nefndi sviðsett myndlist í leikhúsinu Theater am Turm í Frankfurt. Hann var kallaður sem prófessor til listaakademíunnar í Stuttgart árið 1974 og kennir þar i deildinni „almenn listmenntun” Hann á aðalþáttinn i því að menntun listkennara var víkkuð út frá sviðinu rúmleg list yfir í leiklist og akti- onslist. Sotos Michou heimsótti ísland fyrir 24 árum og gerði teikningar af landslagi Reykjaness og Norður- lands. í þetta sinn vill hann ekki taka áhrif landsins með sér, heldur sýna tilfinningar sínar. Ég er hér nú. Þing skólastjóra og yfirkennara á grunnskóla- stigi 12. og 13. september Helgina 12. og 13. september nk. verður haldið þing Félags skólastjóra og yfirkennara á grunnskólastigi að Hótel Sögu, Reykjavík. Þingið verður sett laugardaginn 12. september kl. 10 og mun menntamálaráðherra ávarpa þinggesti. Tvö aðalmál verða tekin til meðferðar. Notkun myndsegulbanda í kennslu en erindi um það efni flytur Karl J. Jeppesen, deildarstjóri i kennslumiðstöð Námsgagnastofnunar. Þá verður fjallað um niðurstöður könnunar á búnaði og aðstöðu í grunnskólum landsins sem gerð var á sl. vetri. í úrvinnslu er gerður samanburður á búnaði og aðstöðu skóla í fræðsluumdæmum og einnig í mismunandi skólagerðum. Könnunin sýnir m.a. að skólar landsins hafa mis- munandi búnað og aðstæður allar eru mjög breyti- legar. Kemur þar vel fram að aðstöðumunur nemenda og kennara til starfa er mikill milli skóla og landshluta. Fundarmenn munu fjalla um skýrsluna og tekin verður ákvörðun um hvemig hún verður notuð. Sunnudaginn 13. september veröur síðan haldinn aðalfundur félagsins. Þinginu lýkur síðdegis á sunnudag. AA-samtökin í dag þriðjudag verða fundir á vegum AA-samtak- anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 12010), græna húsið, kl. 14 og 21; Tjarnargata 3 (s. 91-16373), rauða húsið, kl. 12 (samlokudeild) og 21; Neskirkja kl. 21. Akureyri, (s. 96-22373) Geislagata 39 kl. 21; ísa- fjörður, Gúttó við Sólgötu kl. 20,30, Keflavík (s. 9Í- 1800), Klapparstíg 7 kl. 21, Keflavíkurflugvöllur kl. 11,30, Laugarvatn, Barnaskóli kl. 21, Ólafsvík, Safnaðarheimili kl. 21, Siglufjörður, Suðurgata 10 kr. 21, Staðarfell Dalasýslu(s. 93-4290) kl. 19. í hádeginu á morgun, miðvikudag, verða fundir sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12020) kl. 12 og 14 GENGIÐ GENGISSKRÁNiNG NR. 169 Ferðamonna 8. SEPTEMBER 1981 KL. 09.16. oiaideyrir Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 Bandarikjadollar 7.863 7.885 8.673 1 Sterlingspund 14.149 14.189 15.607 1 Kanadadollar 6.565 6.583 7.241 1 Dönskkróna 1.0333 1.0362 1.1398 1 Norskkróna 1.2935 1.2971 1.4270 1 Sænskkróna 1.5042 1.5084 1.6592 1 Finnskt mark 1.7327 1.7375 1.9113 1 Franskur franki 1.3523 1.3561 1.4917 1 Belg. franki 0.1975 0.1980 0.2178 1 Svissn. franki 3.7257 3.7361 4.1097 1 Hollenzk florina 2.9165 2.9247 3.2172 1 V.-þýzkt mark 3.2338 3.2429 3.5672 1 Itötekllra 0.00646 0.00648 0.00712 1 Austurr. Sch. 0,4612 0.4625 0.5088 1 Portug. Escudo 0.1200 0.1203 0.1323 1 Spánskur peseti 0.0806 0.0808 0.0889 1 Japanskt yon 0.03388 0.03397 0.03736 1 (rsktound 11.789 11.822 13.004 SDR (sérstflk dráttarréttindl) 01/09 8.8731 8.8981 Sfmsvari vegna gengisskráningar 22190.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.