Dagblaðið - 08.09.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981.
3
Launabrjálæði og vitn-
eskja um sjávarútveg
Grandvar skrifar:
öðru sinni vill Grandvar stinga
niður penna, til þess að andæfa þeim
tveimur: „sjómanni”, og Ágústi J.
Magnússyni, sem sent hafa athuga-
semdir sínar til lesendadálks, vegna
skrifa um launabrjálæði sjómanna.
Báðir falla þessir aðilar í þá gryfj-
una að reyna að „slá sjómenn til
riddara” með því að segja þá vinna
langan vinnutíma! Það gerir líka
fjöldinn allur af landsmönnum — og
jafnframt miklum mun bundnara
starf en sjómennsku.
Hvað mættu bændur segja, sem
hafa engan fridag allt árið, nema þeir
taki sér hann og fái annan mann í
sinn stað. Sjómenn fá oft marga fri-
daga í senn, t.d. milli vertíða, vegna
gæftaleysis, o.s.frv.
„Sjómaður” minnist á, að fisk-
verð sé um 1/4 af því sem fæst er-
lendis, en sigling geti tekið um 8—10
daga báðar leiðir. Á sama tíma væri
hægt að fiska milli 200 og 300 tonn
og landa þeim fiski hér heima á sama
gamla, lága verðinu!
Hér er komið að kjarna málsins,
að „sjómanni” sjálfum. Hvers
Einstæöri móður finnst Sigurjóni Péturssyni, „ekki farast að segja mikið”, þegar
ibúðir cru látnar standa auðar, að hennar sögn.
Meira um húsnæðisekluna:
Tómar íbúðir í verka-
mannabústöðum
— Sigurjóni væri nær að líta í eigin barm
Einstæð móðir hringdi:
Ég er einstæð móðir með tvö
börn, 7 og 3 ára. Ég var í húsnæðis-
vandræðum og sótti því um að kaupa
2—3ja herbergja íbúð hjá Verka-
mannabústöðum. Þetta var seint á
árinu ’79.
í febrúar 1980 fékk ég að vita að
ég fengi 2ja herbergja íbúð í lok
nóvember þess árs. íbúðin er í blokk
og þar eru sex 3ja herbergja, fjórar
2ja herbergja og tvær einstaklings-
íbúðir.
Um leið og ég fékk lyklana flutti
ég inn með börnin mín tvö og hafði
ekki búið lengi í blokkinni, þegar ég
uppgötvaði það að í tveim af 3ja
herbergja íbúðunum búa fullorðin
hjón og í báðum tilfellunum er þriðji
aðili tilgreindur við dyrabjöllu. Þess-
ar tvær manneskjur eru þó alls ekki
búsettar hjá eigendum þessara íbúða.
Þetta er ágætis aðferð til þess að
fá úthlutað stærri íbúð. Hversu oft
skyldi henni hafa verið beitt?
Ég má hins vegar láta mér nægja
eitt svefnherbergi, þar sem með
naumindum er hægt að koma fyrir 3
rúmum, mínu og barnanna tveggja..
Tvennum fullorðnum hjónum var
hins vegar úthlutað aukaherbergi
fyrir saumavél og hugsanlegar
heimsóknir vina og vandamanna.
2ja herbergja íbúðirnar fjórar
hafa síðan farið til hjóna með eitt
barn, tvær þeirra, ein til mín og ein
til konu með eitt barn.
Auk þess er einstaklingsíbúð i
minni blokk sem hefur staðið galtóm
mánuðum saman og virðist nú vera
notuð sem geymsla.
í verkamannabústaðablokk við
hliðina á mér hefur síðan 3ja
herbergja íbúð staðið auð frá því að
henni var úthlutað um miðjan
desember 1980 — og þetta er á
vegum Verkamannabústaða. Af
herju mátti ekki úthluta mér þeirri
íbúð?
Síðan talar Sigurjón Pétursson um
að fullorðið fólk eigi að víkja úr
stóru eignarhúsnæði. Mér finnst
honum ekki farast að segja mikið,
þegar svona er farið með íbúðir sem
eru á vegum Reykjavíkurborgar.
Þvi vil ég einnig bæta við að
kunningjakona mín, sem er rukkari,
segist hafa orðið vör við mjög margar
tómar íbúðir í Breiðholti.
Sigurjóni væri nær að líta í eigin
barm.
vegna skyldi fiskverð vera lægra hér
en erlendis, t.d. í Þýzkalandi? Ein-
faldlega végna þess að við íslending-
ar höfum ekki efni á að greiða sama
verð fyrir hráefni til vinnslu í
frystihúsum og stórþjóð og auk þess
ein helzta iðnaðarþjóðs heims,
Þjóðverjar, getur greitt fyrir það,
ætlað beint til neyzlu.
Niðurstaða: tilkostnaður allur við
sjávarútveg, þar á meðal laun sjó-
manna, er langtfyrirofan þau mörk,
sem þarf, til þess að fiskvinnsla eða
sjávarútvegur sé arðbær atvinnu-
grein. á íslandi.
Hvort sem talað er um prósentur
eða annars konar aflahluti sjómanna
er það engan veginn eðlilegt að upp-
bygging fiskverðs geti gefið einum
manni 100 þúsund krónur í hlut fyrir
tvo og hálfan mánuð og skipstjóra
140 þúsund krónur fyrir sama tíma!
Allt tal um langa og stranga vinnu,
fjarveru frá heimilum, konu og börn-
um er frávik frá aðalatriði málsins,
óheyrilegum tilkostnaði við fisk-
vinnslu, allt frá byrjun, þ.e. öflun
hráefnis.
Grandvar gæti eins farið að minn-
ast á önnur atriði, sem málinu eru
skyld, en koma þó launum og til-
kostnaði ekki beint við. Hann gæti
t.d. minnst á aðbúnað og umhverfi
ýmissa fiskvinnslustöðva, sem hljóta
að rýra álit erlendra kaupenda á fisk-
afurðum. Enn eru víða ófrágengin
hlöð fyrir framan frystihús og
vinnslustöðvar, þar sem menn vaða
elginn i drullupollum og öðrum sóða-
skap. Ryðguðum úreltum tækjum
ægir saman í kringum sum frystihús
og byggingarnar sjálfar eru óhrjáleg-
ar utan.
Dæmi um þetta má finna í Sand-
gerði, einni stórri verstöð sunnan-
lands. Aðkoman og útsýnið til þeirra
bygginga sem eiga að tilheyra undir-
stöðuatvinnuvegi þjóðarinnar er
ömurlegt, vægast sagt, og er allt þetta
að finna, og sjá, þegar ekið er inn í
kauptúnið sjávarmegin.
Svona væri hægt að halda áfram
endalaust og fara til hliðar og á skjön
við það sem verið er að ræða, nefni-
lega launabrjálæði sjómanna.
Grandvar mun þó ekki hafa þann
hátt á um sinn, nema sérstakt tilefni
gefist og einhver vilji enn mæla sjáv-
arútvegi, vexti hans og viðgangi, þ.á
m. stjórnun hans, bót.
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14 - S 21715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bíialeigubílum erlendis
Allurakstur
krefst ^
varkárni
Spurning
9
Færð þú viku-
peninga?
Ýtum ekki bamavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
Á||XE'
RUCAN0R
Stærðir 32—47
Kjartan Guðmundsson, 12 ira, Lang-
holtsskóla: Ég fæ ekki neitt. Ég vinn
fyrir þeim í Hagkaup.
Hjólaskautar
Stæröir 40-45
Verð
kr. 372,00
Póstsendum
Laugavegl3
Sími13508
Emil Jónsson, 11 ára, Kórsnesskóla:
Nei.
Tómas Hilmar Birgisson, að verða 11
ára, Langholtsskóla: Nei, ég vinn fyrir
mínum peningum. Ég vinn í Tónkvísl.
Við teljum
4
að notaðir VOL VO bílar séu betri en nýir bílar af
ódýrari gerðum.
VOLVO 245 GL, ÁRG. 1980,
SJÁLFSKIPTUR, EKINN 33.000
VOLVO 245 GL, ÁRG. 1980,
BEINSKIPTUR, EKINN 30.000
VOLVO 244GL, ÁRG. 1980,
SJÁLFSKIPTUR, EKINN 15.000
VOLVO 345GL, ÁRG. 1980,
BEINSKIPTUR, EKINN 7.500
VOLVO 245GL, ÁRG. 1979,
BEINSKIPTUR, EKINN 54.000
VOLVO 244DL, ÁRG. 1979,
BEINSKIPTUR, EKINN 41.000
VOLVO 244GL, ÁRG. 1979,
BEINSKIPTUR, EKINN 30.000
VOLVO 244DL, ÁRG. 1978,
BEINSKIPTUR, EKINN 65.000
KR. 155.000,-
KR. 150.000.-
KR. 140.000.-
KR. 98.000.-
KR. 135.000.-
KR. 115.000.-
KR. 120.000.-
KR. 105.000.-
VOLVO frá VELTIRHF
Suðurlandsbraut 16, R.
Sími 35200.
Þorvaldur örn Ásgeirsson, 10 ára,
Vogaskóla: Nei, ég fæ mánaðarpen-
inga og það er misjafnt hvað ég fæ
mikið.
Anna Maria Sigvaldadóttir, 12 ára, fer
I skóla á Akureyri: Nei, en ég fæ pen-
inga fyrir því sem ég þarf.
Magnea Stefanía Gunnarsdóttir, 11
ára, Vogaskóla: Nei, en ég fæ peninga
fyrir því semégþarf.