Dagblaðið - 08.09.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Belgía:
Óvæntir
gestir
Að undanförnu hafa óvæntir ferða-
langar sézt í almenningsgörðum mið-
svæðis í Brussel. Eru þetta höggormar
sem lögregluyfirvöld segja að sloppið
hafi frá eigendum sínum er hafi keypt
þá á ströndum Miðjarðarhafs til að
selja þá síðan þeim sem sérhæfa sig í
verzlun með frumleg gæludýr.
Gestir þessir þykja hvimleiðir á al-
mannafæri, en ekki hafa þeir þó enn
valdið skaða á vegfarendum.
Páfinn tekur skýra
afstööu til Einingar
—- Minnir Pólverja á allar þær blóðugu fómir er þeir hafa áður fært vegna
sjálfstæðis síns
Páfinn: Minnir Póiverja i blóðugar
fórnir.
Síðasta yfirlýsing Jóhannesar Páls
páfa, þar sem hann lýsir fullum
stuðningi sínum við Einingu, samtök
hinna frjálsu verkalýðsfélaga í Pól-
landi, sýnir bezt hversu mál hafa þró-
azt. Yfirlýsing þessi kom fram í ræðu
sem páfinn hélt um helgina þar sem
hann minnir Pólverja á allar þær
blóðugu fómir sem þeir hafa fært á
liðnum öldum til að halda sjálfstæði
sínu.
Kveður þar við nokkuð annan tón
en í viðræðum hans og Lechs Walesa
er Walesa heimsótti páfagarð. Þá
lýsti páfinn því yfir að Eining væru
ópólitísk samtök og Walesa bætti því
við að Eining hefði heldur engan
áhuga á stjórnmálum.
Nú hafa samtökin haldið því fram
að bylting sé yfirvofandi í Póllandi
og að þar muni Eining láta að sér
kveða. Einnig segir í einu málgagni
samtakanna að landstjórn Einingar
sé eina sanna þingið í landinu.
Pólski erkibiskupinn Glemp heim-
sótti páfagarð nýlega og sagði þá að
vafi léki á því að öll kurl væm komin
til grafar í sambandi við banatilræðið
við páfann þrátt fyrir réttarhöldin
yfir tilræðismanninum, Tyrkjanum
AU Agca. Margir aðrir háttsettir
embættismenn í Vatikaninu deUa
þessum skoðunum Glemps og er
gefið í skyn að KGB hafi staðið að
baki verknaðarins vegna þeirra gífur-
legu áhrifa er páfinn hefur á þróun
mála i Póllandi.
Talsmaður páfagarðs tók því þó
fram að páfinn hefði sjálfur aldrei
látið í ljósi neinar getgátur um sam-
tök eða lönd sem hugsanlega hefðu
staðið að baki banatilræðisins.
TUlaga Einingar um þjóðarat-
kvæðagreiðslu um sjálfstjórn verka-
manna í fyrirtækjum er mikil ögrun
við kommúnistastjórn landsins og
verður hún tekin fyrir á þingi samtak-
anna í dag. í tillögunni er ennfremur
lagt til að Pólverjar skeyti engu um
Sejm (hið pólska alþingi) ef þing-
menn þar samþykkja tillögu komm-
únista um lög varðandi áhrif
verkamanna á ríkisfýrirtæki.
Glemp erkibiskup: Ekki öll kurl
komin til grafar varðandi banatil-
ræðið.
Noregur:
Svindlað
á skatti
Skattayfirvöld í Noregi hafa ákæri
starfsmenn 10 ferðaskrifstofa þar í
landi fyrir að skrifa út falska reikninga.
Þeir hafa haldið tvöfalt bókhald, í eigið
bókhald hafa þeir skráð ferðir
viðskiptavina sem sumarleyfisferð en
gefið viðskiptavinunum reikning upp á
„viðskiptaferð”, en þannig ferðir eru
frádráttarbærar til skatts.
800 fyrirtæki og 3500 einstaklingar
hafa notiðgóðs af þessari greiðasemi og
skattayfirvöld reikna með að þau hafi
þannig verið snuðuð um 40 milljónir
norskra króna.
Svíþjóð:
Öryggi er
ást betra
Dagar rómantíkurinnar eru löngu
liðnir og fáir vilja nú fórna þægindum
sínum og öryggi fyrir ástina. Það
sannaðist bezt á sænskum presti, sem
hafði skilið við konu sína og tekið
saman við 18 ára stúlku. Þetta þótti af-
ar ósæmandi fyrir prest og var hann
kallaður fyrir dómprófast sinn í
Uppsölum sem útskýrði fyrir honum
hvernig prestar eiga að haga sér.
Presturinn, Clarance Nilsson,
þjónar söfnuði í nágrenni Gávle og
nýtur þar mikillar hylli sem sálusorg-
ari. Það nægði þó ekki til að sætta
söfnuðinn við þetta uppátæki hans og
þegar honum var boðið upp á að velja á
milli atvinnunnar og ástmeyjarinnar
reyndist sú fyrrnefnda þyngri á
metunum.
Kire Wiiloch, formaður Hægri-
flokksins i Noregi sem sést hér á mynd-
inni hefur svo sannarlega ástæðu til að
brosa glaðlega. Flokkur hans nýtur
stöðugt meiri hylli og samkvæmt
nýjustu skoðanakönnunum þykir hann
mjög liklegur til að taka við forsætis-
ráðherraembættinu af Gro Harlem
Brundtland, formanni Verkamanna-
flokksins, eftir kosningarnar 14.
september nk.
- •
*, „ . —-«V'
Laurence McKeown, fanginn sem um helgina var færður á sjúkrahús að óskum ættingja sinna, er flmmti fanginn úr irska
frelsishernum IRA er á þann hátt bjargast frá hungurdauða. Brezka stjórnin hefur verið mun harðari í horn að taka en
nokkrum bauð i grun og er nú álitið að þetta muni binda enda á þessa aðferð IRA manna til að berjast fyrir rétti sinum sem
pólitfskir fangar. Fimm fangar fasta enn i Mazefengeisinu en ættingjar þeirra hafa tilkynnt að þeir muni biðja lækna aö
bjarga lifi þeirra um leið og þeir missa meðvitund. Foringjar IRA hafa sagt ættingjunum að þeir ætli sér ekki að fá fangana
til að hætta hungurverkföllum, en muni virða óskir ættingja f þeim sökum.
McKewon hafði fastað í 70 daga er hann var fluttur á sjúkrahús og segja læknar hans hann og félaga hans fjóra á batavegi.
Myndin sýnir konur i Belfast slá öskutunnulokum í götuna til að votta látnum fanga virðingu sfna og mótmæla
meðferðinni á frskum föngum. Alls hafa 10 fangar svelt sig til bana slðan hunguraðgerðir hófust 1. marz sl. En nú standa sem
rnnf vnnír fil oA vnrAI
London:
SÖNGLEIKUR
UM LENN0N
Nú er í æfingu í Liverpool, heima-
borg Johns Lennons, söngleikur
byggður á ævi þessarar frægu
poppstjörnu. Hann heitir einfaldlega
„Lennon” og verður frumsýndur 28.
október.
12 hljómlistarmenn frá Liverpool,
þar sem Bítlarnir uxu úr grasi og hófu
frægðarferil sinn, hafa aðstoðað við
samningu þessa verks. Þar á meðal er
fólk sem áður vann með Bitlunum, eins
og t.d. framkvæmdastjóri þeirra, Allan
Williams.
— Mig langar til að gefa alhliða
mynd af Lennon í þessum söngleik,
segir stjórnandinn, Bob Eaton. Efnis-
þráðurinn fylgir ferli Lennons fram í
andlátið, en hann var, eins og kunnugt
er, myrtur í New York i desember
síðastliðnum.
John Lennon — ævisaga í tónlistar-
búningi.
REIJTER
EKKIFLEIRIEN
TVÖ BÖRN, DÍANA
,,í guðanna bænum, Díana prins-
essa, þú mátt ekki eignast fleiri en tvö
börn.”
Það er brezki fjölskylduráðgjafinn
og kvensjúkdómafræðingurinn Harold
Hugh Francis sem skírskotar þannig til
hinnar nýbökuðu prinsessu. Hann
reiknar nefnilega fastlega með því að
hún verði fyrirmynd þúsunda brezkra
mæðra.
„Það setti að mér ugg er ég las að
prinsessan hefði sagt i viðtali að hún
gæti hugsað sér að eignast mörg börn,”
segir fjölskylduráðgjafinn.
„Það hvílir mikil ábyrgð á prinsess-
unni í þessu máli. Og ef hún vill ekki
hlusta á mig ætti hún að minnsta kosti
að hlusta á tengdaföður sinn, Philip
prins. Hann hefur ótal sinnum talað
opinberlega um þá hættu sem heimin-
um stafar af offjölgun,” segir Francis.