Dagblaðið - 08.09.1981, Side 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981.
11
Málin hafa
margar hliðar
Mál sem þetta getur líka valdið
öðrum lagaflækjum eins og sannaðist
á legleigukonu í Kalifomíu sem skipti
um skoðun eftir að barnið var fætt
og ákvað að halda því. Hjónin sem
inntu greiðsluna af höndum stefndu
henni, en réttur úrskurðaði þannig í
málinu að legleigumóðirin ætti fullan
rétt á að halda barni sem hún hefði
aliðafsér.
Lögfræðingar viðurkenna að slíkir
samningar séu alltaf erfiðir viður-
eignar en nýlega var borið fram
frumvarp í Michigan sem lögleiðir
þá, nái það fram að ganga.
— Þetta er eina ráðið ef fólk vill
ekki bíða árum saman eftir kjör-
barni, segir Noel Keane, lög-
fræðingur í Detroit, en hann hefur
stundað milligöngu i svona málum í
fimm ár.
Hann sagði jafnframt að mörg
hjón hefðu árangurslaust reynt að
auglýsa í blöðunum eftir legleigu-
konum en ekkert fór að ganga í mál-
unum fyrr en upp komst um hin rif-
legu laun Elísabetar. Keane sagði að
u.þ.b. 80% þeirra legleigukvenna er
hann hefði haft samband við vildu fá
góða greiðslu fyrir. Hann fullyrti
einnig að hann hefði fengið margar
beiðnir frá Evrópu um slíka milli-
göngu, bæði frá hjónum og einstakl-
ingum af báðum kynjum.
— Ég get nefnt sem dæmi um við-
skiptavini mina; karlrithöfund í
Hollywood sem vildi eignast barn án
þess að kvænast og kvenprófessor í
Mið-vesturríkjunum sem vildi ekki
tapa tíma á því að ganga með barn,
segir Keane. — Einstaklingar eiga
þannig kost á því að fá sæði úr sæðis-
banka til að frjóvga með legleigu-
konu. Og þeir koma til með að not-
færa sér það í æ ríkara mæli.
Óheft
Til foreldra
Það er ekki mitt hlutverk að^vara
þeirri spurningu fyrir þig, lesandi
góður. Ef þú ert foreldri, þá beinir
G.S. J. þessum orðum til þín:
Foreldrar verða að skilja að
líkamssnertíng er börnum afar
mikilvæg og innan fjölskyldunnar
ætti að líta á kynlíf og likamsnekt
sem eðlilegan hlut. (Leturbreyting
mín). Og: Viðurkenna verður rétt
unglinga til kynlífs og líta á
kynhneigð unglinga og barna sem
ekki aðeins eðlilegan hlut heldur
jafnframt æskilegan. Foreldrar ættu
að búa þannig að börnum sínum
hvað varðar til dæmis húsnæði að
þau hafi góð skilyrði til að lifa full-
nægjandi kynlffi. (Leturbreyting
mín
Niðurstöður G.S.J. væru
sannkallað fagnaðarefni ef sannar
reyndust, það er með því einu að
börn færu ekki á mis við líkamlega
ástúð (ólíkamleg ástúð væri kannski
óþörf?) og óheft kynlíf. Þá væru
vandamál æskunnar leyst í einum
grænum. Það þyrfti ekki að hafa
áhyggjur af menntun, starfs-
tækifærum og öðrum óþarfa enda
væri æskan sjálfssagt ánægð með sitt
sæla kynlíf og vandlega uppfylltu
snertiþörf.
Fleiri vandamál
Það er með kynlíf eins og margt
fleira í lífinu að þar skipta gæði
meira máli en magn. Kynlíf er að
minnsta kosti í okkar þjóðfélagi
ákaflega viðkvæmt mál og vand-
meðfarið. Gallinn við óheft kynlíf
unglinga er að það skapar mikið fleiri
vandamál en það leysir, vegna þess
að kynlíf tiltölulega óþroskaðs fólks
leiðir oft til sársauka og óþæginda.
Þarfir unglinga og barna cru ekki
fyrst og fremst kynferðislegar. Þau
vilja að komið sé fram við þau eins
og manneskjur, þeim sé sýnd virðing
og þau njóti umhyggjusamrar
umönnunar og að þau hljóti menntun
og víðtæka reynslu í leik og starfi.
Það er hins vegar rétt semG.A.J.
segir, að full ástæða er tíl þess að
ræða kynferðismál. Margt mætti
fara betur á því sviði hér á landi, en
þær lausnir sem hann boðar eru
gjörsamlega fráleitar.
Guðjón Eyjólfsson.
Það gerist sifellt algengara að konur, sem annaðhvort geta ekki alið börn eða vilja at einhverjum ástæðum sieppa við hinn leiðinlega meðgöngutfma, leigi sér staðgengil.
kynlíf á unglingsárunum
er ekki undirstaða
almennrar heilbrigði
— Guðmundi S. Jónassyni svarað
Höfundur spyr hvort rekja megi orsakir styrjalda til óhefts kynlifs I æsku.