Dagblaðið - 08.09.1981, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981.
13
■ -
, ,, WJt_
lK3ííISÍH^HHHL.íIZjJ1Íj
T7»il
Iþróttir
Íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
j.'rá úrslitum 1500 m hlaupsins f Utrecht. Myndin er tekin fljótt eftir viðbragöiö. Tólf keppendur f úrslitum. Kirsti Voldness, Noregi, tekur foryst-
una. Ragnheiður Ólafsdóttir, Islandi, (nr. 475) fylgir fast á eftir.
1200 m (3 hringjum) lokiö. Mikil stemmning mcðal áhorfenda. Kirsti Vold-
ness (574) fyrst, Betty Vansteenbroech, Belgfu, (918) önnur, Ielena Malu-
hina, Sovét., (704) þriöja, Nina Gorbatyuk, Sovét., (693) fjórða, Maike
Persoom, Hollandi, fimmta, Ragnheiöur Ólafsdóttir (475) sjötta og
Christine Kaagh, Danmörku, sjöunda.
Betty Vansteenbroech, Belgiu, kemur f mark sem Evrópumeistarí á 4:17,5
mfn. Sami tfmi og tslandsmet Ragnheiðar Ólafsdóttur. 2) Ielena Maluhina,
Sovét 4:17,31 min. 3) Kirsti Voldness, Noregi, 4:18,72 min. 4) Nina
Gorbatyuk, Sovét, 4:20,07 mfn. 5) Ragnheiður Ólafsdóttir 4:21,47 min. 6)
Maike Persoom, Hollandi, 4:23,49 mfn. 7) Christine Kaagh, Danmörku,
4:27,71 mfn.
Fjórir varamenn erlendis
f rá f HM-leikinn við Tyrki
— Aðeins f jórir eftir í 16 manna landsliðshópnum, sem tóku þátt í sigurleiknum
Þeir Ásgeir Sigurvinsson, Bayern
Miinchen, Amór Guðjohnsen, Loker-
en, Höröur Hilmarsson, AIK Stokk-
hólmi, Janus Guðlaugsson, Fortuna
Köln, Karl Þórðarson, Laval, og Teitur
Þórðarson, Lens, verða ekld með i
HM-leiknum við Tyrki á morgun á
Laugardalsvelli. Hins vegar koma fjór-
ir leikmenn erlendis frá, sem eru vara-
menn hjá liðum sfnum, Atli Eðvalds-
son og Magnús Bergs, Borussia Dort-
mund, Pétur Pétursson, Anderlecht o§
Örn Óskarsson, Örgryte, til leiksins. I
samningum þeirra Asgeirs og Teits við
erlendu félögin, sem þeir leika með, eru
engin ákvæði um, að þeir fái leyfi til að
leika f þýðingarmiklum landsleikjum
íslands. Það er þó f samningum flestra
annarra leikmanna okkar sem leika er-
lendis. Ásgeir kemur ekki vegna þess að
Bayern á leik f þýzku Bundeslígunni i
kvöld. Þeir Arnór og Janus hafa átt við
meiðsli að stríða og treysta sér ekki i
HM-leikinn við Tyrki. Tveir aðrir
landsliðsmenn, sem leika hér heima,
Þorsteinn Bjarnason, ÍBK, bezti maður
íslands f landsleiknum við Dani á dög-
unum, og Trausti Haraldsson, Fram,
geta heldur ekki leikið vegna meiðsla.
Sigurlás Þorleifsson, ÍBV, gaf ekki
kost á sér i landsliðið vegna utanfarar.
Aðeins fjórír leikmenn, sem tóku þátt i
HM-leiknum við Tyrki í Izmir i fyrra-
haust, þar sem ísland vann frægan
sigur 1—3, eru nú f 16 manna landsliðs-
hóp íslands fyrir leikinn við Tyrki á
morgun, þeir Marteinn Geisson, fyrír-
liði, Viðar Halldórsson, FH, Sigurður
Halldórsson, Akranesi, og Atli
Eðvaldsson, Borussia.
Þaö verður því engan veginn sterk-
asta lið íslands, sem mætir Tyrkjum á
Laugardalsvelli á morgun. Leikurinn
hefst kl. 18.15. Þeir fjórir leikmenn,
sem hafa verið kallaðir heim í HM-leik-
Sjö raðir með
tólf réttum
í 2. leikviku Getrauna komu fram 7
raðir með 12 réttum og var vinningur
fyrir hverja röð kr. 8.565.00. Þá reynd-
ust vera 111 raðir með 11 rétta og vinn-
ingur fyrir hverja röð kr. 231.00. Tólf-
ararnir eru viðs vegar að, einn frá
Akranesi, annar frá Akureyri, þriðji
frá Hveragerði og hinir af Reykjavíkur-
svæðinu. í haust hafa Getraunirnar
farið vel af stað og var seldur raða-
fjöldi á laugardag svipaður og var i 8.
leikviku fyrir ári síðan, en 25% af
heiidarsölunni er hjá tveimur knatt-
spyrnudeildum, Fram og KR.
við Tyrki í Izmir í f yrrahaust
inn, eru i Iítilli leikæfingu hvað hörðum
ieikjum viðkemur, varamenn hjá liðum
sinum og hafa fengið lítil tækifæri til
að Ieika nema í varaliðunum. Þeir
Magnús og örn tóku þátt í landsleikn-
um hér heima við Nígeriu og léku
einnig við Dani á Idrætsparken. Atli
var einnig með í þeim leik. Pétur
Pétursson kemur nú á ný í landsliðið
eftir langa fjarveru vegna meiðsla.
Hann er með marksæknustu leikmönn-
um, sem ísiand hefur eignazt. í fiokki
með slikum köppum sem Albert Guð-
mundssyni, Ríkharði Jónssyni og Þór-
ólfi Bech. Pétur verður eflaust styrkur
fyrir íslenzka landsliðið, þó honum hafi
enn ekki tekizt að tryggja sér sæti i
aðailiði Brtlssel-liðsins Anderlecht.
Hins vegar er hann að ná sér vel á strik
eftir meiðslin slæmu, sem svo mjög
heftu feril hans með Feyenoord í Hol-
landi og hefur skorað talsvert af
mörkum með varaliði Anderlecht. í
samningi hans er ákvæði að Pétur geti
leikið með íslandi í HM og EM-leikjum
íslands. Hann hefði því komið þó hann
væri í aðalliði Anderlecht. Frí var í
Belgíu um siðustu helgi vegna HM-leiks
Belgíu og Frakklands í Belgiu á mið-
vikudag. Af sömu sökum var ekkert
leikið í Frakklandi. Ekki leikið þar fyrr
en 12. september.
Atii Eðvaldsson hefur sáralítið leikið
með Borussia Dortmund í sumar.
Hefur misst sæti sitt í Iiðinu. Atli
stendur alltaf fyrir sínu í landsleikjum
íslands, einkum á Laugardalsvellinum
og ieikur áreiðanlega vel gegn Tyrkjum
þrátt fyrir litla sem enga leikæfingu.
öm missti sæti sitt í örgryte-liðinu
vegna meiðsla. Sviar leika HM-leik í
Skotlandi á miðvikudag og Örn hefði
því getað komið til HM-leiksins við
Tyrki þó hann væri í aðalliðinu hjá ör-
gryte.
Góðir leikmenn
Sem betur fer eigum við marga góða
leikmenn hér heima, sem koma til með
að standa sig vel gegn Tyrkjum á mið-
vikudag, þó þeir jafnist ekki á við Ás-
geir og Janus, svo tveir þýðingarmestu
leikmenn okkar eriendis fyrir íslenzka
landsliðið séu nefndir. Landsiiðshópur-
inn hefur verið valinn og skipa hann
eftirtaldir leikmenn auk þeirra fjög-
urra, sem koma erlendis frá.
Markverðir: Guðmundur Baldurs-
son, Fram, og Bjarni Sigurðsson,
Akranesi. Aðrir leikmenn: Viðar Hall-
Öster þarf aðeins
eitt stig til sigurs
Þó enn sé fimm umferöum ólokið i
Allsvenskan, sænsku 1. deildinni,
hefur Öster nánast tryggt sér meistara-
titilinn. Öster hefur tiu stig umfram
næsta lið, Göteborg, og þvi nánast
formsatríði fyrir þá að Ijúka leikjum
sinum. Úrslitin f 21. umferð Allsvensk-
an urðu þessi:
0—1
2—0
1—1
1—2
3—1
AIK—Hammarby
Brage—Halmstad
Elfsborg—Göteborg
Atvitaberg—Norrköping
Örgryte—Malmö FF
Öster—Sundsvall
Jan Mattsson, Mats Nordgren,
Stefan Larsson og Tommy Evesson
skoruðu mörk Öster gegn Sundsvall.
Staðan i deildinni er nú þessi:
Öster 21 18 2 1 52-11 38
Göteborg 21 12 4 5 47-19 28
Brage 21 10 6 5 25-15 26
Norrköping
Örgryte
Malmö FF
AIK
Hammarby
Kalmar
Elfsborg
Halmstad
Atvidaberg
Sundsvall
Djurgárden
21 10
21 10
21 8
21
21
20
21
21
21
21
20
8 1
6 4
5 4
4 3
5 30-24 26
9 36-39 22
8 35-33 21
9 28-30 19
10 35-39 18
10 25-31 18
9 22-29 18
12 29-40 17
11 18-28 16
12 20-46 14
13 17-35 11
Öster þarf aðeins eitt stig i viðbót en
þar með er ekki sagt að öll spenna sé
horfin úr deildinni. Svíar ætla nefni-
lega að fækka liðunum i Allsvenskan
úr 14 niður í 12 og það þýðir að liðin
sem hafna f 11. og 12. sæti verða að
leika aukaleiki við efstu lið 2. deildar.
Tvö neðstu liðin falla að sjálfsögðu
beint i 2. deild. Enn er þvi meira en
helmingur liðanna f Allsvenskan í fall-
hættu og tvisýn barátta framundan i
siðustu fimm umferðunum. -VS.
Ólafur Unnsteinsson íþróttakennari:
Ragnheiður—hlaupa-
stjarnan úr Firðinum
,,Ég hef tekið miklum framförum á
millivegalengdum sfðustu árin. Það
þakka ég mest að ég haf æft hjá
frægasta frjálsiþróttafélagi Vestur-
Þýzkalands, ASK Köln, sfðustu tvö
árín undir stjórn miög hæfra manna,”
sagði Ragnheiður Olafsdóttir i samtali
við Dagblaðið eftir að hún hafði orðið
fimmta f úrslitum 1500 metra hlaupsins
á Evrópumeistaramóti unglinga í
Utrecht i Hollandi i sfðasta mánuði.
— Hvað viltu segja um framfarir
þínar, Ragnheiður?
,,Ég hef tekið miklum framförum á
millivegalengdum síðustu árin og á nú
íslandsmet í 1000 og 1500 m hlaupum; i
1000 m 2:50,7 mín., en Norðurlanda-
metið er 2:46,0 mín., og 4:15,75 mín. í
1500 m sem ég setti í Dormagen 2. júní
sl. i úrtökukeppni fyrir vestur-þýzka
landsliðið. Á móti í Arnsberg hljóp ég
800 m á 2:05,22 mín. með rafmagns-
timatöku og er sá timi tiltölulega betri
en Kslandsmet Lilju Guðmundsdóttur,
ÍR; 2:06,2 mín., sem.hún setti í Kaup-
mannahöfn 1977. 1 3000 m hlaupi á ég
bezt 9:40,7 mín. en íslandsmet Lilju
Guðmundsdóttur þar er 9:36,0 mín. ”
— Hvað hefur þú æft lengi
skipulega?
„Siðustu tvö árin hef ég æft hjá
frægasta frjálsíþróttafélagi Vestur-
Þýzkalands, ASV Köln. Formaður
félagsins er Manfred Germar, fyrrum
Evrópumeistari i spretthiaupum og
ólympíumeistari í 4 x 100 m boðhlaupi
1960. Arnin Hary, sá frægi hlaupari,
var einnig í sveitinni þýzku”.
— Hvernig hafa þeir hjá ASV Köln
reynzt þér?
„Félagið hefur reynzt mér vel, ekki
sizt þjálfarinn, Lutz MUlIer. Hann
hefur þjálfað BirgittuKrause.sem hefur
orðið v-þýzkur meistari fjörutiu
sinnum. Eftir vetraræfingar 1979—80
fór ég með Rut systur minni með
félaginu til San Diego í Kalifomíu i
æfingabúðir og dvaldi þar i fitnm
vikur. Nú i vor fór ég með félaginu i
æfingabúðir til Lagano, rétt hjá
Bordeaux í Frakklandi.”
— Hvemig hefur þér gengið f v-
þýzku meistaramótunum?
,,Á unglingameistaramóti V-Þýzka-
lands, sigraði ég í 1500 m hlaupi bæði
1980 og 1981. Ég sigraði einnig í 1500
m hlaupi á unglingameistaramótinu
utanhúss 1989, og varð önnur í ár í
sömugrein.”
— Keppirðu meira i haust?
„Eftir Bikarkeppni FRÍ keppi ég á
móti í Hannover 17.-18. sept. og reyni
við íslandsmetin í 800 og 1500 m
hlaupum. Síðan kem ég heim og stunda
nám við Flensborgarskóla í vetur.”
— Hver eru helztu stórmótin næsta
ár?
„Evrópumeistaramótið innanhúss í
vetur og Evrópumeistaramótið í Aþenu
næsta haust. Ég vil geta þess að
Evrópumeistaramótið í Utrecht er eitt
skemmtilegasta mót sem ég hef tekið
þátt í og er mér hvatning til að stefna
að framförum næsta ár.”
ÓU.
dórsson, FH, Ólafur Björnsson,
Breiðabliki, Marteinn Geirsson, Fram,
fyrirliði, Sævar Jónsson, Val, Sigurður
Halldórsson, Akranesi, Pétur Ormslev,
Fram, Ómar Torfason, Víking,
Sigurður Lárusson, Akranesi, Árni
Sveinsson, Akranesi, Lárus
Guðmundsson, Víking.
Það þarf ekki að efa að HM-leik-
urinn við Tyrki verður spennandi.
Tyrkir hyggja efiaust á hefndir vegna
tapsins fyrir íslandi á heimavelli í fyrra.
Leikurinn er í 3. riðli og einn leikur
annar verður í riðlinum á miðvikudag.
Tékkóslóvakía og Wales leika i Tékkó-
slóvakiu. Staðan í riðlinum er þannig:
Wales 5 4 10 10—0 9
Tékkar 4 3 0 1 11—2 6
Sovétríkin 3 2 1 0 7—1 5
ísland 4 1 0 3 4—12 2
Tyrkland 5 0 0 5 1-13 0
-hsim.
Pétur Pétursson, Anderlecht, — með
islenzka landsliðinu á ný eftir langa
fjarveru vegna meiðsla.
Stórfé boðið
íNorðmann
Niirnberg, sem er neðst i v-þýzku
Bundesligunni og hefur tapað fimm
fyrstu leikjum sínum er á höttunum
eftir norska landsliðsmanninum Pal
Jacobsen. Þjóðverjarnir leggja gffur-
lega áherzlu á að ná i Jacobsen, sem
sést bezt á þvi að samninganefnd fé-
lagsins kom til Oslóar f einkaflugvél
auðkýfingsins Michael Roih, sem er
forseti og aðalfjármagnari félagsins.
Upphæðin sem nefnd hefur veríð i
sambandi við kaupin er u.þ.b. ein
milljón norskra króna en athyglisvert
er að Valerengen kæmi aðeins til með
að fá 50% af upphæðinni. Hin 50 pró-
sentin rynnu til annars norsks félags,
Ham-Kam! Skýringin á þessu er sú að
Ham-Kam seldi Jacobsen til Valerengen
sl. vetur og í samningi féiaganna er
skýrt teldð fram að selji Valerengen
Jacobsen til annars félags skuli Ham-
Kam fá 50% af söluverðinu. Pal Jacob-
sen er nú markahæstur i norsku 1.
deildinni með 13 mörk i 17 leikjum og á
hann stóran þátt f velgengni Valerengen
sem er f öðru sæti f deildinni. VS.
Perú áfram
Perú tryggði sér sæti i lokakeppni
HM i knattspyrnu á Spáni næsta sumar
með markalausu jafntefii á heimavelli
gegn Uruguay á sunnudag. 44.000
áhorfendur sáu leikinn, sem var mjög
harður, enda mikið f húfi. Uruguay
varð að vinna til að eiga möguleika á
sæti i lokakeppninni.
Perú var nær þvi að skora i leiknum
og áttu leikmenn Uruguay engin hættu-
leg tældfæri. Eftir sigurinn í litlu
heimsmelstarakeppninni um siðustu
áramót var liði Uruguay spáð miklum
frama á Spáni f lokakeppnlnni. Það
situr nú eftir með sárt ennið, rétt eins
og fyrir siðustu HM i Argentinu 1978.
-VS.
Frá setningu sjötta Evrópumeistaramóts unglinga I Utrecht. Þátttakendur f mótinu voru 920 frá 28 þjóóum. íslenzka sveitin
gengur inn á völlinn. Egill Eiðsson fánaberi fremstur, þá Ólafur Unnsteinsson og Sveinn Sigmundsson fararstjórar. Að baki
Sveins sér í Helgu Halldórsdóttur KR, þá íris Grönfeldt, UMSB og Kristján Harðarson UBK. Ragnheiði Ólafsdóttur vant-
ar á myndina þar sem hún átti að keppa i 1500 m hlaupi rétt á eftir. ^ ^
UNDRAVERÐUR ARANGUR A
EM UNGUNGA í UTRECHT
— nokkur heimsmet voru sett á mótinu
Evrópumeistaramót unglinga i
Utrecht sem fram fór 20.-23. ágúst er
hið sjötta i röðinni. Áður i París 1970,
Duisburg 1973, Aþenu 1975, Donezk
1977, Bydgoszcz 1979. Næsta mót fer
fram i Júgóslaviu 1983.
Evrópumótið var í heild vel
skipulagt og fór fram með glæsibrag.
Setningarathöfn og lokahátíð verður
öllum þátttakendum minnisstæð.
Sjónvarpað var frá mótinu um alla
Evrópu. Þátttakendur íslands voru 5
og stóðu sig í heild eftir vonum.
Ragnheiður Ölafsdóttir fimmta í úr-
slitum í 1500 m, íris Grönfeldt önnur í
spjótkasti í úrslitum, Helga
Halldórsd. 12. í 100 m grhl. í undan-
úrslitum á 14,30 sek., Egill Eiðsson 12.
í 400 m hlaupi í undanúrslitum á 48,88
sek., Kristján Harðars. stökk 6,58 m
og átti ógilt stökk ca 7,20 m. Kristján er
aðeins 17 ára og getur því keppt í
Júgóslaviu 1983. Árangur þeirra er sá
bezti sem íslenzkir unglingar hafa náð
á Evrópumóti unglinga. Yfir mótinu
ríkti andi vináttu og friðar. Þátt-
takendur Norðurlanda og Vestur-
Evrópu hvöttu íslenzka liðið til dáða.
íslendingum var jafnan vel fagnað í
keppnt. Eftir mótið var þátttakendum
haldin stórveizla í Skautahöllinni í
Utrecht. Þar léku þrjár vinsælustu
hljómsveitir Hollands.
Borgarstjórinn í Utrecht sagði í
ræðu að Hollendingum væri það
ljósara með hverju ári að aldrei væri of
mikið fyrir íþróttirnar gert, bæði til
heilsubótar og gleðiauka fyrir fólkið í
landinu.
Frábær árangur náðist á mótinu.
Heimsmet, Evrópu- og landsmet féllu
unnvörpum. Mesta atnygli vöktu eftir-
taldir keppendur. Karlar: Thomas
Schröder, A-Þýzkalandi, sigurvegari í
100 m á 10,14 sek. og 200 m á 20,69
sek. Kimmo Saaristo Finnlandi kom
fram á sjónarsviðiö sem stórhlaupari.
Hann varð fjórði í 100 m á 10,42 sek.
og þriðji í 200 m á 20,83 sek. Austur-
þýzka sveitin hljóð 4x 100 m boðhl. á
39,88 og 4 x 400 m boðhl. á 3:04,58
mín. Heimsmet unglinga. Ungverjar
áttu tvo fyrstu menn í 800 m. I. Jozsef
Bereczky á 1:46,17 mín. 5000 m,
Gabro, Ungverjalandi á 13:56,42 mín.
Hástökk: I. Krysztof, Póllandi 2,26 m.
Stangarstökk: Jansa. Tékkóslóvakíu,
5,35 m. Þrístökk: Sergej Ákxledía,
Rússlandi, 16,76. Langstökk: Andre
Reichelt A-Þ. 7,76 m. Óheppnastur
allra var kunningi okkar, svertinginn
Whyte Hugo frá Bretlandi, sem stökk
þrívegis um 8,00 m ógilt. Kúluvarp:
Andreas Horn, Austur-Þýzkalandi,
18,71. Spjótkast: Uwe Hohn A-Þ.
86,56 m, 4. Jörn Jelström Danmörku
74,86 m. Því miður gat Sigurður
Einarsson Á, ekki keppt í þessari grein
sökum meiðsla en hann er álíka góður
kastari og Daninn.
Tugþraut: Mihai, Rússlandi, 7918
stig. Kvennagreinar: 100 m: Katrín
BöhmeA-Þ. 11,33 sek., 200 m, Sabina
A-Þ. 22,91 sek., 100 m gr.hl., Katrín
Böhme A.-Þ., 13.20 sek., Evrópumet,
800 m: Ines Vogelsang, A-Þ. 2:02,65
mín., 6. Tina Krebs, Danmörku,
2:08,92 mín., 1600 m: Bettý van
Steenbroek, Belgiu, 4:15,75 mín., sami
tími og íslmet Ragnheiðar Ólafsd. ,
sem varð 5. í hlaupinu, 400 m grhl.:
Sylvía Kirschner, A-Þ. 56,41 sek.,
heimsmet! langstökk: Heike Daute, A-
Þ. 7,02 (meðv.) Spjótkast: Todorova,
Búlgaríu, 64,12 m. Heimsmet hennar er
71.86m.
Að lokum: Mikil samstaða var hjá
íslenzka liðinu um það að árangur yrði
sem beztur. Fararstjórar voru þeir
Sveinn Sigmundsson, gjaldkeri FRÍ og
Ólafur Unnsteinsson sem jafnframt var
liðsstjóri og þjálfari.
Ólafur Unnsteinsson.
METAREGNISPLIT
—á Evrópumeistaramótinu í sundi, sem hófst í gær
Per Johansson, 18 ára Svfi frá
Borlange, gerði sér Iftið fyrir á
Evrópumeistaramótinu i sundi i Split í
Júgóslaviu í gær og sigraði i 100 m
skriðsundi. Setti nýtt sænskt met 50,55
sek. og hafði áður i forkeppninni bætt
Svíþjóðarmet Pelle Holmertz frá þvi á
ólympiuleikunum f Moskvu f fyrra-
sumar. Bandarískir háskólar hafa
keppzt um að bjóða Svfanum skóla-
styrki en hann ekki þegið. „Ég hef
bætt heimsmet Skotans David Wilkie
2:15,11 min. hefði ég ekki fengið flensu
f síðustu viku,” sagði Robertas Zhulpa
frá Eistlandi eftir að hann hafði sigrað i
200 m bringusundi i Split f gær á
2:16,15 mín.
Frábær árangur náðist á mótinu í
Spilt í gær. Helztu úrslit urðu þessi:
100 m skriðsund karla
Per Johansson, Svíþjóð
Jörg Woithe, A-Þýzkal.
Sergei Krasiytuk, Sovét,
Andreas Schmidt, V-Þýzk.
Pelle Holmertz, Svíþjóð,
Sergei Smiriagin, Sovét,
100 m skriðsund kvenna
Caren Metschuk, A-Þýzk.
Birgit Meineke, A-Þýzk.
Conny Bentum, Hollandi,
Agneta Eriksson, Sviþj.
50,55
50,81
50,91
51,04
51,19
51,49
55.74
56,06
56,73
56.75
5. Marionaizpors, V-Þýzk. 56,93
6. Natalia Strunnikova, Sov. 57,10
7. June Croft, Bretlandi, 57,20
8. Karin Seick, V-Þýzkal. 57,22
Tími Agnetu Eriksson er sænskt
met.
200 m bringusund karla
1. Robertas Zhulpa, Sovét. 2:16,15
2. Arsen Miskarov, Sovét, 2:18,08
3. Adriam Moorhouse, Bretl. 2:18,14
4. AlbanVermes, Ungverjal. 2:18,92
5 RafaeleAvangano.it., 2:19,60
6. Peter Berggren, Svíþj. 2:21,40
Tími Avagnano ítalskt met. ítalinn
Cesare Fabri varð í 16. sæti á 2:26,68
sek. Ekki var getið um árangur
Ingólfs Gissurarsonar í skeyti Reuters.
400 m fjórsund kvenna
1. PetraSchneider, A-Þýzkal. 4:39,30
2. UteGewniger, A-Þýzical. 4:45,43
3. Agnieszka Czopek, Póll. 4:50,75
4. PetraZindler, V-Þýzkal. 4:52,34
5. Katrine Bomstad, Noregi, 4:52,75
6. Grazyna Dziedzic, Póll. 4:53,57
7. KlaraGulyas, Ungverjal. 4:56,63
8. Sofia Kraft, Svíþjóð, 4:57,72
Vestur-þýzka og norska stúlkan
settu landsmet.
4 x 200 m skriðsund karla
1. Sovétríkin 7:24,41
2. Vestur-Þýzkaland 7:25,22
3. Svíþjóð 7:27,78
4. Ítalía 7:27,92
5. Austur-Þýzkaland 7:30,74
6. Frakkland 7:33,00
7. Bretland 7:37,45
8. Holland 7:37,74
Allar sveitirnar nema Sovét-
ríkjanna, A-Þýzkalands og Bretlands
settu landsmet.
VIKINGUR -
B0RDEAUX
eftir 9 daga