Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 08.09.1981, Qupperneq 24

Dagblaðið - 08.09.1981, Qupperneq 24
Petra Leeuwerik, ritari Kortsnojs: Svara ekki síður fyrir Kortsnoj en lögmaðurinn — Leeuwerik er ekki talsmaður Kortsnojs, heldur lögf ræðingurinn, segir Friðrik Ólafsson, forseti FIDE „Það er Tétt að lögfræðingur Kortsnojs, hr. Brodbeck, er tals- maður Kortsnojs, áskoranda heims- meistarans í skák, en ég get ekki síður svarað fyrir hönd áskorandans en hann, því ég fylgist með öllu sem gerist sem ritari Kortsnojs,” sagði Petra Leeuwerik í morgun. Eins og DB greindi frá í gær í við- tali við Petru Leeuwerik vill Kortsnoj fá fjölskyldu sína frá Sovétríkjunum og sameinast henni í Sviss En ekkert mun gerast, Sovétmenn munu halda Igor, syni Kortsnojs, í fangelsi þar til í maí og ætla ekki að sleppa honum fyrir einvígið, sagði Leeuwerik. Sovétmenn lofa öllu fögru þegar þeir vilja fá vilja sinum framgengt en kannast síðan ekki við neitt, sagði hún ennfremur. Dagblaðinu tókst ekki að ná i Friðrik Ölafsson forseta Al- þjóðaskáksambandsins, en hann segir í Þjóðviljanum í morgun að Leeuwerik sé ekki talsmaður Korts- nojs heldur lögfræðiugur hans. Friðrik segir að lögfræðingurinn hafi verið viðstaddur þingið í Atlanta og hafi honum verið fullkunnugt um að leyfi til handa konu og syni Kortsnojs hafi ekki verið dagsett. í Þjóðviljan- um kom fram að hann hefði rætt við lögfræðinginn í gær og væri ekkert nýtt frá honum að heyra og einvígið hæfist á settum tima, 1. október. „Lögfræðingur Kortsnojs verður talsmaður hans í einvíginu sjálfu,” sagði Petra Leeuwerik í morgun, en ég stend yfirleitt fyrir svörum fyrir Kortsnoj og iögfræðingurinn getur ekki svarað fyrir áskorandann nema hafa samband við mig fyrst.” -JH. Alvara lífsinstekur viö: Nlí FÖGNUM VIÐ 6 ÁRA AFMÆUNU Það voru ekki margir sem töldu, haustið 1975, að Dagblaðsmenn ættu eftir að halda upp á sjötta afmælisdag blaðsins, nema sjáifir starfsmenn blaðsins og helztu aðstandendur. Nú er engum blöðum um það að fletta lengur — Dagblaðið er sex ára í dag. Við- kvæmasta þroskaskeiðið er að baki og alvara lífsins tekur við, rétt eins og hjá þeim sex ára börnum sem nú hefjá skólagöngu sína. Starfsmenn ritstjórnar minntust af- mælisins í morgun og gæddu sér á dýr- indis afmælisköku sem einn blaða- manna blaðsins stóð við að baka fram eftir nóttu — á svipaðan hátt og Dag- blaðsmenn unnu sólarhringum saman í upphafi við að koma út fyrstu ein- tökum eina frjálsa og óháða dagblaðs landsins. -DB-mynd: Sig. Þorrí. Nauðgunar- kærurnar: Marokkó- búinn enní varðhaldi — hinn laus eftirjátningu Játning liggur nú fyrir í nauðgunar- máli er átti sér stað á Akranesi um fyrri helgi. Sá seki í því máli var upphaflega einnig kærður fyrir tilraun til nauðgunar í Borgarnesi, en sú tilraun hans tókst ekki. Þessum manni var eftir játningu sleppt úr gæzluvarðhaldi. Marokkóbúi, sem var skammtíma ferðamaður á íslandi, situr enn i gæzluvarðhaldi vegna ákæru um tilraun til nauðgunar. Var hann raunar handtekinn við þá tilraun. Einhverjar fleiri sakir tengjast máli hans, jafnvel önnur nauðgun. En sú rannsókn er sögð á, .viðkvæmu stigi”. -A.St. Ástand í neyzluvatnsmálum Akurnesinga keyrir um þverbak: - GERLAR UR NEYZLU- VATNIDREPA KÁLFA — bæjarbúar verða að sjóða vatnið — hreinsitæki ekki til fyrr en eftir áramót „Það hefur komið í ljós við sýnis- töku úr vatninu að í því er óæskilega mikið magn svonefndra campylobacter-foetur gerla og því ákváðum við, i samráði við bæjar- yfirvöld á Akranesi, að ráðleggja fólki að sjóða allt sitt neyzluvatn fyrst um sinn,” sagði Hrafn V. Friðriksson, forstöðumaður Heilbrigðiseftirlits ríkisins, við DB í morgun. Neyzluvatnið á Akranesi hefur löngum verið lélegt en nú virðist hins vegar hafa keyrt um þverbak. Saurgerlar hafa verið tíðir gestir í vatnskrönum bæjarbúa, en við hert eftirlit og frekari rannsóknir á vatninu hafa áðurnefndir gerlar, campylobacter foetur, komið í ljós. Er hér um að ræða gerla, sem svipar að nokkru leyti til salmonellu og orsaka niðurgang.Að sögn Hrafns hefur þessi tegund gerla verið í tals- verðri sókn hérlendis og hefur herjað á búfé. Hafa kálfar t.d. drepizt úr skitu eftir að hafa sýkzt. Neyzluvatn Akurnesinga er að stórum hluta til yfirborðsvatn úr hlíðum Akrafjalls. Svartbaksbyggð er óvíða þéttari en þar og á fuglinn stóran þátt í hvernig ástatt er nú í vatnsmálum bæjarins. llla hefur gengið að hefta útbreiðslu hans en bjartari tímar eru framundan því bæjaryfirvöld hafa fest kaup á tækjum til sótthreinsunar á vatninu. Að sögn Magnúsar Oddssonar, bæjarstjóra á Akranesi, verða tækin sett upp í vetur — líkast til þó ekki fyrr en eftir áramót. Akurnesingar verða því enn um sinn að búa við ódrekkandi neyzluvatn en vonir standa til að með kólnandi tíð lagist ástandið, a.m.k. svo mikið að hægt verði að drekka vatnið án þess að sjóða það fyrst. -SSv. frjálst, úháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPT. 1981. Skarst íandliti -erbíllfóríloft- köstumútaf vegi Lögreglubílar frá Hafnarfirði og sjúkrabifreið frá Reykjavík fóru í flýti upp á Kjósarskarðsveg (nálægt Vindáshlíð) í gærkvöldi. Mjög óijósar fréttir bárust um síma um slys á veginum. Er á vettvang var komið reyndist um útafakstur að ræða á hæð einni. Hafði bíllinn farið i loftköstum út i móa án þess þó að velta. í bílnum var einn maður sem verið hafði við laxveiðar og var á heimleið. Hann skarst nokkuð í andliti og var fluttur í slysadeild. Lögreglan og íbúar Kjósar kvarta mjög yfir slæmu — og nánast engu — símasambandi á þessum tima sólar- hríngs, hvað sem fyrir kemur. -A.St. Iðnaðardeild SÍS opnarnýjafata- verzluníGlæsibæ Iðnaðardeild Sambandsins hefur nú hafið undirbúning að opnun nýrrar verzlunar 1 Reykjavík. Verður sú í Glæsibæ, en fataverzlun SÍS, Herraríki við Snorrabraut, festi kaup á húsnæðinu fyrr ísumar. Að sögn Sverris Bergmanns, verzlunarstjóra í Herraríkinu, hafa afköst fataverksmiðjunnar Gefjunar aukizt mikið á þessu ári og í framhaldi af þeirri aukningu var ráðizt í kaupin á verzlunarhúsnæðinu i Glæsibæ. Rekstur Herraríkisins hefur gengið nokkuð vel að undanförnu, að sögn Sigurðar Friðrikssonar, aðstoðar- framkvæmdastjóra iðnaðardeildar SfS. -SA. Feröaskrifstofrtti kUTSYNi Vinningur vikunnar er Útsýnarf erð til Marbella. Vinningur i þessari viku er (Jt- sýnarferö til Marbella með ferða- skrifstofunni Otsýn, Austurstrœti 17 Reykjavík. 1 vikunni verður birt, ú þessum stað I blaðinu, spuming tengd smúauglýsingum Dagblaðsins. Nafn heppins úskrif- anda verður slðan birt daginn eftir I smúauglýsingunum og gefst hon- um tœkifœri til að svara spuming- unni. Fylgizt vel með, úskrifendur. Fyrir nœstu helgi verður einn ykk- arglœsilegri utanlandsferð rikari. diet pepsi MINNA EN EIN KALÓRÍA í FLÖSKU Sanilas

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.