Dagblaðið - 23.10.1981, Qupperneq 1
i
I
)
7. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER1981 — 241. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI Íl.—AÐALSÍMl 27022.
f r.—.. ...—:—.
Slysið á Vesturiandsveginum afleiðing ölvunaraksturs:
ALLT LOGREGLUUÐIÐ A
ÚTKÍKKIEFTIR SLYSAVALM
4 — Varhorfínn afsjúkrahúsi er ráöuneytiö ætlaðiað senda hann íafplánun fangelsisdóma
maðurinn lögreglubíl og ákvað þegar
að komast undan og ók sem bíllinn
komst í átt til borgarinnar. Fór hann
yfir gatnamótin á rauðu Ijósi og lenti
þar í harkalegum árekstrí við tvo
bíla.
Fimm manns meiddust og kona,
farþegi í bíl, þó mest. Hún er mjög
illa brotin á mjöðm og fæti auk
annarra meiðsla.
Á umræddum gatnamótum er
tvöföld akrein á beygjunni í átt til
borgarinnar. Annar billinn sem á var
ekið var á hægri akrein beygjunnar.
iVinstra megin við þann bíl var
lögreglubíll að beygja í átt til borg-
arinnar. Voru lögreglumenn því vitni
að slysinu, auk þess sem lögreglu-
bíllinn sem ungi maðurinn mætti á
beygju Gufunesvegarins sneri við og
áhöfn hans horfði á slysið úr fjarska.
-A.St.
Pálmi fer
í framboö
gegnGeir
Pálmi Jónsson landbúnaðarráð-
herra hefur ákveðið að gefa kost á sér
í formannskjðri á landsfundi Sjálf-
stæðlsflokksins. Sem kunnugt er
býður Geir Hallgrimsson sig fram til
endurkjörs.
,,Við, sem að þessu framboði
stöndum, sjáum ekki ástæðu til að
núverandi formaöur verði einn í kjöri
viö þær aöstæður sem nú ríkja,”
sagði Pálmi Jónsson í viðtali við DB i
morgun. ,,Við höfum leitazt eftir að
kanna möguteika á framboði, sem
hefði breiðan stuðning á bak við sig,
þar á meðal úr þingflokknum, og þá
bæöi úr liði stjórnarsinna og stjóm-
arandstöðu, en um þaö virðist ekki
vera aö rxða. Eftir að það liggur
fyrir að slikl framboð er ekki í
dæminu er það niðurstaða okkar að
ég verði i kjöri. Mcðal þeirra atriða,
sem ráða úrslitum unt þá ákvörðun,
er þing Sambands ungra sjálf-
stæðismanna á ísafiröi. Til þess var
efnt sem friðarþings og þannig að þvi
staöið af hálfu stuðningsmanna rikis-
stjórnarinnar. Niðurstaöa þingsins
hefur á hinn bóginn verið túlkuð á þá
lund, aðstuöningsmenn ríkistjórnar-
innar hefðu I rauninni ekki fundizt á
þinginu og fylgi ríkisstjórnarinnar
þvi horfið. Þvl segir sig sjálft að þótt
við viljum stefna að sameiningu
flokksins munum við ekki kjósa að
niöurstaða landsfundar verði þann-
ig” -HH.
— Tómt mál er að reyna að lýsa þvl fyrir öðrum sem ekki sáu sýninguna og þarflaust fyrir hina sem voru þar, segir Ólafur
Jónsson leikhússgagnrýnandi Dagblaðsins meðal annars i umfjöllun sinni um sýningu Peking-ðperuflokksins frá Wuhan. En
Ijóst er af frásögn hans og myndum að mikið gekk á á sviði Þjóðleikhúsins f gsrkvöld. Peking-óperan hefur alls fimm sýning-
ar I Þjóðleikhúsinu, þá sfðustu á mánudagskvöldið. Ásókn f aðgöngumiða hefur verið taisverð en enn mun samt vera hægt að
fá miða á flestar sýningarnar. Myndin sýnir eitt þeirra atriða sem sýningarflokkurinn frá Wuhan bauð upp á f gærkvöldi.
DB-mynd Bjarnleifur.
— Sjá nánar bis. 4.
Um tíma í gær var allt lögreglulið
borgarinnar á varðbergi ef vart yrði
ferða ungs manns, þess er valdur
varð að hinu alvarlega umferðarslysi
á mótum Vesturlandsvegar og
Höfðabakka klukkan rúmlega níu sl.
föstudagskvöld. Pilturinn fannst í
gær og hans bíður nú afplánun all-
langs íangelsisdóms fyrir fjölda
brota, sem aðallega tengjast
bílþjófnuðum, akstri án réttinda og
akstri I vimuástandi.
Það var dómsmálaráðuneytið sem
ákveðið hafði afplánun dómanna en
pilturinn hafði er hann varð valdur
að slysinu verið á skilorði undir
eftirliti. Hugðist ráðuneytið láta
afplánunina taka gildi þegar eftir
sjúkrahúsvist unga mannsins, en í
sjúkrahús var hann fluttur eftir
slysið, ásamt fjórum Öörum. Þegar
til átti að taka var ungi maðurinn á
bak og burt af sjúkrahúsinu. Hafði
verið útskrifaður enda líklega sjálfur
mjög hvatt til þess.
Við rannsókn slyssins er komið í
ljós að ungi maðurinn ók á miklum
hraða af Öufunesvegi inn á Vestur-
landsveg. Fór bifreið hans yfir á
rangan vegarhelming vegna hraðans i
beygjunni og rann þar til.
í sama mund mætti ungi
Harkan eykst í„video-stríðinu” á Suðumesjum:
SAMKEPPNISAÐILAR ARNA
ÆTLA AD LÁNA MYNDIRNAR
Frekari harka kemur nú væntan-
lega til með að færast í „video-strið-
ið” á Suðurnesjum, sem DB greindi
frá i fyrradag. Samkeppnisaðilar
Árna Samúelssonar, sem hefur ,,und-
irboöið” þá á markaönum, hafa í
fórum slnum eintak af myndinni
Blow off, sem hann hyggst sýna
við opnun nýs kvikmyndahúss i
Mjóddinni.
Við sögðum frá því að þeir hygðust
leigja myndina út, enþaðer ekkirétt.
Hún verður lánuð hverjum þeim er
hafa vill, endurgjaldslaust. Þá hafa
forráðamenn Videobanka Suður-
nesja, eins helzta samkeppnisaðila
Árna, lýst því yfir að þeir hyggist
verða sér úti um eintak af hverri ein-
ustu mynd sem Árni hyggst taka til
sýninga.
Þá er því haldið fram fullum fetum
að Árni hafi gert menn út af örkinni
til að leigja myndir hjá Videobanka
Suðurnesja og tekið þær upp á aðrar
spólur. Árni býður nú myndina til
leigu á kr. 20, eintakið en samkeppn-
isaðilarnir á kr. 35. -SSv.
Dreifing stuðningsins við Gunnar og Ólaf:
Hallgrlmssyni á landsfimdi.
MIKIÐ FYLGIHJA „FLOKKSLEYSINGJUM
f f Gunnar fékk hátt hlut-
fall úröilum flokkum
Sjábls.6