Dagblaðið - 23.10.1981, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 23.10.1981, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1981 8 Erlent Erlent Erlent Erlent D BÖDLAR ÍRANS SKJÓTA BÖRN Fjórum börnum, þremur drengjum og einni telpu, var nýlega stillt upp við aftökumíirinn í Evin fangelsinu 1 Teheran og þau skotin. Foreldrarnir vissu ekkert um málið fyrr en þau fundu nöfn þeirra á aftökulista sem daglega er slegið upp á fangelsis- hliðið. Börnin voru dæmd til dauða fyrir að „striða gegn Guði”. Mujaheddin hreyfingin hefur nú undir höndum myndir af börnunum og dreifir þeim í París. Eru þetta fyrstu myndirnar sem sanna að 10—13 ára böm eru handtekin og dæmd til dauða í íran fyrir ,,svik við múhameðskan rétt- trúnaó”. Glæpur þessara barna var sá að þau tóku þátt í mótmælaaögerðum gegn stjórn Khomeinis. Eftir því sem yfirböðullinn, aya- tollah Goelany, segir eru telpur orðnar kynferðislega þroskaðar 9 ára gamlar og eiga því eftir þann aldur að teljast ábyrgar gerða sinna. Hjá drengjum miðast þessi aldur við 14 ár. Og þess vegna er unnt að taka þcssi börn af lífi í Guðs nafni. Afleiðingar verkfalls flugumferðarstjóra f Bandaríkjunum: Félag bandarískra flugum- ferðarstjóra leyst upp Bandaríska stjórnin hefur fyrirskipað að verkalýðsfélag flug- umferðarstjóra, sem fór í verkfall í ágúst síðastliðnum, skuli leyst upp. Verkalýðsfélagið hefur um 11.500 félaga, en rúmur helmingur þeirra gerði verkfall og voru þeir reknir af Reagan Bandaríkjaforseta, er þeir neituðu að verða við beiðni hans um að koma aftur til vinnu. Ákvörðunin var tekin af banda- rísku vinnumálaskrifstofunni og þykir mikill sigur fyrir stjórn Reagans í deilum hennar við flug- umferðarstjórana, sem ekki hafa mætt til vinnu síðan verkfallið hófst. Þykir ákvörðunin bera vitni um óvenjulega hörku, þar sem þetta er í fyrsta skipti sem ríkisstjórn Banda- ríkjanna leysir upp verkalýðsfélag og sviptir félaga þess samningsrétti sinum. En nokkrum stundum eftir að á- kvörðunin hafði verið tilkynnt í gær var gildistöku hennar frestað fram í næstu viku af alríkisdómstólnum. Talsmaður dómstólsins sagði að frestun hefði verið ákveðin þar til leitað hefði verið umsagnar ríkis- stjórnarinnar um málið. Samgöngumálaráðherrann, Drew Lewis, hefur sagt að hann styddi á- kvörðun vinnumálaskrifstofunnar og að hann væri sammála þeirri ákvörð- un Reagans að standa fast við að endurráða ekki þá flugumferðar- stjóra, sem neituðu að snúa aftur til vinnu. Hann sagði að ákvörðunin væri sanngjörn og ábyrg. Verkalýðsfélag flugumferðarstjóra (Patco) hóf verkfall 3. ágúst siðast- liðinn til að leggja áherzlu á kröfur sínar um kauphækkanir og betri aðbúnað. Vinnumálaskrifstofan hefur hins vegar sagt að verkfallið hafi verið ólöglegt, þar sem ríkis- starfsmenn hafi ekki verkfallsrétt. Þeir flugumferðarstjórar sem ekki tóku þátt í verkfallinu hafa fengiðað halda stöðum sínum og auk bess fengið 11 prósent kauphækkun og aukin fríðindi, eða nákvæmlega það sama og verkalýðsfélagið fór fram á. Robert Poli, formaður verkalýðs- félagsins, hefur lýst því yfir að svipting samningsréttarins og ógilding félagsins, sé svívirðileg árás og félagið muni berjast gegn þessu alla leið upp í hæstarétt ef þörf krefur. Verkfallið olli á sínum tíma algerri upplausn í innanlandsflugi í Bandarikjunum og í AUantshafs- fluginu. Það neyddi flugfélögin til að skera flugferðir sínar niður um 75 prósent, úr 14 þúsund jlugferðum daglega. Bandaríska flugmálastjórnin, sem hafði flugumferðarstjórana í vinnu hefur svo rekið flugumferðar- stjórnina með 5000 félögum verka- lýðsfélaganna er ekki voru í verkfalli og auk þess 3000 flugumsjónar- mönnum og 800 manns úr hernum. Flugmálastjórnin telur að verkfallið hafi kostað hundruð milljóna dollara og leitt til uppsagna um 15 þúsund starfsmanna flugfélaganna. 8. skákin fór í bið í gær eftir miklar sviptingar: og verður að vera á varðbergi gagnvart peðaframrás Karpovs á kóngsvæng, sem heimsmeistarinn getur undirbúið rækilega. Eftir atvikum má Kortsnoj þó vel við una, því hann lenti í mikilli baráttu við skákklukkuna. Átti innan við tvær mínútur eftir á síðustu 10 leikina og ótrúlegt að ekki skyldi fara verr. Upphaflega átti að tefla skákina á mánudaginn en henni var frestað að beiðni Karpovs. Eflaust svo tími gæfist til þess að finna vörn við Opna afbrigðinu i spænska leiknum, sem dugði áskorandanum svo vel í 6. skákinni. Ekki var vinningsleiðin fundin enn þvi Karpov brá á það ráð að beita ítalska leiknum, líklegast í fyrsta sinn á sínum skákferli. Fremur rólegt afbrigði varð uppi á teningnum sem verið hefur í miklu uppáhaldi hjá ungum sovéskum skákmeisturum aðundanförnu. Kortsnoj virtist jafna taflið fremur auðveldlega eftir byrjunina og eftir drottningakaup í 13. leik héldu margir að jafnteflið blasti við. En Karpov hafði enn örsmátt frumkvæði frá 1. leik og tókst að styrkja stöðuna 1 framhaldinu með yfirlætislausum leikjum. Ekki bætti úr skák, eins og fyrr sagði, að Kortsnoj hleypti sér í mikið tímahrak og var honum vart hugað líf af þeim sökum. Þá loks fór hann að tefla skynsamlega og Karpov náði ekki að bæta stöðu sína frekar áður en skákin fór í bið. Fróðlegt verður að fylgjast með framhaldinu. Karpov teflir svona stöður öðrum mönnum betur, en Kortsnoj er refur í vörn. Hvltt: Anatoly Karpov Svart: Viktor Kortsnoj ítalski leikurinn. 1. e4 e5 23. Rf3 Rc6 3. Bc4 1 fyrsta sinn á sínum skákferli beitir Karpov þessu afbrigði. Sennilegast af illri nauðsyn því spænski leikurinn, stoð hans og stytta í gegnum árin, er óteflandi eftir 6. skákina — hvað sem síðar verður. 4. — Bc5 4. c3 Rf6 5. d3 Þessi leikur hefur gert ítalska leikinn vinsælan að nýju. Á síðasta skákþingi Sovétríkjanna var þessi uppbygging mikið í tísku, sérstaklega í skákum yngri mannanna, Dolmatovs og einnig Sovétmeistarans 8. einvígisskák Karpovs og Kortsnoj fór í bið í Meranó í gær eftir miklar sviptingar og virðist staða heimsmeistarans virkari og ljóst að allir vinningsmöguleikarnir eru hans megin. Kortsnoj hefur þrengri stöðu Victor Kortsnoj viö skákborðið, brynjaður gegn andstæðingum sinum með spegil- sólgleraugum. Pashahis. Áður var jafnan leikið 5. d4, en ekki lengur. Bæði Karpov og Kortsnoj hafa góða reynslu á svart gegn því framhaldi — sjá t.d. skákirnar Miles-Kortsnoj (Suður- Afríka 1979) og Van der Wiel- Karpov (IBM-mótið 1980). 5. —d6 6. Rbd2 a6 7.0—0 0—0. Sennilega hefur Kortsnoj eytt drjúgum tíma í leikinn 7. — Ra5, en flækjurnar eftir 8. Da4+ c6 9. Bxf7 + Kxf7 10. b4 virðast hvitum í hag. Karpov gat auðvitað leikið strax 7. Bb3 og haldið biskupnum til haga. 8. Bb3 Ba7 9. h3 E.t.v. er beittara að leika 9. Hel, því hvitur þarf hvorki að óttast 9. — Rg4 10. He2, né 9. — Bg4 10. 3 Bh5 11. Rfl ásamt Rg3 o.s.frv. 9. — Be6! 10. Bc2 d5 11. Hel dxe4 12. dxe4 Rh5 13. Rfl Dxdl?! ,,Ég veit ekki um neinn heims- meistara, hvorki fyrr né síðar, lélegri í endatafli en Karpov,” sagði Kortsnoj einhverju sinni. Annars hefði hann líklega leikið 13. — De7 og möguleikarnir vega nokkuð jafnt. Vart þarf að taka fram að 14. Rxe5! strandar á 14. — Bxf2+ (14. — Dh4 15. Rd3) 15. Kxf2 Dc5 + og 16. — Dxe5 14. Hxdl Had8 15. Be3 f6 16. Bxa7 Rxa7 17. Re3 Rf4 18. h4 Bn 19. Rel Rc8 20. f3 Re6 21. Rd3 Hd7 22. Bb3 Re7 23. Rd5! abcdefgh Karpov hefur nýtt sér örsmátt frumkvæði sitt skemmtilega og stendur óneitanlega betur að vígi. Kortsnoj var einnig orðinn tína- naumur, átti um stundarfjórðung eftir á klukkunni er hér var komið sögu og nauðsynlegt að vanda sig í framhaldinu. Næsti leikur hans kemur einkennilega fyrir sjónir og leiðir til þess að veikleikar myndast í HÐMSMEISTARINN MED VINNINGSMÖGULEIKA Kortsnoj lenti í tímahraki en fór þá fyrst að tefla vel peðastöðunni drottningarmegin. En hann á úr vöndu að ráða. Eftir t.d. hinn eðlilega leik 23. — Hfd8 gæti framhaldið orðið 24. Rxe7+ Hxe7 25. Bxe6! Bxe6 26. Rc5 Hxdl + 27. Hxdl Bxa2 28. Rxb7 og hvítur stendur betur vegna sundrungar í peðastöðu svarts. Eða 25. — Hxe6 26. Rc5 Hd6 27. Hxd6 Hxd6 28. Rxb7 Hb6 29. Rc5 Hxb2 30. Rxa6 Bxa2 31. Rxc7 og hvítur hefur unnið peð. 23. — Rc6 24. Ba4! b5 25. Bc2 Hfd8 26. a4 Kf8 27. g3 Hd6 28. b4 Re7 29. Re3! Hc6 30. Ha3 Rc8 31. axbS axb5 32. Kf2 Rb6 33. Rb2 Hxdl 34. Bxdl Hd6 35. Be2 Be8 Þrátt fyrir mikið tímahrak lætur Kortsnoj ekki glepjast af 35. — Hd2? 36. Rd3! (hótar 37. Kel) Rc4 37. Ha8 + Ke7? 38. Kel Hxd3 39. Rf5 + ! og 40. Bxd3 með skiptamuns- vinningi, eða 37. ... Be8 38. Rxc4 bxc4 39. Rel og c4-peðið fellur. 36. Ha5 Hd8! 37. Kel Auðvitað ekki 37. Bxb5?? vegna 37. — Hd2 + og riddarinn fellur. 37. —c6 38. Ha6 Hb8 39. Bdl Rc8 40. Rd3 Rc7 41. Ha5 abcdefgh Hér fór skákin í bið og lék Kortsnoj biðleik. Menn Karpovs eru virkari, þótt ekki nægi það eitt til sigurs. Mestu skiptir að auðveldara er að finna haldgóða áætlun fyrir hvítan svo svartur er í varnarstöðu. Karpov getur 1 ró og næði undirbúið framrásina, f3-f4, sem ásamt möguleikum eins og Bg4 gæti reynst svörtum skeinuhætt. Líklegur biðleikur er 41. — Ha8, þótt aðrir leikir komi vitaskuld einnig til greina. Til gamans má geta þess að í stöðunni felst hjálparmát í 2. leik: 41. — Ke7 42. Rc5 Kd6?? 43. Rf5 mát! Biðskákin verður tefld áfram i dag.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.