Dagblaðið - 23.10.1981, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1981
7
Vigdis Finnbogadóttir leggur blómsveig að minnismerki þeirra Norðmanna er
féllu i seinni heimsstyrjöldinni.
Böm krónprins-
hjónanna dönsuðu
fyrirgestina
— mikill f jöldi íslendinga heilsaði upp á forseta sinn i Grand
hotelígær
Fró Kristjáni Má Unnarssyni,
blaðamanni DB í Osló:
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands og hinir konunglegu gestgjaf-
ar hennar skoðuðu Víkingasafnið og
Heine-Onstad safnið í gærmorgun. í
hádeginu ræddu hinir tignu gestir í
ráðhúsinu í Osló, í boði borgar-
stjórnar. Þar vakti það mesta athygli
manna, að börn þeirra Haraldar
krónprins og Sonju prinsessu,
dönsuðu fyrir gesti.
Um miðjan dag í gær bauð Vigdís
íslendingum til sín í Grand hotel í
Osló. Mikill fjöldi landa heilsaði þar
upp á forseta sinn og talið að þeir
hafi verið á bilinu 400—600. Forset-
anum voru færðar gjafir, bæði frá
íslendingafélaginu og Vinafélagi
íslands.
Það vakti athygli Norðmanna hv.e
alþýðleg Vigdís var. Hún heilsaði
hverjum og einum með handabandi
og ræddi málin.
Fjölmiðlar í Noregi gera hinni
opinberu heimsókn forseta íslands
mjög góð skil, þannig að hún ætti
vart að fara fram hjá nokkrum
manni. Heilsíður eru í blöðum og lit-
myndir, auk útvarps og sjónvarps-
frétta.
í gærkvöldi sat Vigdis Finnboga-
dóttir og föruneyti siðan rikis-
stjórnarveizlu í Akershuskastala.
-JH.
u
Ólafur Jóbannesson utanríkisráðherra
og kona hans Dóra Guðbjartsdóttir
ganga til konungsveizlunnar.
Ræða forseta íslands í ríkisstjórnarveizlunni:
Vér íslendingar og Norð-
menn búum við kærleika eldri
hjóna hvorir til annarra
.Norsku og íslenzku þjóðinni má
líkja við eldri hjón sem svo lengi hafa
búið saman að hvort um sig er fyrir
löngu búið að gleyma því hafi
eitthvað einhverntíma farið úrskeiðis
á hjúskaparárunum,” sagði Vigdís
Finnbogadóttir forseti m.a. í ræðu
sinni er hún hélt í veizlu ríkisstjórnar
Noregs í gærkvöld. Og forsetinn hélt
áfram:
„Eldri hjón verða iðulega ást-
fangin hvort af öðru upp á nýtt. Vér
Norðmenn og íslendingar búum nú
við þennan kærleika hvorir til
annarra. Um stund var það
„karlinn”, kongurinn á bænum, sem
öllu réði í sambúð vorri, en nú ríkir
jafnræði.”
I upphafi ræðu sinnar minntist
forsetinn fortíðarinnar, enda óhjá-
kvæmilegt á svo sögufrægum stað
sem í Akershus.
í lok ræðunnar sagði svo:
„Iðulega þegar íslendingur hittir
Norðmann minnist Norðmaðurinn
þess frá skólaárum sínum að hann
hefur lært að beygja á fornnorrænu:
Hér er maður — um mann — frá
manni — til manns. Á íslenzku
merkir orðið maður bæði karl og
kona. Skyldu ekki meginmál lífsins
fjalla um það hjá ríkisstjórnum,
þingum og öllum almenning hverja
stund sem líður. Einlægar þakkir frá
manni af íslandi til manns í Noregi.
íslendingur lyftir glasi sínu fyrir
Norðmanninum.”
-JH.
Forseti og konungur aka um 1 miklum dreka, Cadillac. Hann er nokkuð kominn
til ára sinna, en virðulegur er hann.
Htrmenn stóðu meðfram endilangri aðalgötunni, Karl Johan.
DB-myndir Kristján Már Unnarsson.
Þetta var ekki skipulagt á dagskrá, heldur
tóku börnin þetta upp hjá sjálfum sér.
Heimsókn f orseta íslands f er vart f ram hjá nokkrum manni
íNoregi: