Dagblaðið - 23.10.1981, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1981
Dreif ing þeirra sem töldu Gunnar eða Ólaf merkustu stjórnmálamennina:
DRIUGUR STUÐNINGUR MED-
AL „FLOKKSLEYSINGJA”
—Gunnar með hátt hlutfall í öllum f lokkum
Fólk, óákveðið gagnvart stjórn-
málaflokkunum, átti mikinn þátt i
þeim mikla stuðningi, sem Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra og
Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra
hlutu i könnun DB um „merkustu
stjórnmálamennina”.
Þeir hlutu þó verulegt fylgi í öllum
flokkum, einkum Gunnar.
DB spurði sama 600 manna úrtakið,
hvaða stjórnmálaflokk menn styddu og
hverjir væru að þeirra dómi merkustu
stjórnmálamennirnir um þessar
mundir. Þannig má sjá, hvernig yfir-
gnæfandi fylgi Gunnars og Ólafs í
könnuninni um stjórnmálaleiðtogana
dreifist eftir flokkum.
Af þeim 160, sem töldu Gunnar
Thoroddsen merkasta stjórnmála-
manninn, voru 73, eða nærri 46
prósent, úr röðum þeirra, sem voru
óákveönir í afstöðu til stjórnmála-
flokka.
Þetta eru um 24 prósent af öllum
þeim, sem voru óákveðnir í afstöðu til
flokka eða vildu ekki svara þeirri
spurningu. Þetta er hátt hlutfall, þar
sem margir í þessum hópi voru almennt
óákveðnir í pólitískum efnum. Af þeim
sem töldu Gunnar merkasta stjórn-
málamanninn var 41 stuðningsmaður
Sjálfstæðisflokksins. Það eru 25,9
prósent af þeim, sem studdu Sjálf-
stæðisflokkinn í könnun þessari.
Til samanburðar skal rifjað upp, að
í könnununum nú sögðust 29,7%
sjálfstæðismanna vera fylgjandi rikis-
stjórninni, og 24% sjálfstæðismanna
sögðust fylgja „Gunnarsarminum” í
Sjálfstæöisflokknum.
24 framsóknarmenn töldu Gunnar
merkasta stjórnmálamanninn, eða 35,3
prósent allra framsóknarmanna i
könnuninni.
Af alþýðubandalagsmönnum töldu
14 Gunnar merkastan eða 32,6% allra
alþýðubandalagsmanna í þessari
könnun.
Loks töldu 8 alþýðuflokksmenn
Gunnar merkasta stjórnmálamanninn,
eða 30,8% allra alþýðuflokksmanna í
könnuninni.
Ólafur fylgislítill
í Alþýðubandalaginu
Ólafur Jóhanness.on sótti einnig
drjúgan hluta fylgis síns'til þeirra, sem
voru óákveðnir gagnvart flokkunum.
Af þeim 82, sem sögðu, að Ólafur
væri merkastur, voru 33 eða um 40
prósent úr þeim hópi, sem var
óákveðinn gagnvart flokkum.
Ólafur hlaut auk þess fylgi 24
framsóknarmanna, jafnmargra og
Gunnar, sem eru 35,3% allra fram-
sóknarmanna í könnuninni.
Þá töldu 18 sjálfstæðismenn Ólaf
merkasta stjórnmálamanninn, eða
11,4% allra sjálfstæðismanna í
könnuninni.
Ólafur hlaut stuðning 4
alþýðuflokksmanna, eða um 15% allra
úr þeim flokki, sem könnunin leiddi í
ljós.
Minnst fylgi reyndist Ólafur hafa
meðal alþýðubandalagsmanna. Aðeins
3 þeirra töldu Ólaf merkasta stjórn-
málamanninn, eða 7% alþýðubanda-
lagsmanna. -HH.
Þannig dreifðust þeir eftir flokkum, sem töldu Gunnar Thoroddsen „merkasta
stjórnmálamanninn Alþýðufiokksmenn 8 eða 5,0% af atkvæðum Gunnars
Framsóknarmenn 24eða15,0%
Sjálfstæðismenn 41 eða 25,6%
Alþýðubandalagsmenn Óákveðnir um flokk eða 14 eða 8,8%
svara ekki um flokk 73 eða 45,6%
Og þannig var dreifing þeirra, sem töldu Ólaf Jóhannesson „merkastan":
Alþýðuflokksmenn 4 eða 4,9% af atkvæðum Ólafs
Framsóknarmenn 24 eða 29,3%
Sjálfstæðismenn 18 eða 22,0%
Alþýðubandalagsmenn Óákveðnir um flokk eða 3 eða 3.7%
svara ekki um flokk 33 eða 40,2%
Nemendur í Hamrahlíðinni:
Greiddu hár sitt, máluðu
kröf uspjöld og lásu Dagblaðið
—f æstir voru í vandræðum með að
eyða tfmanum
Ekki bar á öðru en nemendur
Hamrahlíðarskólans yndu sér hið bezta
í verkfallinu. Dagblaðsmenn litu inn í
skólann í gærdag og þá var þar fjöldi
nemenda, sem hafði það ,,næs” með
ýmsum aðferðum.
Yngismeyjar sátu þar við hár-
snyrtingu og greiðslur, hópur
nemenda virti fyrir sér blaðaúrklippur
um „reglugerðarmálið”, margir stýfðu
úr hnefa lummur, sem dreift var
nýbökuðum og ókeypis í ofanálag, enn
aðrir sátu og horfðu á gamlar grín-
myndir í einu hliðarherbergjanna,
stúlkur voru í óða önn að mála á
kröfuspjöld, og blandaður hópur las
Dagblaðið af áfergju og þannig mætti
telja áfram. Allt fór þetta fram að
meira eða minna leyti undir drynjandi
tónlist úr glymskratta.
Margir nutu þess greinilega að vera
í fríi og það kom fram hjá nokkrum
nemenda, sem DB ræddi við að þeir
væru ekki fyllilega sáttir við mætingu
fólks í skólann. Vildu þátttöku fleiri í
verkfallinu.
-SSv.
Samráð f ramhaldsskólanna um
aðgerðir:
Þríggja daga
keðjuverkföll
er vopnið
Sendinefnd frá Menntaskólanum í
Hamrahlíð fór í gær og ræddi við
fulltrúa' i Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti og Flensborgarskólanum.
Eftir því sem næst verður komizt voru
nemendur FB mjög á því að fara í 3ja
daga verkfall, en Flensborgarnemendur
voru fremur hikandi. Að sögn fulltrúa
sendinefndarinnar frá Hamrahlíðinni
taldi hann að þar sem reglugerðin hefði
borizt svo seint væru nemendur Flens-
borgar hreinlega ekki búnir að komast
nóguvelinnímálið.
Fjölbrautaskólinn á Suðurnesjum er
mjög sama sinnis og Hamrahlíðar-
skólinn og sömu sögu er að segja af
Ármúlaskólanum, Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti og Fjölbrautaskólanum
á Akranesi, sem nú síðustu daga hefur
haft samband við aðila í hinum skólun-
um með tilliti til samráðs t aðgerðum.
Fulltrúar Fjölbrautaskólans á
Suðurnesjum hafa sent menntamála-
ráðherra álit nefndar, sem sérstaklega
var kjörin til að fjalla um reglugerð
ráðuneytisins. Segir m.a. í áliti nefnd-
arinnar: „Ákvörðun um starfshætti og
fyrirkomulag kennslu í framhalds-
skólum teljum við bezt borgið í
höndum nemenda og kennara í
viðkomandi skólum”.
Hugmynd skólanna er að koma á
eins konar keðjuverkföllum í
skólanum, sem tækju við eitt af
öðrum. Líkast til yrðu 3 daga verkföll
fyrir valinu og þá haldið áfram þar til
árangur næðist.
-SSv.
Hópur nemenda i Hamrahlíöarskólanum viröir fyrir sér skrif DB um „reglugeröarmáliö”.
„T0MT KJAFTÆÐIAÐ LOFT
NETSKERFK) SÉ ÓNÝTT’
— segir umsjónarmaöur video-sendinga íHamraborginni og er óhress
með ummæli forráðamanna Videoson
„Það er tómt kjaftæði að loftnets-
kerfið hjá okkur sé ónýtt,” sagði um-
sjónarmaður video-sendinga i
Hamraborg i Kópavogi er hann hafði
samband við DB í gær. Var hann
ósáttur við þau ummæli forráða-
manna Videoson í Dagblaðinu í
fyrradag þar sem þeir sögðu loftnets-
kerfið í Hamraborg allt meira og
minna úr lagi gengið.
„Við höfðum samband við annað
fyrirtæki, sem sér um uppsetningu á
myndbandakerfum og myndgæðin
eru allt önnur núna. Þetta er eins og
að bera saman svart og hvítt.” Ibúar
i Hamraborginni eru síður en svo
sáttir við ummæli forráðamanna
Videoson er þeir segja menn hafa
verið á móti myndböndunum frá
upphafi. Það sé engan veginn rétt.
Út yfir allan þjófabálk hafi þó
tekið í sjónvarpsþætti sl. föstudags-
kvöld þegar fulltrúi fyrirtækisins
lýsti því yfir að á þeirra vegum væri
ekki um neitt efni að ræða, sem tekið
hefði verið upp úr brezka sjón-
varpinu á sama tima og fyrirtækið
væri að sýna upptökur úr BBC,
jafnvel með auglýsingum og veður-
fregnum, út um hvippinn og
hvappinn.
-SSv.