Dagblaðið - 24.10.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981.
3
fi,S■ BHtí*%W* KJaIcíO nACAðC. Spurning
ujornmgar noiga noscas* dagsins
sonar á heimsmælikvarða
Fylgist þú með
erlendum fróttum?
— og brennið „Lífshlaupi” Kjarvals, segja þrír vinir
Þorleifur Hjálmarsson, Guðlaugur
Friðþórsson og Jón Trausti Haralds-
son skrifa:
Við mælumst eindregið til þess, að
Morthens
olli
straum-
hvörfum
í íslenzku
poppi
— skrifaraðdáandi
segir að áður en plata Bubba
Morthens, ísbjarnarblús, kom út,
hafi íslenzki poppbransinn verið
„steingeldur með alla sína skalla-
poppara í fararbroddi”.
DB-mynd: RagnarTh.
Bubbi
Helga Hóseassyni verði veitt lista-
mannalaun sem bezta listamanni sem
ísland hefur átt. Gjörningar hans eru
á heimsmælikvarða hvað snertir
mýkt og fegurð.
Einnig yrðu allir islendingar
stoltir ef komið yrði af stað söfnun
fyrir farandasfaltstyttu, sem véitt
væri þeim gjörningalistamanni, sem
bezt stæði sig á hverju ári og væri vel
við hæfi að hafa styttuna af Krosslafi
Ehovasyni og hans félögum og
átrúnaðarliði.
Og svo að við förum út í aðra
sálma þá væri það þakkarvert að
brenna „Lífshlaupið”, vinnustofu
Kjarvals heitins, þar sem það lítur út
fyrir að vera málingarslettur, sem
meistarinn hafi ekki haft pláss fyrir á
léreftinu. Þó væri sjálfsagt að bjarga
verðmætum og skrapa ofninn og
mála betur, því að hann er það eina
nothæfa úr „Lífshlaupinu”.
Raddir
lesenda
„Gjörningar hans eru á heimsmælikvarða hvað snertir mýkt og fegurð,”segja
Þorleifur Hjálmarsson, Guðlaugur Friðþórsson og Jón Trausti Haraldsson sem
leggja til að Helga Hóseassyni verði veitt listamannalaun.
DB-mynd: Bj.Bj.
ÍNoregi
Garri skrifar frá Noregi:
Nú hafa Utangarðsmenn misst
söngvara sinn, hann Bubba
Morthens og er það mikill missir.
Bubbi hefur verið aðalnúmer
Utangarðsmanna. Það var hann sem
kýldi þá upp.
Áður en plata Bubba, ísbjarnar-
blús, kom út fyrir rúmu ári, var
íslenzki poppbransinn steingeldur
með alla sína skallapoppara í farar-
broddi. En plata Bubba olli
straumhvörfum í íslenzku poppi.
Síðan hafa hljómsveitir skipaðar
ungum mönnum sprottið upp eins og
gorkúlur, öllum unnendum popps til
óblandinnar ánægju.
Það er engum öðrum að þakka en
Bubba Morthens. Það var hann sem
tók af skarið og fór að flytja ferska,
nýja tónlist. Ekki veit ég hvernig
Utangarðsmenn ætla sér að fylla
skarð Bubba, það er enginn barna-
leikur að taka við af honum, en
vonandi gengur allt vel fyrir þeim.
Sérstaklega vona ég að Bubba
farnist vel með nýju hljómsveitina
sína, hann á það skilið. Og vonandi
verður hann jafn vinsæll og áður, því
einu sinni Bubbi er alltaf Bubbi.
Þorleifur Hjálmarsson, Guðlaugur Friðþórsson og Jón Trausti Haraldsson telja ofninn vera eina verðmætið i „Lifshlaupi”
Kjarvals. DB-mynd: Einar Ólason.
Athugasemd f rá Vegagerð ríkisins
Gunnar Gunnarsson, lögfræðingur
hjá Vegagerð ríkisins, hringdi:
í Dagblaðinu sl. miðvikudag
skrifar Unnar Andrésson um lélegar
merkingar á vinnusvæðum Vega-
gerðarinnar og nefnir sem dæmi
framkvæmdir í nágrenni Fossvogs-
kirkjugarðs.
Vegagerð ríkisins vill i þessu
sambandi vekja athygli á því, að
framkvæmdir þessar eru ekki á
hennar vegum.
Hringiö í síma
270^
inillikU3og15’
eðasknfiö
Bfleigendur og verkstæði
Vorum að fá sendingu af dönsku undraefnunum frá K.M.
7*9*13 fyrir vínylmælaborð og gúmmílista. Gerir gamalt sem nýtt.
Bón, sem gerir gamalt lakk aftur glansandi. Áklæðahreinsir, tjöruhreinsir,
gluggaspray, lásaolía, ryðolía, vélahreinsir, handþvottakrem, sjampó. Gott verð.
Á CCpnH/ BÍLAMÁLUN FUNAHÖFÐA 8
/F UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN - SÍMI85930
Halldóra V. Steinsdóttir húsmóðir:
Lítið. Ég fletti yflrleitt yfir blöðin og
gef mér þá einn klukkutima á dag til
þess. En ég hef engan sérstakan áhuga
áerlendum fréttum.
Gunnar Þór Jóhannesson lagermaður:
Mest lítið. Ég hef mest lítinn tima til að
fylgjast með fréttum. Þó reyni ég að
lesa meira innlendar fréttir.
Theodóra Einarsdóttir: Ég fylgist
mjög lítið með erlendum fréttum, því
mér gefst sjaldan tækifæri til þess. Ég
reyni þó að fletta blöðunum daglega.
Birgir Ragnarsson lagermaður: Ég hef
lítinn tíma til að fylgjast með fréttum
yfirleitt. En ég geri það sem ég get.
Svava Slgurðardóttir skrifstofustulka:
Nei, alls ekki. Ég hef engan áhuga á
þeim. Ég fletti þó yfif blöðin þegar tími
gefst.
Þorgerður Aðalsteinsdóttir skrif-
stofustúlka: Ja, stöku sinnum. En ég
fylgist þó meira með innlendum
fréttum.