Dagblaðið - 24.10.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981.
7
DB-vinningshafi vikunnar, Leonhard Haraldsson, velur hjól I Fálkanum handa dóttur
sinni, með aðstoð Selmu Magnúsdóttur á smáauglýsingadeild DB.
__ . m DB-mynd: Kristján örn.
DB-vinnmgur i viku hverrí:
„Sjöára
dóttirin
fær hjólið”
„Sjö ára dóttir mín fær hjólið, það
gamla er að verða til skammar,” sagði
Leonhard Haraldsson, sem var svo
heppinn að fá DB-vinning vikunnar.
Var það að þessi} sinni hjól eftir eigin
vali að verðmæti allt að kr. 3.500 í
Fálkanum.
Nú er aðeins eftir að draga þrisvar.
Einn vinninganna sem verða í boði er
Crown stereosamstæða frá Radíóbúð-
inni (glæsilegt sett sem samanstendur
af útvarpi, kassettutæki, plötuspilara
og tveim hátölurum). Annar vinningur
verður myndsegulband, líka frá Radíó-
búðinni og sá þriðji hjól frá Fálkanum.
Nafn vinningshafa er dregið úr hópi
áskrifenda DB og birt á smáauglýsinga-
síðunni. Þegar hann hefur gefið sig
fram og leyst úr léttri spurningu varð-
andi smáauglýsingar DB fær hann af-
hentan vinninginn.
Leonhard hefur verið áskrifandi að
DB frá því að blaðið kom fyrst út fyrir
sex árum og er því vel að happinu kom-
inn. Hann sagðist yfirleitt aldrei vinna í
happdrættum þótt hann hefði lengi
spilað í mörgum þeirra. , ,En ég er tann-
læknir,” sagði hann og bætti við,
aðeins dapur á svip, — , ,ÆtIi það verði
ekki einhver hneykslaður á að ég skuli
verða svona heppinn núna. ”
Hann — eða réttara sagt dóttirin —
verður líklega að bíða nokkra daga
eftir hjólinu. Það eina sem til greina
kom — af DBS gerð — virtist heldur of
stórt. En minni hjól koma aftur í verzl-
unina eftir nokkra daga.
Það kom í ljós að faðir og dóttir
voru ekki alveg sammála um hvernig
hjólið ætti að vera. Sú litla, sem
bráðum verður átta ára, vildi tíu gíra
grip með bognu stýri.
En faðirinn hristi höfuðið yftr því.
„Bróðir hennar, sem er ellefu ára, fékk
í vetur fimm gíra hjól með beinu stýri
og nú fær hún þriggja gíra hjól með
beinu stýri líka. Bognu stýrin eru í
tízku, það veit ég vel, en ég og lögregl-
an erum alveg sammála um að bogin
stýri og margir gírar séu alltof hættuleg
fyrir krakka,” sagði Leonhard.
Þetta þótti okkur viturlega mælt (ís-
lendingar eru því miður ofarlega á
blaði hvað snertir slys á börnum í um-
ferðinni) og vonum að gæfan fylgi
þriggja gíra hjólinu frá Fálkanum og
DB.
-IHH.
Frægustu togarakaup íslandssögunnar:
Stimpilgjöld
gefin eftir
af 3 skipum
— Eftirgjöf in fellur til N-Þingeyinga og til eigenda
Snæf ugls SU 20 og Guöb jargar ÍS 46
í heimildarákvæðum fjárlaga-
frumvarpsins fyrir 1982 er m.a.
ákvæði um „að endurgreiða eða fella
niður stimpilgjöld af afsölum vegna
kaupa á ms. Snæfugli SU-20 og tog-
ara er Útgerðarfélag N-Þingeyinga
hf. hefur samið um kaup á í Noregi.
Einnig að endurgreiða eða fella niður
stimpilgjöld af veðskuldabréfum
vegna kaupa á framangreindum
tveimur skipum og vegna kaupa á
ms. Guðbjörgu ÍS 46 er séu að upp-
hæð jafnvirði hálfu kaupverði skips-
ins”.
Þá er og í heimildarákvæðunum
eftirfarandi heimild: „Að fella niður
eða endurgreiða stimpilgjöld af
skuldabréfum, sem skipasmíðastöðv-
ar gefa út til viðskiptabanka vegna
endurlána bankanna á erlendum
lánum, sem tekin eru með samþykki
Fiskveiðasjóðs til nýsmíði fiski-
skipa”.
Togarakaup útgerðarfélags N-
Þingeyinga eru einhver þau frægustu
i íslandssögunni. Urðu um þau lang-
ar og miklar umræður á þingi og í
Framkvæmdastofnun í fyrra. Var
fyrst gerður kaupsamningur um
gamlan togara en honum riftu selj-
endur og greiddi ísl. ríkið milljónir í
skaðabætur. Að því búnu fengu N-
Þingeyingar grænt ljós ríkisstjórnar á
nýsmíði togara í Noregi og það eru
gjöld vegna hans sem nú má fella
niður.
Engar skýringar fylgja heimildar-
ákvæðunum hvorki varðandi fyrr-
greindan togara né heldur Snæfugl
eða Guðbjörgu. -A.St.
KÚREKASTÍGVÉL
FYRIR
DÖMUR OG HERRA
\[0t
ðéW
Ht
49®/®°
S'349'00
Teg. 7007
Litur: Antik-brúnt leður
Stærðir: 36—43
i
I
s
jg
5
Skóverzlun Laugavegi 95. — Sími 13570.
, m Kirkjustræti 8.
Þorðar Péturssonar v/Austurvön. - s#m/ i4isr.
. : :
LEIKSTJORI
AÐALHLUTVERK
SYLVESTER
STALLONE
SYLVESTER
STALLONE,
TALIA SHIRE,
BURT YOUNG,
BURGESS
MEREDITH.
BÓNNUÐBÖRNUM
INNAN 12ÁRA
SYND KL. 5,7.20
og 9.30.