Dagblaðið - 29.10.1981, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1981.
DB á ne ytendamarkaði
4Þegar lihmpið !cr að stífna í ’mói-
inu er skrcyu með cggjasneiðum,
rækjuin og tiilli og no’kknim msk
aí hlaupi ansið yfir og látið' stífna
tii að fcsta skrantið.
/T Ki cr
vJ og tlí
:r köUlum i'iskinurn, vxkjum
llgreírmm raðað í rnöiið.
/ H1
O ku
Hiaupsoði.nu helk yfir og gcyuu á
köliium stað físskáp) |>ar til hlaup*
ið er hilístíft. f»á cr hvf hvolft
fat og horið frarn irvcð brauði og
mayouaisc cða sýrðum rjóma
Irragðbæuum incð sítrónusafa og
k« yddjurtum.
Tvær ungar Eyjamcyjar, Guðbjörg, Bmm ára, og Selma, niu ára, Ragnarsdætur,
afhentu verðlaunahafanum hin veglegu verðlaun sem hann hlaut fyrir að taka þátt
f heimilisbókhaldinu.
Vinsæl matreiðslubók
kemur út f þriðja sinn
3-MiUailimið laíu í kal; vatn. Síðait
tí.'kið upp úr þvi og Liætt. Fisk-
•'oði íicllt á það til ;tf bein-
iini cða nicð tcningura). DáiítHi at
soði iiclli í botninn á íóimi.
Ii’i.kflbkín ctu vafin sarnan og roð-
ið látið sniia inn. Ráðað jiéu á
pömui.
2 Vatnið. soðið i nokkrar niínúmr
með síuómisafa, piparkormira.
lái viðarblaði, .lauksnc-iðum. dilli
og jní s/ðan lit'llr yfir' fiskinn.
Soðið uð vægan hita í 10 niíii.
„Áttu von á gestum” nefnist
matreiðslubók sem Setberg gefur út.
Er þetta þriðja útgáfa af þessari bók,
en Guðrúnn Hrönn Hilmarsdóttir
hefur þýtt, staðfært og sannprófað
alla réttina.
Þetta er ákaflega falleg bók prýdd
litmyndum af öllum réttunum. Auk
þess eru myndir af því hvernig þá
skal matreiða. — Guðrún Hrönn
hefur þýtt tvær aðrar matreiðslu-
bækur sem Setberg hefur gefið út og
er mjög gott að matreiða eftir þeim
öllum.
í þessari þók, sem nú kemur út i
þriðja sinn er að finna ýmsa gesta-
rétti, eins og nafnið bendir til, súpu-
uppskriftir, uppskriftir af ýmsum
smáréttum, stórsteikum, ábætisrétt-
um og nokkrar brauðauppskriftir
eru í bókinni.
Við birtum hér mynd af einni
opnu, þar sem greint er frá
matreiðslu á fiski í hlaupi með
rækjum og harðsoðnum eggjum.
Má glöggt sjá hvað þetta er hentug
matreiðslubók.
„Áttu von'á gestum” kostar 198
kr. meðsöluskatti.
-A.Bj.
Fiskhlaup með rækjum
Að b»a til fiskhlaup er hrcint ekki eins míkillvancii og margur heldur. Noia rná
hvaða fhktegund sem er í hlaupið, c« hér skal rmrlt rneð rauðsprcttu eða lúðu.
heua er góður, í'allegur og svalandi sumarrétiur. lx>ririn fram' mcð bxauði og
mayonaise eða sýrðurri rjóma, bragðbæuum rnoð einhvcrjum góðum krycki-
jurtum, svo scm sýrðum gurkum. steinscliu eða dilli.
í réttinn þarf:
800 gr rauðsprcttuflök
eða aunargoður íiskur
500 gr rækjúr i skel
eða 200 gr lireinsaðav
I harðsoðið egg
tliJ!
TiJ að sjóða í:
J 1/ti i vam
I msk salt
safi úr i/2 sitrónu
10 hvtí pípárkorn
J lárvrðariauí
I laukur
dííl
í hlaupið:
8 dl íisksoð
8 biöð inatarlíin
Myndir eru af öllum réttum bókar-
innar og auk þess greinargóðar
lýsingar og myndir af tilbúningi allra
réttanna.
Vinningshafi ágústmánaðar:
HEIMILISBÓKHALD
í FJÖGUR ÁR
Meðaltalið yfir 300% hærra í
september en það var í október 1978
„Ég er búin að vera með i heimilis-
bókhaldinu frá því í upphafi í júlí
1978, þótt ég byrjaði raunar ekki fyrr
en eftir fyrstu vikuna í júlí það ár. Ég
var úti á landi og byrjaði þegar ég
kom heim,” sagði Elín Hróbjarts-
dóttir í Vestmannaeyjum, en hún er
vinningshafi ágústmánaðar í heimilis-
bókhaldi neytendasíðunnar. Elín er
þar með orðinn vinningshafi okkar í
annað sinn því nafn hennar var
dregið út i september í fyrra og þá
fékk hún matarútekt.
Yfir 343% hækkun
á fjórum árum
Við gáðum í heimilisbókhaldsbæk-
urnar okkar og þá kom í ljós að Eiín
hafði fyrst sent okkur seðil í október
1978. Meðaltalið hennar fyrir þann
mánuð var 157 kr. (15.697 gamlar
kr.) á mann. Ári seinna í okt. 1979,
var meðaltalið komið upp í 350 kr.
(34.966 gamlar kr.), hafði hækkað
um 122,75% á árinu. í október 1980
var meðaltal Elínar 421 kr. (42.112
gamlar kr.) Hækkunin aðeins
20,43% milli ára.
Við höfum ekki meðaltalstölur
Eiínar fyrir októbermánuð í ár, en í
september var meðaltal hennar 696
kr., eða 65,27% hærra en í fyrra.
Notar veggspjaldið
frekar
„Ég hef það fyrir reglu að skrifa
allt niður jafnóðum og ég kaupi
það”, sagði Elín. --—
„Ég hef notað bókina sem kom í
sumar en hins vegar finnst mér
hentugra að nota veggspjaldið og geri
það líka. Mér finnst mjög gott að vita
í hvað peningarnir hafa farið en er
ekki viss um að maður spari svo
mikið við að skrifa allt niður. Og þó,
maður eyðir ekki í neina vitleysu
þegar maður gerir svona grein fyrir
peningunum,” sagði Elín.
Daginn sem við ræddum við Elínu
í síma var hún að vinna í síldarsöltun,
sagðist gera það þegar slík vinna
byðist. Á vetnrna vinnur hún í fisk-
aðgerð og skúrar stundum í afleys-
ingum. Elin er gift Þráni Sigurðs-
syni sjómanni, en nú sem stendur
vinnur hann í löndunargengi. Þau
eiga þrjá syni, Sigurð Frans 15 ára,
Hallgrím 14 ára og Jóhann Helga 11
ára.
Stórkostlegur vinningur
— Og hvernig hefur svo vinnings-
gripurinn reynzt?
,, Hann hefur reynzt alveg stórkost-
lega vel. Þetta er mikið og gott tæki.
Þetta eru eiginlega fjögur tæki í einu,
mínútugrill, vöfflujárn, brauðrist og
steikarpanna. Tækið er svo fljótvirkt
að maður er varla búinn að snúa sér
við þá er maturinn tilbúinn í tækinu.
Ég hef notað það mjög mikið og
þakka kærlega fyrir þennan glæsilega
vinning,” sagðsi Elín Hróþjarts-
dóttir.
-A.Bj.
Verðlaunin voru Girmi grill, sem hægt
er að nota á fjóra mismunandi vegu.
Elfn er mjög ánægð með nýja Girmi
tækið sitt, sem hún segir vera mjög
fljótvirkt. Þar að auki er mjög gott að
hreinsa tækið.
DB-myndir Ragnar Sigurjónsson.