Dagblaðið - 29.10.1981, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
„/ litium telpum blundar fullþroska kona", segir Ijósm yndarinn. Myndln ar
greinilega undir áhrifum fré gömlum málverkum, sem sýna fagrar konur aö
stíga upp úr kerlaugum.
Brooke Shields tíu ára
— Marilyn
Monroe var
ekki eina
stjarnan sem
hófferil
sinn meö
nektarmyndum
Fyrir nokkru birtum við fréttir af
því að móðir Brooke Shields vildi
banna nektarmyndir sem teknar voru
af Brooke tíu ára gamalli. Brooke er nú
um það bil sextán ára og einhver bezt
launaða fyrirsæta í heimi.
Móðirin fékk myndirnar bannaðar,
en aðeins um tveggja mánaða skeið.
Þann tíma á hún að nota til að sanna að
hún hafi aldrei leyft birtingu mynd-
anna. Það eru nefnilega til skjöl, undir-
rituð af henni, þar sem hún veitir sam-
þykki sitt til birtingarinnar.
Playboy-pressan hafði fundið upp á
því að fá fjórtán vel þekkta ljósmynd-
ara til að taka kynæsandi myndir af
kvenfólki, ýmist klæddu eða berröss-
uðu. Þetta var svo gefið út í bók sem
hét „Sugar and Spice.”
Gary Cross, sá sem myndaði
Brooke, var sá eini sem valdi sér telpur
að fyrirmyndum. Þessi ljósmyndari tók
mikið tízkumyndir, en hafði áður lagt
stund á leikhúsfræði. Hann hafði mjög
gaman af að búa til eins konar leiksvið
utan um fyrirsæturnar sínar.
Hvað er klám og hvaö er list? Ljósmyndarinn Garry Gross, sem tók þessa
mynd af Brooke, tiu ára, ætiaöi sór að minnsta kosti ekki að búa tH grófa og
ruddalega mynd.
Nú stendur hann sem sagt í mála-
þrasi við frú Teri Shields. Það kann að
veikja málstað hennar, að myndirnar
af dótturinni héngu lengi í fínni skóbúð
á Fifth Avenue, Charles Jourdan, áður
en þær voru prentaðar í bókinni.
Hæpið er að það hafi verið algjörlega
móti vilja þeirra mæðgna.
Forseti
Vestur-
Þýzkalands
þrammar um
landiö
Vestur-þýzki forsetinn, Karl Carst-
ens, gekk nýlega um endilangt landið.
Var það liður í herferð til að vekja
þjóðina til umhugsunar um fegurð
lands síns og ágæti gönguferða.
Sjálfsagt hefur forsetinn farið krók-
ótta sveitavegi því ekki er skemmtilegt
að þramma eftir hraðbrautunum
frægu. En hvað sem um það er þá gekk
hann samtals 1129 kílómetra. Það sam-
svarar, því sem næst, því að maður
gengi frá Reykjavík suður og austur um
land og væri þá líklega nálægt Skaga-
firði á leiðarenda.
Karl var alls 45 daga á göngu, en
ekki samfleytt þó. Hann dreifði göngu-
dögunum yfir eitt ár.
,,En venjulegt fólk yrði miklu fljót-
ara en ég,” sagði Karl Carstens. „Það
þyrfti ekki að hlusta á ræður hjá bæj-
arstjórunum í öllum þorpum á leið-
inni.”
Vestur-þýzki forsetinn, Karl Carstens,
sagðist hafa tafizt á göngunni vegna
þess að hann þurfti að hlusta á ræðu-
höld hjá bæjarstjóminni í hverju ein-
asta þorpi.
NÝ
PLATA
ilNN/VIRTASTI Gj/TARLEIKARI LANDSINS
og sem lagasmiður er hartn hátt skrifaður. Nú sendir Björgvin frá sér aðra sólóplötu
______________________sína, Glettur. Björgvin syngur
lög sín sjálfur í jyrsta skipti
á plötu og tekst honum gletti-
lega vel upp. Aðstoðarmenn
Björgvins á plötunni eru
Ásgeir Óskarsson, Pétur
Hjaltested og MyronDove.
ÞAÐ ER ENGUM BLÖÐUM
UM ÞAÐ AÐ FLETTA
AÐ GLETTA ER GÓÐ PLATA.
BJÚRGVIN GÍSLASON Á FERÐ MEÐ FRIÐRYKI
• 29. okt. Höfn Hornafiröi (i kvöld)
• 30. okt. Egiisstaöir
• 31. okt. Reyöarfjöröur
• 1. nóv. Egilsstaðir
• 2. nóv. Seyðisfiörður
• 3. nóv. Neskaupsstaður
• 5. nóv. Vik 1 Mýrdal
SÍMI
85748
stainorhf
mKARNABÆR
SÍMI
HLJÓMPLÖTUDEILD
AUSTURSTRÆTI22
LAUGAVEGI 66. - GLÆSIBÆ 85055