Dagblaðið - 29.10.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1981.
11
Steinullarverksmiðja í Þorlákshöfn eða á Sauðárkróki:
Hvorugur kosturinn er fýsilegur
—fyrir ríkið til hlutdeildar, segir iðnaðarráðherra—f ramlengdur umþóttunartimi steinullarfélaganna
„Málið liggur þannig að hvorugur
kosturinn þótti fýsilegur að mati sér-
fræðinga iðnaðarráðuneytisins,
hvorki sá sem miðast við steinullar-
verksmiðju í Þorlákshöfn né heldur
hinn, sem gerir ráð fyrir staðsetningu
á Sauðárkróki,” sagði Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra í
viðtali við DB, er fréttamaður spurði
hann hvað liði athugun á aðild
rikisins að slíku fyrirtæki.
„Eins og þetta hefur verið lagt
fyrir eru áform þessara tveggja aðila
ekki ákvörðunarhæf varðandi hlut-
deild ríkisins,” sagði Hjörleifur.
Hefur bæði Jarðefnaiðnaði hf.,
sem er félag Sunnlendinga, og
Steinullarfélaginu hf. á Sauðárkróki
verið veittur umþóttunartími til 23.
nóvember næstkomandi til þess að
leggja fram haldbetri röksemdir, ef
þær mættu duga til þess að iðnaðar-
ráðuneytið leitaði eftir heimild
til aðildar ríkisins að stofnun hlutafé-
lags eða þátttöku í því til reksturs
steinullarverksmiðju áíslandi.
Þess má geta að ráð er fyrir því
gert að ríkið leggi fram 40% hluta-
fjár og heimamenn 60%, ef ráðlegt
þykir yfirleitt að hefja verk-
smiðjurekstur hér á landi til
framleiðslu steinullar.
-BS.
MIÐAÐ VH> BLONDUVIRKJUN
YRÐIÞETTA MJÖG FÝSILEGT
—segir
Þorsteinn
Þorsteinsson,
bæjarstjóriá
„Hér á Sauðárkróki hefur verið
miðað við litla steinullarverksmiðju
til þess að fullnægja þörfum
innanlandsmarkaðar,” sagði Þor-
steinn Þorsteinsson, bæjarstjóri á
Sauðárkróki, í viðtali við DB. Árni
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Steinullarfélagsins hf. var að heiman
er fréttamaður spurðist fyrir um
stöðuna í málinu hjá
Sauðkrækingum.
Lítil verksmiðja fyrir innanlands-
markað gæti framleitt um 5 þúsund
tonn á ári. Eins og DB skýrði nýlega
frá, miðast áform Sunnlendinga við
15 þúsund árstonna verksmiðju í
Þorlákshöfn.
„Við höfum auðvitað gert okkar
athuganir á markaðsmöguleikum
erlendis,” sagði Þorsteinn, „og þeir
hafa ekki freistað okkar.”
Hann kvað samkeppnina harða og
vaxandi, eftir þeim upplýsingum,
sem tœir hefðu. Með ýmsum for-
merkjum væru vissir aðilar þó að
freista þátttöku í framleiðslu
steinullar. Til dæmis hefðu Danir í
samvinnu við BP reist 40 þúsund
tonna verksmiðju á Wales í Bretlandi
í fyrra. Þar.væri nú heildarnýting á
steinullarverksmiðjum eitthvað á
milli 60 og 70% afkastagetu.
Þá væri verðið nokkuð breytilegt
eftir framleiðsluaðferðum og
framleiðslulöndum og af öðrum á-
stæðum. „Með tilkomu
Blönduvirkjunar teljum við veruleg-
an grundvöll fyrir lítilli verksmiðju
hér á Sauðárkróki,” sagði Þorsteinn
Þorsteinsson.
Sauðárkróki
Hann sagði að þótt
Blönduvirkjun, sem næsti áfangi í
raforkuframkvæmdum, væri ekki
skilyrði fyrir rekstri lítillar verk-
smiðju Iægi það dæmi að sínu mati
svo nærri að menn vonuðust
eindregið til að úr honum yrði og
skammt til ákvörðunartöku i því
máli.
-BS.
Þorkéll Valdimarsson (að neðan til hægri á myndinni) ávarpar borgaryfirvötd, embœttismenn ríkisins og blaðamenn I köldum og rökum Fjalakettinum I gœr: óá-
byrgir stjórnmálamenn á atkvœðaveiðum með gylliboð Ifiölmiðlum. DB-mynd: Kristján örn.
Þorkell Valdimarsson á blaðamannafundi:
FJALAKÖTTURINN ER FALUR
FYRIR SEXTÍU MILUÓNIR
—til 2. nóvember, eftir þann tíma er rétt að hætta að tala um eignir annarra
„Ég vil selja Fjalaköttinn og húsið
er falt Kvikmyndasafni fslands til 2.
nóvember nk. fyrir 6 milljarða gkr.,
eða 60 milljónir nýkróna,” sagði
Þorkell Valdimarsson á blaðamanna-
fund: sem hann boðaði til í ljóslausum
og óupphituðum kvikmyndasal Fjala-
kattarins í gær. Margir gestir voru
viðstaddir, borgarstjóri, þjóðminja-
vörður, fulltrúi ráðuneytis og fjöldi
embættismanna borgarinnar auk
annarra.
Þorkell sagði að hluti þessa
söluverðs væri sú skerðing á meðferð
fjármuna og eigna sem yfirvöld hefðu
valdið honum og öðrum.
Sagði Þorkell að yrði þessu tilboði
ekki tekið teldi hann stjórnmálamenn,
sem um nýtingu hússins ræddu nú,
óábyrga. Þeir væru með "gylliboð í
blaðaviðtölum til atkvæðaveiða en um-
ræður þeirra um nýtingu Fjalakattarins
væru óraunhæfar skýjaborgir, því
ekkert hefði verið rætt við hann sem
eiganda og ekkert virtist að baki því
t.d. að þarna yrði bækistöð Kvik-
myndasafns íslands, þó fjálglega væri
um slíkt rætt í blöðum.
Þorkell rakti í fundarbyrjun
sögufrægð hússins, drap á
„skattpíningu” á hendur eigendum
lóðar og húss og hvernig húsið síðustu
fjörutíu árin hefði haldizt í örlaga-
greipum skipulagsyfirvalda Reykja-
víkurborgar.
Erlendur Sveinsson, forstöðumaður
kvikmyndasafnsins, bar af sér ásakanir
um að hann hefði sagt í blaðaviðtali að
kvikmyndasafnið vildi kaupa húsið. Til
slíks hefði það ekkert bolmagn. Hann
kvað húsið hafa einstakt sögulegt gildi
sem kvikmyndahús og væru slíks fá
dæmi í heiminum. Kvikmyndasafnið
gæti, ef og þegar húsið væri uppbyggt,
útvegað myndir sem hæfðu sýningum í
því.
Knútur Hallsson, stjórnarformaður
kvikmyndasafnsins, kvað merkt mál
hér á ferð. Fagnaði hann þvi að málið
væri kynnt almenningi og stjórn-
völdum. Mikilsvert væri að málið
þokaðist í rétta átt, þó hægt gengi.
Kvaðst Knútur vona að með samstilltu
átaki næðist það markmið sem allir
gætu vel við uriað, líka Þorkell Valdi-
marsson.
Fram kom á fundinum að kvik-
myndasafnið hefur vakið athygli yfir-
valda borgar og ríkis á sögufrægð þessa
gamla húss og lýst áhuga á að kvik-
myndahús yrði þar varðveitt. Engar
undirtektir hafa við bréfum safnsins
borizt.
-A.St.
Föram
variega í
handritamál
viðSvía
— sagði Vigdís forseti
eftiraðhafa
handleikið
Uppsala-Edduna
„Að fá að snerta Uppsala-Edduna
var mikil og yndisleg reynsla,” sagði
Vigdis Finnbogadóttir forseti á fundi
með íslenzkum blaðamönnum í
konungshöllinni i Stokkhólmi í gær.
Hún var þá nýkomin úr heimsókn
til UppsaJa, þar sem hún m.a.
skoðaði gömul íslenzk handrit.
Aöspurð hvort hún teldi aÖ
tslendingar ættu að fara að huga að
handritamálum gagnvart Svíum
svaraði Vigdís að svör Svía væru
alltaf að hér væri um aðkeypt handrit
að ræða. Því horfði málið svolitið
öðruvisi við. Sagði forsetinn að fara
ætti mjög varlega i þessi mál.
Hinni opinberu heimsókn til
Svíþjóðar lauk í morgun. Konungs-
hjónin kvöddu Vigdísi við höllina en
síðan fylgdi Bertil prins henni út á
Arlandaflugvöll. Forsetinn og fylgd-
arlið héldu svo með SAS-flugvéi til
Kaupmannahafnar en þar hyggst
Vigdís dvelja fram á helgina.
-KMU, Stokkhólmi.
Harma verð-
lagningu á sfld
„Þó að vissulega hefði verið
æskilegt að geta boðiö betri kosti þá
er það tvímælalaust að ekki var unnt
að bjóða betur eins og mál standa
nú.” Svo segir í tilkynningu frá.Verð-
lagsráði sjávarútvegsins.
Þar segir ennfremur m.a.: „Sá
kostur, sem kaupendur síldar til
frystingar buðu upp á, var að
ákveðið yrði jafnaðarverð kr. 2.00
fyrir hvert kílógramm sildar. 1
samráði við sjávarútvegsráðuneytið
kæmi það á móti þeirri verðlækkun,
sem þetta hefur í för með sér, að
kvóti hringnótabátanna yrði allt að
275 lestir, eða með öðrum orðum, að
hver bátur ætti þess kost að fá sama
heildarverð fyrir aflann og áður
hafði verið ákveðið. Meðalverð i
fyrri verðlagningu hefur verið metið
á kr. 2.16, þannig að hér er um 16
aura verðlækkun að ræða, eða um
8%, sem yrði að fullu bætt með jafn-
mikilli aukningu áaflamagni.” -SSv.