Dagblaðið - 29.10.1981, Síða 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1981.
27
Sjónvarp
Róbert Arnfinnsson er Ole Bráden
varðstjóri, sem fær undarlegt og
óvenjuiegt mál í hendur.
DAGBOKIN—þáttur með dægurtónlist
íútvarpikl. 14.00:
KRÚSTJEFF, ELDJÁRN
0G VILHJÁLMUR
EINARSSON KOMA
ALLIR VK) SÖGU
í dag hefst nýr þáttur, Dagbókin, og
mun hann framvegis verða sendur út á
fimmtudögum frá 14.00—15.00.
Gunnar Salvarsson og Jónatan
Garðarsson munu annast hann í
sameiningu. Gunnar var áður með
„Nýtt undir nálinni” á föstudags-
kvöldum og Jónatan með „Hlöðuball”
á laugardagskvöldum, en þeir þættir
falla nú báðir niður.
„Dagbókin” verður með allt öðru
sniði en gömlu þættirnir. Þeir byggja
hana upp kringum útsendingardaginn.
í dag er til dæmis þjóðhátíðardagur
Tyrkja, og þá spila þeir lag frá því
landi og upplýsa hverju Tyrkir fagna
þennan dag. Svo fletta þeir upp i
rokkdagatalinu og komast að því að
Hank Marvin gítarleikari í Shadows
varð fertugur í gær, og þá er að sjálf-
sögðu leikið lag eftir hann.
Mörgu fleiru finna þeir upp á. Þeir
skoða blöð frá þessum degi, tuttugu
ára gömul. Þegar þeir sjá að þá var eitt
aðalmálið ræða Krústjeff um vonzku
Stalíns þá spila þeir „Nótt í Moskvu”.
Ekki aðeins með hljómsveit Svavars
Gests og Ragga Bjarna, heldur einnig í
rússnesku frumútgáfunni, en hana
hefur Haukur Morthens átt í
plötusafni sínu, síðan hann endur fyrir
löngu sótti Heimsmót æskunnar í
Rússíá.
Þá spjalla þeir Jónatan og Gunnar
við gest vikunnar, sem að þessu sinni er
Vilhjálmur Einarsson skólameistari.
En um þessar mundir, fyrir tuttugu
árum, setti hann heimsmet í hástökki
— án atrennu — á innanhússmóti IR.
Auk þess munu þeir félagar spila
heilmikið af nýrri dægurtónlist í
þættinum, þar á meðal þrjú lög, sem
íslenzkar hljómsveitir hafa samið við
texta eftir skáldið Þórarin Eldjárn.
-ihh.
AÐ F0RTÍÐ SKAL HYGGJA—útvarp kl. 11,00 í fyrramálid:
Á UNDAN SJÓNVARPI0G
GRAMMÓFÓNIVAR
GVENDUR DÚLLARI
Gunnar Valdimarsson mun í
fyrramálið flytja frásögu um
Guðmund dúllara, þennan
einkennilega skemmtikraft, sem
ferðaðist um sveitir landsins og
skemmti fólki m.a. með því að herma
eftir lækjarniði. Sagan er skráð af
Þorbergi Þórðarsyni í ævisögu Árna
Þórarinssonar prests.
Guðmundur dúllari er sagður hafa
verið af ríku fólki kominn. Ungur
fékk hann heilabólgu og var nánast
frá viti og rænu í tvö ár. Þegar hann
rankaði við sér fann hann upp þessa
sérstæðu list, dúllið, og það sem eftir
var ævinnar flakkaði hann milli bæja
og framdi þessa kúnst. Hann dó i
byrjun fyrra stríðs á Barkarstöðum i
Fljótshlíð með nafn Símonar Dala-
skálds á vörunum. Þann mann taldi
hann mestan meistara veraldar.
Jóhann Sigurðsson leikari, sem
nýverið sló í gegn sem ,,J6i” í
samnefndu leikriti Kjartans Ragnars-
sonar í Iðnó, tekur að sér að líkja
eftir Guðmundi. Hann tónar, kveður
rímur og síðast en ekki sízt sprcytir
hann sig á dúlliuu. Því lýsti
Guðmundur sjálfur sem eftirlikinguá
gúlgurhljóði lækjar undir holbakka.
Á þeim grammófón- og sjónvarps-
lausu tímum var það kærkomin
tilbreyting, þegar dúllarinn kom í
heimsókn. -ihh.
Jóhann Sigurðsson ætlar að tóna, kveða rimur og dúlla i þætti Gunnars Valdi-
marssonar f fyrramálið. DB-mynd: Einar Ólason.
Þeir Jónatan Garðarsson t.v. og
Gunnar Salvarsson, sem áður voru með
sinn hvorn þáttinn, slá sér nú
saman um „Dagbókina” og fara
myndariega af stað.
DB-mynd: Einar Ólason.
SERTILB0Ð
Teg. 15
Utur: fíautt leður/rautt rúskinn
Stærðir 38 og 39
Áðurkr. 288,70 a
✓
Núkr. 149,95
Skóverz/un
Þórðar
Péturssonar
Kirkjustræti 8
Sími 14181 — Póstsendum
Herdis Þorvaldsdóttir leikur
Femöndu gömlu Vide, sem fremur
„afbrot” til að gleðja aðra.
Um kvölddagskrána er það annars
að segja að kl. 20.05 les Steindór
Hjörleifsson smásögu eftir Guðmund
G. Hagalín, „Tófuskinnið”. Þessi saga
er rituð fyrir allmörgum arum, en
einmitt um þessar mundir á höfundur
sextíu ára skáldaafmæli. Fyrsta bók
hans, Blindsker, kom út árið 1921.
Síðan hefur hann skrifað fjölda bóka
og sú nýjasta kom út í þessari viku og
heitir „Þar verpir hvítur örn”.
Að henni lokinni, kl. 20.30 verður
útvarpað fyrri hluta sinfóníutónleika í
Háskólabíói. Þar verða flutt verk eftir
Bruch og Chopin, bæði fyrir tvö píanó
og hljómsveit. Annar píanóeinleikarinn
er Anna Málfriður Sigurðardóttir frá
ísafirði. Er þetta í fyrsta sinn, sem hún
spilar með hljómsveitinni í Reykjavík.
Hinn píanóleikarinn er frægur Banda-
ríkjamaður, Martin Berkovsky.
Að útvarpsleikriti loknu, kl. 22.35,
verða Auður Haralds og Valdís Óskars
með sinn bráðfyndna þátt „Án
ábyrgðar” og að honum loknum, kl. 23
geta menn svifið inn í draumalandið
við ljúfa „Kvöldstund” Sveins Einars-
sonar, sem nú er komin aftur á dagskrá
eftir sumarhlé.
-ihh.
Flutt verður smásaga eftir Guðmund G. Hagalín. Nú eru rétt sextfu ár siðan hann gaf
út sina fyrstu bók. J
N0KKUR ATRIÐIA
DAGSKRÁ KVÖLDSINS